Morgunblaðið - 31.12.1983, Side 30

Morgunblaðið - 31.12.1983, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 Myndlist Valtýr Pétursson Fyrir ári hófst mikið bókaflóð um listamenn og verk þeirra hér á landi. Það voru liðin nokkur ár, frá því er Helgafell lét frá sér fara nokkrar bækur um ástsæl- ustu listamenn okkar, og svo allt í einu rann af stað sú skriða, sem enn rennur, og vonandi sér ekki fyrir endann á. Ég verð að játa, að sumar þessar bækur hef ég ekki handleikið, og því verður hér ekki um neinn samanburð að ræða, hvorki á útliti þessara bóka né texta þeirra. En rétt fyrir hátíðir barst mér í hendur bókin um Þorvald Skúlason, sem þessar línur eru um. Björn Th. Björnsson hefur skrifað texta þessarar bókar og um leið valið myndir til birt- ingar en hvort fleiri hafa verið þar í ráðum, er ekki greint á blöðum bókar þessarar. Ekki er þó ólíklegt að listamaðurinn sjálfur hafi þar haft hönd í bagga með myndvali. Hvað um það, þarna er á ferð sérstaklega eiguleg og falleg bók, og það mætti segja mér, að aðrar bækur af þessu tagi, er út komu nú um jólin, hafi ekki jafn merkilegum listaverkum á að skipa og bókin um Þorvald. Það er alkunna, hver snillingur Þorvaldur Skúla- son er á sínu sviði og hve fram- arlega hann hefur staðið í mynd- sköpun aldarinnar hér á landi. Hann hefur að vísu verið mjög umdeildur listamaður og kemur það vel fram í texta Björns Th. Það fer heldur ekki milli mála, hvert framlag Þorvalds hefur verið í nútímamyndlist hér á landi og hver hlutur hans hefur verið, þótt víðar sé leitað en hér á landi. Þessi bók gefur ágæta mynd af Þorvaldi sem málara, allt frá því er hann leggur út á listabrautina og þar til hann hefur öðlast þá nafnbót að vera NESTOR þeirra myndlistar- manna, sem einna mest hefur að kveðið á seinni árum. Eins og allir vita, sem til þekkja, hefur sá er þessar línur ritar verið einn af aðdáendum Þorvalds Skúlasonar sem mál- ara um langan aldur. Með hverju ári sem liðið hefur virðist áhugi og virðing fyrir þessum einstaka málara hafa vaxið jafnt og ört með þeim, sem honum hafa verið samtíða og notið hafa verka hans. Það eru yfir áttatíu lista- verk í þessari bók, og ekki er gott að gera upp á milli þeirra. Hvert einasta verk, sem eftir Þorvald liggur, hefur eitthvað til síns ágætis, en hér er eins og svo oft áður um mikil listaverk, að það liggur ekki alltaf í augum uppi, hvert er gildi einstaka verks. Hér þarf að skoða vel og vand- lega og helzt að þekkja aðstæður allar: Undir hvaða kringum- Elcktra. stæðum listaverkið hefur orðið til og hverjar virðast helztu ástæður fyrir tilurð þess, þjóðfé- lagslegar aðstæður ásamt per- sónulegri innlifun á aðstæðum og umhverfi. Hér koma fleiri en ein ástæða til greina hjá jafn viðkvæmum listamanni og Þor- valdur Skúlason er. Margt af þessu kemur að vísu fram í texta Björns Th., og er texti þessarar bókar nokkuð frábrugðinn öðr- um álíka textum, hvað þetta at- riði áhrærir. Margir þeir, sem skrifa slíkar bækur, eiga það til að fara svo í fræðilegar útskýr- ingar, að texti þeirra verður lítt læsilegur og minnir helzt á skólaritgerðir. En Birni tekst að skila ritmáli sínu á sinn per- sónulega og læsilega hátt og laumar á köflum svolítið skringilegum atvikum inn f lesmálið. Má sem dæmi um það nefna kaflann um viðureign Jón- asar frá Hriflu við listamenn á sínum tíma. Það er annars óþarft að ræða um texta 3jörns Th. hér, því að allir, sem af list- um hafa spurnir í nútímanum, þekkja orðkynngi og skáldlegan stíl þessa mikilvirka rithöfund- ar. Persónulega finnst mér vanta ýmis verk í þessa bók um Þor- vald. Það kemur til að mynda einkennilega fyrir sjónir, að að- eins eitt listaverk í eigu Lista- safns íslands skuli vera valið, en safnið mun eiga nær fjörutíu verk eftir Þorvald og þau ekki af verri endanum. Þorvaldssafn (Listasafn Háskóla íslands) á megnið af þeim verkum, sem í bókinni er að finna, og er það hlutur af gjöf Sverris Sigurðs- sonar og konu hans, Ingibjargar. Það er því vart ofsagt, að nokkuð þröngt hafi verið leitað fanga í þessa bók, og Listasafn ASÍ á þarna aðeins eitt verk. Það er því ekki óeðlilegt, að manni detti í hug, að hér sé fyrst og fremst verið að kynna Þorvaldssafn í Listasafni Háskóla íslands. Og ekki fyrir löngu sá ég á vegg heima hjá listamanninum ein- hverja mögnuðustu mynd, sem ég hef séð eftir Þorvald Skúla- son, og ekki er hún í þessari bók. Utlit þessarar bókar er útgef- anda til mikils heiðurs og vart við öðru að búast, þar sem Haf- steinn Guðmundsson er að verki. Ég held, að segja megi, að flest verk í þessari bók hafi komið vel fram í prentun, og texti er smekklega upp settur. I fáum orðum sagt: Þetta er ein falleg- asta bók af sínu tagi, sem út hef- ur komið á íslandi og hvernig á annað að vera, þegar jafn stór- brotinn málari á í hlut og Þor- valdur Skúlason. Áramótatónleikar Tónlist Jón Asgeirsson Við áramót er yfirskrift tón- leika íslensku hljómsveitarinn- ar, sem fram fóru í Bústaða- kirkju sl. fimmtudag við hús- fylli. Tónleikarnir enduðu á sam- söng hljómleikagesta og félaga úr Söngsveitinni Fílharmonía, en kammersveit undir stjórn Kurt Lewin lék undir. Þetta er góður siður og án mikils kostn- aðar mætti rita sálmalögin ein- rödduð með stórletruðum texta og ganga svo ríkt eftir að allir syngi „fullum hálsi". Fyrsta verkið á tónleikunum var Lýrísk svíta eftir Maurice Karkoff. Svítan er í fjórum þátt- um, ekki veigamikil í gerð en laglega unnin og var vel leikin. Eftir Herbert H. Ágústsson var leikið gamalt verk, frá því um 1950, samið fyrir strengjasveit og horn. Það var fróðlegt að heyra þetta rúmlega þrjátíu ára verk, sem er áheyrilegt og var ágætlega flutt af Þorkeli Jóels- syni. Sem smá milliþáttur var leikin fantasía fyrir fiðlu og hörpu, eftir Saint-Saéns, Laufey Sigurðardóttir lék fiðlueinleik- inn en Elísabet Waage á hörp- una. Elísabet stundar nú nám í hörpuleik í Hollandi og svo sem marka má af leik hennar í þessu litla verki, er gott til þess að vita, að von sé á góðum íslensk- um hörpuleikara, þar sem Elísa- bet Waage er. Eftir þetta létta millispil lék Martial Nardeau einleik á piccolo-flautu, í konsert eftir Vivaldi. 1 efnisskrá er sagt að Vivaldi hafi samið fyrir „flag- eolet“-flautu, sem sé eins konar forveri piccolo-flautunnar. Viv- aldi samdi fyrir blokkflautu og litla blokkflautan, sem hljómaði áttund ofar, var kölluð „piccolo" en samkvæmt Willi Apel er „flageolet" rangnefni. Réttilega hefði því átt að leika konsertinn á „litlu" blokkflautuna. Hvað sem því líður, var leikur Nard- eau mjög skemmtilegur og leik- andi, einkum í síðasta kaflanum. Lokaverkið á tónleikunum var Nocturne op. 60 eftir Britten. Einsöngvari með hljómsveitinni var Jón Þorsteinsson óperu- söngvari. Britten samdi mörg söngverk og hafa nokkur þeirra náð miklum vinsældum og eru talin með bestu verkum hans. Jón Þorsteinsson ópcrusöngvari Nocturnurnar eru ekki meðal vinsælustu söngverka hans en þykja þó bera þess merki, hversu vel Britten kunni að tónsetja enskan texta. Verkið er erfitt í söng og var flutningur Jóns Þorsteinssonar frábær, söngur- inn svo léttur og leikandi, sem aðeins er á valdi bestu söngvara. Tónleikarnir voru persónu- legur sigur fyrir Jón Þorsteins- son. Stjórnandinn að þessu sinni var Kurt Lewin, sem unnið hefur gott starf í Svíþjóð sem kamm- ertónlistarmaður, leiðbeinandi og stjórnandi kammerhljóm- sveita. Stjórn tónleikanna lék í hendi hans, án alls leikaraskap- ar, svo að lá við naumt, að vart yrði við hann. Það var auðheyrt að hér var á ferð góður tónlistar- maður. Aths.: Þátturinn um Jólaóratorí- una í blaðinu í gær er eftir Jón Ásgeirsson en ekki Jón Þórar- insson eins og misritaðist. Þá var TÓNLISTAR-þátturinn einnig rangt merktur. Biðst blaðið velvirðingar á þessu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.