Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 5
FRÉTT AGETRAUN MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 c) breskur togarasjómaður um ósigurinn í landhelgismálinu c) biskupinn yfir íslandi við setn- ingu kirkjuþings d) forseti Islands í opinberri heimsókn í Frakklandi 20. „Gullskipsmenn“ hófu að bjarga Het Wapen van Amsterdam á Skeið- arársandi. Þegar til kom reyndist sandurinn hafa að geyma: a) ráð við efnahagsvanda Islend- inga b) skipið án gullsins c) þýskan togara frá því um alda- mótin d) gullið en ekki skipið 21. „Leikarar verða að lifa við slúðrið“ sagði: a) ónefndur alþingismaður b) sálfræðingur eftir rannsókn á sálarkreppu leikara c) leikarinn Ken Kercheval sem leikur Barnes í Dallas og heim- sótti ísland á árinu d) rithöfundur eftir frumsýningu leikverks eftir sig 22. Ný ríkisstjórn tók við í maí. Megin- viðfangsefni hennar er: a) að hafa hendur í hári þeirra sem eru ábyrgir fyrir efnahagsvanda þjóðarinnar b) að vinna bug á verðbólgunni c) að sitja sem lengst d) að veiða síðasta golþorskinn. 23. Ný starfsemi hóf göngu sína í elsta húsi borgarinnar, Aðalstræti 10. Um er að ræða: a) byggðasafn með minjum frá tíma Innréttinganna b) kaffihús c) búningsherbergi fyrir þá sem iðka skautaíþróttina d) leiktækjasal 24. Á kirkjuþingi sem haldið var í október kom upp allsérstæð deila. Deiluefnið var: a) leturstærð á Biblíunni b) klæðnaður klerka við guðs- þjónustur c) uppröðun sálma í Sálmabók- inni d) beyging Jesúnafnsins 25. Ný tegund af veiki, sem vel var þekkt áður fyrr hér á landi, fannst á árinu. Um var að ræða: a) sullaveiki b) taugaveiki c) verðbólgu d) höfuðsóttarveiki 26. Sveit fslendinga stóð sig vel í Bandaríkjunum í sumar. Hún stóð sig vel í: a) fegurðarsamkeppni b) skák c) boðhlaupi d) sundi 27. Deilur brutust út innan verka- mannafélagsins Dagsbrúnar á árinu. Þær stöfuðu af: a) ákvörðun launa Guðmundar jaka b) stöðugum ferðalögum þess sama á allsherjarþing Samein- uðu þjóðanna í New York c) nánu samstarfi hans við ríkis- stjórnina d) ráðningu nýs framkvæmda- stjóra 49. Myndin er úr a) moto-cross c) síðastaleik b) prófkjöri d) ofurhugum 50. Framkvæmdirnar á myndinni eru frá a) virkjunarframkvæmdum við c) björgun gullskipsins Kvislaveitu d) fyrstu skóflustungunni að nýju b) byggingu fiskiræktarlóns fyrir alþingishúsi norðan 28. Ungur maður sat inni f hegningar- húsinu á Skólalvörðustíg í stuttan tíma í sumar vegna þess að hann hafði ekki innt af hendi greiðslu sektar. Hann var sektaður vegna þess að: a) hann treysti ekki ríkisstjórn- inni til þess að leysa efnahags- vandann b) hann fór út að viðra hundinn c> hann varð ástfanginn af dóttur lögreglumanns d.) hann neitaði að greiða stéttar- félagsgjöld 29. „Ég kem aldrei aftur,“ sagði: a) bandarískur efnahagssérfræð- ingur sem hafði verið að kynna sér efnahagsmál á íslandi b) forstöðumaður íslandsrallsins að þvi loknu c) ólafur Ragnar þegar hann féll útaf þingi d) kona nágrannans 30. Nýr íslenskur þúsundkrónaseðill er í undirbúningi. Hann verður: a) fjólublár b) grænn og gulur c) verðbólginn d) rauður 31. „íslendingar hugsa of mikið um pen- inga“ er haft eftir: a) greinargerð viðskiptadeildar Háskóla íslands um efna- hagsmál b) bandarískum efnahagssérfræð- ingi c) Jean-Claude Bertrand for- stöðumanni íslandsrallsins d) Dönum 32. Sprengja sprakk við hús í Reykjavík- urborg á árinu. Húsið var: a) Alþingishúsið b) bandaríska sendiráðið c) seðlabankabyggingin d) sovéska sendiráðið 33. Á árinu var frumsýnd kvikmyndin Nýtt líf. Hún fjallar um: a) framtíð íslendinga b) mann frelsaðan undan oki áfengisbölsins c) verbúðalíf í Vestmannaeyjum d) hið ljúfa líf 34. Sementsverð lækkaði um 13% um mitt sumar. Það var vegna: a) ráðstafana ríkisstjórnarinnar til aðstoðar húsbyggjendum b) brennslu kola í stað olíu c) minnkaðs flutningskostnaðar d) niðurfellinga söluskatts af steypubílum 35. íslendingur gat sér frægðarorð á Edinborgarhátíðinni í Skotlandi fyrir einleik. Það var: a) Albert Guðmundsson b) Árni Johnsen c) Bessi Bjarnason d) Viðar Eggertsson 36. Safnað var undirskriftum á árinu því til stuðnings að bráðabirgðalögin yrðu afnumin. Undirskriftirnar sem söfnuðust voru: a) 62 þúsund b) 12 þúsund c) 34 þúsund d) illa skrifaðar 37. Á árinu var óskað ógildingar hjóna- bands á þeirri forsendu: 37 a) að giftingin hefði farið fram í ^ gríni 1 b) að sá sem saman gaf hefði ver- ið skeggjaður c) að hjónabandið væri ástlaust d) að viðkomandi hefði ætlað að giftast öðrum - ' 38. : íslendingur tók þátt í sterku skák- < móti í Sviss og sigraði. Hann heitir: 1 a) Friðrik ólafsson b) Margeir Pétursson c) hvíti riddarinn d) Jón L. Árnason 39. Háttsettir menn sóttu íslendinga heim á árinu. Einn þeirra var: a) Margaret Thatcher b) Ronald Reagan c) Francois Mitterrand d) Petez de Cuellar 40. Samtök voru arfleidd á árinu. Þau urðu að uppfylla það skilyrði að: a) starfa í anda Gamla testa- mentisins b) leitast við að lifa í sátt við náungann c) starfa í anda Marx og Leníns d) afneita vísindalegum lögmál- um söguþróunarinnar 41. „Ekki hægt að afvopna ísland nema afvopnað sé á fleiri stöðum," sagði: a) fulltrúi Kvennaframboðsins fyrir kosningar b) dómsmálaráðherra um þá hugmynd að skilja fallbyssu óðins eftir í landi c) fulltrúi Alþýðubandalagsins fyrir kosningar d) í greinargerð frá Skotfélaginu um veitingu byssuleyfa 42. Opnunartími verslana í höfuðborg- inni var í sviðsijósinu á árinu og var honum að lokum breytt. Breyt- ingarnar voru í þá átt að: a) stytta hann b) hafa opið á kvöldin, en lengja ekki tímann í heild c) lengja hann d) banna algerlega að hafa versl- anir opnar 43. Kvennaframboð á landsvísu litu dagsins Ijós á árinu. Ástæðan var: a) þrá eftir sviðsljósinu b) rýr hlutur kvenna í stjórnmál- um c) efnahagsmálastefna hagsýnu húsmóðurinnar d) vonbrigði í ástamálum 44. Bandalag jafnaðarmanna fundaði síðari hluta ársins. Hvernig skil- greina bæri hreyfinguna olli deilum að fundinum loknum. Skilgreiningin var þannig orðuð í fréttum að um væri að ræða: a) flata hreyfingu b) lárétt grasrótarsamtök c) lóðrétt rótarsamtök d) hringlaga regnhlífasamtök 45. íslandssögukennsla olli deilum þeg- ar líða tók á árið. Var það vegna þess að: a) taka átti upp kennslu i Dan- merkursögu í stað Islandssögu b) vísindaleg söguþróun hafði tek- ið undir sig hliðarspor c) kennarar töldu rétt að heimilin sæu um kennsluna d) sleppa átti kennslu i ákveðnum tímabilum. Lausn á bls. 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.