Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 14
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 Guðmundur Einarsson, formaður þingflokks Bandalags jafnaðarmanna: Sárast að skynja tregðu til nýsköpunar legt væri að varðveita tunguna og gæta sögunnar og þar með grund- vallarforsendu þess að við köllum okkur þjóð. Ein meginskýringin á vandanum í dag felst í þjóðfélags- gerðinni — neyslukapphlaupinu þar sem gömlum verðmætum er hent út í hafsauga einungis vegna þess að þau eru frá í gær. Önnur skýring á vandanum felst í herset- unni og þeim djúpstæða ágrein- ingi sem nú er uppi um íslands- sögu síðustu áratuga. Ráðandi öfl hafa knúið fram utanríkisstefnu sem hefur ofboðið svo sjálfstæð- isvitund þjóðarinnar að eitt helsta ágreiningsmálið er söguskilningur síðustu fjögurra áratuga. Ekkert er eðlilegra en að menn hafi skipt- ar skoðanir, en skortur á sögu- legum skilningi og áhuga, sýnir að valdaöflin sem knúðu fram herset- una samkvæmt skipunum frá Bandaríkjunum, hafa gengið of langt. Þau hafa misboðið sögu- skilningi þjóðarinnar og þar með stofnað í hættu einni þeirri rót sem á að næra þjóðarstofninn sjálfan. Auk þessara grundvallarvanda- mála er ljóst að nauðsynlegt er að efla sögukennslu í skólum og auka áherslu á íslenskunám. Þá ber að bæta aðstöðu til námsgagnagerð- ar svo íslandssagan verði lifandi viðfangsefni. Má þá ekki banna umræður um ágreiningsmál eins og íhaldsöflin hafa reynt á liðnum árum með linnulausum ofsóknum gegn þeim kennurum sem hafa reynt að dýpka skilning nernenda á umhverfi sínu með því að opna ágreiningsefni til glöggvunar. En allt um það: Umræðan um íslenskukennsluna er góð. Hún er til marks um það að þeir sem kærulausastir hafa verið and- spænis erlendum áhrifum eru að vakna til lífsins. Það er áreiðan- lega ekki of seint. 5. Spurningin er rangt fram sett; nær væri að segja: Friður hefur verið í þessum heimshluta þrátt fyrir hernaðarbandalögin. íslend- ingar eiga annan kost betri en þann að leggja allt sitt í hendur stórveldanna. íslendingar eiga þess nú kost að taka frumkvæði í friðarumræðunni og að stíga fram á þeim forsendum sem friðar- hreyfingarnar hafa markað. Ég er sannfærður um að yfirgnæfandi meirihluti íslendinga er fylgjandi þeim áherslum sem friðarhreyf- ingin hefur beitt sér fyrir og það er athyglisvert að einmitt Morg- unblaðið hefur verið í stöðugu stríði við friðarhreyfinguna, eink- um talsmenn kirkjunnar, sem hafa beitt sér í þessum efnum á undanförnum misserum af vax- andi þunga. En auk þess er það rangt að friður hafi verið „tryggður" í þess- um heimshiuta. Man Morgunblað- ið, spyrillinn, ekki lengur land- helgisstríðin þegar NATO-her- skipin réðust á íslenska fiskimenn að störfum? Þá réðist NATO-þjóð gegn NATO-ríki. Hvað um Grikk- land og Tyrkland? Aðildin að NATO hefur engan veginn „tryggt" friðinn. Þvert á móti — vígbúnaðarkapphlaup stórveld- anna ógnar heimsfriðnum og þeir þjóðarleiðtogar sem hneigja sig fyrir stórveldunum um þessar mundir og afsala sér rétti til frumkvæðis taka beinan þátt í vígbúnaðarbrjálæðinu. Utanríkis- ráðherra íslands studdi ákvörðun NATO um uppsetningu meðal- drægra eldflauga í Evrópu. Þar með var hann að skipa íslandi á bekk með þeim þjóðum sem lengst vilja ganga í vígbúnaði. Það var athyglisvert að utanríkisráðherra vildi ekki að Alþingi fjallaði um afstöðu hans á utanríkisráðherra- fundi NATO. Hann kom því þang- að eins og fulltrúi einræðisríkis sem hefur þjóðþing aðeins að nafninu til. Ég tel að brýnasta verkefni landsmanna í utanríkismálum sé nú aö sameina sem flesta um nýja utanríkisstefnu sem byggist á for- sendum friðarhreyfingarinnar. Ég er sannfærður um að yfirgnæf- andi meirihluti þjóðarinnar styð- ur slíka utanríkisstefnu og hafnar þar með hernaðarstefnu núver- andi ríkisstjórnar. 1. Þegar spurt er hvort á næsta ári takist að halda áfram á sömu braut í baráttunni gegn verðbólgu vakna enn fleiri spurningar. Þýðir „á sömu braut", að barátt- an verði áfram háð a) með sviptingu samningsréttar b) með beitingu bráðabirgðalaga c) með rosafengnum áróðri emb- ættismanna og skrifstofuveldis ríkisstjórnarinnar d) með þeim einhliða áróðri að höfuðorsök efnahagsvandans sé kröfupólitík launþega og bí- lífi þeirra e) með einhliða aðgerðum í kaup- gjaldsmálum án þess að nokk- uð örli á nýsköpun í fyrir- tækjarekstri og atvinnumálum. Ef „á sömu braut" þýðir þetta og annað sem ríkisstjórnir hafa dregið upp úr handraðanum, hiýt ég að svara því að ég tel, að vita gagnslaust sé að halda áfram á sömu braut. Þessi braut leysir ekki efnahagsvandann til fram- búðar. Þessi braut gefur stjórn- völdum lag um stundarsakir á kostnað launþega. Við undangengin kauprán tókst ríkisstjórnum ekki að koma stjórn á efnahagsmálin. Það bendir því miður fæst til þess að þessari rík- isstjórn muni takst að nýta sér lagið til að gera hluti sem skipta máli til frambúðar. I glímu okkar við verðbólguna, hefur úrræðið alltaf verið það sama, þ.e. að skerða laun almenn- ings. Þegar þessum aðferðum hef- ur verið beitt á gróflegasta hátt á undanförnum 20 árum hafa fylgt harðvítug átök og sviptingar á vinnumarkaði. Þessu hafa fylgt gífurlegar sveiflur á kaupmætti og lífskjörum, miklu meiri en þær sveiflur sem á sama tíma hafa orðið á þjóðartekjum. Deilur um lífskjör og tekju- skiptingu setja auðvitað sífellt mark sitt á samskipti aðila vinnu- markaðarins og á starfsemi ríkis- stjórna. En það er misjafnt og á mannanna valdi hversu heiftar- legar þær eru. Ef við lítum í kringum okkur sjáum við að harkan í slíkum deil- um er mismikil eftir þjóðfélögum. Pólland er dæmi um þjóðfélag, sem er í sárum vegna átaka um lífskjör og hugmyndafræði. í Bretlandi eru landlægar illvíg- ar deilur á vinnumarkaði, sem lík- lega hafa valdið þjóðinni óbætan- legu tjóni. En annars staðar hefur um langt skeið ríkt friður á vinnu- markaði. Nærtækust dæmi um það eru Svíþjóð og Noregur. Þar tóku aðilar vinnumarkaðarins höndum saman um mótun megin- stefnu í þróun framleiðslu og lífskjara. Skyldi þar hafa verið beitt þeim aðferðum sem taldar voru upp hér að framan í liðum a-e? Varla. Lykillinn að lausn þessara mála er samráð. Sá hluti verðbólguvand- ans sem að launamálum snýr verður ekki leystur nema í sam- vinnu þeirra aðila, sem um eiga að fjalla. Það er ekki vænlegt til árangurs þegar ríkisstjórn slær málsaðila utanundir með blautum sjóvettl- ing, og segir þeim að hunzkast út í horn! Það er heldur ekki vænlegt til árangurs að ríkisstjórn taki ein- arða afstöðu með öðrum málsaðil- anum, geri málflutning hans að sínum og öfugt, þegar hún loks hleypir þeim á vettvang. Það er víðs fjarri sannleikanum að undirrót efnahagsóreiðu okkar sé launamál. Ef ríkisstjórn heldur til streitu þeirri stefnu sinni að láta launafólk halda verðbólgunni niðri verða örugglega hörð átök á vinnumarkaði innan 12—18 mán- aða, ef dæma má af reynslu und- anfarinna tveggja áratuga. Á meðan launþegar halda niðri í sér andanum verður ríkisstjórnin að gera raunverulegar efnahags- aðgerðir, sem eru m.a. aðgerðir í atvinnumálum, en að þeim verður vikið í svörunum hér á eftir. í stuttu máli er svar mitt við spurningunni það að ég tel ólíklegt að ríkisstjórninni takist að halda áfram á þeirri braut sem hún hef- ur valið sér í verðbólgumálum, vegna þess að hún hefur þar ekki boðið upp á neinar raunverulegar aðgerðir til iangtímalækningar. Launþegar munu ekki una þessu til lengdar. Ég vil bæta því við að síðustu, að ég vona, að stjórnin haldi ekki áfram á þessari ein- hliða kjararánsbraut, heldur geri einhverja þá hluti, sem að gagni mættu koma fyrir okkur sjálf og börnin okkar. 2. í spurningunni eru taldir fram þrír meginþættir fiskveiðistefn- unnar fyrir 1984, þ.e. aflamagn, kvótaskipting og fjárhagsvandi útgerðarinnar. Sá fyrsti, þ.e. afla- magnið, hefur þegar verið ákveð- inn. Það er hins vegar rangt að búið sé að ákveða annan þáttinn, kvótaskiptinguna. Alþingi afgreiddi fyrir jól lög sem heimila ráðherra að grípa til víðtækari aðgerða um veiðistjórn en áður hafa þekkst. Um þessi lög voru mjög skiptar skoðanir og þau hlutu nauman meirihluta í efri deild þingsins og komust raunar í gegn með atkvæðum þingmanna sem þó lýstu sig andvíga þeim í meginatriðum. í þessum lögum er ekkert kveðið á um eftir hvaða reglum kvótum skuli úthlutað á skip eða hvaða reglur skuli gilda um framsal kvóta, með eða án endurgjalds. Ráðherra lýsti því hins vegar yfir, við umræður í þingi, að höf- uðreiknireglan við stærð kvóta yrði viðmiðun við meðalafla þriggja síðustu ára. Einnig kvaðst ráðherra andvígur því að leyft yrði að selja kvóta. Þetta eru einu forsendurnar, sem hafa verið birt- ar opinberlega. Það verður ekki sagt með réttu að kvótaskipting næsta árs hafi verið ákveðin fyrr en nákvæmar reglur um útreikning kvóta og framsal kvóta hafa verið opinber- lega birtar. Samkvæmt síðustu fregnum verða reglur um kvóta- skiptingu vart tilbúnar af hálfu ráðuneytisins fyrr en í febrúar og jafnvel síðar. Það eru einkennilegar fréttir, þar sem höfuðréttlæting ráðherra á einræðislegri meðferð málsins í þinginu og einræðislegu innihaldi frumvarpsins, var sú að atriði málsins yrðu öll að vera ljós í janúarbyrjun. Þess vegna væri enginn tími til að þingið fjallaði nánar um málið, jafnvel þótt það komi saman um miðjan janúar. Sá hluti fiskveiðistefnunnar, sem kvótaskiptingin er, verður því að teljast algerlega í lausu lofti, því kvótaskipting, sem samþættur hluti af fiskveiðistefnu, er ekki ákveðin ennþá. Hún er ekki ákveð- in fyrr en nákvæmlega kemur í ljós hvaða svigrúm hún gefur skipum og útgerðum til að endur- skipuleggja rekstur sinn. Um lausn á fjárhagsvanda út- gerðarinnar er erfitt að fjalla í stuttu máli. Þar koma margir hlutir við sögu. I) Kvótakerfið. Eins og áður segir mun nánari útfærsla kvótakerf- is ráða ýmsu um fjárhagsvand- ann. Að gefnum þeim takmörk- uðu upplýsingum sem tilteinkar eru má segja að a) Kvóti, sem byggist á 3ja ára meðalafla eingöngu, er líklega skilvirk leið til að bjarga fisk- stofnunum en mun varla bjarga útgerðinni. b) Þegar rætt er um verulega aukningu á gæðum og þar með verðmæti afurða í kjölfar kvóta- kerfis vegna bætts skipulags veiða og vinnslu er auðvitað um leið verið að segja að nú fari verulegir fjármunir í súginn vegna skorts á samstarfi aðila í greininni. Þeim mun meiri verð- mæti, sem menn telja að muni vinnast af þessum sökum, þeim mun alvarlegri vitnisburður er það um ástandið í þessari at- vinnugrein núna, sem hefur „heimastjórn" í sókn og vinnslu afurðanna. c) Möguleikar á skiptum og sölu á kvótum milli skipa, útgerðar og byggðarlaga eftir ákveðnum reglum, geta haft heillavænleg áhrif á fjárhagsafkomu greinar- innar. Þannig geta veiðar geng- ið til þeirra, sem hafa góðan rekstur, sýna dugnað og harð- fylgi og liggja vel við ákveðnum veiðum. Frelsi í þessum efnum gæti bætt upp ósveigjanleika i kvótaútreikningi á einstök skip. II) Akvöröun fiskverös. Það er skoð- un Bandalags jafnaðarmanna að í verðlagsmálum útvegsins beri umsvifalaust að stefna til frjálsari viðskiptahátta. Fisk- verð hlýtur endanlega að miðast við markaðsverð afurðanna. Engar millifærslur og hag- stjórnarbrellur geta breytt þeirri staðreynd. Það er undar- legt að atvinnugrein, sem byggir á frumkvæði, frelsi og útsjón- arsemi einstaklinga í svo ríkum mæli, skuli búa við eiturharða miðstýringu í verðlagningu og sölumálum. I stað þess að ríkis- valdið tryggi óábyrga samninga við loforðum um gengisfellingar og sjóðabrellur, leggjum við til aukið frelsi í samningum um fiskverð. Þeir verða þá að taka mið af afla og markaðsverði, sem eru þau raunverulegu verð- mæti sem til skiptanna eru. Þannig verður einnig aukin ábyrgð einstaklinga og fyrir- tækja, því þá mun hver liggja svo sem hann hefur um sig búið. Þar með hlýtur að aukast að- hald í rekstri og fjárfestingu. Á þennan hátt er hægt að rjúfa vítahring ríkisforsjónarinnar sem sífellt hefur kallað á geng- isfellingar og styrki. I þessu sambandi má geta þess að frjálsir samningar um fisk- verð eru besta gæðaeftirlit sem völ er á hvort sem er upp úr skipi eða út úr vinnslustöð. Af blaðafregnum og umræðum um gæðamál er ljóst að pottur er víða brotinn. Ef við lítum á stefnu ríkis- stjórnarinnar í gengismálum og heitstrengingum hennar um áframhaldandi lækkun verð- bólgu, er augljóst að væntanleg fiskverðsákvörðun er prófsteinn á getu hennar og vilja til ný- sköpunar. III) Skuldir. Þegar rætt er um fjár- hagsvanda útgerðar í dag er yf- irleitt átt við skuldasöfnun hennar, sem talin er nema u.þ.b. tveim þúsundum milljóna. Það er augljóst að í mörgum tilfell- um eru skuldir einstakra fyrir- tækja orðnar miklu meiri en eðlilegur rekstur muni nokkru sinni geta jafnað upp. Því verð- ur það vafalaust hlutskipti þjóð- arinnar allrar að taka talsverð- an hluta þessara skulda og greiða með einhverjum hætti. En þá skiptir höfuðmáli hver aðferð verður notuð. Útstrikanir og styrkir eftir almennum með- altalsreglum eins og kvótinn margumræddi, eru hvorki í samræmi við réttlætiskennd né viðskiptavenjur. Þegar pen- ingastofnanir fjalla um fjár- hagsvanda aðila í iðnrekstri, eða jafnvel heimilisrekstri, er reynt eftir megni að hjálpa þeim, sem hjálpa sér sjálfir og eiga sér lífsvon. Hinir, sem hafa sýnt ábyrgðar- og aðhaldsleysi í rekstri og fjárfestingum, eru látnir sæta ábyrgð. í þessum efnum gildir að greina sauðina frá höfrunum. Allar að- gerðir verða að hafa það að markmiði að koma lífvænlegum fyrirtækjum á lygnan sjó, þann- ig að þau geti séð sér farborða með eðlilegri þjónustu pen- ingastofnana. En það er nauð- synlegt að leiða þau frá pilsföld- um ríkismaddömunnar eins fljótt og auðið er. Einungis frjáls og sterk eru þau samboðin sjálfsvirðingu at- vinnurekenda og verkafólks, sem engir vilja bónbjargarmenn vera. 3. Tvennt ber sérstaklega að hafa að leiðarljósi í atvinnumálum. í fyrsta lagi þarf að gera nú þegar þær aðgerðir í atvinnumál- um, sem væru um leið raunveru- legar aðgerðir í efnahagsmálum og liður í baráttunni gegn verð- bólgunni. í öðru lagi þarf að móta stefnu næstu áratuga í atvinnumálum þjóðarinnar, til að auka þjóðar- tekjur, búa til ný störf fyrir tug- þúsundir, sem koma á vinnumark- aðinn til aldamóta, og tryggja nú- verandi byggð í landinu. í þessu sambandi má víða koma við, en að þessu sinni verður sér- staklega vikið að málefnum iðnað- arins. Stjórnvöld á íslandi hafa um langt skeið verið með glýju stór- iðnaðar fyrir augunum. Tími og atorka embættis- og stjórnmála- manna hefur farið í endalausar deilur um kosti og lesti stóriðju, staðsetningu hennar og orkukaup. Á meðan hefur næstum gleymst, að í landinu er þegar um- fangsmikill iðnaður af ýmsu tagi, sem hefur mátt þola stórkostlegar sveiflur í rekstrarskilyrðum, þeg- ar gengisfellingum og öðrum hag- stjórnartöfrum hefur verið beitt til að leysa vandamál annars stað- ar í þjóðfélaginu. Þessi iðnaður hefur upp á að bjóða flest það sem okkur vantar í dag. Þar er fjármagnskostnaður á hvert starf margfalt lægri en í stóriðju. Fjárfesting fer fyrr að skila arði en í stóriðjufram- kvæmdum. Stærð fyrirtækjanna er margbreytileg og getur hæft mismunandi aðstæðum. Að því leyti getur iðnaður leyst þá kreppu, sem byggðastefnan er komin, með sjávarútveg að leið- arljósi. Én hvert á hlutverk ríkisvalds- ins að vera við iðnaðaruppbygg- ingu? Ríkisvaldið á ekki að hafa forsjá og ábyrgð á rekstri fyrirtækjanna. Ríkisvaldið á hins vegar að styðja við frumkvæði einstaklinga og fyrirtækja, sem vilja vinna í greininni. Það er hægt að gera með ýmsum almennum aðgerðum, s.s. tímabundnum lækkunum opinberra gjalda, fjármögnun rannsókna á iðnaðarmöguleikum, sérfræðilegri aðstoð við eintakl- inga og fyrirtæki, og framlagi áhættufjár til einstakra verkefna. Ýmsir spyrja hvort þetta sé ekki gert nú þegar. Því er til'að svara, að til er vísir að slíkri starfsemi, en hún þarf að aukast stórkost- lega. Það er einstaklega lærdómsríkt að blaða í fjárlögum fyrir 1984 og bera saman framlög ríkissjóðs til landbúnaðar, sjávarútvegs og iðn- aðar. Þar kemur fram að fyrr- nefndu greinarnar tvær njóta gíf- urlegra styrkja til daglegs fram- færis síns, á meðan iðnaðurinn er stórlega afskiptur. Eitthvað er bogið við uppeldið, þegar þessar tvær greinar hanga ennþá í móðurpilsunum eftir þroskaskeið sem er jafnlangt bú- setunni í landinu. Bandalag jafnaðarmanna lagði til að hluti fjárframlaga til land- búnaðar og sjávarútvegs yrði á næsta ári færður til rannsóknar- og þróunarsjóða iðnaðarins. Hugmyndin var ekki að koma iðn- aðarrekstrinum á ríkisspenann. Hugmyndin er hins vegar sú að sá til nýrra vaxtarsprota, hlúa að þeim í uppvextinum og sjá til þess að þeir verði færir um að standa sjálfir af sér válynd veður. Þessar breytingatillögur voru að sjálfsögðu allar felldar. Sárasta reynslan var raunar ekki sú, að sjá á eftir tillögunum, heldur var sár- ast að skynja tregðuna til nýsköp- unar og hræðsluna við að breyta. Valddreifingarhugmyndir Bandalags jafnaðarmanna um aukið sjálfsforræði landshluta og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.