Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 Guðmundur Einarsson sveitarfélaga miðast ekki síst við að gefa þeim aðilum, sem þora að taka ákvarðanir, tækifæri til að móta iðnaðaruppbyggingu og at- vinnustefnu á heimaslóð. Nú bendir flest til þess að Al- þingi og ríkisstjórn ætli ekki að hafa forystu og frumkvæði í þess- um efnum. Þá er röðin komin að heima- mönnum. 4. Það er alveg Ijóst, að menning- ararfleifð vorri stendur ekki mest hætta af nýjungum í kennslu- háttum og námsefni. Henni stend- ur meiri hætta af því skilnings- og skeytingarleysi stjórnvalda, sem birtist í endalausri viðleitni í þá átt að skerða þjónustu skólanna og tregðu til að framfylgja settum lögum um skóla og fræðsluskyldu. Máli voru og menningu er styrk- ur af því starfi, sem unnið er við endurskoðun og mat á námsefni í íslandssögu og íslensku hjá Skóla- rannsóknadeild Menntamálaráðu- neytis. Þó liggur í augum uppi, að betur væri heima setið en af stað farið ef vinna á að þessum verk- efnum af vanefnum og við skiln- ingsleysi stjórnvalda. Þingflokkur BJ efast ekki um hæfni þess fólks sem að gerð og endurskoðun námsefnis vinnur en dregur stórlega í efa að því sé veittur sá aðbúnaður sem verkefn- inu hæfir. Það getur hver séð sem nennir að skoða, að á engan hátt er verið að slaka á kröfum um þekkingu heldur þvert á móti. Það sést m.a. á því að nemendum er ætlað að vinna sjálfstætt að marg- víslegum athugunarefnum sem að mestu byggjast á þeirri stað- reyndaþekkingu, sem óttast er að verið sé að úthýsa. Við kennslu móðurmálsins verð- ur að leggja áherslu á, að málið er mikilvægt verkfæri og hlýtur ávallt að breytast og aðlagast þörfum hverrar kynslóðar og hvers tíma. Það er hins vegar skoðun okkar að jákvæð íhaldssemi í móður- máls- og íslandssögukennslu sé dyggð, því gæta verður þess, að ekki verði skilnings- og trúnað- arbrestur milli barna, foreldra og kennsluyfirvalda í þessum efnum. Þingflokkur BJ lýsir velþóknun sinni á störfum Skólarann- sóknadeildar og Námsgagna- stofnunar, en vanþóknun sinni á afstöðu stjórnvalda til þarfa þess- ara lykilstofnana til fjármagns og aðstöðu. Á tímum niðurskurðar og spar- semi er sérstök þörf aðgæslu við fjármál skólakerfisins. Hagnaður af rekstri þess verður seint í krón- um talinn. Það er hins vegar hollt að minnast orða Bismarcks heit- ins, sem sagði: „Framtíðin er þeirrar þjóðar, sem á bestu skól- ana.“ Þessi orð eru gott nesti I farang- ur þjóðar sem er að leita sér nýrr- ar stefnu í atvinnu- og lífsháttum. 5. í spurningu þessari er sett fram eftirfarandi fullyrðing: „Atlants- hafsbandalagið hefur tryggt frið í 35 ár í okkar heimshluta." Hvað er okkar heimshluti? Eru það aðild- arríki Norður-Atlantshafsbanda- lagsins (NAB)? Ef svo er, má segja að fullyrðingin sé rétt, þ.e. að NAB hafi tryggt frið innan NAB. Ef við segjum hins vegar, að Evrópa sé okkar heimshluti, verð- ur fullyrðingin á þann veg að NAB hafi tryggt frið í Evrópu. Andro- pov sagði líka nýlega að friður hafi ríkt í Evrópu um 30 ára skeið. Það er ekki víst að Ungverjar, Tékkar pg Pólverjar taki undir að friður hafi ríkt í Evrópu í 30 ár. Fullyrðingin, að friður hafi ríkt í Evrópu í aldarþriðjung, er raun- ar röng. Það, sem varnarbandalögin tvö hafa hins vegar gert, er að skipta Evrópu í tvær fylkingar, sem eru á umráðasvæði hvors stórveldisins um sig. Þessir tveir höfuðandstæðingar, sem síðan í lok seinni styrjaldar hafa beint hnífsoddum sínum að mannkyni öllu, hafa játað óskor- aðan yfirráðarétt hvors á sínum skika í Evrópu. Síðan standa þeir gráir fyrir járnum, horfast í augu yfir járntjaldið, henda hnútum og státa sig af friði. Þeir leyfa sér að státa sig af því að hafa ekki gert Evrópu, heimili okkar, að vígvelli blóðugs uppgjörs í átökum þeirra um heimsbyggð- ina. I spurningunni er sagt að NAB hafi tryggt frið og vissulega er það eitt af höfuðmarkmiðum samtak- anna. En hversu tryggur er friður- inn í dag? Hið rétta er að NAB hefur hald- ið friðinn en hann er síður en svo tryggur. Það er sitthvað að halda frið og tryggja frið. NAB hefur brugðist í því hlut- verki sínu að tryggja frið í álf- unni. í skjóli þess og Varsjár- bandalagsns hefur ríkt æðis- gengnasta vígbúnaðarbrjálsemi sögunnar. íbúar Evrópu flykkjast 47 milljónum saman út á göturnar í dauðans angist og krefjast friðar og framtíðar. NAB hefur brugðist þeim. NAB hélt friðinn en tryggði hann ekki. Ennþá skiptist Evrópa í tvær fylk- ingar. Ennþá eru mannréttindi fótum troðin í austurhluta hennar. Við skorumst ekki undan því að taka afstöðu með eða á móti mannrétt- indum. Við viljum eiga samstöðu með opnum og frjálsum þjóðfélög- um. NAB er samstarfsvettvangur þjóða, sem eru okkur skyldar 'að menningu og stjórnarfari, þjóða, sem við viljum eiga samleið með. Þess vegna skulum við taka þátt í starfsemi NAB. En við skulum játa hreinskiln- islega, að það hefur mistekist að tryggja friðvænlega framtíð álf- unnar, þótt tekist hafi að halda friðinn við Andropov og forvera hans. Við eigum að nota aðstöðu okkar á vettvangi NAB til að tala máli friðarins, taka málstað þeirra milljóna sem búa í skugga ógnarvopnanna. Nú reynir á Vesturlönd og stöðu þeirra sem málsvara frelsis og lýðræðis. Stjórnvöld standa frammi fyrir kjósendum sínum, sem æ fleiri krefjast frumkvæðis þeirra í afvopnunardeilunum. Verður farið að vilja fólksins? Má lýðræðið sín einhvers gagn- vart hernaðarsinnunum? Hver á að taka fyrsta skrefið? Umboðsmenn vöruhappdrættis SÍBS 1984: Aðalumboð, Suðurgötu 10. Umboðið Grettisgötu 26. Sjóbúðin, Grandagarði 7. Bensínsala Hreyfils, Fellsmúla 24. Verslunin Straumnes, Vesturbergi 76. SÍBS-deildin, Reykjalundi. Björk Valsdóttir, Sogni, KJÓSARHREPPI. Verslunin Staðarfell, AKRANESI. Sigríður Bjarnadóttir, Reykholti, BORGARFIRÐI. Elsa Arnbergsdóttir, BORGARNESI. Anna Þórðardóttir, Miðhrauni, MIKLAHOLTSHREPPI. Gunnar Bjarnason, Böðvarsholti, STAÐARSVEIT. Ingveldur Þórarinsdóttir, Stóra-Kambi, BREIÐUVÍK. Svanhildur Snæbjörnsdóttir, HELLISSANDI. Verslunin Þóra, ÓLAFSVÍK. Guðlaug E. Pétursdóttir, GRUNDARFIRÐI. Esther Hansen, STYKKISHÓLMI. Ólafur Jóhannsson, BÚÐARDAL. Jóhann G. Pétursson, Stóru-Tungu, FELLSSTRÖND. Halldór D. Gunnarsson, KRÓKSFJARÐARNESI. Einar V. Hafliðason, Fremri-Gufudal, GUFUDALSSV. Sólveig Karlsdóttir, Hjöllum 2I, PATREKSFIRÐI. Sóley Þórarinsdóttir, TÁLKNAFIRÐI. Gunnar Valdimarsson, BÍLDUDAL. Guðrún Ingimundardóttir, ÞINGEYRI. Alla Gunnlaugsdóttir, FLATEYRI. Guðmundur Elíasson, SUÐUREYRI. Guðrún Ólafsdóttir, BOLUNGARVÍK. Vinnuver, Mjallargötu 5, ÍSAFIRÐI. Steinunn Gunnarsdóttir SÚÐAVÍK. Engilbert Ingvarsson, Tyrðilsmýri, SNÆFJALLASTR. Pálína Þórólfsdóttir, Finnbogastöðum, ÁRNESHREPPI. Sigurmunda Guðmundsdóttir, DRANGSNESI. Hans Magnússon, HÓLMAVÍK. Erla Magnúsdóttir, Þambárvöllum, BITRUFIRÐI. Pálmi Sæmundsson, BORÐEYRI. Róberta Gunnþórsdóttir, HVAMMSTANGA. Kaupfélag Húnvetninga, BLÖNDUÓSI. Ása Jóhannsdóttir, SKAGASTRÖND. Verslunin Björk, SAUÐÁRKRÓKI. Guðbjörn Jónsson, Austurgötu 24, HOFSÓSI. Georg Hermannsson, Ysta-Mói, HAGANESHREPPI. Kristín Hannesdóttir, SIGLUFIRÐI. Jórunn Magnúsdóttir, GRÍMSEY. Valberg hf„ ÓLAFSFIRÐI. Guðlaugur Jóhannesson, HRÍSEY. Sólveig Antonsdóttir, Verslunin Sogn, DALVlK. Björg Kristjánsdóttir, Strandgötu 17, AKUREYRI. SÍBS-deildin, Kristnesi, EYJAFIRÐI. Bára Sævaldsdóttir, Sigluvík, SVALBARÐSSTRÖND. Hafdís Hermannsdóttir, GRENIVÍK. Rannveig H. Ólafsdóttir, Laugum, S.-ÞINGEYJARS. Hólmfríður Pétursdóttir, Víðihlíð, MÝVATNSSVEIT. Eysteinn Hallgrímsson, Grímshúsum, AÐALDAL. Jónas Egilsson, HÚSAVÍK. Óli Gunnarsson, KÓPASKERI. Vilhjálmur Hólmgeirsson, RAUFARHÖFN. Eysteinn Sigurðsson, Sunnuv. 14, ÞÓRSHÖFN. Hafliði Jónsson, BAKKAFIRÐI. Kaupfélag Vopnfirðinga, VOPNAFIRÐI. Jón Helgason, Laufási, BORGARFIRÐI EYSTRA. Óli Stefánsson, Merki,JÖKULDAL. Björn Pálsson, Laufási 11, EGILSSTÖÐUM. Ragnheiður Gunnarsdóttir, SEYÐISFIRÐI. Viðskiptaþj. Guðm. Ásgeirssonar, NESKAUPSTAÐ. Benedikt Friðriksson, Hóli, FLJÓTSDAL. Hildur Metúsalemsdóttir, ESKIFIRÐI. Ásgeir Metúsalemsson, REYÐARFIRÐI. Margeir Þórormsson, FÁSKRÚÐSFIRÐI. Kristin Helgadóttir, STÖÐVARFIRÐI. Þórður Sigurjónsson, Snæhvammi.BREIÐDAL. Elís Þórarinsson, Höfða, DJÚPAVOGI. Kaupfélag A.-Skaftfellinga, Höfn, HORNAFIRÐI. EinarÓ. Valdimarsson, KIRKJUBÆJARKLAUSTRI. Marteinn Jóhannsson, Bakkakoti, MEÐALLANDI. Halldóra Sigurjónsdóttir, Vík, MÝRDAL. Fanný Guðjónsdóttir, Skólav. 6, VESTMANNAEYJUM. Jóna Guðmundsdóttir, Arnarhvoli, HVOLSVELLI. Hafsteinn Sigurðsson, ÞYKKVABÆ. Aðalheiður Högnadóttir, Verkalýðshúsinu, HELLU. Hjalti Gunnarsson, Fossnesi, GNÚPVERJAHREPPI. Sólveig Ólafsdótir, Grund, HRUNAMANNAHREPPI. Sigurður Bjarnason, Hlemmiskeiði, SKEIÐUM. Páll M. Skúlason, Reykolti, BISKUPSTUNGUM. Þórir Þorgeirsson, LAUGARVATNI. Kaupfélag Árnesinga, bókabúð, SELFOSSI. Þórgunnur Björnsdóttir, Þörsmörk 9, HVERAGERÐI. Oddný Steingrímsdóttir, STOKKSEYRI. Þuríður Þórmundsdóttir, Túng. 55, EYRARBAKKA. Bóka- og gjafabúðin, ÞORLÁKSHÖFN. Magnús Ingólfsson, Staðarhrauni 19, GRINDAVÍK. Guðlaug Magnúsdóttir, Jaðri, HÖFNUM. Jórunn Guðmundsdóttir, Hlíðarg. 31, SANDGERÐI. Ingveldur Jónsdóttir, Gerðum, GARÐI. Jón Tómasson, Vatnsnesvegi 11, KEFLAVÍK. Aðalbjörg Guðmundsdóttir, Vogum, VATNSLEYSUSTR. Vilborg Sigurjónsdóttir, Bókab. Oliv. Steins, HAFNARF. Lilja Sörladóttir, Túngötu 13, BESSASTAÐAHR. Bókabúðin Gríma, Garðaflöt 16, GARÐABÆ. SÍBS-deildin, VÍFILSSTÖÐUM. Borgarbúðin, Hófgerði 30, KÓPAVOGI. Sparisjóðurinn SELTJARNARNESI. Happdrætti SIRS ^

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.