Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 28
60 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 „ !Attu eJcki a.f þessurn mc£ bláu hi/itu röndur\um 09 6tn\. er &ns og kúnfislcur a, b rag&'Á ? " ást er ... ... að sýna hug sinn. TM Rag U S Pal Oft —all rights rcserveU e1983 Los Angetes Times Syndicate &°a>aní,n/ Augnablik. — Ég man ekki íöð- urnafnið ... Ég hélt við ættum ekki að svífa. Aðeins svífa i okkur! HÖGNI HREKKVISI (?&SSl KAKAf’... HOJN VAR. PÖNTl/p AF UN£áFE.ll< BRjÁl<J6>U B'NU." Austurstræti: Bankarnir hefji samvinnu til að auðvelda skuldunaut- um fangbrögð við víxla og skuldabréf Leifur Sveinsson skrifar 15. des- ember: „Kæri Velvakandi. Viltu vera svo vænn að koma eftirfarandi tilmælum á fram- færi við „Austurstrætisnefnd bankanna". Til Austurstrætisnefndar bankanna, Reykjavík. Vinsamlegast hefjið samvinnu um síma- og veitingaþjónustu við viðskiptamenn ykkar. a) Búnaðarbankinn veitir kaffi allan daginn, en veitir ekki að- gang að síma. b) Landsbankinn veitir aðgang að síma, en ekkert kaffi. c) Ég hef sannfrétt að Útvegs- bankinn lumi á snúðum, en hafi hvorki síma né kaffi. Eins og er verða menn að brjót- ast með kaffið úr Búnaðarbank- anum í átt að Landsbankanum til að hringja í síma. Þetta er mjög bagalegt, bæði er það að kaffið kólnar og ryk getur fokið í boll- ann. Nú er það tillaga mín til Austurstrætisnefndar bankanna, að þeir hefji samvinnu í máli þessu, skiptist á sína vikuna hver að hafa kaffi, síma og snúða fyrir viðskiptavini sína, þannig að okkur skuldunautum bankanna verði auðvelduð fangbrögð okkar við víxla og skuldabréf. Með fyrirfram þakklæti." Fáum við vandann leyst? Bjargey Arnórsdóttir, Hof- stöðum, Þorskafirði, sendir okkur eftirfarandi kvæði, sem hún hefur ort: Til íslendinga Lifum með fósturfoldu og finnum hvert hjartaslag, landsins sem öll viö erföum og eigum aö vernda hag. Okkur í æðum rennur ólgandi blóöiö heitt, og lífaeöar landsins hafa Ijósflóðið bjarta veitt. Hitinn und hrjúfu brjósti hart gat á björgin þrýst, og eldanna ægikraftur ennþá úr viöjum brýst. Stórbrim í stormsins veldi strendurnar hrammi slær. Leikandi létt á flúöum lognölduskvaldriö hlær. Laufiö og litlu blómin lifa þess moldum á. j hlíöunum fuglinn frjálsi fóstra vill unga smá. Lindir og lækjarfossar Ijóöa viö eyru kátt. Straumgára stoltir svanir stööuvatn fagurblátt. Fetum um fjöll og hálsa, finnum þess dýröar til, lifandi angan loftsins og lyngsins mýkt viö il. Laugaö í Ijóma sólar líkist helst Paradís; landiö sem liggur stundum lamað í myrkri og ís. Þaö land hefur okkur aliö og áföllin rætur treyst. Þess frelsi er okkur faliö. Fáum viö vandann leyst? Frá Austurlöndum nœr 1983 Sigursveinn Hersveinsson sendi okkur eftirfarandi vísu sem hann hefur ort: Sjá kúlnahríðin koldimm er, og köldu stríðin sanna, að enga prýði andinn sér; því elnar kvíði manna. m HEILRÆÐI Foreldrar: Brýnið fyrir börnum og unglingum að fara varlega með eld og leiðbeinið þeim með meðferð flugelda, stjörnuljósa og blysa. Börn og unglingar: Farið varlega með eld. Gætið vel að kertaljósum á heimilum ykkar. Fiktið ekki við flugelda, stjörnuljós og blys. Vegfarendur: Tökum höndum saman í baráttunni gegn umferðarslysum. Sýnum öll árvekni, dómgreind og tillitssemi við akstur. Hvert fótmál krefst umhugsunar og aðgæslu. Um áramótin klæðast heimilin hátíðarbúningi, og viðmót fólks einkennist af tilhlökkun og gleði. Sýnum í orðum og athöfnum aga og hlýðni. Verum vel á verði gagnvart hvers kyns hættum og ofmetum aldrei eigin getu. Höldum gleðileg og slysalaus áramót. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Hann fór niður til Afríku. Rétt væri: Hann fór suður til Afríku. s

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.