Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983
Veistu svarið?
Nú árið er liðið. Þá líta menn
gjarnan um öxl og gaumgæfa það
sem gerst hefur á árinu. Við ætlum
að gera slíkt hið sama, athuga
kristniliT á íslandi árið 1983 og slá
á léttari strengi. Allt er þetta nú í
gamni gert. Það er okkar von að
þið hafið gaman og ef til vill eitt-
hvert gagn af þessum spurninga-
leik. Látum gamminn geisa og
bregðum á leik. Við hverja spurn-
ingu eru þrír möguleikar á svari.
Lausnimar eru annars staðar á síð-
unni.
1. Á jólaföstu stóð Hjálpar-
stofnun kirkjunnar fyrir lands-
söfnun. Peningana sem söfnuð-
ust átti meðal annars að nota til
að:
a) Senda fiskipillur til Súdan.
b) Setja upp stórmarkað í
Eþíópíu.
c) Setja upp æfingamiðstöð og
heilsurækt í Kenýa.
2. í sumar fékk kirkjan nýjan
vígslubiskup. Hann heitir:
a) Ólafur Skúlason
b) Ólafur Jóhannsson
c) Helgi Skúlason
3. Fyrir nokkru féll dómur í all-
sérstæðu sakamáli þar sem ein
ákæran var meðal annars um að
verið væri að hæða og spotta
trúartilfinningar kristinna
manna. Hasarinn var út af:
a) Halldóri Gröndal fyrir að
auglýsa prestabrandarabók-
ina.
b) Alberti Guðmundssyni fyrir
að bjóða kirkjuna til sölu.
c) Speglinum.
4. Hvernig fallbeygist orðið Jes-
ús?
a) í nefnifalli Jesús, en í auka-
föllunum Jesú.
b) í nefnifalli Jesús, í þolfalli
Jesúm, og Jesú í ávarps-,
þágu- og eignarfalli.
c) Það beygist eins og Magnús.
5. Hver er kirkjumálaráðherra:
a) Ragnhildur Helgadóttir
c.
b) Jón Helgason
c) Svavar Gestsson
6. Af hverju er staðið upp við
ákveðna liði messunnar?
a) Frómur prestur sem uppi var
um 1850 fann upp á þessu til
að gefa sóknarbörnum sínum
færi á að liðka lúin bein og
koma blóðinu á hreyfingu, en
í þá daga voru allir kirkju-
bekkir harðir og óþægilegir
og auk þess kalt í kirkjum.
b) Þetta er gert til að auka
þátttöku hins almenna
kirkjugests í sjálfri messunni
og gera messuna fjölbreytt-
ari.
c) Þetta er virðingarvottur við
ákveðna liði messunnar, svo
sem guðspjall og blessun.
7. „Ekki er öll vitleysan eins,“
sagði kerlingin. Lög um presta
eru sum orðin gömul og úrelt.
Það kemur vafalaust sumum
spánskt fyrir sjónir að lesa að
það sé í lögum að:
a) Prestar skuli kvænast
hreinni mey.
b) Prestar skuli vera umskornir.
c) Prestur megi ekki segja skilið
við konu sína.
8. Nú á dögunum var ný kirkja,
Áskirkja, tekin í notkun í
Reykjavík. Vígslan var:
a) 3. sunnudag í aðventu.
b) 5. sunnudag í aðventu.
c) 7. sunnudag í aðventu.
9. Á þessu ári var víða í kirkjum
landins minnst þess merkisat-
burðar að:
a) 50 ár eru liðin frá fæðingu
Martin Luther King.
b) 50 ár eru liðin frá dauða
Gandhis.
c) 500 ár eru liðin frá fæð-
ingu Martin Luther.
10. Æskulýðsdagur þjóðkirkj-
unnar er fyrsti sunnudagur í
mars. Hver var yfirskrift sein-
asta æskulýðsdags?
a) Uppeldi til friðar.
b) Líf í Jesú.
c) Hvað er ríkisstjórnin að gera
fyrir þig?
11. í Bandaríkjunum kom út all-
sérstæð og umdeild Biblíuþýðing
á þessu ári. Það sem deilum olli
var:
a) að Reagan og Ameríku var
ekki getið í sköpunarsögunni.
b) að ekki voru notuð kyngreind
orð eins og sonur, en þess í
stað talað um barn.
c) sú breyting þýðingarnefndar-
innar á sköpunarsögunni að
segja að Guð hefði skapað
himin og jörð á 700 milijón-
um ára en ekki sjö dögum.
12. Síðasta kirkjuþing var við-
burðamikið. Margt var skegg-
rætt. En mesta athygli vakti þó
ósamstaða manna varðandi
ályktun um:
a) Bjórinn
b) Upphlut Fjallkonunnar
c) Friðarmálin
13. Nú í sumar var haldið í
Vancouver í Kanada heimsþing
Alkirkjuráðsins. Yfirskrift þess
var:
a) Jesús Kristur og María
Magdalena.
b) Jesús Kristur og þjáning
heimsins.
c) Jesús Kristur — líf heimsins.
14. Af hverju blanda prestar
stundum vatni saman við messu-
vínið?
a) Til að drýgja vínið.
b) Svo að ekki komist á kreik sá
orðrómur að kristnir menn
drekki óblandað vín við alt-
arisgöngur.
c) Því innihald kaleiksins á að
tákna blóð og vatn Krists sem
kom út úr síðu hans á kross-
inum.
15. Hvað eru kvenprestar ís-
lensku kirkjunnar margir? Þær
eru:
a) Sex
b) Fjórar
c) Tuttugu og fimm
Rétt svör: 1A, 2A, 3C, 4A(B), 5B,
6C, 7A, 8A, 9C, 10A, 11B, 12C,
13C, 14B, 15A.
Hugvekja
Lúk. 12:35—40
Við erum þjóð, sem kennir
sig við Krist. Stjórnarskráin,
löggjöfin, þjóðkirkjan, skírn,
ferming og hátíðirnar eru af-
gerandi dæmi þess, að kristinn
arfur og trú eru okkur einhvers
virði.
En hverju breytir þessi stað-
reynd fyrir okkur sem þjóð?
Hvar snertir hún líf einstakl-
inganna í landi okkar? Hverju
breytir hún fyrir þig og mig?
Jesús sagði eitt sinn við læri-
sveina sína að þeir væru eins
og þjónar eða ráðsmenn sem
hefðu það verkefni að gæta og
ávaxta eigur húsbónda þeirra,
meðan hann færi i ferðalag.
Enginn vissi hvenær hann
kæmi aftur, og ef allir væru á
sínum stað og gerðu það sem
fyrir þá var lagt við heimkomu
hans, væri það gott.
Þetta er okkar staða. Flest
erum við skírð og fermd, en í
fermingunni samþykktum við
það að við urðum þjónar Guðs.
Eignir þær, sem við eigum að
gæta og ávaxta, eru allir þeir
góðu hlutir sem við höfum og
eigum sjálf: fjölskylda okkar,
vinir, vinna, þjóðfélag, eignir,
við sjálf. Og svo mætti lengi
telja.
Ábyrgð okkar felst í því að
leggja rækt við þessa hluti af
þeirri kostgæfni og trúfesti
sem Guði okkar hæfir.
En hvað gerum við? Þjónum
við Guði eins og vera ber? Ef
já: Getur nokkur sagt mér þá
hvers vegna svo mikið böl líðst
í þjóðfélagi okkar? Börn okkar
ráfa mörg um götur í annar-
legri vímu, í leit að lífsfyllingu;
margir einstaklingar eru ein-
mana og finna sig yfirgefna;
margar fjölskyldur eru á
barmi fjárþrots og efnahagslíf
þjóðarinnar á heljarþröm. Er
þetta ekki okkur að kenna?
Eitt sinn var uppi maður að
nafni Jóhannes, kallaður „skír-
ari“. Hann hafði þann boðskap
að flytja, að menn skyldu snúa
sér til Guðs. Fólkið sem hlust-
aði á hann var eins og við;
Guðstrúar og ónýtir þjónar.
Eftir hann kom Jesús og
sætti okkur við Guð, sem við
bregðumst svo oft.
Trú okkar á þennan Guð
krefst þess, að við játum
breyskleika okkar fyrir honum
og tökum við þeim styrk sem
hann getur gefið okkur, til að
bjarga því sem bjargað verður,
og til að styrkja hið góða sem
ennþá stendur.
Til Súdan
Til Súdan w Svo kornabörnin þar kallist ánægð
Gefum af fiski hungruðum heimi, af kærleik allir skilji,
frá helju færum skjótt. nú gefum af íslands hjartans gnægð
Siðgæðið kristna út það streymi, Guð það held ég vilji.
svörum og nærum fljótt. k.B. jólin ’83
Gullkálfurinn
Biblíulestur vikuna 1.—7. janúar.
Exodus (2 Mós.) 32:1-14
Exodus 33:12-17
Hósea 1:2—2:1
Hósea 2:8-21
Davíðssálmur 38
Orðskviðirnir 22:17-29 Orðskviðirnir 22:1—16
Matteusarguðspjall 24:32-51