Morgunblaðið - 31.12.1983, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983
Mercedes Benz 190 í 4. s*ti.
FIAT Uno bíll
ársins í Evrópu
— Peugeot 205 fylgdi fast á eftir
f kjöri 53 blaðamanna
FIAT UNO hefur verið kjörinn bfll
ársins í Evrópu fyrir árið 1983, en
þaö eru 53 blaðamenn víðs vegar
úr álfunni, sem greiða atkvæði um
athyglisverðustu nýju bflana á ár-
inu. Kjör bfls ársins fer fram í
samvinnu við franska blaðið
L’Equipe og fimm aðrar evrópskar
útgáfur, en það hefur verið fram-
kvæmd árlega síðan 1963.
I fyrstu tíu sætunum að þessu
sinni voru: 1) FIAT Uno með 346
stig, 2) Peugeot 205 með 325 stig,
3) Volkswagen Golf með 156 stig,
4) Mercedes Benz 190 með 116
stig, 5) Mazda 626 með 99 stig, 6)
Citroén BX með 77 stig, 7) Aust-
in Maestro með 70 stig, 8) Honda
Prelude með 38 stig, 9) Opel
Corsa með 32 stig, 10) Alfa-
Romeo 33 með 30 stig.
Sigurvegarinn í kjöri bíls árs-
ins á síöasta ári var Audi 100, en
þar á undan var Renault 9
hlutskarpastur.
Bæði bílablaðamenn og aðrir
sérfræðingar hafa verið furðu-
lega sammála um að sérfræðing-
um FIAT-verksmiðjanna hafi
tekizt mjög vel upp við hönnun
og framleiðslu FIAT Uno, sem
fyrirtækið lagði hreinlega allt
undir við hönnun á, þar sem
markaðsstaða þess hafði farið
nokkuð versnandi á síðustu ár-
um, en í gegnum tíðina hefur
FIAT verið í fyrsta sæti yfir
markaðshlutdeild á Evrópu-
markaði. Nú eru hjólin hins veg-
ar farin að snúast fyrirtækinu
mjög í hag og salan á Uno hefur
gengið vonum framar, auk þess
sem aðrir nýir bílar fyrirtækis-
ins hafa fengið góðar viðtökur.
Má þar nefna FIAT Panda, bæði
venjulega útfærslu og með drifi
á öllum og hjólum og síðan nýj-
asta trompið frá FIAT, sem
nefnist Regada, en hann er arf-
taki FIAT 131, sem hefur verið
framleiddur um langt árabil.
Bíll ársins, FIAT Uno.
Peugeot 205
í 2. sæti.
Volkswagen Golf í 3. sæti.
Mazda 626 í 5. sæti.
Citroen BX í 6. sæti.
Honda Prelude í 8. sæti.
Opel Corsa í 9. sæti.
Renault 9, bfll ársins fyrir tveimur árum.
Austin Maestro
í 7. sæti.
Audi 100, bfll ársins á sl. ári.