Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984
5
íslenskir stóðhestar í Þýskalandi:
Algengt að folatollar nemi
10 til 15 þúsund krónum
Lágmarksverð undaneldishrossa því síst of lágt, segir Steinþór Kunólfsson á Hellu
„ÉG VIL engu svara til um þetta
mál að svo stöddu, enda er nefnd-
in ekki framkvæmdaaðili, heldur
var hennar verkefni það eitt að
setja lágmarksverð á undaneldis-
hross,“ sagði Steinþór Runólfsson
á Hellu, er blaðamaöur ræddi við
hann um hrossaaútflutning. Stein-
þór var formaður nefndar á vegum
íandbúnaðarráðuneytisins, sem
fyrir nokkru setti nýtt lágmarks-
verð á undaneldishross til útflutn-
ings og tók gildi 1. janúar síöastlið-
inn. Síðan hefur það gerst, eins og
skýrt hefur verið frá í Morgun-
blaðinu, að sótt hefur verið um út-
flutningsleyfi á 150 hryssum, án
lágmarksverðs, og hafa báðir um-
sagnaraðilar þar um, Framleiðslu-
ráð landbúnaðarins og Búnaðarfé-
lag íslands, mælt með erindinu.
Steinþór Runólfsson sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær,
að hann teldi ýmislegt hafa verið
fullyrt í umræðu um þessi mál
síðustu daga, sem ekki stæðist.
Hann hefði til dæmis um það
upplýsingar, að folatollar á ís-
lenskum stóðhestum í Þýska-
landi væru oft 1000 til 1500
mörk, eða sem svaraði 10 til 15
þúsund krónum. í þeim saman-
burðu sæist að 150 þúsund krónu
lágmarksverð fyrir útfluttan
stóðhest eða 30 þúsund krónur
fyrir hryssu væri varla mikið.
Enn benti Steinþór á, að áætla
mætti að kostnaður við tamn-
ingu hrossa hér á landi væri nú
um 5 þúsund krónur á mánuði.
Augljóst væri að ekki væri unnt
að kosta upp á margra mánaða
tamningu á hrossum, sem seld
væru á verði innan við lág-
marksverð á hryssum, sem er 30
þúsund krónur.
Þá sagðist Steinþór einnig
vilja koma þeirri skoðun á fram-
færi, að Islendingar ættu að
huga í ríkari mæli að vöruvönd-
un á útflutningsvörum sínum,
hrossum sem öðrum vörum.
Augljóst væri að stóðhestur, sem
ekki seldist á meira en 150 þús-
und krónur úr landi, ætti varla
mikið erindi á hrossamarkaði
erlendis og hið sama gilti um
hryssur á verði undir 30 þúsund
krónum. Hér yrði að gæta hags-
muna til lengri tíma, en ekki
láta ráðast af skammtímavanda
manna, sem kynnu að þurfa á
sölum að halda nú, þótt ekki
væri gert lítið úr þeim vanda. En
aðalatriðið væri að engar
hrossasölur mættu spilla fyrir
hrossaútflutningi í framtíðinni.
Stóðhesturinn Þór frá Sporz í Þýskalandi, einn þekktasti íslenski stóð-
hesturinn þar í landi, undan Stíganda 625 og Perlu frá Kolkuósi, sem
bæði eru undan Herði 591 frá Kolkuósi. Eigandi hestsiiis, Andreas
Trappe, heldur við hann.
Álfabrenna á Víðivöllum
Hcstamannafélagið Fákur verður
með barna- og fjölskylduskcmmtun
við skeiðvöllinn á Víðivöllum laug-
ardaginn 7. janúar klukkan 16.
Skemmtunin hefst með því að
álfakóngur og drottning ásamt
fjölbreyttu fylgdarliði koma ríð-
andi inn á völlinn og tendra bál.
Ýmsar uppákomur verða. Veit-
ingar verða síðan í félagsheimili
Fáks við Bústaðaveg. Börn eru
sérstaklega velkomin og mega þau
eiga von á einhverju góðgæti.
Skemmtun í Gerðubergi
í TILKFNI jóla og áramóta er
Reykvíkingum boðið í Gerðuberg
fimmtudaginn 5. janúar nk.
Skemmtunin hefst kl. 20.30 og
stendur í um eina klukkustund.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
dansar íslenska dansa sem tengj-
ast jólum og áramótum. Einnig
syngur Jón Þorsteinsson, tenór.
Þá gefst fólki kostur á að taka
sporið. Aðgangur er ókeypis.
Íil t stöitostleear
VI III é ver&lækkanir
Nokkurdæmi um verölækkun:
áður nú
Dömupeysur 399.- 199.-
Dömuúlpur 1.689.- 1.189.-
Dömubuxur 549.- 399.-
Herraúlpur 1.589.- 989.-
Herrabuxur 599.- 399.-
Barnaúlpur 1.249.- 789.-
Barnabuxur 289.- 189.-
Dömuskór 689.- 499.-
Herraskór 789.- 589.-
Jergens sápa 69.95. .- 53.95
Eldhúsrúllur Serla 43.55. .- 35.-
WC pappír Serla 21.40. .- 17.-
Sími póstverslunar er 30980.
HAGKAUP
Reykjavík
Akureyri
Njarðvík