Morgunblaðið - 05.01.1984, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 05.01.1984, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984 Sigríður Guðmunds- dóttir — Minning „Þótt eg talaði tungum manna og engla en hefði ekki kærleika, yrði eg hljómandi málmur eða hvell- andi bjalla. Og þótt eg hefði spádómsgáfu og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking, og þótt eg hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað en hefði ekki kærleika, væri eg ekki neitt.“ I. Kor. 13. Við andlát Sigríðar Guð- mundsdóttur, sem fædd var í Bol- ungarvík en lifði mestan hluta æviskeiðs síns á Akureyri, skýrist ljúf mynd af konu, sem var hvort tveggja f senn, traust móðir og uppalandi og tryggur lífsförunaut- ur og félagi eiginmanns síns, Björns Þórðarsonar. Þó var hún kannski umfram allt hin fórnandi kona, sem ætíð hugsaði fyrst um annarra heill, kona kærleika, fórnfýsi og mildi í garð ástvina og samferðamanna. Kona, sem skil- aði margföldu öllu því, sem örlög- in veittu henni, kona, sem í senn var gædd kátínu, alvöru og greind, kona heimilis, tryggðar og vin- áttu, miðdepill fjölskyldulífs, trygg móðir barna og barnabarna. Eg minnist eilítið heimilis hennar og fjölskyldu hennar á Ak- ureyri, jafnvel áður en þau kynni áttu eftir að verða með öðrum hætti. Sigríður var glæsileg kona, sem eftir var tekið í bæjarlífi þess tíma. Ef til vill hafa hinir óvenju skýru skapgerðareiginleikar henn- ar mótast þegar við erfiðleika í bernsku, er báðir foreldrar hennar féllu frá með stuttu millibili frá stórum barnahóp og við kröpp kjör. Oft þarf erfiðleika til að skapa fórnfýsi gagnvart öðrum og efla jafnframt vináttu og örlæti gagnvart þeim, sem minna mega sín eða eiga við mótlæti að stríða. Þessi skaphöfn bjó með Sigríði alla tíð — allt til dauðadags, og eg veit að þeir eru ófáir, sem notið hafa þessa ríka eðlisþáttar í fari Móðir okkar. t RAGNHEIÐUR JÓNASDÓTTIR, Ægisgötu 26, er látin. Lilja Magnúsdóttir, Svana Magnúsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir. Eiginmaöur minn. t SIGURJÓN GUÐBERGSSON, mélarameistari, Hverfisgötu 99 A, lést 3. janúar. Jóhanna Sveinsdóttir. t Eiginmaður minn og faðir okkar, ÓLAFURJÓNSSON, ritstjóri, Hagamel 27, er látinn. Sigrún Steingrimsdóttir, Jón Ólafsson, Halldór Ólafsson, Valgeröur Ólafsdóttir. t ASGERÐUR HANNESDÓTTIR BENEDIKZ, lést 23. desember 1983. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks og lækna á Grensásdeild Borg- arspítalans. Þökkum auösýnda samúð. John Benedikz, Margrét Benedikz, Eiríkur Benedikz, Kristína Benedikz, Ríkharöur Þór Benedikz. t Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi, langafi og bróöir, Högni Högnason, bóndi, Bjargi Arnarstapa, andaöist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 2. janúar. Soffia Þorkelsdóttir, Sigurlína Högnadóttir, Ólöf Högnadóttir, Þorkell Geir Högnason, Dorothea M. Högnadóttir, Högni Unnar Högnason, Björk Högnadóttir, Tryggvi Högnason, Heiðlindur Högnason, Högni Hjörtur Högnason, Kristján Högnason, barnabörn og Jón Þór Ólafsson, Hafdís Ásgeirsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Hrund Sigurbjörnsdóttir. Jóhann Bjarnason, Elísabet Jónsdóttir, Birgitta Borg Viggósdóttir, Esther Rut Astþórsdóttir, barnabarnabörn. hennar, þótt unnið væri í hljóði og af þeirri hógværð, sem henni var eiginleg. Lífsstarf hennar, eins og svo margra annarra íslenzkra kvenna, var fyrst og fremst fólgið í því að rækta sinn eigin garð, garð heim- ilis og fjölskyldu. Ef nefna skal einhver áhugamál öðrum fremur, sem settu mark sitt á lífshlaup hennar og fjölskyldu hennar, þá voru það afar tíð ferðalög þeirra Björns og síðar dætra þeirra, eftir því sem þær uxu úr grasi. Var þá leitað á vit íslenzkrar náttúru, kyrrðar og fegurðar, hvort sem það var í faðmi eyfirzkrar sumar- fegurðar eða að farið var lengra til öræfa og landshluta, sem á J)eim árum voru í raun fjarlægir. A síð- ari árum bættust ferðalög til fjar- lægra landa í þetta fjölskrúðuga minningasafn, en eflaust hafa þau Sigríður og Björn notið sín bezt, þegar þau voru ein með sjálfum sér í íslenzkri náttúruvin og fáa fslendinga þekki eg, sem þó eru unnendur náttúru og fegurðar, sem tekið hafa sér ferð á hendur um miðja sumarnótt til þess að verða vitni að því, þegar miðnæt- ursólin rís úr hafi við Kaldbak í norðri. Án nokkurs vafa hafa sterkustu vináttubönd þeirra hjóna við aðra samferðamenn ein- mitt verið hnýtt í tengslum við slík ferðalög, ekki síst við sam- starfsfólk í samvinnuhreyfingunni og ferðasamtökum, og margar góðar endurminningar eru tengd- ar fögrum reitum í nágrenni Ak- ureyrar, á Svalbarðsströnd eða í Vaglaskógi austan Vaðlaheiðar. I erlendu spaxmæli segir: „Þeir sem mikið elska, verða aldrei gamlir." Sigríður Guðmundsdóttir var alla t;ð ung — ung á sál og líkama og þannig munu eftirlif- endur geyma með sér minningu hennar. Þetta kom líka skýrt fram í veikindastríði hennar. í sjúk- dómi sínum háði hún tvö dauða- stríð. Hið fyrra hófst á Akureyri fyrir rúmu ári, því stríði lauk með sigri lífsins og eru á því engar skýringar, hvorki vísindalegar né annars eðlis. Stórafmæli var framundan, en helsjúk reis hún sem heil á fætur. Gekk hún um götur Akureyrar, flaug suður til Reykjavíkur og í sumarfegurð Þingvalla var stórafmælið haldið. Líður sú stund seint úr minni þeim er þar urðu vitni að. { öðru erlendu spakmæli segir (Krystallar. Sr. Gunnar Árnason): „Kærleikur Guðs er skráður í hvert mannshjarta eins og í bók væri. Þótt bandið losni, blöðin fúni eða letrið máist er innihaldið ódauðlegt." Eins og sá kærleikur, er hafður er eftir postulanum frá Tarsos hér að framan, var þessi kærleikur skráður í brjóst þeirrar konu, sem kvödd er í dag. Síðara dauðastríðinu lauk að kvöldi ann- ars jóladags, á hátíð friðar og kærleika. Útförin fer fram í dag frá Akur- eyrarkirkju, þeirri kirkju, er hún hafði ætíð í sjónmáli bæði í hinum daglegu störfum og ekki síður sem viðmiðun í lífinu sjálfu. Helgur reitur á hæðinni gegnt heimilinu á Brekkunni bæði nú og áður, eftir að losað hefur verið um bönd og blöð tekin að fúna, letrið mun mást, en eftir verður hið eiginlega innihald — ódauðlegt. Ástvinir Sigríðar Guðmunds- dóttur harma og kveðja góða konu, sem var ógleymanlegur þáttur í lífi þeirra. Blessuð sé minning hennar. Heimir Hannesson Salvör Ebenezers- dóttir - Minning Hinn 28. desember síðastliðinn andaðist Salvör Ebenezersdóttir, lengi húsfreyja á Grettisgötu 8 í Reykjavík, síðar að Ósi við Elliða- árvog. Hún varð 86 ára að aldri. Salvör var fædd í Þernuvík við ísafjarðardjúp 21. júní 1898, yngsta barn hjónanna Ebenezers Ebenezerssonar frá Reykjarfirði og Valgerðar Guðmundsdóttur, hreppstjóra Guðmundssonar á Eyri í Mjóafirði. Eru þær ættir auðraktar til hins mesta mann- dómsfólks við Djúp, skörulegra kvenna og frægra sjósóknara. Bjuggu foreldrar Salvarar um nær þrjátíu ára skeið í Þernuvík, flutt- ust þaðan að Hvítanesi, en all- mörg síðustu árin dvöldust þau á heimili dóttur sinnar og tengda- sonar í Reykjavík. Ebenezer í Þernuvík hafði verið dugnaðarmaður og ötull sjómaður. Vegna sjósóknarinnar var hann oft langdvölum fjarri heimili sínu í Bolungarvík og öðrum verstöð- um. Mæddi búskapur og barna- uppeldi því mjög á Valgerði, og fórst henni hvort tveggja vel úr hendi. Hún hafði á yngri árum verið annáluð fríðleikskona, og allt til hárrar elli sameinaði hún ytri og innri göfgi í ríkara mæli en flestar konur aðrar. Salvör erfði bestu eiginleika foreldranna, mannkosti þeirra og dugnað, og þó öðru fremur göfgi og hjartayl móður sinnar. Ebenezer og Valgerður í Þernu- vík eignuðust fimm börn, sem upp komust, dugmikið fólk og mynd- arlegt. Tveir bræðurnir, Guð- mundur og Ágúst, fóru ungir til Englands, ruddu sér þar braut með harðfylgi og dugnaði og urðu víðkunnir togaraskipstjórar og aflagarpar í Grimsby. Þriðji bróð- irinn, Kristján, beykir, var heil- steyptur maður og traustur og glæsimenni sem bræður hans. Systurnar frá Þernuvík voru tvær. Hét hin eldri Kristjana. Hún fór ung til Skotlands, lærði þar mjólkufræði og fleiri búvís- indi, kom heim og stjórnaði hér rjómabúi um skeið. Síðan fluttist hún til Bandaríkjanna og dvaldi þar langa ævi, uns hún kom nær áttræð heim til Salvarar systur sinnar, og bjó hjá henni síðustu æviárin. Kristjana var gerðar- kona, eins og hún átti kyn til. Hún andaðist háöldruð fyrir tæpu ári. Ung að árum giftist Salvör Ebenezerdóttir Jóni Kjartanssyni frá Efrihúsum í Önundarfirði, mikilhæfum atkvæðamanni. Jón hafði að loknu prófi frá Kennara- skóla íslands gerst erindreki ung- mennafélaganna og ritstjóri blaðs þeirra, Skinfaxa. Síðar gerðist hann iðnrekandi í Reykjavík, og fékkst einnig nokkuð við útgerð. En þrátt fyrir langdvalir í Reykja- vík við erilsöm störf þar, stóð hug- ur Jóns löngum til búskapar. Kom hann upp stórbúi á Helgavatni í Þverárhlíð og rak það um skeið með myndarbrag. Á efri árum keypti hann nýbýlið ós við Elliða- árvog, og þar höfðu þau Salvör einnig nokkurn búskap. Ég sem þessar línur rita kynnt- ist Salvöru Ebenezersdóttur haustið 1935, er ég hóf nám í Reykjavík. Faðir minn og Jón Kjartansson voru góðkunningjar frá æskuárum. Er þar skemmst frá að segja, að þau Salvör tóku mér þegar í stað sem nákominn ættingi væri og reyndust mér hvort öðru betur. Átti ég síðan at- hvarf á heimili þeirra öll skólaár- in og kynntist þar aldrei öðru en einstöku trygglyndi og drengskap. Oft var margt um manninn á heimili þeirra Salvarar og Jóns á Grettisgötu 8. Þar var húsrúm all- mikið, en hjartarúm þó meira. Þótt húsbændur væru ólíkir um sumt, var rausnarskapurinn þeim sameiginlegur, frændræknin og vinfestin. Salvör húsfreyja bar, þess vott í sjón og raun, að hún var af heilsteyptu kjarnafólki komin. Hún var þeirrar gerðar, að hjá henni sameinuðust með ákaf- lega skemmtilegum hætti skör- ungsskapur og ljúflyndi. Hún var svo lánsöm lengst af ævinnar, að geta miðlað öðrum og látið gott af sér leiða, enda var það svo ríkt í eðli hennar, að ella hefði hún ekki notið sín. Slíkar konur sem Salvör Ebenezersdóttir skilja eftir góðar minningar og auka manni bjart- sýni og trú á manneðlið. Börn Salvarar og Jóns eru Kjartan, lögfræðingur í Reykja- vík, og Guðfinna, húsfreyja á Helgavatni í Þverárhlíð. Kjörson- ur þeirra er Eiríkur Guðmunds- son, framkvæmdastjóri, bróður- sonur Salvarar. Þegar Salvör Ebenezersdóttir er lögð til hinstu hvílu að lokinni langri, starfsamri og fagurri ævi, fylgja henni hlýjar kveðjur og þakkir okkar allra sem kynntumst henni. Gils Guómundsson t Eiginkona mín, móöir okkar og systir, LOVÍSA SCHIÖTH HANSEN, Æftebjergvej 105, Hvidövre 2650, lést 2. janúar síöastliöinn. Útförin fer fram i Kaupmannahöfn í dag, fimmtudaginn 5. janúar. Aage Hansen og börn, Margrét Guðlaugsdóttir. t Systir mín, SIGRÍDUR ÁRNADÓTTIR frá Stóra-Ármóti, andaöist í sjúkrahúsi Suöurlands, Selfossi, þriöjudaginn 27. des- ember. Jarösett veröur í Laugardælum 7. janúar nk. en kirkjuathöfnin fer fram í Selfosskirkju sama dag kl. 3 e.h. Ingileif Arnadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.