Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984 22 Átök á knattspyrnuvelli Hinn 19. desember kom enn einu sinni til átaka á knattspyrnuvelii í Buenos Aires, höfuöborg Argentínu, þegar aðdáendur liös sem beöið haföi lægri hlut þustu inn á völlinn til aö láta í Ijós óánægju meö leik sinna manna. Sérsveitir lögreglunnar uröu að skerast í leikinn eins og sjá má á meðfylgjandi símamynd frá AP-fréttastofunni. 3000 myrtir í Indónesíu Jakarta, 4. janúar. AP. HOLLENSKI UTANRÍKISRÁÐHERRANN, Hans Van Den Broek, sagði í gær, að yfirvöld í Indónesíu mættu til meö aö draga úr og helst koma með öllu í veg fyrir óhugnanlega öldu manndrápa sem gengið hefur yfir landið síðan í aprfl á síðasta ári. Um 3.000 manns hafa verið myrtir. Eru það strokufangar og aðrir sem setið hafa í fangelsi og gerst sekir um gróf afbrot. Talið er að óeinkennisklæddir lögreglumenn hafi staðið fyrir morðunum, en öll hafa fórnar- lömbin verið sundurskotin, mörg af stuttu færi. Hollenski ráðherr- ann hefur verið í Indónesíu að undanförnu og ræddi hann við utanríkisráðherra landsins um morðin. Ráðherrann, Mochtar Kusumaatmadja, svaraði ekki spurningu hollenska starfsbróður síns um hve margir hefðu verið drepnir, en fór að útskýra hvers vegna aðgerðirnar væru gerðar. Herforingi nokkur á Jövu ýtti að- gerðunum úr vör eftir að hafa fengið lista hjá lögreglunni hverj- ir væru óæskilegir. Þá ræddi hollenski ráðherrann við Adam Malik, fyrrum varafor- seta Indónesíu, og sagðist hann hafa rætt við Suharto forseta um málið, en sá siðarnefndi hefðu engu viljað svara. Van Den Broek sagði við fréttamenn eftir viðræð- ur sínar við ráðamenn í Indónesíu, að það hefði út af fyrir sig verið fróðlegt að heyra hver kveikjan hefði orðið. Hún var sú, að afbrotatíðnin hefði verið orðin svo stórkostleg, að almenningur óttað- ist nær alltaf um líf sitt og limi. Hefði það því í vaxandi mæli tekið lögin í sínar hendur. Væri af og frá að morðin væru í óþökk meiri- hluta alþýðu. „Hins vegar hlýtur að vera boðlegri úrlausn fyrir hendi,“ sagði Van Den Broek. Frelsissveitir í Afganist- an felldu 31 stjórnarhermann INýju Delhí, 4. janúar. AP. FRELSISSVEITIR múhameðstrúar- manna í Afganistan felldu 31 her- mann og særðu 10—12 í árás sem þær gerðu á bækistöð stjórnar- hersins í Kandahar, næst stærstu borg landsins, 22. desember sl., og sovéskar orrustuþotur og þyrlur ERLENT svöruðu með sprengjuárásum á jóla- dag, að því er vestrænir sendifulltrú- ar greindu frá í dag. Meðal hinna föllnu voru sovésk- ir hermenn, en ekki er vitað um fjölda þeirra. Sömu heimildir herma að Sov- étmenn gruni foringja úr afg- anska hernum um að hafa aðstoð- að frelsissveitirnar við undirbún- ing árásarinnar, og hafi þeir framkvæmt húsleit í herbækistöð- inni á Þorláksmessu. Ekki er vitað hvað þeir höfðu upp úr krafsinu. Að sögn sendifulltrúanna, sem ekki vildu láta nafna sinna getið, virðist staða frelsissveitanna nokkuð sterk í Kandahar og ná- Jólamartröð verðbréfasala PitLsburgh, Pennsylvaníu, 4. janúar. AP. BANDARÍSKUR verðbréfasali, Robert J. Haye að nafni, varð fyrir óskemmtilegri lífsreynslu um jólin. Maður nokkur sem dulbúinn var jólasveinakíæðum rændi honum úr jólaboði og refsaði honum í heima- gerðum pyntingarklefa í 12 daga vegna þess að hann taldi Haye bera ábyrgð á því að hann tapaði hálfri milljón dollara í verðbréfaviðskipt- um, að því er lögreglan í Pittsburgh skýrði frá í gær. Lögreglan fann Haye á mánu- að verðbréfasalinn hafi gefið sér dag á sveitabæ um 80 km fyrir utan Pittsburgh, og var hann þá hlekkjaður og hendur hans bundnar við rúm í pyntingar- klefanum. Jólasveinninn reyndist vera kunnur grískur héraðslæknir, Grover H. Philippi að nafni, en annar maður hafði aðstoðað hann við ránið og pyntingarnar. Lögreglan segist ekki vita um aðra ástæðu til verknaðarins en þá sem Philippi hefur gefið upp, vond ráð og hann því tapað miklu fé. Meiðsli Haye reyndust ekki mjög alvarlegs eðlis, hann var nefbrotinn og hafði margar skrámur, en var útskrifaður af sjúkrahúsi fljótlega. Á meðan á refsingunni stóð í hinum heima- gerða pyntingarklefa var verð- bréfasalinn neyddur til að borða margs konar óæti og yfirheyrð- ur. „Við vorum heppnir að finna hann á lífi,“ sagði lögreglan. Flýði frá A-Þýzkalandi Hannover, 4. ianúar. AP. AUSTUR-ÞYZKUR lögreglumaður flýði til Vestur-Þýzkalands í dag. Var hann í einkennisbúningi sínum en vopnlaus, er hann flýði. Skýrðu landa mærayfirvöld í Vestur-Þýzkalandi frá þessu í dag. Manninum, sem er 30 ára að aldri, tókst að komast heilu og höldnu yfir dauðagildrur komm- únista við landamærin milli þýzku ríkjanna við Luchow-Dannenberg um 60 km fyrir norðan Braun- schweig. Talið er víst, að félagar mannsins^ í austur-þýzku landa- _ flóttans. mæragæzlunni hafi ekki séð, er hann flýði og hafi það orðið hon- um til lífs. Haft var eftir mannin- um, að hann hafi verið mjög óánægður með stjórnarfarið og efnahagsástandið í Austur-Þýzka- landi og hafi það verið ástæðan tii grenni, og hafa þar verið daglegir bardagar að undanförnu. Aftur á móti höfðu frelsissveitirnar ekki nægan styrk til að gera árás á höf- uðborgina Kabúl á fjögurra ára innrásarafmælinu 27. desember, vegna víðtækra öryggisráðstafana Sovétmanna. Giorgio Calissoni segist vera eftir atvikum hress. Hér hefur broshýr systir hans, Laura Calissoni, heimsótt hann á sjúkrahúsið. Simamynd ap. Calissoni í eyrnaaðgerð San Franci.sco, 4. janúar. AP. HINN 16 ára gamli Giorgio ( alissoni, sem rænt var á dögunum á Ítalíu, ásamt móður sinni, er nú kominn á sjúkrahús í San Francisco í Kali- forníu, en þar ætla læknar að freista þess að gera að meiðslum hans, en mannræningjarnir voru svo hrottalegir, að skera annað eyrað af ungl- ingnum til þess að leggja áherslu á kröfur sínar um svimandi hátt lausnargjald. Burt Brent, skurðlæknir, sagði í gær, að skorið hefði verið í örið á höfði piltsins og sárið „hreins- að og lagfært". Brent sagði það hins vegar taka 6 mánuði að setja saman nýtt.eyra og væri ekki alveg ljóst enn hvort að- gerðin gæti heppnast fullkom- lega. „Við verðum að notast við gervieyra, því það gamla var ekki geymt í kæli svo dögum skipti og myndi áreiðanlega valda ígerð og sýkingum," sagði Brent, sem mun smíða nýtt eyra úr brjóski úr rifjum sjúklings- ins. Saad Haddad Haddad major fárveikur af gulu Haifa, fsrael. 4. janúar. AP. SAAD Haddad majór liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi í Ram- bam í suðurhluta Líbanon. Herma fregnir að majórinn sé með gulu og í lífshættu. Sjúkrahúsyfirvöld hafa til þessa aðeins játað þvf að hann sé „þreyttur“. Haddad hinn líbanski er majór sem klauf sig frá líbanska stjórn- arhernum og stjórnar nú 1.000 manna herliði sem er hliðhollt ísraelum. Þetta er í annað skiptið á þremur mánuðum sem hann er lagður á sjúkrahús með ill veik- indi. Meðal þeirra sem heimsótt hafa majórinn að sjúkrarúminu nú eru fyrrum og núverandi varn- armálaráðherrar ísrael, Ariel Sharon og Moshe Arens. V-Þýskaland: Atvinnuleysi aldrei meira NUrnbcrg, 4. janúar. AP. ATVINNULEYSI jókst í Vestur- Þýskalandi í desember um 0,7 pró- sent í 9,5 prósent. Fjöldi atvinnulausra í desember var 2,348 milljónir manna, 155.655 fleiri en í nóvember. Meðalfjöldi atvinnulausra í Vestur-Þýska- landi á árinu 1983, var 2,258 millj- ónir, eða 9,1 prósent. Hefur atvinnuleysið aldrei verið meira eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk. Meðalfjöldi atvinnulausra miðað við 1982 jókst um 1,83 millj- ónir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.