Morgunblaðið - 05.01.1984, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984
37
Ólafía G. Blöndal
— Minningarorö
Fædd 14. mars 1903
Dáin 21. desember 1983
Það fer sjaldan hátt er lífi aldr-
aðrar konu lýkur. Andlát Ólafíu
G. Blöndal snertir samt strengi
þakklætis og virðingar í hugum
þeirra sem nutu velvildar hennar
einhvern tíma á lífsleiðinni, og
þeir eru margir.
Ólafía Guðrún fæddist 14. mars
1903 í Bæ í Kjós, elsta barn hjón-
anna Ólafar Gestsdóttur og Andr-
ésar Ólafssonar, en þau fluttust
síðar að Neðra-Hálsi í sömu sveit.
Árið 1929 giftist Ólafía Magnúsi
Blöndal á Grjóteyri og hófu þau
búskap þar, fyrst í sambýli við
móður Magnúsar og fóstra, Sigríði
Magnúsdóttur og Jóni Magnús-
syni. Faðir Magnúsar var Jón
Blöndal læknir í Stafholtsey.
Ólafía og Magnús tóku fljótlega
við öllum búsforráðum og bjuggu
farsælu búi á Grjóteyri í 34 ár.
Natni og snyrtimennska ein-
kenndi öll störf þeirra utan húss
sem innan. Þau eignuðust ekki
börn saman, en ólu upp fóstur-
dóttur, Unni Ingu Pálsdóttur.
Fjölskyldan var ákaflega samrýnd
og Unnur hefur alla tíð verið for-
eldrum sínum til mikillar gleði og
ómetanleg stoð á efri árum er
heilsu þeirra hrakaði. Ástúð henn-
ar og umhyggjusemi lýsti upp
ævikvöld þeirra. Magnús lést 5.
júlí 1979.
Nú óma minningarnar í huga
mér. Ég man ólafíu móðursystur
mína fyrst á heimili foreldra
minna þegar ég var fárra ára. Ung
fór ég svo að dveljast sumarlangt
á Grjóteyri. Sumarbörnin hennar
Ólafíu voru mörg; ég man að eitt
sumarið vorum við 7 á svipuðu
reki. Sjaldan þurfti Ólafía þó að
brýna raust og ónot eða skammir
heyrðust ekki á því heimili. Upp-
örvun og leiðsögn voru aðferðir
Ólafíu. Éf ekki varð hjá því kom-
ist, voru veittar ákúrur, en þeim
fylgdi venjulega samtal um hvern-
ig bæta mætti úr því sem miður
fór.
Ég man vel þegar þau Magnús
gerðu verkáætlanir fyrir daginn í
eldhúsinu á morgnana, og ekki
man ég betur en við börnin legðum
þar stundum orð í belg. Geta má
nærri að það hefur þurft útsjón-
arsemi til að láta okkur öll hafa
gagnlegt verkefni en þó aldrei
ofviða þeim sem verkið var falið.
Seinna hef ég oft hugsað um hvað
þau voru samtaka og samhuga,
hjónin á Grjóteyri, þó ólík væru,
hann nokkuð örgeðja en hún ró-
lynd og stillt. Það mátti mikið af
þeim iæra. Ólafía treysti okkur
börnunum til alls góðs. Hún var
jafnan sjálfri sér samkvæm og
fylgdi því eftir af festu, ef því var
að skipta, að við gerðum það sem
til var ætlast. Éinhvern veginn
Minning:
Eiríkur Helgason
rafvirkjameistari
Fæddur 14. desember 1907
Dáinn 24. október 1983
Árið 1983 er liðið í aldanna
skaut, með því eru horfin á braut
úr lífi okkar bæði móðurfaðir og
föðurmóðir.
Afi okkar Eiríkur var fæddur i
Keflavík 14. desember 1907. Faðir
hans var Helgi Eiríksson bakara-
meistari frá Karlsskála við Reyð-
Það fór gott orð af afa hvort
sem var í starfi eða leik, enda var
hann hrókur alls fagnaðar hvar
sem hann kom. Hann var einstak-
lega barngóður maður og fórum
við barnabörnin ekki varhluta af
því.
Minningin um afa með fullan bíl
af börnum og brjóstsykur í vasa
mun seint gleymast.
„Far þú í friði, ^
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
IJnnur, Katrín og Kristján.
var það svo, að allir lögðu sig fram
um að gera sitt besta, og þá var
notalegt að fá viðurkenningu að
loknu verki. Eflaust hefur þó
stundum vantað eitthvað á að það
væri óaðfinnanlega af hendi leyst.
Það var gott að leita til ólafíu ef
á bjátaði. Oft þurfti hún að stilla
til friðar með okkur krökkunum,
en þó sjaldnar en hefði mátt ætla.
Ég finn það núna, þegar ég hlusta
á minningarnar, að hún Ólafía
skildi vel ungar sálir. Það rifjast
upp fyrir mér sáttasamtöl hennar
þegar deilumál voru komin í óefni
og áflog. Hún vissi sitthvað um
hugsanagang og tilfinningar
svona fólks og hún höfðaði alltaf
til betri manns. Við börnin sóttum
til hennar öryggi og hlýju, og við
vorum velkomin að Grjóteyri á
öllum árstímum. Raunar höfðu
nokkrir unglingar verið þar lang-
dvölum árið um kring.
Ég man líka gamalt fólk sem
átti heima á Grjóteyri í skjóli
Ólafíu og Magnúsar.
Ég man gestakomur, kaffi og
kökur, mat og uppbúin rúm. Ég
man skömmtunarseðla, sem voru
sóttir að Grjóteyri, og sjúkrasam-
lag, og útsvar var greitt á Grjót-
eyri. Svo voru stundum hrepps-
nefndarfundir og fleiri gestakom-
ur sem fylgdu oddvitastörfum
Magnúsar. Ættingjar og vinir
lögðu leið sína að Grjóteyri því að
þar var gott að koma. Ólafía og
Magnús voru samtaka í því sem
öðru að gera vel við þá sem að
garði bar og þau voru bæði ákaf-
lega frændrækin.
í huga mér koma ferðalög með
Ólafíu, Magnúsi og Unni. Þessar
ferðir urðu sérstaklega minnis-
stæðar vegna þess að þau þekktu
víðast hvar örnefni og bæjarnöfn
þar sem við fórum, og oft nöfn
ábúenda og ættir. ólafía var mjög
ættfróð og minnug og hafði gaman
af að rekja ættir manna. Þau
höfðu yndi af að ferðast og sóttu
oft heim frændur og vini víða um
land.
Þar kom að líkamsþrekið tók að
þverra og aldurinn að færast yfir.
Þá fluttist fjölskyldan frá Grjót-
eyri að Ásbraut 5 í Kópavogi. Ég
hef oft dáðst að þvi með sjálfri
mér hve vel þeim tóks að laga sig
að breyttum aðstæðum. Það er
stórt stökk frá búi í sveit yfir í
blokk í borg. Þá kom enn í ljós
þessi dýrmæti eiginleiki að geta
gert gott úr öllu. I blokkinni eign-
aðist Ólafía vini sem héldu tryggð
við hana til æviloka, og börnin
voru fljót að finna að til ólafíu
var gott að leita.
Ólafía G. Blöndal hefur nú lokið
lífi sínu. Hún vann störf sín í
kyrrþey innan heimilisins, en því
hef ég fest þessi minningabrot á
blað, að árangurinn af lífsstarfi
hennar greinist best með fólkinu
sem naut umönnunar hennar.
Áhrif hennar hafa markað efni-
viðinn sem hún átti þátt í að móta,
og ég er ein af mörgum sem eiga
Ólafíu frænku minni mikið að
þakka. Guð blessi minningu góðr-
ar konu.
Hólmfríður Pétursdóttir
arfjörð. Móðir hans var Sesselja
Árnadóttir frá Kálfatjörn, Vatns-
leysuströnd. Hann var einkasonur
en systurnar sex og eru aðeins
elsta og yngsta á lífi. 30. október
1931 giftist hann eftirlifandi konu
sinni Unni Jónsdóttur, þau eign-
uðust sex börn. Auður, gift Bene-
dikt Sigurðssyni, Nína gift Þor-
valdi Ólafssyni, Helgi giftur Elin-
borgu Karlsdóttur, Sesselja gift
Óla Jósefssyni, Þorsteinn giftur
Jóhönnu Gunnarsdóttur og Aðal-
heiður gift Erni Alexanderssyni.
Barnabörnin eru 22 og barna-
barnabörnin 9. Amma og afi
stofnuðu heimili í Reykjavík en
fluttu til Stykkishólms árið 1937
og bjuggu þar æ síðan.
i Móöir okkar.
MARÍA GUDMUNDSDÓTTIR,
sem lézt 28. desember verður jarösett frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 6. janúar kl. 14.00. Guðrún Einarsdóttir, Gunnar Einarsson, Ingimar Einarsson.
t
Kveðjuathöfn um manninn minn og fööur,
HARALD KRISTJÁNSSON,
bónda,
Sauðafelli,
fer fram í Fossvogskirkju föstudaginn 6. janúar kl. 10.30.
Jarösett á Sauöafelli laugardaginn 7. janúar Athöfnin hefst í Dala-
búö kl. 14.00.
Finndís Finnbogadóttir,
Höröur Haraldsson.
t
Móöir min,
GUÐBJORG GUNNARSDÓTTIR BRIEM
frá Nefbjarnarstööum,
Baldursgötu 26,
andaöist í Borgarspítalanum aö kvöldi 2. janúar. Jarösett verður
frá Fossvogskapellu 6. janúar kl. 13.30.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Ólafur Briem.
t
Móðir, tengdamóöir og amma,
UNNUR EINARSDÓTTIR,
Ásvallagötu 37,
lést á nýársdag.
Útförin fer fram í dag kl. 15.00 frá Dómkirkjunni.
Blóm eru vinsamlega afþökkuö en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á líknarstofnanir.
Helga I. Pálsdóttir,
Björn Sigurbjörnsson,
Unnur Steina Björnsdóttír.
t
Maöurinn minn og faðir okkar,
GUOLAUGURGUDLAUGSSON
frá Ysta-Hóli,
andaöist aö heimili sinu, Kirkjubraut 18, Innri-Njarövík, föstudag-
inn 30. desember.
Jarðarförin ákveöin laugardaginn 7. janúar kl. 14.30.
Sólveig Halldórsdóttir og börn.
t
Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma,
HALLA JÓNSDÓTTIR,
Hlíð, ísafiröi,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. janúar kl.
15.00.
Sigmundur Guömundsson,
Guölaugur Fr. Sigmundsson, Guöný Emilsdóttir
og sonarbörn.
t
Útför móöur minnar,
SALVARAREBENEZERSDÓTTUR,
Grenimel 33,
veröur gerö frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. janúar kl. 10.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Kjartan Jónsson.
t
Þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur samúö og hlýhug viö
andlát og jaröarför okkar hjartkaeru systur, mágkonu og móður-
systur,
BJARGARJÓHANNESDÓTTUR,
Sunnuvegi 27.
Guö blessi ykkur öll.
Svava Jóhannesdóttír Guömundur Guðmundsson,
Þórir Sigtryggssún og systrabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför
EGILS S. KRISTJANSSONAR,
bankaritara,
Einarsnesi 46.
Katla Nielsen,
Gréta Egilsdóttir,
Olga Egilsdóttir,
Margrét Egilsdóttir Kristján Steindórsson,
Ásrún Kristjánsdóttir Guöjón Vilbergsson,
Gréta Nielsen,
Bjarney Guðmundsdóttir, Þór Niel*en