Morgunblaðið - 05.01.1984, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984
Tóbak hækkar og
lækkar í verði
VKKi) á nokkrum tegundum tóbaks
breyttist í vikunni, ýmist til hækkun-
ar eða lækkunar, að sögn Ragnars
Jónssonar, skrifstofustjóra Áfengis-
og tóbaksverzlunar ríkisins.
„Ástæðurnar fyrir þessum lag-
færingum á verði eru aðallega
tvær, annars vegar lítilsháttar
gengisbreytingar og hins vegar
breytingar á flutningsgjöldum,"
sagði Ragnar Jónsson.
Sem dæmi um verðbreytingar
má nefna, að danskt reyktóbak
lækkar úr 39,70 krónum í 39,40
krónur, eða um 0,75%. Midland-
tóbak lækkar úr 29,50 krónum í
28,90 krónur, eða um liðlega 2%.
Dós af Half and Half-tóbaki lækk-
ar úr 197,20 krónum í 180,00 krón-
ur, eða um 8,7%.
Pakki af Camel-sígarettum
lækkar úr 44,10 krónum í 43,70
krónur, eða um 0,9%. Pakkinn af
Winston Light lækkar úr 44,10
krónum í 43,70 krónur, eða um
0,9%. Pakkinn af Lark hækkar úr
43.90 krónum í 44,10 krónur, eða
um 0,45%. Sömu sögu er að segja
af Kent-sígarettum.
King Edward-vindlar lækka úr
9.90 krónum í 9,60 krónur, eða um
liðlega 3%. Churchill-vindlar
hækka úr 8,20 krónum í 9,30 krón-
ur, eða um 13,4%. Þá lækka Lon-
don Docks-vindlar úr 6,00 krónum
í 5,30 krónur, eða um 11,7%.
Kirkjur þétt setn-
ar á Barðaströnd
Baróaströnd, 4. janúar.
Á JÓLADAG var messað í báðum
kirkjunum á Barðaströnd, Brjáns-
lækjar- og Hagakirkju. Voru þær
báðar þétt setnar. Mátti segja að all-
ir Barðstrendingar sem heima voru
væru við kirkju. Tvö börn voru skírð
í Hagakirkju.
Jól og áramót liðu hér í róleg-
heitum. Allir unglingar héðan sem
voru í skólum og við vinnu komu
heim um jólin, en eru nú að fara
aftur.
Talsverður snjór er kominn hér
og tíðarfar erfitt.
SJ
Friðarganga
á Akranesi á
þrettándanum
SAMSTARFSHÓPUR um friðarmál
skipaður konum úr öllum starfandi
stjórnmálaflokkum á Akranesi,
stendur fyrir friðargöngu á þrettánd-
anum, 6. janúar.
Gangan hefst klukkan 19 við
Akraneskirkju og verður farin
blysför um aðalgötur bæjarins að
sjúkrahúsi Akraness, þar sem
göngunni lýkur.
Allir Akurnesingar eru hvattir
til þátttöku og sýna þannig hug
sinn í verki.
(Fréttatilkynning)
Tónleikarnir verða til styrktar
húsbyggingarsjóði kattavinafélags-
ins, sem nú hefur hafið byggingu á
„kattahóteli", þar sem eigendur
geta skilið ketti sína eftir en þeir
fara í ferðalög, eða annað, og hafa
ekki tök á að hafa ketti sína með.
Tónleikar á
Hótel Borg
í kvöld
Tónleikar til styrktar húsbygg-
ingarsjóði Kattavinafélagsins verða
haldnir að Hótel Borg í kvöld, 5. janú-
ar og hefjast þeir kl. 21.
í tilkynningu frá félaginu segir
að þeir sem komi fram séu Böðvar
Guðmundsson, Róbert Arnfinnsson
ásamt Skúla Halldórssyni, Unnur
Jensdóttir ásamt Guðna Guð-
mundssyni og sönghópurinn „Hálft
í hvoru". Einnig komi fram
hljómsveitin „Aldrei aftur", en þá
hljómsveit skipa Bergþóra Árna-
dóttir, Pálmi Gunnarsson og
Tryggvi Hubner. { tilkynningunni
segir: „Kynntur verður tilvonandi
bassaleikari „Aldrei aftur", Geir
Atle Johnsen, en hann starfaði áður
með norska söng- og leikhópnum
SYMRE. Geir Atle mun leika með
„Aldrei aftur“ í þrjá mánuði, meöan
Pálmi tekur sér vetrar- og veðra-
frí.“
Arnþrúður Karlsdóttir verður
kynnir og hljóðmaður verður Guð-
mundur Árnason.
I tilkynningunni segir að að-
göngumiðar verði seldir við inn-
ganginn og kosti 190 krónur fyrir
fullorðna og 90 krónur fyrir börn.
Leiðrétting
í viðtali í Mbl. í gær við konu
frá Nígeríu, Fídelíu Pálsson, sem
búsett hefur verið á íslandi sl.
áratug, var hún á einum stað
nefnd Ólafsdóttir og á öðrum stað
Ólafsson. Biður Morgunblaðið
Fídelíu velvirðingar á þessum
mistökum. —
Margeir og Jóhann
gerðu jafntefli
MARGEIR Pétursson og Jóhann
Hjartarson gerðu „stórmeistara-
jafntefli" sín í millum í 15 leikjum í
7. umferð alþjóðlega skákmótsins í
Noregi, en þá leiddu þeir saman
hesta sína.
Báðir eru þeir í efstu sætunum,
Margeir efstur með 5 16 vinning að
loknum 7 umferðum, en honum
tókst að vinna biðskák sína úr 6.
umferð. Jóhann er með 416 vinn-
ing eftir 7 umferðir og stórmeist-
arinn Rajkovic frá Júgóslavíu er
einnig með 4'A vinning, en eftir 6
umferðir og getur því náð Margeir
að vinningum með vinningi í um-
ferðinni sem tefld var í gær.
í næstu sætum eru Valkesalmi
frá Finnlandi með 4 vinninga af 6
mögulegum og síðan kemur mikill
fjöldi skákmanna með 316 vinning
þeirra á meðal stórmeistararnir
Knezevic og Benkö með 316 vinn-
ing að loknum 6 umferðum.
Stefán Þórisson, þriðji íslenski
þátttakandinn í mótinu, er með
216 vinning eftir 6 umferðir.
Tuttugu og tveir þátttakendur
eru í mótinu og tefldar 9 umferðir
eftir Monrad-kerfi. Mótið er ekki
nógu sterkt til að gefa möguleika
á áfanga að stórmeistaratitli, þó
að í því taki þátt fjórir stórmeist-
arar. Hins vegar nær Jóhann
Hjartarson áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli, með því að ná 6
vinningum.
„Vinnuskjal“ Þjóðhagsstofnunar:
Þjóðhagshorfur 1984
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN sendi hinn 29. desember sl. frá sér „vinnu-
skjal'* sem hefur að geyma horfur um breytingar helstu hagstærða á
árinu 1984 í samanburði við það sem var 1983. Morgunblaðið birtir hér
tölulegar niðurstöður þessa skjals.
Framleiðsla Horfur 1984 +2'6%
Útflutningsframleiðsla alls 0,0%
Kauptaxtar a) hækkun frá ársbyrjun til ársmeðaltals 4%
b) hækkun yfir árið 6-7%
c) meðalhækkun 1983—84 13%
Atvinnutekjur 16%
Ráðstöfunartekjur heimilanna 16%
Kaupmáttur ráðstöfunartekna -8%
Verð erlends gjaldeyris
a) hækkun yfir árið 5%
b) meðalbreyting 1983—84 14%
Verðlag einkaneyslu, meðalhækkun 1983—84 26%
Verðlag einkaneyslu, hækkun yfir árið 9-10%
Einkaneysla, magn +6 '6%
Neysla og fjárfesting, magn +6%
Viðskiptakjör, alls 2-3%
Viðskiptakjör, án áls +1 !6—2%
Vöruútflutningur, magn -3%
Vöruinnflutningur, magn +3—4%
Viðskiptajöfnuður, % af þjóðarframleiðslu +1—'6%
Þjóðarframleiðsla +5-5'/6%
Landsframleiðsla +4-4'6%
Þjóðartekjur +4*6%
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Ný námskeiö eru aö hefjast:
Uppsetning vefja 5. jan.
Utskuröur 9. jan.
Dúkaprjón 9. jan.
Myndvefnaður 10. jan.
Munsturgerö 12. jan.
Munsturgerö. dagnámsk 16 . jan.
Leöursmíöi 17. jan.
Sokka- og vettl.prjón 18 jan.
Uppsetnlng vefja 18. jan.
Baldýring 23. jan.
Textilsaga. tsl útsaumur 30. jan.
Tuskubrúðugetö 31. jan.
Bótasaumur 31. jan.
Ymiss önnur námskeiö hefjast í
febr.—apr. sjá bækling skólans
yfir námskeiö vetrarins.
Innritun og upplýsingar i
Heimilisiðnaöarskólanum,
Laufásvegi 2. simi 17800.
VEROBHfFAMARKAOUH
MUSI VCFKSUJIVAniNNAe SIMI 8 33 30
Simatknar kL 10—12 09 3—5.
KAUP 06 SALA VE6SKUL DABRÍFA
Miðbær
Gott 13 fm kjallaraherbergi meö j
aðgangi aö snyrtingu leigist j
reglusömum einstaklingi strax. j
Tilboö sendist augld. Mbl.
merkt: „Miðbær — 528".
Sveit
Öska aö ráöa mann eöa konu til
sveitastarfa á Vestfjöröum nú
strax. Allir aldurshópar frá 20
ára koma til greina. Uppl. í sima
91-20060 milli 18 og 20. eöa
94-8213 allan daginn.
□ St.: St.: 598416 — Rh. I kl.
18.00.
fbmhiólp
Samkoma í Þríbúöum Hverfis-
götu 42. í kvöld kl. 20.30. Mikill
söngur. Margir vitnisburöir. Allir
velkomnir.
Samhjálp.
Fimmtudag kl. 20.00. Norrænn
jólafagnaöur. Major Anna Ona
stjórnar. Hrefna Tynes talar.
Velkomin.
Sálarrannsóknarfélag islands.
félagsfundur veröur haldinn
fimmtudaginn 5. janúar kl. 20.30
í Hótel Hof, Rauöarárstíg.
Fundarefni:
Mismunandi viöhorf til framlifs.
Stjórnln.
Tilkynning frá félaginu
Anglíu
Enskar talæfingar fyrir fulloröna
J byrja þriöjudaginn 10. janúar frá
j kl. 19—21 aö Aragötu 14. —
Enskar talæfingar fyrir börn
7—14 ára byrja laugardaginn
14 janúar kl. 9 fh. aö Amt-
j mannsstig 2 (bakhúsiö). Þátt-
tökutilkynningar fyrir bæöi full-
oröna og börn eru i sima 12371
á skrifstofu félagsins aö Amt-
I mannsstig 2.
Stjórn Anglíu.
Vegurinn
Almenn samkoma veröur í kvöld
j kl. 20.30 í Síöumúla 8. Eiöur Ein-
arsson talar. Allir velkomnir.
#FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsferö sunnudaginn
8. janúar
Kl. 13. Skíöagönguferö á Hellis-
helöi og gönguferö. Fararstjóri:
Siguröur Kristjánsson. Verö kr.
200. Farið frá Umferöarmiöstöö-
inni, austanmegin. Farmiöar viö
bíl. Komiö vel búin þá skiptír
veöur minna máli.
Ferðafélag (slands.
Vegurinn
Almenn samkoma veröur í kvöld
kl. 20.30 í Síðumúla 8. Allir vel-
komnir.
Góðtemplarahúsió
Hafnarfiröi
Félagsvistin í kvöld, fimmtudag
5. janúar. Verið öll velkomln og
fjölmennið.
Sálarrannsóknafélag
íslands
Félagsfundur veröur haldlnn
fimmtudaginn 5. janúar kl. 20.30
aö Hótel Hof, Rauöarárstig.
Fundarefni: Mismunandl hug-
myndir um framlíf. Pallborösum-
ræöur.
Stjórnin.
handmenntaskólinn
91 - 2 76 44
MI8 KYRRIWGARRIT SKflt AWS S[RT HEIM j
I HMl er tirvfjU.nl neim'ndur okkar um
allt land.ltera tejkninxu.4tnuit<ikríft or
Jfl.i sinum tima-nýtt:ódýrt buntanÁimkek)
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma kl 20.30.
Samkomustjóri: Sam Daniel
Glad
Völvufell 11. Almenn samkoma
kl. 20.30. Ræöumaður: Daniel
Glad.