Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984
33
Minning:
Katrín Kristjáns-
dóttir hjúkrunarkona
Faedd 5. október 1897
Dáin 27. desember 1983
Á annan dag jóla fór líf ömmu
að fjara út og rétt fyrir hádegi
þann þriðja dó hún og mikið var
hún hvíldinni fegin.
Amma fæddist að Stóra Knarr-
arnesi, Vatnsleysuströnd, dóttir
hjónanna Kristjáns Jónssonar
sjómanns og Margrétar Símon-
ardóttur. Þar ólst hún upp með
yngri systur sinni, Guðbjörgu,
sem fædd var 27. apríl 1901, dáin
31. ágúst 1978, og þremur fóstur-
systkinum.
Amma var mjög fróðleiksfús,
hún varð ljósmóðir 1921 en ekki
dugði það henni, árið 1924 fór hún
til Danmerkur í hjúkrunarnám og
var þar í fjögur ár. Hvort sem hún
stundaði nám eða starf fékk hún
ávallt fyrstu einkunn.
22. desember 1934 giftist hún
Jósef Einarssyni verkstjóra. Hann
fæddist 8. maí 1897, dáinn 19.
febrúar 1967. Þeim varð ekki
barna auðið en ættleiddu tvo
drengi, Óla Bjarna, sem er kvænt-
ur Sesselju Eiríksdóttur og eiga
þau þrjú börn, og Sigurþór, sem er
kvæntur Vilborgu Þórarinsdóttur
og eiga þau tvær dætur. Einnig
ólust upp hjá þeim þrjú fóstur-
börn, Svandís, Þorgerður og Jósef.
Ömmu var margt til lista lagt,
því bera málverk hennar vitni.
Hún var mjög trúuð og viljum við
kveðja hana með sömu bæn og
hún svæfði okkur svo oft með.
„Vertu yfir og allt um kring,
með eilífri blessun þinni,
sitji guðs englar saman í hring,
sænginni yfir minni.“
Unnur, Katrín og Kristján.
+
Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför
HALLDÓRS ÞORSTEINSSONAR,
vélvirkja.
Rut Guömundadóttír,
Siguröur R. Halldórsson, Kristin Sigurbjarnardóttir,
Birgir Halldórsson, Sigríöur Auöunsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra er auösýndu okkur samúö og vináttu viö
andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og
langafa,
ÓSKARS SVEINSSONAR
frá Siglufiröi.
Guö blessi ykkur öll.
Elín Jónasdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kveðjuorð:
Egill Siguröur
Kristjánsson
Fæddur 22. desember 1947
Dáinn 19. desember 1983
Elskulegur frændi minn er fall-
inn í valin fyrir aldur fram, svo
skjótt og óvænt, enginn veit sína
ævi fyrir en öll er. Við stöndum
eftir agndofa, skiljum ekki til-
ganginn. Ég á margar góðar minn-
ingar um minn góða frænda. Ég
var viðstödd þegar hann fæddist á
Siglufirði í rúmi pabba og mömmu
þann 22. desember 1947, sannkall-
að jólabarn. Ég man það svo vel ég
var 11 ára og fannst það stórkost-
legt. Við héldum jólin með systur
minni og litla fallega drengnum í
svefnherberginu. Ég passaði Egil
oft þegar hann var lítill og ég á
margar skemmtilegar minningar
frá þeim tíma, sérstaklega man ég
eftir því þegar hann fékk sitt
fyrsta hjól hve ánægjan var mikil.
Ég kom oft á heimili Egils eftir að
hann gifti sig. Það var gott að
heimsækja Kötlu og Egil, alltaf
hlýlega tekið á móti manni og
gaman að sjá hvað ,.þau gerðu
heimili sitt notalegt. Það var allt-
af hægt að leita til Egils með hvað
sem var. Það fór ekki mikið fyrir
honum en ég veit að hann var
allra. Ég bið góðan Guð að hjálpa
þér, Kata mín, í sorg þinni og
söknuði, litlu stelpunum þínum,
Grétu Björg og Olgu Perlu. Móður
þinni, Margréti, systur minni og
Kristjáni, Ásrúnu svo og fjöl-
skyldunni, bið ég einnig góðan
Guð að hjálpa í ykkar miklu sorg
og söknuði.
Ég og fjölskylda mín sendum
ykkur öllum innilegar samúðar-
kveðjur. Við eigum öll dýrmætar
minningar um góðan Dreng.
Blessuð sé minning hans.
Geirlaug Egilsdóttir
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Suðurnesja
Lokið er JGP-mótinu með
þátttöku 11 sveita, spilaðir voru
16 spila leikir. Úrslit urðu þessi:
Sveit Stefáns Jónssonar, en
auk hans spiluðu þeir Einar
Jónsson, Kolbeinn Pálsson, Elías
Guðmundsson, Hjálmtýr Bald-
ursson og Alfreð Alfreðsson.
Sveitin hlaut 173 stig.
stig
Sv. Karls Hermannssonar 134
Sv. Haraldar Brynjólfss. 125
Sv. Grethe Iversen 116
Sv. Sig. Brynjólfssonar 112
Sv. Einars Baxter 97
Sveit Stefáns vann yfirburða-
sigur í mótinu, tapaði aðeins ein-
um leik fyrir sveit Sigurðar
Steindórssonar.
Aðalfundur Bridgefél. Suður-
nesja verður fimmtudaginn 5.
jan. og eru félagar alvarlega
áminntir um að mæta stund-
víslega. Æsispennandi spil-
amennska verður að fundi lokn-
um.
Frá Hjónaklúbbnum
Síðasta spilakvöld ársins var
þann 20. des. og var það eins
kvölds tvímenningur, mættu 24
pör til leiks og var bryddað á
þeirri nýjung að láta karlmenn-
ina draga sér makker, enda var
óvenjulétt yfir spilamennskunni
en spilað var í tveim 12 m. riðl-
um.
Úrslit:
A-riðill:
Kristín Þórðardóttir —
Jónas Elíasson 150
Guðrún Bergsdóttir —
Einar Sigurðsson 127
Steinunn Snorradóttir —
Lárus Arnórsson 124
B-riðill:
Edda Thorlacius —
Gunnar Þorkelsson 128
Valgerður Kristjánsdóttir —
Þórarinn Andrewsson 123
Sigrún Steinsdóttir —
Jóhann Guðlaugsson 117
Meðalskor 110
Á nýja árinu byrjar spila-
mennska þriðjud. 10. jan. og
verður það barometer 4—5
kvöld. Þeir félagar sem ætla að
vera með eru vinsamlegast beðn-
ir um að skrá sig í tíma hjá Ág-
ústi í síma 74194, eða Júlíusi í
síma 22378.
Samhjálp kvenna
6 vikna námskeið hefjast 9. janúar nk.
Ef næg þátttaka fæst, mun Ástbjörg Gunnarsdóttir, íþróttakennari,
gefa kost á hressingarleikfimi fyrir konur er gengist hafa undir brjóst-
aögerö.
Kennslustaöur íþróttahús Seltjarnarness.
Innritun og nánari upplýsingar í síma 33290.
kl. 9—14 daglega.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför
GUÐRÚNAR SÆMUNDSDÓTTUR
fró Eystri-Garösauka.
Steinunn Sæmundsdóttir,
Mólfríður Guömundsdóttir
og aðrir vandamenn.
Lokað
Stofnunin veröur lokuö frá hádegi í dag, fimmtudag-
inn 5. janúar, vegna jaröarfarar.
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
Keldnaholti.
Heba heldur
vióheilsunni
Nýtt námskeiö að hefjast.
Dag- og kvöldtímar tvísvar eða
íjórum sinnum í viku.
Megrunarkúrar - Nuddkúrar
Leiklimi - Sauna - Ljós - Megrun
Sól-bekkir - Nudd - Hvfld - Kaffi -
Jane Fonda leikfimi
Innritun í síma 42360 - 40935
Heilsurœktin Heba
Auðbrekku 14 Kópcr/ogi
Bladburðarfólk
óskast!
Austurbær
Miöbær I
Ármúli 1 —11
Stigahlíð frá 37—97
Flókagata 53—64
Vesturbær
Tjarnargata frá 39
Faxaskjól
Fjörugrandi
Úthverfi
Ártúnsholt