Morgunblaðið - 05.01.1984, Page 34

Morgunblaðið - 05.01.1984, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984 Unnur Einarsdótt ir - Minningarorð Fædd 25. júlí 1908. Dáin I. janúar 1984. Á nýársdag lést Unnur Einars- dóttir, tengdamóður mín, 75 ára að aldri. Hún var ein heilsteypt- asta manneskja sem ég hef kynnst. Hún var hispurslaus og einlæg, gædd einstakri prúð- mennsku og samviskusemi, sem naut sín jafnt í störfum fyrir aðra og á heimili hennar. Líf hennar allt virtist snúast um að gera öðr- um gott, hlúa að þeim sem áttu bágt, gleðja vini og vandamenn og starfsfélaga. Það var lærdómsríkt fyrir ung- an mann að koma á heimili unn- ustu sinnar, Helgu, einkadóttur Unnar, og kynnast þessari fölskvalausu og óeigingjörnu konu, sem þegar i stað umvafði tilvonandi tengdason sömu ástúð og um einkason væri að ræða. Og það léttir manni lífshlaupið að hafa sér til fyrirmyndar mann- eskju sem góðar dyggðir og góðir siðir var í blóð borið og kom ávallt þannig fram að það var þeim sem hún umgekkst til gleði og ánægju. Ég hef heldur ekki kynnst ann- arri manneskju sem laðaði að sér svo stóran vinahóp, hvar sem hún var og hvert sem hún fór. Hún naut þess líka, þegar árin færðust yfir, að finna þá vináttu og hlýju sem hun var umvafin. Unnur var dóttir Einars Þor- steinssonar útvegsbónda og skip- stjóra frá Eyri í Skötufirði og Sig- rúnar Kristínar Baldvinsdóttur. Hún fæddist að Eyri 25. júlí 1908, ein af tíu systkinum, en dvaldist langdvölum að Meðaldal í Dýra- firði, þar sem hún eignaðist aðra nána fjölskyldu til viðbótar og aðra kærkomna átthaga. Unnur var gift Páli Jóhannes- syni, verslunarstjóra, í tæp 50 ár, en hann lést 1977. Þau unnu bæði um langt skeið í versluninni Edinborg í Hafnarstræti og kynntust þannig ótrúlega mörgum Reykvíkingum. Hún vann einnig um skeið hjá Vegagerð ríkisins. Eitt sinn var svo ástatt á þeirri stofnun, sem ég vann við, Rann- sóknastofnun landbúnaðarins á Keldnaholti, að símastúlkan hafði veikst og enginn fékkst í starfið með stuttum fyrirvara til að stýra skiptiborðinu. Fékk ég þá tengda- móður mína til að gera mér þann greiða að vera á símanum í viku- tíma á meðan verið væri að útvega nýjan starfskraft. En þannig at- vikaðist það að Unnur ílentist á RALA og starfaði þar meðan kraftar entust þangað til fyrir rúmu ári. Ég naut þess hve tengdamóðir mín var ástsæl og virt í starfinu, og í því naut sín hin einstaka sam- viskusemi hennar, nákvæmni, þrautseigja og elskulega viðmót, enda eignaðist hún símavini um land allt og ekki síst meðal starfs- fólks símstöðva víða á lands- byggðinni, sem hún þurfti oft að leita til. Það var með ólíkindum hvað hún var lagin við að hafa uppi á fólki, hvar sem það var á ferðalögum. Það gladdi okkur Helgu hve starfsfólkið á RALA sýndi Unni hlýju eftir að hún hætti störfum þar, t.d. með því að hafa hana að heiðursgest á jóla- gleði stofnunarinnar 11. desember sl. Það gladdi hana óumræðilega mikið og langar okkur að færa starfsfólkinu þakkir okkar fyrir hlýhug þeirra. Eftir að Unnur hætti störfum var hún að deginum á Dalbraut- arheimilinu fyrir aldraða. Þar voru sannkallaðir sólskinsdagar í lífi hennar og viljum við færa for- stöðumanni og starfsfólki Dal- brautar innilegar þakkir fyrir þá frábæru umhyggju sem þau sýndu henni. Unnur átti eitt barnabarn, dótt- ur okkar og nöfnu sína, sem var augasteinn og uppáhald hennar. Við kveðjum öll með söknuði ást- kæra móður, tengdamóður og ömmu, og biðjum Guð að blessa minningu Unnar og Páls. Björn Sigurbjörnsson. Nýja árið gekk í garð við mikinn fögnuð flestra, svo sem oftast er, þegar fagnað er og glaðst yfir nýj- um áföngum á lífsbrautinni. „Hvað boðar nýárs blessuð sól? Hún boðar náttúrunnar jól, hún flytur líf og líknarráð, hún ljómar heit af Drottins náð.“ Svo kvað Matthías Jochumsson í tilefni nýárs og síðar í sama sálmi, segir hann: „í almáttugri hendi hans er hagur þessa kalda lands, vor vagga, braut, vor byggð og gröf, þótt búum við hin yztu höf.“ En samt gerast þau tíðindi á sjálfan nýársdag, sem hryggja, þegar venzlamenn deyja, og slær þó hryggðin þyngst ástvinina kæru, sem næst standa. Svo var um þessi áramót. Nýársnóttin var tæpast liðin, þegar öldruð heiðurskona kvaddi þennan heim í Landakotsspítala eftir stutta legu á 76. aldursári. Unnur Einarsdóttir, ekkja Páls Jóhannessonar, fyrrum verzlunar- stjóra í Edinborg, lézt að morgni nýársdags. Hún hafði heimt sína nánustu aðstandendur heim frá útlöndum aðeins tæpum tveim dögum áður. Dóttirin og tengda- sonurinn komu heim á föstu- dagskvöldi, hún faðmaði þau að sér, gladdist við endurfundina, og sofnaði róleg; og var svo dáin að morgni sunnudags. Unnur Einarsdóttir fæddist á Eyri í Skötufirði við ísafjarðar- djúp um hásumar, hinn 25. júlí 1908, þegar allt logaði af dýrð við Djúp, fjöll öll stóðu á haus í Vest- fjarðalogninu, selir sátu á skerj- um, fuglar sungu í kjarri og mó, en fiskur vöktu í vötnum og sjó. Foreldrar hennar voru hjónin Sigrún Kristín Baldvinsdóttir og Einar Þorsteinsson, útvegsbóndi og athafnamaður á Eyri við Skötufjörð. Baldvin afi hennar var Jónsson bónda á Strandseljum í Ögurhreppi og kona hans hét Halldóra Sigurðardóttir bónda í Hörgshlíð Hafliðasonar. Þar ólst hún upp í stórum systk- inahópi, en dvaldist þó löngum hjá góðu fólki í Meðaldal f Dýrafirði. Fjölskyldan fluttist til Hafnar- fjarðar árið 1922 og þar stundaði Unnur nám í Flensborgarskólan- um. Móðurbróðir hennar var hinn kunni stjórnmálamaður Jón Bald- vinsson, og hún fór til starfa á heimili þeirra Júlíönu í Miðstræti í Reykjavík. Síðar hóf hún afgreiðslustörf hjá Alþýðubrauðgerðinni, og það hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir ungu stúlkuna, því að á þeim árum kynntist hún mannsefni sínu „á hestbaki", eins og hún sagði sjálf, því að þangað kom ungur bóndasonur ofan úr Borg- arfirði til að fá brauð handa hest- um sínum. Og er svo ekki að orðlengja það, að Unnur og Páll gengu í það heil- aga hinn 19. desember 1929. Páll var Jóhannesson, sonur Jóhannes- ar bónda í Klettstíu í Norðurárdal. Bærinn í Klettstíu stendur hátt í fögru umhverfi, og frá bænum er víð útsjón yfir fagurt hérað, en eftir dalnum liðast Norðurá á grænum engjum. Mörg sporin áttu eftir að liggja til æskuheimilis Páls, og þar undi fjölskyldan líf- inu vel. Jón, bróðir Páls, varð bóndi í Klettstíu, og þegar sonur hans, Elís, núverandi vegagerðarstjóri í Borgarfirði, dvaldist í Reykjavík við nám í nokkra vetur, varð heimili hans hjá Unni og Páli, og mátti eiginlega kalla hann fóst- urson þeirra. Reyndist Elli þeim jafnan forkunnarvel, ekki síst eft- ir að aldur færðist yfir þau, reynd- ist þeim sannarlega eins og besti sonur, og síðar bjó svo sonur hans í skjóli þeirra syðra. Þau eignuðust ágæta íbúð á Ásvallagötu 37. íbúðin var máski ekki stór í fermetrum talin, en þeim mun stærra var hjartarúm húsráðenda, enda voru þau bæði annáluð fyrir gestrisni, og var sannarlega á stundum fullt út úr dyrum af gestum, sem jafnan þágu hjá þeim ríkulegar veitingar, en Unnur var vel þekkt meðal vina og frændfólks sem úrvals húsmóð- ir, og sú kunni nú aldeilis til verka í eldhúsinu, hvort sem var bakað, soðið eða steikt. Allt lék í hendi hennar við heimilisstörfin. Vinagarður þeirra var stór og traustur, en ég má til með að nefna einn úr hópnum, sem átti þau að vinum og þau hann, uns yfir lauk, Kristján Sveinsson augnlækni, en þær urðu margar augnlæknisferðir hans út um land, þar sem Unnur og Páll voru hans ljúfu ferðafélagar. í æviminning- um hans, sem út komu árið 1982, getur hann þessa sérstaklega, og segir m.a. svo orðrétt: „Á heim- leiðinni gistum við venjulega í Klettstíu í Norðurárdal hjá Jóni bónda, bróður Páls, ferðafélaga okkar, og konu hans, Sæunni. Þar fengum við höfðinglegar móttök- ur, og þar var margt gert sér til gamans." Vinátta þeirra Kristjáns stóð hlý og traust, meðan þau hjón lifðu. Alltaf var kært milli Unnar og systkina hennar, og mér koma í hug nöfn þeirra: Kristján Jón, Einar, Baldvin, Karl, Karitas, Margrét, Elín, Þorsteinn og Jóakim. Þetta var stór fjölskylda, og svo skapaðist einnig vinátta milli barna þessara systkina og Unnar og Páls. Eina dóttur eignuðust þau hjón- in, Helgu Ingibjörgu, sem fæddist 20. maí 1930. Hún varð síðar sam- stúdent með manni sínum vorið 1951 frá Menntaskólanum í Reykjavík, en hann er dr. Björn Sigurbjörnsson, forstjóri Rann- sóknarstofnunar landbúnaðarins, núverandi framkvæmdastjóri FAO og Alþjóðakjarnorkumála- stofnunarinnar í Vínarborg, þar sem þau hjón búa um þessar mundir. Helga og Björn eiga eina dóttur, Unni Steinu, sem lýkur lækna- prófi frá Háskóla íslands næsta vor, en maður hennar er Ögmund- ur Skarphéðinsson, arkitekt. Þessi er nánasta fjölskylda Unnar sálugu og ég veit af nánum kynnum, að ástúð og kærleikur ríkti í einu og öllu með þessu fólki öllu. Unnur og Páll heimsóttu dótturina og tengdasoninn bæði til Ameríku, þegar þau voru þar við nám, og eins til^usturríkis, og voru auk þess tíðir gestir í sumar- bústaðnum að Kiðafelli og á heim- ili þeirra á Stýrimannastíg 12. Söknuður Helgu og Björns, Unnar Steinu og Ögmundar er mestur, en það er huggun harmi gegn, að þau vita að látinn lifir, og gott að eiga einungis eftir góðar minningar um kæran ástvin. Þegar Helga og Björn héldu út í lönd, fór Unnur að vinna í verzl- uninni Edinborg við Hafnar- stræti. Þar var maður hennar verzlunarstjóri og mágur hennar, Sigurður B. Sigurðsson, aðalræð- ismaður, einn af aðaleigendunum. í Edinborg vann Unnur síðan við afgreiðslustörf, þar til sú verzlun hætti, um langt árabil, og í gegnum þau störf kynntist hún aragrúa Reykvíkinga, og var ein- staklega vinsæl og vellátin í starfi, bæði af viðskiptavinum verzlunar- innar og húsbændum, enda var hún reglusöm og árvökul, hinn ágætasti „starfskraftur" eins og nú tíðkast að nefna það. Þegar Edinborg hætti, réðst hún til starfa í mötuneyti Vega- gerðarinnar en síðustu starfsárin var hún við símavörzlu hjá RALA á Keldnaholti, og alls staðar vel- látin. Hún var kona, sem óhætt var að treysta. Fjölskylda mín átti því láni að fagna að eignast Unni og Pál að vinum, eftir að Helga giftist Birni, bróður mínum. Raunar hafði Þor- kell bróðir minn þekkt þau miklu lengur sem samstarfsmaður þeirra í Edinborg. Við minnumst vináttu þeirra með mikilli virð- ingu og þakklæti, og öll hin fjöl- menna fjölskylda Sigurbjörns í Vísi sendir Helgu, Birni, Unni Steinu og Ögmundi hjartanleg- ustu samúðarkveðjur og biður guð að blessa minningu Unnar Einars- dóttur. Örn Arnarson segir svo í einu kvæða sinna, og vil ég gera þau orð að lokaorðum greinar minnar: „Stráin sölna. Stofnar falla. Stormur dauðans næðir alla. Ljóselskandi, langanþrungið, lífið fyllir öll þau skörð, sækir fram í sigurvissu. Svo er strítt um alla jörð.“ Fari svo kær vinkona í guðs friði. Friðrik Sigurbjörnsson Á nýársdag lést Unnur Einars- dóttir. Fregnin um andlát hennar kom á óvart enda þótt vitað væri að hún hefði ekki gengið heil til skógar um nokkurra ára skeið. Fyrir um það bil þremur vikum tók Unnur þátt í jólagleði starfs- fólks rannsóknarstofnunarinnar og var það hrókur alls fagnaðar og gladdist í hópi fyrrverandi starfs- félaga. Unnur átti að baki langan starfsferil er hún féll frá. Sam- hliða heimilishaldi vann hún í áratugi í versluninni Edinborg, þar sem eiginmaður hennar, Páll Jóhannesson, vann mestan sinn starfsaldur. Þegar starfsemi verslunarinnar var hætt hóf Unn- ur störf hjá Vegagerð ríkisins og var þar í fjögur ár. Sumarið 1974, þá 66 ára að aldri, kom hún til Rannsóknar- stofnunar landbúnaðarins þar sem hún starfaði óslitið í rúm átta ár við símavörslu. Hin síðari ár sem hún starfaði var sameiginleg símaþjónusta með Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins, en í þessum stofnunum starfa að jafn- aði um hundrað manns. Álag á símanum er því oft mikið og starf- ið erilsamt. Unnur gegndi starfi sínu af þeirri frábærri samvisku- semi og trúmennsku sem henni var í blóð borin og einkenndi allt hennar líf. Unnur var ekki aðeins góður starfskraftur sem hægt var að treysta heldur var hún einstakur starfsfélagi sem ávann sér vináttu og traust samstarfsmanna sinna. Enda þótt hún væri elsti starfs- maðurinn batt hún mikla vináttu við og umgekkst unga fólkið á stofnuninni. Þar átti hugtakið kynslóðabil sannarlega ekki við. Unnur lét af störfum við stofn- unina haustið 1982. Hún var þá 74 ára að aldri og heilsan var farin að gefa sig bæði vegna sjúkdóms og slysa og óvenjulega langs starfsdags. En þrátt fyrir að hún væri þrotin að kröftum tók hana sárt að þurfa að láta af störfum og setjast í helgan stein. Hún sætti sig illa við að vera dæmd úr leik vegna aldurs, ekki síst vegna þess að henni féll aldrei verk úr hendi. Aðgerðarleysi var henni framandi og eins og er háttað um marga af hennar kynslóð kunni hún ekki að sitja auðum höndum. Það stytti henni þó stundirnar að njóta um- hyggju dóttur sinnar og tengda- sonar og dótturdótturinnar. Sá sem þessar Iínur ritar átti því láni að fagna að þekkja Unni hátt á 5. áratug, frá því að vera nágranni hennar á Ásvallagöt- unni. Á heimili hennar var alltaf jafnánægjulegt að koma. Góð kona er gengin á braut og hennar er sárt saknað af vinum og samstarfsmönnum. Henni eru að leiðarlokum þökkuð vel unnin og óeigingjörn störf í þágu Tinn- sóknarstofnunar landbúnaðurins. Persónulega þakka ég áralanga vináttu og sendi Helgu, Birni og Unni Steinu innilegar samúðar- kveðjur. Gunnar Ólafsson I dag, fimmtudaginn 5. janúar, verður gerð frá Dómkirkjunni út- för Unnar Einarsdóttur til heimil- is á Ásvallagötu 37 hér í borg. * andaðist á Land ‘ ársdag eftir í • hennar kom nánum heimilisv. am og aðstandendum ekki á óvart, því undanfarin ár hefur hún átt við nokkur veikindi að stríða og segja má með sanni að hvlldin sé jafnan friðsæl vegmóðum langferða- mönnum. Unnur var fædd þann 25. júlí árið 1908 og var því á sjötugasta og sjötta aldursári þegar hún lést. Hún var vestfirsk að ætt og upp- runa, þar var hún fædd og dvaldi þar á sínum bernskuárum. Að henni stóðu sterkir vestfirskir stofnar í báðar ættir. Ung að ár- um fluttist hún ásamt fjölskyldu sinni til höfuðstaðarins og eftir það var hún búsett hér. Hún stundaði nám í Flensborgarskól- anum í Hafnarfirði og fór síðan að vinna við verslunarstörf. Unnur giftist Páli Jóhannes- syni, verslunarmanni árið 1929, en hann lést fyrir röskum sex árum. Páll, maður Unnar, var í fjölda ára deildarstjóri hjá versluninni Edinborg í Hafnarstræti, þar sem Seðlabankinn er nú til húsa. Þau hjón eignuðust eina dóttur, Helgu, sem er gift dr. Birni Sigur- björnssyni, framkvæmdastjóra. Heimili þeirra Unnar og Páls hef- ur lengst af verið á Ásvallagötu 37 hér í borg eða allt frá árinu 1931, og þar átti hún heima til hinstu stundar. Ég minnist þess nú sér- staklega að þetta var fyrsta heim- ilið, sem ég kom á hér í borg, þeg- ar ég kom í fyrsta sinn í heimsókn hingað, ungur afdaladrengur, ásamt Karli bróður mínum, fyrir rösklega hálfri öld. Húsbóndinn á heimilinu var föðurbróðir okkar bræðra, og ekkert var sjálfsagðara en að við kæmum þangað fyrst í heimsókn, þegar gerður var stutt- ur stans í höfuðborginni. Heimili þeirra hjóna á Ásvalla- götunni var sérstakt í sinni röð og því gleyma þeir aldrei, sem þang- að komu og nutu gistivináttu þeirra hjóna. Ekki var það vegna þess að húsrými væri þar svo mik- ið, heldur miklu fremur hitt, að hjartarúm var þar meira en geng- ur og gerist. Þangað var ávallt gott að koma og þar áttu bæði ég og aðrir vinir þeirra margar ánægjustundir. Öft var gest- kvæmt á því heimili og nú þegar Unnur er kvödd hinstu kveðju vil ég fyrir hönd aldraðrar móður minnar og annarra náinna skyld- menna þakka af heilum hug fyrir allar þær stundur, sem við dvöld- um í góðu yfirlæti á heimili þeirra hjóna á Ásvallagötunni. í sumarleyfum sínum dvaldi Páll föðurbróðir minn og Unnur kona hans oft á heimili foreldra minna í Borgarfirði. Helga dóttir þeirra var þá ávallt í för með þeim, en hún var litlu yngri en ég óg bræður mínir. Þessar stundir man ég einna glaðastar frá bernskudögum mínum. Páll og hans fjölskylda komu jafnan með ferskan andblæ inn á æskuheimili mitt. Andblæ, sem við ungir afdala- sveinar höfðum ekki áður kynnst, og lífgaði upp á tilveruna í til- breytingarleysinu. Ég og fjölskylda mín sendum Helgu frænku minni, Birni manni hennar og dóttur þeirra hjóna innilegar samúðarkveður. Blessuð sé minning Unnar Ein- arsdóttur. Klemenz Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.