Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984 35 Minning: Eiríkur Jóhannes- son - Hafnarfirði Unnur Einarsdóttir, Ásvalla- götu 37, er látin. Með henni er horfin mikilhæf ágætiskona. For- eldrar hennar voru Einar skip- stjóri Þorsteinsson og kona hans, Sigrún Baldvinsdóttir (synir Jóns sál. Baldvinssonar bankastjóra og alþingismanns). Hún fæddist að Eyri í Skötufirði í Ögurhreppi og ólst þar upp í fjölmennum systk- inahópi til 6 ára atdurs, er hún var tekin í fóstur að Meðallandi í Dýrafirði, þar sem hún dvaldist í 6 eða 7 ár, en flutti þá aftur til for- eldra sinna, er þau fluttu til Hafn- arfjarðar. Unnur giftist 1929 Páli Jóhann- essyni, verslunarstjóra í Edin- borgarverslun hér í borg, glæsi- legum gæðamanni. Unnur starfaði síðar einnig í Edinborgarverslun- inni í mörg ár og naut þar mikilla vinsælda fyrir örugga og prúð- mannlega framkomu. Þau hjón Páll og Unnur bjuggu nær allan sinn búskap á Ásvalla- götu 37 hér í borg — fremur lítilli en skemmtilegri íbúð, þar sem áttu heima gestrisni, gleði og skemmtilegheit, enda mjög gest- kvæmt á því heimili; hjónin sam- stillt í því að gera gestum sínum til hæfis. Unnur var ákveðin í skoðunum bæði í stjórnmálum sem öðru. Hún notaði ekki stóryrði um menn né málefni, lét alla njóta sann- mælis og leit fyrst og fremst á það sem gott var í fari manna. Á gleði- stundum var hún hrókur alls fagnaðar. I mörg sumur fórum við hjónin í ferðalög með þeim Páli og Unni og urðu það okkur ómetan- legar stundir. Þau hjónin Páll og Unnur eign- uðust eina dóttur, Helgu, sem virðist hafa erft það besta frá sín- um foreldrum. Er hún gift dr. phil. Birni Sigurbjörnssyni, forstöðu- manni að Keldum í Mosfellssveit. Dóttir þeirra, Unnur Steina, er að ljúka prófi í læknisfræði og verður ábyggilega fengur fyrir lækna- stéttina að fá slíkan starfskraft. Hún er heitbundin Ögmundi Skarphéðinssyni, arkitekt. Við lútum öll lögmáli náttúr- unnar. Eftir sólbjartan dag færast kvöldskuggarnir yfir, og nú hefur sól brugðið sumri. Langri og innilegri samfylgd verður ekki slitið án trega. Kristján Sveinsson Fædd 15. september 1939 Dáin 23. desember 1983 Ó, horfðu hærra, vinur! Guðs hönd þig áfram ber. Ef hjarta af harmi stynur, guðs hjarta viðkvæmt er. Ef ólán að þér dynur, guðs auga til þín sér. Ef jarðnesk höll þín hrynur, guðs himnar opnast þér. (Jóh. úr Kötlum.) Þann 23. desember síðastliðinn lést móðursystir okkar Ásgerður, eftir löng og erfið veikindi. Ás- gerður fæddist 15. september 1939, dóttir Ásdísar Þorsteinsdóttur og Hannesar Pálssonar. Að skólagöngu lokinni hér heima hélt hún til Englands til frekara náms og kynntist þar síð- ar eiginmanni sínum John Bene- dikz. Þau eignuðust fjögur börn, Margréti, Eirík, Kristínu og Rík- harð Þór. Víst er óhætt að fullyrða að Ás- gerður hafi verið gædd mannkost- um og mjög svo sérstökum hæfi- leikum. Hún var okkar stóra fyrir- mynd og mun vera um ókomna framtíð. Það er svo með sterka persónu- leika að þeir þurfa oft meiri at- hygli en aðrir menn. Kostir og brestir öðlast meiri skerpu, en eru f dag kveðjum við Unni Ein- arsdóttir með söknuði, en um leið með þakklátum huga. Unni kynntumst við flest í fyrsta sinni, þegar hún hóf störf við símavörslu hjá Rannsókna- stofnun landbúnaðarins, árið 1974. Það varð okkur ljóst strax, að Unnur var á margan hátt sérstæð manngerð, sem aldrei fór í manngreinarálit. Hún mat það mikils, ef við létum hana vita, hvort við værum að fara og hve- nær við kæmum aftur, þegar við skruppum frá. Á sama hátt sagði hún okkur til syndanna, ef við fór- um eitthvað frá án þess að láta hana vita. Hún lenti sjálf í vanda, ef hún gat ekki leyst úr spurningum þeirra sem hringdu. Henni var það áskapað að vilja standa sig vel í starfinu, ekki fyrst og fremst sjálfrar sín vegna, heldur ekki síð- ur af hinu, að henni hafði verð trúað fyrir þessu starfi. Hún lagði allan sinn metnað í það að bregð- ast ekki því trausti. Það vakti oft undrun okkar og aðdáun, hve heil Unnur var í starfi. Samviskusemin, dugnaður- inn og trúmennskan voru svo ríkir þættir í fari hennar, að við, sem yngri vorum og hraustari máttum mikið af henni læra. Unnur var einörð í skoðunum og kom alltaf til dyranna eins og hún var klædd, talaði tæpitungulaust um menn og málefni, en alltaf af sanngirni. Þegar tóm gafst til og áður en heilsu Unnar fór að hraka, spjall- aði hún um heima og geima við hvern sem var og þá kom glöggt fram, að hún bjó yfir ríkri kímni- gáfu. Unnur fylgdist með okkur af áhuga eftir því sem tilefni gafst til, gladdist með glöðum og fann til með þeim sem áttu í erfiðleik- um. Við fundum það oft, að henni þótti vænt um vinnugtaðinn og hún talaði oft um okkur eins og við værum henni nákomin. „Mér finnst eins og ég eigi ykkur öll,“ sagði hún stundum. Það verður okkur minnisstætt, þegar Unnur kom á jólagleði til okkar núna fyrir jólin. Henni þótti vænt um að vera boðin og stóð upp í hófinu og hélt þar hlýlegt þakk- arávarp. Við þökkum Unni eftirminni- lega og ánægjulega samfylgd. Starfsfólk Rannsóknastofn- unar landbúnaöarins. samt samofin og órjúfanleg heild. Persónutöfrar hennar létu engan ósnortinn. Heimilið bar vott um mikla sköpunarhæfileika og list- fengi, og hvaðeina sem hún komst í snertingu við umbreyttist í því- líkan glæsileik, að vandfundið er. Margs er að minnast. Við vottum nánustu ættingjum Ásgerðar okkar dýpstu samúð. Jón, Hannes, Lóa og Albert Fæddur 9. september 1900 Dáinn í desember 1983 Við Hvaleyrarvatn fyrir ofan Hafnarfjörð stendur lágreistur skáli úr norskum viði. Skáli þessi var reistur fyrir nokkuð mörgum árum síðan og hefur jafnlengi ver- ið skjól skátanna í Hafnarfirði og bæjarfélögunum þar í grenndinni. I ótalin ár mátti á laugardögum sjá gamlan skáta á gangi eða á hjóli á þeim vegi sem liggur frá Hafnarfirði upp að Hvaleyrar- vatni. Þetta var Eiríkur Jóhannes- son. Eiríkur var á leið í skálann til að opna og kveikja í kabyssunni áður en ungir skátar kæmu til helgardvalar. Þegar skátahópur- inn hafði komið sér fyrir og for- ingi hópsins var upplýstur um allt það sem varðaði öryggi og um- gengni hvarf Eiríkur heim á leið. Á árunum í kringum 1970 var ég oft í hópi skáta við Hvaleyrarvatn. Þar kynntist ég Eiríki og hef ég notið vináttu hans síðan. Þó að rúmlega hálf öld væri á milli okkar þá hafði Eiríkur lag á að láta það ekki skipta máli. Skálinn við Hvaleyrarvatn var Eiríki mikill hamingjustaður. Hann naut þess ríkulega að eiga samskipti við æskuna. „Það er svo mikið af dugmiklu ungu fólki og það er gott að vita af því við leik Fædd 31. maí 1916 Dáin 27. desember 1983 í dag fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík útför Hjördísar Guð- rúnar Kristjönu Baldvins, sem lézt að morgni hins 27. desember sl. eftir langvinnt og erfitt veik- indastríð. Hjördís Baldvins fæddist á Sauðárkróki 31. maí 1916, dóttir Baldvins Jónssonar er var um skeið verzlunarstjóri hjá Gránufé- laginu á Sauðárkróki, og konu hans, Svövu Jónsdóttur leikkonu. Síðar fluttist fjölskyldan til Akur- eyrar, þar sem Baldvin var lengst af kaupmaður. Á Ákureyri átti Hjördís sín uppvaxtarár og á heimili fjöl- skyldunnar voru menning og list- ir, ekki síst tónlist, hafðar í háveg- um. Hjördís hóf nám í fiðluleik ung að árum, og að loknu venju- legu skólanámi þeirra tíma var hún, jafnframt fiðlunáminu, við verzlunarstörf á Akureyri, unz hún fluttist til Reykjavikur til að afla sér framhaldsmenntunar. Þar stundaði hún nám í fiðluleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og að loknu fiðluleikaraprófi var hún ráðin fiðluleikari við Sinfóníu- hljómsveitina. Áður en henni auðnaðist að hefja það starf ollu veikindi því að hún varð að hætta fiðluleik. Síðan var hún við skrifstofustörf hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í yfir þrjátíu ár. Hjördís fluttist til systurdóttur sinnar, Maiu Sigurðardóttur sál- fræðings, fyrir fimmtán árum og átti hjá henni heimili æ síðan. Sá er þessi kveðjuorð ritar kynntist Hjördísi Baldvins fyrir um tveim áratugum, er hann hóf störf hjá SH. Hafði hún þá þegar langan starfsferil að baki hjá fyrirtækinu og má í vissum skiln- ingi segja, að hún hafi tilheyrt fyrstu kynslóð þess, fólkinu, sem ruddi brautina fyrstu áratugina. Með sanni má segja að meðan kraftar entust hafi lífsstarf Hjördísar verið helgað SH á þeim vettvangi sem starfssvið hennar náði einkum til, sem var síma- varzla. og störf upp við Hvaleyrarvatn," svo vitnað sé í Eirík. „Gönguferð- irnar upp í skála voru sannkölluð heilsulind og skáldlegur innblást- ur,“ hafði Eiríkur oft á orði. Heils- an var líka góð og margar góðar vísur færði hann vinum og kunn- ingjum. Eiríkur Jóhannesson fæddist 9. september árið 1900. Tvítugur fór hann til þriggja ára námsdvalar til Noregs. Hann kom heim og festi rætur í Hafnarfirði þar sem hann staraði við St. Jósefsspítala í rúma hálfa öld. Ég er ekki viss um, að allir geri sér grein fyrir því hvílíkt álag það er að annast símavörzlu í fyrir- tæki sem þjónar tugum hrað- frystihúsa um allt land, auk þess sem ná þarf daglega til fjölda að- ila víðs vegar um heim vegna um- fangsmikilla utanríkisviðskipta. Allt fram á síðustu ár, áður en hin tölvuvædda sjálfvirkni hóf innreið sína í fjarskiptatækni, þurfti símavarzlan að annast þessi mik- ilvægu samskiptatengsl. Var því mikilvægt að til þessara starfa veldist samvizkusamt og heiðar- legt fólk, sem af nákvæmni og festu kæmi því til skila er máli skipti. Hjördís Baldvins valdist til þessa verks hjá SH og annaðist það áratugum saman. Oft hvarfl- aði það að okkur samstarfs- mönnum hennar, að raunverulega væri of mikið á Hjördísi lagt að láta hana svo til eina annast þessi mál, en meðan heilsa leyfði tók hún ekki annað í mál en að gegna sínum skyldustörfum. Ætið var Hjördís mætt tíman- lega á sínum stað og annaðist sín verk af skyldurækni. Þótt erillinn Eiríkur tengdist Noregi traust- um böndum. Hann var árlegur gestur vina sinna i Ulsteinvik á vesturströnd Noregs. Á meðan ég var við nám í Osló var hann oft næturgestur minn á leið sinni vestur. Þá lék hann á als oddi, tók myndir af fallegum blómum og fór með ljóð eftir norsk þjóðskáld. Mikið var hann glaður þegar hann komst til að heimsækja vini sína í Ulsteinvik síðastliðið sumar. Starfsferill við Jósefsspítala í Hafnarfirði er til vitnis um trygg- lyndi og vinnugleði Eiríks. Það^ glampaði í augun þegar hann sagði frá starfsdögum við spítal- ann, þegar hann var yngri og þrekmeiri. Hér á árum áður vann hann við ýmis störf, allt frá því að aðstoða við svæfingar til þess að moka snjó. Síðustu árin var hann í þvottahúsinu. Hann var þakklátur hverjum degi sem hann hafði starfsþrek og ekki spillti fyrir að suðið í þvottavélunum vakti skáld- ið Eirík til lífsins. Eiríkur var einhleypur maður. Hann hafði því betra tóm en margir samferðamenn til að sinna félagsmálum. Leikfélagið, skát- arnir, hjálparsveitin, lúðrasveitin og kaþólski söfnuðurinn urðu vett- vangur hans. Hann lék á orgelið f Kapellunni, fór með ótal hlutverk á fjölunum, stjórnaði fundum og ferðum með skátum og tók þátt í að stofna og stýra Lúðrasveit Hafnarfjarðar. Þvílík fjölhæfni er víst óhætt að segja, en framar öllu var Eiríkur góður félagi. Eiríkur Jóhannesson er farinn heim. Hann var góður vinur. Blessuð sé minning hans. Tryggvi Felixson væri mikill og álagið samkvæmt því var aldrei kvartað. Með festu og stillingu innti Hjördís af hendi starf sitt í þágu SH. Daglega eiga tugir og hundr- uð manna erindi við þetta stóra fyrirtæki. Þess vegna gat hér áður fyrr, þegar símaborð og tengsl þess við einstakar deildir fyrir- tækisins var ekki eins fullkomið og nú þekkist, verið erfitt að leysa hvers manns vanda með skjótum hætti. Þessu hlutverki skilaði Hjördís Baldvins vel. Hún var hreinskiptin og hispurslaus í svör- um og hélt hlut sínum ef því var að skipta, en þess er örugglega oft þörf hjá því fólki, sem annast þarf símavörzlu hjá stórum fyrirtækj- um. Munu margir minnast hennar með þakklæti í huga í þeim efnum. Hjördís Baldvins var um margt óvenjuleg kona. Að eðlisfari var hún dul og fáskiptin, en við nánari kynni komu vel í ljós miklir mannkostir hennar og sérstök hjartahlýja. Hún var sannur vinur vina sinna og var ætíð reiðubúin til að rétta þeim hjálparhönd er hjálpar voru þurfi. En þeim mun meiri kröfur gerði hún til þeirra, er gátu staðið á eigin fótum. Fátt var Hjördísi hvimleiðara en inn- antóm faguryrði. Á góðri stund lék hún á als oddi og brá oft fyrir sig léttri og skemmtilegri kímni. Nú er þessi góða og vandaða kona horfin sjónum okkar. Er hún kvödd með söknuði í huga. Hin síðari ár bjó Hjördís hjá frænku sinni, Maiu, og börnum hennar, þeim Andra, Maríönnu og Kristjáni. Þau voru Hjördísi sú fjölskylda, sem veitti henni yl og gleði. Oft varð maður þess var, hversu ómetanlegt það var henni að búa samvistum með þessu frændfólki. Var Hjördísi mjög annt um velferð þess. Sérstaklega er minnisstæð tilhlökkun hennar, þegar haldið var með fjölskyld- unni í sumarfrí upp að Húsafelli í Borgarfirði. Það voru Hjördísi dýrmætar stundir. Einstök um- önnun og elska Maiu við Hjördísi frænku sína alla tíð og þó alveg sérstaklega í hinum þungbæru veikindum síðustu ára verður aldrei fullþökkuð. Megi blessun fylgja þessu góða fólki um ókomna framtíð. Samstarfsmenn Hjördísar Bald- vins senda vinum og ættingjum samúðarkveðjur, jafnframt því sem þeir þakka henni fyrir góða samfylgd á liðnum árum. Guðmundur II. Garðarsson Minning: Asgerður Hannes- dóttir Benedikz Hjördís Baldvins — Minningarorð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.