Morgunblaðið - 17.01.1984, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984
13
Martin
Berkofsky
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Á fjórðu tónleikum Tónlist-
arfélagsins lék Martin Berk-
ofsky verk eftir J.S. Bach,
Schumann, Beethoven og nýtt
verk eftir Thomas R. Ogden.
Berkofsky er feikna mikill pí-
anóleikari en helst til öfga-
fullur í allri túlkun sinni.
Hann leikur með ýtrasta
styrk og annarsvegar svo
veikt að varla heyrist, í
hraða, sem virðist vera við
mörk hins mögulega og svo
hægt, að lagferlið nær því
missir allan hryn. Slíkar and-
stæður geta átt vel við á
Martin Berkofsky
stundum en mega ekki verða
til að breyta verkunum og
enn síður til þess að hlustend-
ur hætti að heyra tónverkið
en verði aðeins varir við pían-
óleikarann, hversu mjög hann
leikur sér með tónmál höf-
undarins. Orgelprelúdía og
fúga í a-moll, eftir J.S. Bach,
var hér leikin í píanógerð eft-
ir Liszt. Rómantísku tón-
skáldin gerðu mikið af því að
endurrita verk eldri höfunda
og má segja að þeir hafi með
því reynt að skila tónlistinni
til áheyrenda með sömu blæ-
brigðum og samtimatónlist
þeirra bjó yfir og á nýrri og
betri hljóðfæri. Prelúdían var
leikin með þessari hvössu
tækni, sem einkennir raf-
magnaðan leikmáta Berk-
ofskys. Framsaga fúgunnar
var mjög fallega leikin, í róm-
antískum stíl, sem á vel við ef
skila á því sem Liszt lagði
áherslu á. Kinderszenen eftir
Schumann, er allt annarrar
gerðar en sú tónlist er Berk-
ofsky hefur mikið lagt sig eft-
ir, verk sem ekki reynir á
getu í hröðum leik en því meir
á túlkun og tónmótun lítilla
lagbrota, viðkvæmt skáld-
verk. Þar ofgerði Berkofsky
túlkuninni, beinlínis gerði of
mikið úr leiktækni sinni, svo
þessi litlu en yndislegu smá-
lög voru alltof hæg og allt og
veik, sýning á tækni, sem er í
andstöðu við hraðann og
kraftinn. Þarna vantar ekk-
ert á kunnáttuna. Hér er um
að ræða andstæðu hins magn-
aða leikmáta, öfgafull leit að
ýtrustu mörkum andstæðn-
anna. Berkofsky lék Beethov-
en-sónötuna frábærlega vel,
með sérkennilegum skírleik
og leikni, en án þess mann-
eskjuleika sem einkennir
Beethoven. Hlustandinn
undrast tækni píanóleikarans
en gleymir tónlistinni. Svona
stórkostlegur leikur á vel við í
tónlist þeirri er Berkofsky lék
sem aukalag, þ.e.a.s tónlist
eftir Liszt, en er eitthvað
ofgert og jafnvel ósatt í
skáldverkum eins og eftir
Beethoven. Um sónötuna eftir
Ogden er fátt að segja, hún er
erfið í flutningi en að inni-
haldi eins og hún sé „impróv-
íseruð" og því laus í formi.
Tónmálið er samsafn tónhug-
mynda, sem birtast oftlega á
sömu nótunum, sitt á hvað og
litið unnið úr þeim. Ekki
verður sagt að verkið sé
frumlegt, sem þó ætti ekki að
saka ef verkið væri að öðru
leyti góð tónlist.
Basso-profundo
Sven-Anders Benktsson er
feikna mikill bassi, með vold-
uga og vel skólaða rödd. í efn-
isskrá er hann sagður hafa
lagt sig eftir tónlist saminni
fyrir svonefnda „basso pro-
fundo“. Djúp-bassa söngur
hans er mjög sérstæður söng-
ur, þar sem rjátlað er við lág-
mörk mannlegs raddsviðs og
kemur þá mest til góða sér-
stæð raddgerð og hæfileiki
söngvarans til að syngja
djúpt, frekar en að munur sé
á tónlistinni þar til ætlaðri og
annarri söngtónlist. Tónleik-
ar þeir er Benktsson bauð
uppá, voru haldnir sunnudag-
inn var, á vegum Norræna
hússins, en hann mun og eiga
að syngja með á næstu tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar
íslands. Á efnisskránni voru
verk eftir Monteverdi, Moz-
art, Beethoven, Schubert,
Tsjaíkofský, Sjögren, Hem-
berg og Verdi. Síðasta lagið á
efnisskránni, aríu Don Basil-
osar úr Rakaranum eftir
Rossini, lét söngvarinn ógert
að syngja sökum lasleika, er
tilkynnt var um fyrir tónleik-
ana og kennt um miskunnar-
leysi veðurguða gagnvart
Norðurlandabúum þessa
daga. Þrátt fyrir þessi afföll
sýndi söngvarinn að hann
kann að syngja. Honum lætur
vel að syngja „út“, enda hefur
hann óhemju mikla rödd. í
þeim lögum þar sem leikið er
með viðkvæmari tónun, var
röddin ekki í eins góðu jafn-
vægi og þegar sterkt var
sungið og má vera að kvefsótt
hafi valdið þar nokkru um. í
fyrsta laginu, eftir Monte-
verdi, sýndi söngvarinn
söngtækni sína og í aríu Fil-
ipusar úr Don Carlos eftir
Verdi leikræna túlkun. Hér er
á ferðinni góður söngvari,
„þrumubassi", sem gaman
væri að heyra í sínu besta
formi, óheftan af þeim höml-
um að röddin geti bilað hon-
um þegar mest á reynir.
Jón Ásgeirsson
Slitbols-
IDE próftin
húsgögn áklæóa
þér raunverulegan arð
Með því að vera hluthafar í IDÉ MÖBLER A/S, stærstu innkaupasamsteypu norö-
urlanda og taka þátt í sameiginlegum innkaupum 83ja stórra húsgagnverzlana í
Danmörku, víða um lönd, tekst okkur að hafa á boðstólum úrvals húsgögn — öll
með 2ja ára ábyrgð — á miklu lægra verði en aðrar húsgagnaverzlanir geta boðið.
Gæðaeftirlit IDÉ er svo geysistrangt, að þú ert örugg(ur) um að fá góð húsgögn þó
verðin séu svona lág.
Etyd
veggskápur. Þaö er áreiöanlega leit-
un aö hagstæöari kaupum á mark-
aönum í dag, enda stoppa þessar
samstæöur venjulega stutt viö í
verzluninni. Mahony-litur — bæsuö
eik — sýruhert lakk.
L248xH173x026/45
17.890
Þeir sem hafa dýran smekk kaupa
sér auövitaö beiki í boröstofuna.
Borö Cello úr massífu beiki.
B90xL180
12.620
Stóll Cello
3.170
JZ
T\
rcmr-----
Vanessa
er eins vandaö og rúm getur verið — allt massíft. Viö eigum núna I
á lager meira en 30 mismunandi geröir af allskonar fururúmum, en |
eins og þú veist eru fururúm alltaf í tísku.
Vanessa-rúm með dýnum
Til lökkuö og lútuð, 180 og 140 sm.
10.590... 2460
IDSDlCmBÖLLIH
BÍLDSHÖFÐA 20 -110 REYKJAVÍK « 91-81199 og 81410
4 1 790