Morgunblaðið - 17.01.1984, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 17.01.1984, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984 25 i. Hér hefur Haukur brotist í gegn í horninu og Ljósm./Kristján Einarsson lag. Sóknarleikur FH-inga var bitlaus meö öllu Mbl. Krístján Einarsson rliði FH: )ur og angur var staöan 16:15 í hálfleik fyrir Tatab- anya. „í byrjun síöari hálfleiksins ætl- uðum viö aö reyna aö róa leikinn," sagði Guðmundur, „en þeir skoruöu þá fjögur mörk í röö, og á þeim kafla tel ég okkur hafa tapaö leiknum. Við náöum reyndar aö minnka muninn aftur en sprungum svo í lokin. Mér fannst dómararnir leyfa þeim aö hanga allt of lengi á boltanum í dag. Þaö var einmitt þaö sem þeir vildu fá aö gera. Þeir hugsuðu um að vinna sem stærstan sigur á heimavelli og var svo alveg sama um útileikinn.,, Guömundur sagöi aö þegar rútin- eraðir menn í FH-liöinu færu aö klikka og eigingirni næöi yfirhöndinni í liöinu væri kannski ekki viö góöu aö búast. „En nú er næsta mál hjá okkur bara aö vinna íslandsmótið." — SH. KR-ingar náðu sjö marka forskoti en misstu það niður KR-INGAR sigrudu ísraelska lióið Le Zion með tveimur mörkum, 16—14, í síðari leik liðanna í Evrópukeppni bikarhafa sem fram fór á sunnudagskvöldiö í Laugardalshöllinni. í hálfleik hafði lið KR yfir- burðastöðu í leiknum, 10—3, og allt útlit var fyrir að liöið kæmist áfram ( Evrópukeppninni en í síðari hálfleik náðu leikmenn Le Zion betri tökum á leik sínum og þrátt fyrir að tapa með tveimur mörkum komust þeir áfram. Reyndar var þessi leikur heimaleikur Zion-liðsins og heföi KR-liöiö því þurft að sigra með 4ra marka mun, 18—14 til dæmis, til að komast áfram. Eöa 20—17 þar sem Zion-liðið skoraði 19 mörk í fyrri leiknum, í útíleík sínum. KR hefði því fallið úr þó svo aö þeir heföu sigraö 17—14, eins og þeir áttu góða möguleika á. Leikur liöanna á sunnudagskvöldið var mjög sveiflukenndur og einkenndist öðru frem- ur af mikilli taugaspennu leikmanna og undir lok leiksins var darraö- ardansinn, sem stiginn var á fjölum Laugardalshallarinnar, með ólík- indum. KR-ingar léku þá maöur á mann og allt var á suðupunkti. Gangur leiksins Framan af fyrri hálfleik var jafn- ræöi meö liöunum, og eftir átta mínútna leik var staöan jöfn, 2—2. Liö KR-inga lék allvel framan af, sér í lagi í varnarleiknum og leik- menn sýndu bæöi meiri frískleika og baráttuvilja en í fyrri leiknum. Enda lét útkoman ekki á sér standa. KR-ingum tókst aö ná góöum tökum á leiknum og smá- juku forskot sitt og þegar flautaö var til leikhlés haföi liöiö náö sjö marka forskoti. Var þar fyrst og fremst aö þakka góöum varnarleik og frábærri markvörslu hjá Gísla Felix Bjarnasyni, sem fékk aðeins þrjú mörk á sig allan fyrri hálfleik- inn. Mjög vel af sér vikið. Flestir hafa sjálfsagt átt von á því aö sjö marka forskot í vega- nesti i síöari hálfleikinn tækist nú KR-ingum aö halda í horfinu og komast áfram i keppninni. En þaö fór nú á annan veg. Þaö gekk hvorki né rak í sóknarfeiknum í síöari hálfleiknum og vörnin fór aö opnast illa hjá KR. Leikmenn Le Zion, sem voru mjög örvæntingar- fullur í leik sínum í upphafi síöari KR - Le Zion 16:12 hálfleiks, gengu á lagiö og minnk- uöu muninn hægt en bítandi. Þeg- ar síöari hálfleikur var hálfnaöur var staöan 12—10 fyrir KR. Og þegar 10 mínútur voru til leiksloka var staöan oröin jöfn, 12—12. ís- raelsmenn höföu þá skoraö níu mörk gegn tveimur mörkum KR- inga. Já, KR skoraöi aöeins tvö mörk í heilar tuttugu mínútur. Síöustu 10 mínútur leiksins voru mjög spennandi og vart mátt á milli sjá hvort liöiö ætlaöi aö merja sigur. KR náöi tveggja marka for- skoti, 14—12, en Zion jafnar 14—14, og þannig var staöan þeg- ar tvær mínútur voru til leiksloka. Tvö síöustu mörkin skoruöu svo KR-ingar en þeir brugöu á þaö ráö aö leika maöur á mann alveg undir lokin og virtust leikmenn Zion ekki vita sitt rjúkandi ráö og allt fór í handaskol hjá þeim. KR haföi bolt- ann á síöustu sekúndum leiksins og var þaö enginn annar en Jens Einarsson, markvörður, sem átti síöasta skotiö í leiknum. Hann var kominn í sóknina en skot hans var laust og var auöveldlega variö. Þegar ieiknum lauk brast út óstjórnlegur fögnuöur í liöi Israel. Liöiö er nú komiö í 4-liöa úrslit í Evrópukeppni bikarhafa. Langbesti maöur KR-liðsins í leiknum var markvöröurinn, Gísli Felix Bjarnason. Hann varöi stór- kostlega vel allan leikinn og hélt liöi sínu á floti langtímum saman. Varnarleikurinn hjá KR var góöur í fyrri hálfleiknum en gaf sig í þeim síöari. Sóknarleikurinn var þokka- legur framan af en í síðari hálfleik var hann alveg bitlaus. Haukur Geirmundsson kom líka nokkuö vel frá leiknum, en aðrir leikmenn voru slakir. Liö Zion lék illa í fyrri hálfleik en leikur þess lagaöist er líöa tók á. Liöiö er þó langt frá því aö vera sterkt. Besti maöur iiösins var Drukur Yoav og var hann líka markahæstur með sex mörk. Mörk KR: Haukur 4, Jakob 3, Guömundur 3, Ólafur 2, Jóhannes 2, Björn 1 og þjálfari liösins, Vulju- anic, 1. — ÞR. Landsliðið valið ÍSLAND mætir Norömönnum þrí- vegís í landsleikjum í handknatt- leik síöar í þessum mánuði; 27., 28. og 29 janúar. Einn þessara leikja fer aö öllum líkindum fram á Akureyri og annar í Vestmanna- eyjum. Bogdan landsliösþjálfari hefur nú valiö hóp sinn fyrir þessa leiki. Hann er þannig skipaöur: Mark- menn eru þeir sömu og áöur: Einar Þorvarðarson, Val, Brynjar Kvar- an, Stjörnunni, Jens Einarsson, KR og Ellert Vigfússon, Víkingi. Aörir leikmenn eru þessir: Kristján Arason, Þorgils Óttar Mathiesen og Atli Hilmarsson úr FH, Siguröur Gunnarsson, Hilmar Sigurgíslason, Guömundur Guö- mundsson og Steinar Birgisson úr Víkingi. Þorbjörn Jensson, Jakob Sigurösson og Steindór Gunnars- son koma úr Val, Páll Ólafsson úr Þrótti, Þorbergur Aöalsteinsson úr Þór Vestmannaeyjum, Sigurður Sveinsson frá Lemgo, Jóhannes Stefánsson og Guömundur Al- bertsson úr KR og Sigurjón Sig- urösson úr Haukum. Liöið hefur æfingar saman 19. þessa mánaöar — á fimmtudag- inn, og síöan veröur æft af krafti fram aö leikjunum. — SH 10. sigurleikur Þórs Þór Vestmannaeyjum vann sig- ur á Breiðabliki í gærkvöldi 20—17 í íslandsmótinu í hand- knattleik 2. deild. í hálfleik hafði Breiöablik forystu 11—9. Var þetta 10. sigurleikur Þórs í röð í 2. deildinni og stefnir liöið nú hraöbyri í 1. deildina. Leikur liö- anna í gærkvöldi var mjög harður og var alls fjórtán leikmönnum vikið af leikvelli til kælingar í tvær mínútur. Sjö úr hvoru liði. Framan af var leikur liöanna jafn en undir lok fyrri hálfleiks náöi Breiðablik tveggja marka forskoti. Þór jafnaöi metin þegar í upphafi síöari hálfleiksins og náöi síöan forystunni og hélt henni út leikinn. Var sigur Þórs nokkuö öruggur undir lokin. Leikmönnum Breiöa- bliks mistókust þrjú vítaköst í leiknum. Tvö þeirra varöi Sigmar Þröstur. Bestu menn í liöi Þórs voru Ragnar, Gylfi og Þorbergur sem þó var tekinn úr umferö allan leikinn. j liði UBK átti Aöalsteinn góöan leik svo og Björn. Mörk Þórs: Þorbergur 7 2v, Gylfi 5, Ragnar 4, Óskar 2, Karl 2. Mörk UBK: Aöalsteinn 5, Björn 4 2v, Ólafur 3, Kristján H. 3, Kristján 3. HKJ/ÞR. Kristján Arason: „Botninn datt alveg úr þessu hjá okkur“ FH-INGAR voru frekar daufir í dálkinn inni í búningsklefa eftir leikinn. Krístján Arason sagði eft- ir leikinn að FH-liöið heföi átt slakan dag og náð illa saman. Bæði ég og Hans vorum lélegir í leiknum, viö náðum okkur aldrei almennilega á strik, því miður. Eftir góöa byrjun datt botninn al- veg úr þessu. Það er ekki gott aö segja hvað olli því, sagði Kristján Arason. — ÞR. • Þaö var mikiö fjör á bekknum hjá þjálfara og leikmönnum Zion á meöan á leiknum stóð gegn KR. Það var bæöi skammast og fagnað. Stór Valssigur VALSARAR tryggöu sér sæti í efri úrslitakeppni íslandsmótsins í handbolta er þeir sigruöu Stjörn- una örugglega 28:19 í Laugar- dalshöll á laugardaginn. Staöan í hálfleik var 13:8 fyrir Val. Valur hefur ásamt FH tryggt sér sæti í úrslitakeppninni, en hart verður barist um hin sætin tvö. Víkingur og Þróttur standa best aö vigi í dag. Þaö var aldrei vafi á því hvort liðiö færi meö sigur af hólmi á laugardaginn, Valsmenn höföu yf- irburöi frá upphafi til enda, enda munaöi níu mörkum á liöunum í lokin. Leikmenn voru jafnir aö getu og markaskorunin dreiföist vel. Hannes Leifsson var aftur á móti sá eini hjá Stjörnunni sem sýndi sitt rétta andlit. Hann var marka- hæstur Stjarnanna meö 9/3 mörk, Magnús Teitsson geröi 3, Eyjólfur Bragason 3, Bjarni Bessason 2, Handknaltlelkur ...- ........ Gunnlaugur Jónasson 1 og Sigur- jón Guömundsson 1. Mörk Vals: Brynjar Harðarson 7/4, Steindór Gunnarsson 6, Jakob Sigurösson 4, Geir Sveinsson 3, Valdimar Grímsson 3, Júlíus Jónsson 2, Þorbjörn Jensson 1, Jón Pétur Jónsson 1 og Björn Björnsson 1. Staðaní 1. deild Staðan í 1. deild karla er nú þessi: FH 10 10 0 0 307:198 20 Valur 11 8 1 2 244:215 17 Víkingur 10 6 0 4 235:218 12 Þróttur 10 4 2 4 219:232 10 KR 10 4 1 5 173:171 9 Stjarnan 11 4 1 6 213:255 9 Haukar 10 1 1 8 195:249 3 KA 10 0 2 8 176:224 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.