Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984 39 stöðugt og þjonustan varð fjöl- breyttari. Veitingareksturinn átti í erfið- leikum, en var þá tekinn yfir af BSf og lengdur daglegur þjónustu- tími, næsta skref var nætursala á veitingum og bensíni. Þegar hér var komið var Bifreiðastöð íslands einhver besta þjónustumiðstöð sem til var hér á landi, almenn farþegaþjónusta í 16 klst. á dag alla daga og eini staðurinn sem veitti nauðsynlegustu þjónustu um nætur, samtímis var fjárhagur fyrirtækisins orðinn traustur. Það skal enginn halda að starfs- tími forstjórans hafi bara verið 8 stundir fimm daga vikunnar. Maður skyldi halda að áður tal- in verkefni væru nóg að fást við, en Kristjón var ekki maður kyrrstöðu, hann var fyrstur manna að taka undir þær hug- myndir að stofna ferðaskrifstofu til að taka þátt í eflingu nýs at- vinnuvegar og afla meiri viðskipta fyrir sérleyfishafana. Áður en Kristjón lét af störfum hafði ferðaskrifstofa BSl komist í fremstu röð ferðaskrifstofa sem vinna að því að fá erlenda ferða- menn til landsins. Kristjón hafði mikla starfs- reynslu þegar hann hóf störf fyrir sérleyfishafa, en hann hafði einn- ig óþrjótandi eljusemi og mjög sérstakt starfslag, sem var okkur sem mikið störfuðum með honum sérstök lífsreynsla að kynnast. Einn af hans sterkustu eiginleik- um var að velja sér starfsfólk. Hann gat verið, sem kallað er, strangur húsbóndi og gerði kröfur til fólksins, en ég þekki varla nokkur dæmi þess að yfirmaður væri í jafn miklum metum hjá sínu starfsfólki og Kristjón. Það vissu nefnilega allir að hann gerði mestar kröfur til sjálfs sín og var alltaf sanngjarn og bóngóður ef á reyndi. Annar sérstakur hæfileiki Kristjóns sem hér skal minnst á var glöggskyggni hans á fjármuni. Hann gerði sér alltaf grein fyrir hvernig reksturinn gekk, hvar skórinn kreppti, og hvað mátti gera til úrlausnar. Hann notaði ekki tölvu eða stórar skýrslugerð- ir, hann fylgdist nákvæmlega með rekstrinum frá degi til dags og vissi alltaf þannig hvað gera þyrfti til úrbóta til að fá góða heildarafkomu. Þessi eiginleiki var áreiðanlega hans sterkasta vopn, þegar hann réðst í verkefni sem aðrir höfðu ekki trú á, en hann skilaði með sóma. Síðast en ekki síst vil ég undir- strika hið góða samstarf og óskor- aða traust sem allir stjórnarmenn og félagar í Félagi sérleyfishafa álagi. Hann var að vísu hættur að sjást sviga niður Hlíðarfjall síð- ustu tvö árin, en hann fór ávallt í þrjár gönguferðir á dag ákveðinn tíma, nánast hvernig sem viðraði, en í verstu veðrum hélt hann sig í vari. Ég hitti hann oft á þessum gönguferðum, og tókum við tal saman. Auk þess að hugurinn leit- aði mikið til unglingsáranna á Grenivík, beindi hann athygli sinni að umhverfi okkar. Við ræddum um garð- og trjárækt, uppbyggingu og vöxt. Hermann var mikið glæsimenni og sópaði að honum hvar sem hann fór, einn af þeim mönnum sem sett hafa svip á bæinn. Hófsmaður var hann í hvívetna og allra manna líflegastur í góðum hópi vina. Eg vil nota tækifærið og þakka þær ánægjustundir, sem ég ásamt konu minni hef átt á hlýlegu heimili Þórhildar og Hermanns. Víst er að ekki hefði hann komið í verk öllu því sem raun varð á ef hann hefði ekki notið fyllsta stuðnings eiginkonu sinnar. Þau virtust óvenju samhent, og þó ekki fari hún með hávaða, hefur Þór- hildur ávallt stutt við bak bónda síns í blíðu og stríðu. Með þessu kveð ég góðan vin, og votta þeim Þórhildi, Stefáni og Birgi ásamt fjölskyldum þeirra samúð mína og fjölskyldu minnar. Magnús H. Ólafsson Deilurnar við Apavatn: Skurðurinn verði fylltur aftur og Bifreiðastöðvar Islands báru til Kristjóns. Fyrir mig persónulega hefir áratuga samstarf við Kristjón og hans dugmiklu og samhentu fjöl- skyldu verið ánægulegt, árang- ursríkt og góður skóli. Á kveðju- stund er því mikið að þakka, margar góðar minningar að geyma. Ég votta Elísabetu eigin- konu Kristjóns, börnum þeirra og fjölskyldum dýpstu samúð og óska þeim allrar blessunar um ókomin ár. Ágúst Hafberg Föðurnafn mis- ritaðist í fyrirsögn FÖÐURNAFN misritaðist í fyrir- sögn í blaðinu á föstudinn var. Þar stóð Sigurleif Þorleifsdóttir í stað Þórhallsdóttir. — Eru hlutaðeig- andi beðnir afsökunar á þessum mistökum. ÉG HEF fyrir hönd umbjóðenda minna, landeigenda og ábúenda við Apavatn, mótmælt skurðgreftrinum í landi Uteyjar I og krafist þess að jarðraskið verði lagfært fyrir 1. febrúar. Við áskiljum okkur rétt til að láta gera þetta á kostnað Laugar- lax hf. og eigenda Úteyjar II, sem létu grafa frárennslisskurðinn," sagði Eiríkur Tómasson hdl., lög- maður landeigenda við Apavatn, sem óttast mengun frá fyrirhugaðri fiskeldisstöð Laugarlax hf. þar. „Annars er allt með kyrrum kjörum þarna, við bíðum nú eftir formlegum umsögnum Hollustu- verndar ríkisins og Náttúru- verndarráðs," sagði Eiríkur. „Svo verður að koma í ljós hvort hreppsnefndin veitir stöðinni starfsleyfi — mínir umbjóðendur eru mjög ákveðnir í sinni afstöðu og harðir á að stöðin megi ekki fara í gang fyrr en tryggt sé að ekki verði hætta á mengun í Apa- vatni, Kvíslum eða Djúpum, sem renna í vatnið, enda eru þar mjög mikilvægar uppeldisstöðvar fyrir silunginn í vatninu." Einn eigandi Úteyjar II sagði nýlega í yfirlýsingu í Morgun- blaðinu að skurður þessi væri fiskeldisstöðinni óviðkomandi, skurðinn hefði hann sjálfur látið grafa til að ræsa fram land. Skv. upplýsingum Morgun- blaðsins er það álit Hollustu- verndar og Náttúruverndarráðs að tryggja þurfi mun betur en þegar sé ætlað að mengun frá stöðinni sé lífríki Apavatns ekki hættuleg. Hollustuverndin leggur til að frekari rannsóknir fari fram á mengunarhættunni, enda sé fyrirhugaður hreinsunar- búnaður stöðvarinnar ekki staðl- aður og á engan hátt ljóst að hve miklu gagni hann muni koma. Sú rannsókn gæti tekið a.m.k. mánuð og er því víst, að einhver bið verð- ur á að stöðin geti tekið til staxfa. „Þegar tryggt er að stöðin mun ekk; valda mengun í vatninu eða ánum, sem renna í það, þá verður þetta að sjálfsögðu í fínu lagi,“ sagði einn landeigendanna í sam- tali við blm. Morgunblaðsins í gær. „Við erum ekkert að eltast við þessa menn eða stöðina sem slíka, við viljum bara tryggja að vatnið haldist hreint." - « of London Jatakk! Vinsamlega sendið mér nýja Freemans pöntunarlistann í póstkröfu. Sendist til: Freemans of London c/o Balco hf. Reykjavíkurvegi 66 220 Hafnarfirði. simi 5 39 00. Nafn: Heimili Staður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.