Morgunblaðið - 17.01.1984, Side 41
fólk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984
41
Er Karólína ófrísk?
Það var mikið um dýrðir þeg&r
Karólína giftist Fransmanninum
Philippe Junot.
Karólína ásamt Stephano.
+ Það kom öllum á óvart þegar
Rainer fursti af Mónakó tilkynnti,
að dóttir hans Karólína ætlaði að
ganga í hjónaband með ítalska
auðkýfingssyninum Stephano Cas-
iraghi. Að vísu vissu allir um sam-
bandið milli þeirra, en að þetta
skyldi bera svona brátt að þótti
hins vegar dálítið undarlegt.
Skýringin á nú að vera fundin.
Þýska dagblaðið Bild-Zeitung
fullyrðir, að Karólína sé ófrísk
og komin þrjá mánuði á leið.
Karólina hefur aldrei dregið dul
á, að hennar heitasta ósk sé að
eignast barn og þá fyrst yrði hún
fullkomlega hamingjusöm. Ef
rétt er hermt frá, mun hún brátt
fá ósk sína uppfyllta og hún læt-
ur sér það trúlega í léttu rúmi
liggja þótt barn hennar fæðist
utan hjónabands að þvi leytinu
til að kirkjan hefur enn ekki lagt
blessun sína yfir skilnað hennar
við franska glaumgosann Phil-
ippe Junot. Vonir standa þó til
að af þvi verði.
Getty-ævintýrinu lokið
J. Paul Getty III Gordon Getty Getty gamli
+ Hann ber það ekki utan á sér
að hann hafi verið að gera sölu-
samning upp á 90 milljarða króna
en svona er það nú samt. Gordon
Peter Getty, 49 ára gamall sonur J.
Paul Getty, sem á sinni tíð var
ríkasti maður í heimi, er búinn að
selja fjölskyldufyrirtækið og kaup-
andinn er Texaco, þriðja stærsta
olíufélagið í Bandaríkjunum.
I Dallas- og Dollars-þáttunum
er dregin upp mynd af fólki, sem
auðgast hefur á olíunni, en í
samanburði við Getty-fjöískyld-
una er þar um hreina fátæklinga
að ræða, eins og dós af maskinu-
olíu við hliðina á stórum olíu-
tanki.
Salan á Getty-fyrirtækinu
kemur ekki til af góðu. Á bak við
hana er mikill fjölskylduharm-
leikur.
J. Paul Getty gamli, sem tók
við fyrirtækinu af föður sínum,
lést árið 1976 og hafði ætlast til,
að synir hans þrír héldu
merkinu áfram á loft. Það fór þó
á annan veg. Einn þeirra dó á
unga aldri og annar, J. Paul jr.,
býr í Englandi einn út af fyrir
sig og vill helst ekkert hafa við
aðra menn að sælda. Hann sagði
snemma skilið við fjölskylduna
og í erfðaskrá föður hans er hans
varla getið.
J. Paul jr. er faðir J. Paul
Getty III, sem fyrir nokkrum ár-
um var rænt á Italíu og var ekki
látinn laus fyrr en of fjár hafði
verið greitt í lausnargjald. Þá
höfðu ræningjarnir skorið af
honum annað eyrað. J. Paul
Getty III er andlegt og líkamlegt
flak, eiturlyfjasjúklingur, sem
býr hjá moður sinni í Los Angel-
es og fær ekki eyri frá föður sín-
um.
Þá er eftir Gordon Peter Getty
en hann hefur meiri áhuga á
listinni en olíunni og þess háttar
vafstri. Hans eina áhugamál er
„ríkasta listasafn í heimi“, sem
er í Malibu í Kaliforníu og fer
með meira en þrjá milljarða fsl.
kr. í listaverkakaup á ári. Það
rekur enginn fyrirtæki á borð
við Getty Oil nema hann hafi
áhuga á því og þess vegna ákvað
Gordon að ljúka Getty-ævintýr-
inu.
COSPER
— Vill hcrrann Ijóshærða eða dökkhærðá konu?
V
(
Suðurnesja-
1 « konur athugið
Líkamsþjálfun —
leikfimi
Ný 6 vikna námskeið
hefjast 16., 18. og 19.
janúar, 50—60 mínútna
leikfimi með músík,
fyrir dömur á öllum
aldri.
Njarðvík:
Morgun-, dag- og kvöld-
tímar tvisvar sinnum í
viku, á þriöjudögum og
fimmtudögum, í íþrótta-
húsi Njarövíkur. Kennsla
hefst 19. janúar.
Keflavík:
Kvöldtímar á mánudögum
og miövikudögum í íþrótta-
sal barnaskólans í Kefla-
vík. Kennsla hefst 18. jan-
úar.
Sandgerði:
Kvöldtímar á mánudögum
og miðvikudögum í íþrótta-
húsinu í Sandgerði.
Kennsla hefst 16. janúar.
Styrkjandi og liökandi æfingar fyrir dömur á öllum
aldri. Byrjenda- og framhaldsflokkar.
Vaktavinnufólk! Ath. lausir tímar.
65 mínútna leikfimi fyrir ungar dömur, 16 ára og
eldri (þjálfunarkerfi fyrir jassballett), Keflavík og
Njarðvík, tvisvar í viku og frjáls mæting á laugar-
dagsmorgnum.
Upplýsingar og innritun í síma 6062.
Birna Magnúsdóttir.