Morgunblaðið - 17.01.1984, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984
46
Tilraunastöðvar landbúnaðarins:
Skulda samtals
1,5—2 milljónir
— Óákveðið hvernig starfseminni verður hagað á Reykhólum
TilraunastöAvar landbúnaðarins,
sem eru fimm talsins, eru skuldugar
vegna langvarandi hallareksturs,
sem þó niði hámarki á síðastliðnu
ári þar sem engin aukafjárveiting
fékkst til reksturs þeirra. Samtals
skulduðu stöðvarnar 1,5—2 milljón-
ir króna síðari hluta síðasta árs.
Þetta kom fram í samtali sem blm.
átti við Gunnar Olafsson forstjóra
Rannsóknarstofnunarinnar (RALA).
„Allar tilraunastöðvarnar eru á
B-hluta fjárlaga og eiga þær því
að rekast á eigin tækjum. Það hef-
ur ekki gengið vegna þess að
reksturinn er gífurlega kostnað-
arsamur og þær þurft fjárfram-
lög, en við höfum alltaf verið í
vandræðum með að fjármagna
þær þar sem fjárframlög til þeirra
á fjárlögum hafa alltaf verið að
minnka. Venjulega hefur þeim
verið bjargað með aukafjárveit-
ingu seinni hluta árs en engin slík
fjárveiting fékkst á síðastliðnu ári
þannig að sámtals skulduðu til-
raunastöðvarnar 1,5—2 milljónir
síðari hluta ársins en uppgjör
liggur ekki fyrir," sagði Gunnar.
„Eg get nefnt sem dæmi um
kostnaðinn að starfsfólk þeirra er
ráðið samkvæmt samningum
BSRB, samningum sem miðast að
mestu leyti við skrifstofufólk í
Reykjavík og vinnur á milli 9 og 5.
Þetta fyrirkomulag er hinsvegar
ekki hentugt í svona sveitavinnu
eins og vinnan á tilraunastöðvun-
um er og ekki verður unnin á
skrifstofutíma, og felst ekki síst í
hirðingu búfjár. Því hefur launa-
kostnaðurinn verið langtum meiri
en upphaflega var áætlað. Nú er
staðan sú að til hreinna vandræða
horfir hjá sumum tilraunastöðv-
anna vegna skorts á fjármagni. Til
dæmis hefur ekki verið hægt að
sinna nauðsynlegasta viðhaldi
bygginga og tækja og peningar til
stofnkostnaðar eru einnig mjög af
skornum skammti. Hluti tekna
stöðvanna á þessu ári kemur því
til með að fara til greiðslu skulda
frá fyrra ári,“ sagði Gunnar enn-
fremur.
Varðandi Tilraunastöðina á
Reykhólum, sem að undanförnu
hefur verið talsvert til umræðu
hér í blaðinu vegna þess að stjórn
RALA hefur ákveðið að leggja
niður fjárbúskap þar og flytja féð,
sem ræktað hefur verið með tilliti
til sérstakra eiginleika, annað,
sagði Gunnar: „Eins og starfsemin
hefur verið á Reykhólum á síðast-
liðnum árum hefur mikill kostn-
aður verið af búrekstrinum. Með
þvf að leggja búreksturinn niður
sparast mannafli og er ætlunin að
hluti hans fari til jarðræktartil-
rauna, eins og áður hefur komið
fram. Að þessu er stefnt en
ákvarðanir um starfsemina þar
verða þó ekki teknar fyrr en um
miðjan febrúar og þá í ljósi þess
fjármagns sem til þeirra hefur
fengist. Ljóst er að vinnan þar
mun eitthvað dragast saman. Þar
vinna nú 3 fastráðnir starfsmenn
auk aukafólks við heyskap og
sauðburð, þannig að þar hafa á
undanförnum árum verið unnin
4,5 ársverk. Búið er að segja fjár-
manninum upp en þessi starfs-
mannamál skýrast ekki fyrr en
starfsemin verður endanlega
ákveðin," sagði Gunnar. Vildi
Gunnar taka það fram að á stjórn-
arfundi RALA sem haldinn var
fyrir skömmu hefðu þessi mál ver-
ið rædd og hefði þar komið fram
eindreginn vilji til að varðveita
Reykhólastofninn en enn væri
ekki búið að ákveða hvert féð yrði
fLutt. I því efni kæmu nokkrir
staðir til greina.
U-BÍX90
Smávaxna eftirherman
Þó U-BIX 90 sé minnsta eftirherman í U-BIX fjölskyldunni hefur hún alls enga
minnimáttarkennd, enda óvenju hæfileikarík og stórhuga eftirherma.
Einstaklingar og fyrirtæki sem til hennar þekkja láta heldur ekki á sér standa
og pantanir streyma inn.
LOFTSKRALL
RYÐVARNARSPRAUTA LOFTHAMAR
L OFTSLIPIROKK UR L OFTB YSSA
(JUÐAR!) FEITISPRAUTA MEÐ OG ÁN MÆLIS
LOFTBORVÉL
MÁLNINGAR—
SPRAUTA
LOFTSLfPISKÍFA LOFTHÖGGSKRALL
HREINSIEFNA- SANDBLÁSTURS—
SPRAUTA SPRAUTA
Cinhell
vandaðar vörur
Skeljungsbúðin
SÍÖumúla33
símar 81722 og 38125
Breiðholtsbúar
athugið
Viö höfum
nú tekiö upp
nýja opnunartíma
sem hér segir:
wm
V/SA E ■UBOCARO
Virka daga opiö kl. 9—19.
Föstudaga kl. 9—19.30.
Laugardaga kl. 9—16.
VERIÐ VELKOMIN í VERSLANIR OKKAR.
Ásgeir Breiöholtskjör Hólagaröur
Tindaseli Arnarbakka Lóuhólum
Kjöt og fiskur Straumnes Valgaröur
Seljabraut Vesturbergi Leirubakka