Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 48
Tölvupappír llllFORMPRENT Hverfisgolu 78. sim.-v 25960 25566 HUKKUR í HEUMSKEÐJU ÞRIÐJUDAGUR 17. JANUAR 1984 VERÐ I LAUSASÖLU 20 KR. Fiskveiðiheimildir við Bandaríkin: Coldwater og Iceland Sea- food samstarfsaðilar vestra? 836 umsóknir um íbúðir hjá Verkamannabústööum: Um 220 íbúðum úthlutað á þessu ári UMSÓKNIR um fbúðir hjá Verka- mannabústoðum voru 836 talsins, en umsóknarfrestur rann út 8. janúar sl. Til úthlutunar á þessu ári koma um 100 íbúðir í nýbyggingum og 100—120 endursöluíbúðum verður einnig úthlutað, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Hilmari Guðlaugssyni, vara- formanni stjórnar Verkamanna- bústaða. Bjóst Hilmar við því að íbúð- unum yrði úthlutað í kringum páska. Þær nýju íbúðir, sem út- hlutað verður, eru á Ártúnsholti og í Nýjum miðbæ, en þær skipt- ast þannig að um 70 íbúðir eru á Ártúnsholti og um 30 í Nýjum miðbæ og munu þær standa við Neðstaleiti. Fyrstu íbúðirnar á Ártúnsholti verða tilbúnar um næstu áramót, en íbúðirnar við Neðstaleiti verða tilbúnar til afhendingar á tímabilinu mars/júní árið 1985. Því verður um 220 íbúðum út- hlutað á vegum Verkamannabú- staðakerfisins í ár og samkvæmt því tekst að fullnægja um 26% eftirspurnar. Hilmar gat þess að þær endur- söluíbúðir sem úthlutað verður myndu losna á þessu ári og eitthvað fram á næsta ár. VSÍ um 40% al- menna kauphækkun: Verðbólga í árslok yrði 175% Vinnuveitendasamband íslands hefur gert athugun á því hver þróun verðbólgunnar og gengisins gæti orðið ef laun hækkuðu almennt um 40% 1. febrúar og þau síðan endur- metin á þriggja mánaða fresti í sam- ræmi við þær kröfur sem gerðar eru til ÍSAL. Niðurstaðan er sú að verð- bólgan frá upphafi til loka ársins 1984 yrði ekki undir 175% og verðið á Randaríkjadollara yrði komið yfir 90 krónur um næstu áramót. „Allt tal um að þeir séu að brjóta ísinn með þessum aðgerð- um er auðvitað út í hött. Með þess- um aðgerðum eru verkalýðsfélögin í Straumsvík að brjóta ísinn und- an sjálfum sér. Kröfur þeirra eru alveg úr tengslum við raunveru- leikann," sagði Magnús Gunnars- son, framkvæmdastjóri VSÍ, í samtali við Mbl., er hann var innt- ur álits á framkomnum kröfum verkalýðsfélaga hjá íslenzka álfé- laginu. „Afleiðingar þess, að gengið væri að kröfum verkalýðsfélag- anna, sem hljóða upp á 40% launahækkun, eru augljósar. Verðbólgan myndi geysast af stað á nýjan leik og við værum komin í sama vítahringinn og áður,“ sagði Magnús Gunnarsson. Sjá ennfremur fréttatilkynn- ingu VSÍ á miöopnu blaðsins. SENDIRÁÐ íslands í Washington kannar nú nánar þær leiðir, sem mögulegt er að fara varðandi fisk- veiðiheimildir íslands við Bandarík- in. Meðal þeirra leiða, sem kannað- ar eru að beiðni utanríkisráðuneytis- ins, er hvort ('oldwater og lceland Seafood geti verið þau fyrirtæki bandari.sk, sem gætu orðið sam- starfsaðilar íslendinga þar í landi. Guðmundur Eiríksson, þjóðrétt- arfræðingur hjá utanríkisráðu- neytinu, rakti stöðu þessa máls í samtali við Morgunblaðið fyrir skömmu: „Mál sem þessi þurfa að fara í gegn um svæðisstofnanir í Bandaríkjunum, sem sjá þá meðal annars um hafsvæðin umhverfis landið. Þar eru ýmiss konar nefndir og undirnefndir, sem mál- ið þarf að fara fyrir áður en kem- ur fyrir aðalráð. Lýsingu þarf að fá á þessu stjórnkerfi og hver sé bezta leiðin til að tryggja sam- þykki þessara nefnda og stjórna. Þá er verið að kanna hvaða fiski- tegundir hægt sé að veiða, á hvaða svæðum, hversu mikið og hve lengi. Þá er verið að athuga hvort enn standi það boð Bandaríkjanna frá því að deilt var um hvalveiðar, að þeir sendi hingað nefnd til að kynna þessi mál. Þá er verið að kanna löndunarmöguleika þar vestra, en í lögum þarlendum seg- ir, að aðeins bandarísk skip megi landa afla þar. Þá verða athugaðir möguleikar á löndun í Kanada. Ennfremur er verið að athuga hvort rétt sé að efla þátttöku okkar í NAFO, Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðinefndinni, sem sér um hafsvæðið utan 200 mílna markanna, en komið hefur til tals að hætta þátttöku í henni. Þá er í lögum um fiskveiðiheim- ildir við Bandaríkin ákvæði um gagnkvæmni og verður það ákvæði kannað frekar, til dæmis með það í huga, að hugsanlega gæti ein- hver þriðja þjóð skráð skip sitt í Bandaríkjunum og þar með kraf- izt fiskveiðiréttinda fyrir það hér við land. Að lokum er verið að kanna hvort fyrirtækin Coldwater og Iceland Seafood í Bandaríkjun- um, gætu verið þau fyrirtæki þar í landi sem aðild ættu að Banda- rísk-íslenzkum fyrirtækjum og gætu sýnt fram á hagnað af þeim samskiptum samkvæmt því, sem krafizt er í bandarískum lögum þar að lútandi," sagði Guðmundur. Yfir 30 gráðu frost á Fjöllum: „Bítur lítið á okkur en skepnurnar bera sig illa“ „ÞAÐ ER búið að vera kalt það er rétt, en þetta bítur nú lítið á okkur, við erum þessu vön og svo er aiveg stillt og heiðríkt," sagði Benedikt Sigurðsson, bóndi í Grímstungu á Fjöllum, er blaðamaður sló á þráð- inn til hans í gærkvöldi. „Frost hefur hér á Grfmsstöðum mælst 27 gráður og enn kaldara var í nótt í segir Benedikt Sigurðsson í Grímstungu Möðrudal, því þar fór frostið niður fyrir 30 gráður," sagði Benedikt ennfremur. „Hér háttar þannig til að við erum með upphitaða véla- geymslu og því eru engin vand- kvæði á að koma vélum í gang, og helst er að maður sjái það á skepnunum að þeim finnist kalt ef þær eru látnar út, þær bera sig hálf illa. — Snjór er hér ann- ars ekki mikill, en hann er harð- ur og illa lagaður sem gerir hann erfiðan yfirferðar. í gær var unnið að því að gera slóð frá Grímsstöðum að Reykjahlíð, var notaður til þess jeppi og farið í slóð sem fyrir var, eftir snjóbíl- inn, sem kemur með póst til okkar. Kuldinn kom ekki að sök í þessari ferð, inni í jeppanum, en ill mögulegt hefði trúlega verið að fara þetta á opnum vélsleða, þar sem næðir um rnann," sagði Benedikt að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.