Morgunblaðið - 05.02.1984, Blaðsíða 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984
Umsion
Sigurður
Þótti Alpha
hryllilega
léleg plata
Þaö fór víst ekki framhjá nein-
um, hvorki íslenskum poppunn-
endum né öórum, að önnur
breiöskífa sveitarinnar Asíu,
sem bar nafnið Alpha, þótti
skelfilega léleg.
Rokkblaöamenn í Los Angeles
tóku sig saman nú á nýja árinu og
völdu 10 lélegustu rokkskifurnar
á síöasta ári. Fæstum kom á
óvart, aö Alpha skyldi vera þar á
meöal. Aörar, sem komust m.a. á
þennan vafasama lista, voru Lov-
erboy, Styx, Adam Ant og Moody
Blues.
Altered
Images
hættir
Skoska hljómsveitin Altered
Images hefur hætt störfum eftir
fjögurra ára starfsemi, þrjár
breiðskífur og nokkrar smáskíf-
ur, sem sumar hverjar hafa náð
miklum vinsældum.
í tilkynningu frá hljómsveitinni
segir, aö meölimirnir fari hver í
sina áttina og allt sé þetta fram-
kvæmt „í góöu". Clare Grogan,
söngkona sveitarinnar, hyggst
leggja fyrir sig kvikmyndaleik, en
þeir Johnny McElhorne og Tony
McDaid hyggjast stofna nýja sveit
saman. Fjóröi meðlimurinn, Steve
Loroni, hefur haldiö suöur til
Lundúna og ætlar aö freista gæf-
unnar meö nýjum mönnum.
Þaö, aö hljómsveitin skuli
leggja upp laupana, kemur ekki
svo ýkja á óvart. Allt frá þvi önnur
breiöskífan leit dagsins Ijós virtist
einhver togstreita vera innan
flokksins.
Þá haföi þaö mikil áhrif á aö-
dáendahópinn, aö sveitin skipti
sífellt um tónlistarstefnu og á
lokatónleikum hennar í desem-
ber, sem reyndar voru þeir fyrstu
á heimaslóöum í hálft annaö ár,
var húsiö hálftómt.
Williams
viö Sky
John Williams, gítarloikari (
hljómsveitinni Sky, hafur sagt
skilið við flokkinn. Talið ar
næsta vist, að hann muni að
nýju snúa sér alfariö að klass-
tsfcri tónlist.
Sky gaf út fjórar breiðskífur á
meöan Williams var innanborös
og þrátt fyrir miklar vinsældir
sveitarinnar framan af var þaö
mál manna, að óhemju þreytu
væri tekiö aö gæta á síöustu plöt-
unni.
Barson
hættur
í Madness
Mika Barson, hljómborðsleik-
ari Madness, hefur sagt skilið
við flokkinn. Brotthlaup hans er
sagt mega rekja til hollenskrar
stúlku, sem hann kvssntist fyrir
hálfu öðru ári. Frá þeim degi
hefur hann haft aðsetur í Amst-
erdam og síðan fjarlægst
hljómsveitina æ meir eftir því
sem tímar hafa liðið. Aö því er
best er vitað hyggst Barson
draga sig alfariö í hlé frá „brans-
anum“.
„Lifum þaö af þótt ekki
veröi neinn hagnaður“
— spjallaö viö tvo meölimi
hljómsveitarinnar Tic Tac
frá Akranesi, sem leikur í
Safari í kvöld
væri svona ofboöslega erfitt aö
komast aö til aö halda tónleika.
Þaö er nánast ógjörningur aö
reyna fyrir sér á nokkrum staö
nema Safari. Hótel Borg sagðist
ekki treysta sér til þess aö halda
tónleika meö okkur af fenginni
reynslu meö aörar sveitir, aö-
sóknin væri einfaldlega svo lóleg."
„Við höfum spilað lítið það
sem af er vetri, en mætum nú til
leiks með glænýtt efni. Gunnar
er líka orðinn fínn í löppinni og
okkur er ekkert að vanbúnaöi,"
sögðu þeir Bjarni Jónsson og
Ólafur Friðriksson úr Skaga-
hljómsveitinni Tic Tac er Járn-
síöan ræddi við þá fyrir
skemmstu.
Tic Tac leikur í kvöld, sunnu-
dag, i Safari og er þetta aöeins í
annaö sinn, sem höfuöborgarbú-
um gefst kootur á aö heyra í þeim
fimmmenningum. Þá er ekki talin
meö þátttaka strákanna í Músík-
tilraunum SATT 1982. Þar gekk
reyndar ekkert allt of vel.
Auk þeirra Ólafs, sem leikur á
gítar, og Bjarna, sem syngur (iék
reyndar lengst af á gítar líka en
hefur aö mestu lagt hann í salt)
eru þeir Jón Bentsson/bassi,
Gunnar Ársælsson/trommur og
Friöþjófur Árnason/hljómborð í
hljómsveitinni.
Hálfs annars árs gömul
Aö sögn þeirra Bjarna og Ólafs
er Tic Tac búin aö vera saman í
þessari mynd í hálft annaö ár, en
þá bættist Friöþjófur t hópinn.
Hinir fjórir höföu leikiö saman um
hríö eftir „flipp“-uppákomu á
grunnskólaskemmtun.
Umsjónarmaöur Járnsíöunnar
innti þá félaga, Ólaf og Bjarna
eftir því hvers kyns tónlist Tic Tac
léki.
„Þaö er nú kannski ekki svo
auövelt aö lýsa því," sögöu þeir
báöir. „Þetta er kraftmikið rokk
og kátt, kannski eitthvaö í ætt viö
tónlist Echo And The Bunnymen."
Hverjir semja lögin?
„Þetta er allt sett saman í anda
samvinnuhreyfingarinnar, þ.e. viö
berjum altir saman lögin."
En textana?
„Ég hef nú aöallega séö um
þaö," svarar Bjarni. „Upphaflega
voru þeir allir á ísiensku, þá var
Utangarösmanna-vakningin í al-
gleymingi, en síöan hefur þetta
þróast yfir í enskuna, sem mér
finnst einhverra hluta vegna tam-
ari tM textageröar og eiga betur
viö þessa tónlist okkar. Textarnir
fjalla um ýmis málefni og oft fæ
ég hugmynd aö texta eftir aö hafa
lesiö bók. T.d. er textinn viö eitt
lagiö saminn eftir aö ég las bók-
ina „Saga handa börnum" eftir
Svövu Jakobsdóttur."
Hafiö þiö eithvaö velt fyrir ykk-
ur plötuupptöku?
„Já, menn hafa sosum látiö sig
dreyma um slíkt, en aö svo
komnu máli væri allt slíkt hiö
mesta óraunsæi. Viö höfum látiö
okkur nægja einfaldar upptökur
af lögunum okkar og bíðum betri
tíma meö frekari pælingar í þeim
dúr. Bæöi er aö þaö er dýrt aö
fara í hljóðver og svo hitt, aö viö
erum varla tilbúnir í slíkt ennþá.
Hins vegar veröur því ekki neitaö,
aö þaö hlýtur alltaf aö vera löngun
t aö gefa út plötu."
Án pentnga
Þiö sögöust í upphafi ekki hafa
spHaö mikiö í vetur. Geriö þiö
ykkur vonir um góöar undlrtektir í
Safari?
„Þaö er erfitt aö segja til um
þaö fyrirfram. Viö spiluöum
reyndar í Safari í fyrrasumar, en
þar mættu fáir og hafa sennilega
ekki náö aö átta sig almennilega á
okkur. Hvaö tónleikana núna
varöar vitum viö fyllilega, aö viö
veröum varla ríkari eftir þá, nema
þá kannski reynslunni ríkari. Pen-
ingar eru nokkuö, sem viö höfum
lært aö sætta okkur viö aö vera
án í þessum „bransa". Viö höfum
meira aö segja önglaö saman í
feröasjóö vegna þessara tónleika
okkar, þannig aö viö lifum þaö af
þótt ekki veröi neinn hagnaöur af
uppákomunni."
Er það dýrt fyrir sveitir eins og
ykkur aö koma í höfuöstaöinn til
þess aö halda tónleika?
„Já, þaö kostar drjúgan skild-
ing þótt ekki séum viö lengra frá
Reykjavík en raun ber vitni. Þaö
væri þó ekki svo slæmt ef ekki
Þaö hefur ekkert komiö til tals
hjá ykkur aö smella ykkur á
sveitaballavertíöina tH þess aö
drýgja tekjurnar?
„Nei, viö settum okkur þaö
markmiö í öndveröu aö reyna aö
komast hjá því ef nokkur kostur
væri. Viö höfum einfaldlega ekki
áhuga á aö leika þá tónlist, sem
þar ræöur ríkjum. Reyndar hafa
ýmsar sveitir gefiö út slíkar yfirlýs-
ingar og síöan neyöst til þess aö
kokgleypa þær, en viö ætlum
samt aö þrauka, enda er peninga-
öflun ekki meginmarkmiöiö meö
spilamennskunni hjá okkur."
Járnsíöan birtir hér í lokin einn
textanna eftir Bjarna. Lagiö heitir
„Kitchen Song":
«t»Mi I cohm to you I ooo tho paintingi
and tho drowingo on tho floor
you con do without your thinking
you can do without younoH
you go up and down, you wondor roatloaa
around
taking cara o* thom
taking cara of ttw dolla
bow your haad, tha Mng'a at tha tabta
giva your hoart to hia childran
giva tham aomothing to play wlth
lot Chriatian oxamina your brain
— SSv.