Morgunblaðið - 14.02.1984, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984
17
Tvö ungmenni í fótaleng-
ingu til Sovétríkjanna
„Tryggingarráð hefur ákveðið
að greiða ferðirnar til Sovétríkj-
anna og uppihald mitt í sex mán-
uði og gera Heiga þannig kleift að
fara í seinni fótaaðgerðina. Erum
við feðgar að vonum ánægðir með
það,“ sagði Óskar Einarsson, faðir
Helga, drengsins sem á liðnu ári
kom heim eftir ellefu mánaða
fótaaðgerð í Kurgan í Sovétríkjun-
um.
Eins og fram kom í Mbl. 3.
febrúar sl. sótti óskar um
greiðslu frá Tryggingarráði
fyrir dvalarkostnað, en sam-
kvæmt sovéskum reglum fylgir
foreldri þeim sjúklingum sem
ekki eru fullorðnir og var Óskar
hjá syni sínum þann tíma sem
aðgerðin tók, alls ellefu mánuði.
„Við förum til Sovétríkjanna
seinna í þessum mánuði, en dag-
urinn er ekki endanlega ákveð-
inn,“ sagði óskar. „Með okkur
fer 18 ára gömul stúlka, Val-
gerður Lindberg, sem er að fara
í samskonar aðgerð og Helgi, og
Hans Lindberg, faðir hennar."
Barðaströnd:
Skemmdir
á heyjum
Baröaströnd, 6. febrúar.
FRÁ áramótum hefur verið hér
skaplcg vetrartíð, snjór er nokkur en
sæmileg færð um vegi. Skelvinnslan
í Flóka hófst í miðjum janúar. Geng-
ur hún vel.
Komið hafa fram skemmdir á
heyjum á nokkrum bæjum hér
sem rekja má til óþurrkanna síð-
astliðið sumar, sem sagt ofhitnað í
þeim svo þau brunnu.
Heilsufar er gott á mönnum og
skepnum en félagslíf í dvala.
SJ.Þ.
i
"SPURNIN61N ER'- HVTO PREKKUR MHPUR MEÐ HRÍ56RJÓNR6RRUT, DflRLlNé'?"
300 kr. verðmimur á saltlestinni
FYRIRT/EKIÐ Eimsalt, sem er í eign Eimskipafélagsins, býður nú saltlest-
ina á allt að rúmlega 300 krónum lægra verði en önnur saltsölufyrirtæki í
landinu. Hjá því kostar saltlestin 1.560 upp úr skipi og 1.820 úr geymslu. Hjá
Saltsölunni kostar lestin 1.890 upp úr skipi og 2.090 úr geymslu.
Vegna þessa ræddi Morgunblað-
ið við Finnboga Kjeld, fram-
kvæmdastjóra Saltsölunnar, og
Jóhann Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóra Eimsalts. Finnbogi
Kjeld hafði eftirfarandi um verð-
mismuninn að segja: „Eimskipafé-
lagið er kannski að jarða gróðann
af frysta fiskinum og stykkjavör-
unni með saltflutningunum og
saltsölunni. Stykkjavöruflutning-
urinn hefur hækkað um 70 til 80%
í erlendum gjaldeyri á síðastliðn-
um þremur árum og flutningurinn
á frysta fiskinum um það bil um
9%. Á sama tíma hefur önnur
fragt staðið í stað eða lækkað í
erlendri mynt. Þetta er því ein-
staklega rausnarlegt af þeim að
lækka þá fragt, sem þeir hafa alls
ekki verið í og maður á satt að
segja erfitt með að trúa því, að
þetta sé ákvörðun þeirra ágætu
manna, sem i stjórn Eimskips
sitja. Við erum ekki í neinu „salt-
stríði" enda getum við ekki selt
okkar salt undir kostnaðarverði,
en ég tel mig geta fullyrt það, að
verðið hjá Eimsalti stendur engan
veginn undir innkaupsverði og
flutningskostnaði. Mér skilst að
þeir segist vera í saltsölunni til
þess að tryggja skipum sínum
flutning heim frá Spáni, en það
má þá geta þess, að síðasta skip,
sem kom til þeirra með salt, var
leiguskip."
Jóhann Guðmundsson, sagði, að
saltsalan hefði hafizt seinni hluta
síðasta árs og væri fyrst og fremst
til þess að tryggja skipum Eim-
skipafélagsins flutning heim frá
Spáni og Portúgal, en saltið væri
keypt frá Spáni. Skipin flyttu
þangað talsvert af fiski, en flutn-
ingur frá þessum löndum hingað
heim væri lítill sem enginn. Vegna
þessarar hagræðingar teldu for-
ráðamenn fyrirtækisins það fylli-
lega geta staðið við þessa verð-
lagningu.
Sparið penínga
Notiö FILTRE-síur í vökva-
kerfið.
Viö aðstoöum viö val á síum.
Retursía
Tank-retursia
Lok á tank
Bolholt
Afram á fullu 20. febrúar
.......
Suóurver*
Sími 83730
Áfram á fullu 20. febrúar
INNRITUN
Nýtt námskeið hefst 20. febrúar
Líkamsrækt og megr-
un fyrir dömur á öll-
um aldri.
50. mín. æfingakerfi
meö músik.
Morgun-, dag- og
kvöldtímar.
Tímar tvisvar eöa fjór-
um sinnum í viku.
Lausir tímar fyrir
vaktavinnufólk.
Almennir-, framhalds- og lok-
aðir flokkar.
Fyrir þær sem eru í megrun 3ja
vikna kúrar.
Tímar fjórum sinnum í viku.
Mataræði, vigtun, mæling.
50
útna
kerfi
JSB
með
músik
HAFIN
Veriö brúnar
hraustar allt áriö.
og
Sólbekkirnir eru í Bolholti.
Einnig ný Ijós í Suöurveri.
Sauna og góð búnings- og
baoaðstaða á báöum stööum.
Stuttir hádegistímar í
Bolholti. 25. mín. æf-
ingatími. 15. mín. Ijós.
Kennsla fer fram á báðum stöð-
um.
Kennarar
Anna.
Bolholti: Bára og
Kennarar í Suðurveri: Bára,
Sigríður og Margrét.
Líkamsrækt JSB
Suðurveri, sími 83730 —
Bolholti 6, sími 36645.
Véltak hefur 10 ára reynslu i
uppsetningu, viöhaldi og sölu
á vökvabúnaði.
Einkaumboð Véltak hf.,
vélaverslun,
Hvaleyrarbraut 3,
Hafnarfiröi.
fHttgUII'
í Kaupmannahöfn
FÆST
I BLAÐASÖLUNNI
AJARNBRAUTAR-
STÖÐINNI
OGÁKASTRUP-
FLUGVELLI
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!