Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 45
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984
25
• Debbie Armstrong frá Bandaríkjunum sést hér í stórsvigskeppninni á Ólympíuleikunum í gær. Hún kom, sá og sigraöi í
keppninni. Morgunblaöiö/Simamynd AP.
„Ég átti von á
þessum sigri"
— sagði sænski hermaðurinn Gunde Svan
Grunde Sven, 21 árs gamall her-
maöur frá Svíþjóö, sigraði í 15 km
skíðagöngu á Olympíuleikunum í
----—
Sarajevo 84
gærdag. Sven gekk af miklum
krafti frá upphafi og sigraöi örugg-
lega. Tími hans var 41.25,06 mín.,
eöa 9,3 sek. betri tíma en næsti
maöur hlaut, Aki Karvonen frá
Finnlandi, sem fékk tímann 41.34,09
mín. Harri Kirvensniemi frá Finn-
landi var í þriöja sæti með 41.45,06
mín. Það vakti nokkra athygli aö
enginn Rússi skyldi vera í einu af
þremur fyrstu sætunum í 15 km
göngunni.
Nikolay Zimatov, hinn heimsfrægi
göngumaöur frá Rússlandi, varö í sjö-
unda sæti í göngunni. Færi var nokkuö
gott á meöan á göngunni stóö en töluvert
haföi snjóaö nóttina áöur en gangan fór
fram.
„Ég átti von á því aö ég myndi sigra í
15 km göngunni. Þaö heföu oröið mér
gifuleg vonbrigöi ef svo heföi ekki oröiö.
Allar mínar æfingar miöuðust viö aö
vinna sigur hér og þaö tókst sem betur
fer,“ sagöi Svan eftir sigurinn viö frétta-
menn AP.
92 keppendur tóku þátt í 15 km göng-
unni. Tveir voru dæmdir úr leik, en tveir
hættu keppni. Þeir Einar Ólafsson og
Gottlieb Konráösson tóku þátt i göng-
unni. Einar varö í 49. sæti á 46.21,07
mín., en Gottlieb varð í 55. sæti á
46.53.07 mín. Einar varö því 4 min. 56.
sek. á eftir sigurvegaranum i göngunni.
Hér á eftir er röð þeirra sem uröu í sæt-
unum frá 30 til 60.
30. Stefan Dotzler, V-Þýskaland 44.02,6
31. Dominque Locatelli, Frakkland 44.07,5
32. Markus Faehndrich, Sviss 44.08,0
33. Franz Schoebel, V-Þýskaland 44.11,1
34. Gianfranco Polvara, ítalia 44.35,7
37. Evald Schneider, V-Þýskaland 45.08,7
42. Konstantin Ritter, Lichst. 45.41,5
43. Hideaki Yamada, Japan 45.42,3
44. Jean-Denis Jaussaud, Frakkl. 45.44,4
45. Jose Giroroca, Spánn 45.50.3
47. Kazunari Sasaki, Japan 46.04,8
49. Einar Olafsson, ísland 46.21,7
50. Satoshi Sato, Japan 46.25,5
53. Andreas Gumpold. Austurriki 46.34,5
55. Gootlieb Konráösson, island 46.53,7
56. Yusei Nakazava, Japan 46.38,6
57. John Spotswood, Ðretland 46.53,7
58. Mark Moore, Ðretland 47.03,2
59. David Hislop, Astralía 47.25,5
60. Michael Dixon, Bretland 48.18,6
• Marja-Liisa Hamalainen
Annað gull
Hamalainen
Frá Mike Clark, fréttam. AP i Sarajevo.
MARJE-LIISA Haemaelainen frá
Finnlandi vann sín önnur gullverö-
laun í skíðagöngu á sunnudag or
hún sigraði í fimm kílómetra göng-
unni. Hún hafói sigrað í tíu km
göngunni á fimmtudaginn. Tími
finnsku stúlkunnar var tíu sekúnd-
um betri en norsku stúlkunnar
Berit Aunli sem varð önnur.
Keppnin í kvennaflokkum í göng-
unni í Sarajevo gildir í heims-
bikarkeppninni og eftir þær tvær
keppnir sem aö baki eru hefur Hae-
maelainen tekiö forystuna. en hún
var örtnur fyrir leikana. Hún er
handhafi heimsbikarsins.
„Ég átti ekki von á því aö ná í
annaö gull hér í dag," sagöi
Haemaellainen eftir verölaunaaf-
hendinguna á sunnudaginn. „Ég
óttaöist Aunli mest af öllum keppi-
nautum mínum — hún er sú besta
aö mínu mati." Aunli sagöist ekki
hafa getaö náö finnsku stúlkunni;
hún heföi átt í vandræöum meö
augnlinsur sínar. „Ég var næstum
eineygö alla keppnina. Ég missti
aöra linsuna strax í upphafi og náöi
því ekki aö einbeita mér. Eftir slikt
upphaf bjóst ég alls ekki vió því aö
ná i verðlaun."
Aldrei aert betur
— sagði bandaríska stúlkan Debbie Arm-
strong eftir sigur í stórsvigi í gær. Nanna
Leifsdóttir varð í 38. sæti í keppninni
„ÉG HEF aldrei skíðaó betur á
æfinni. Þetta voru mínar tvær
bestu ferðir," sagói Debbie
Armstrong, tvítug stúlka frá
Seattle í Washington-ríki í
Bandaríkjunum, eftir aö hún haföi
sigrað í stórsvigi kvenna í gær á
Ólympíuleikunum. „Ég fann þetta
á mér.“ Þar með fengu Bandarík-
in sitt fyrsta gull á leikunum.
Önnur í gær varó Christine Coop-
er, einnig frá Bandaríkjunum,
þriðja varð franska stúlkan Perr-
ine Pelen og Tamara McKinney,
Bandaríkjunum, varö fjóröa. Þrjár
bandarískar stúlkur af fjórum
fyrstu; glæsilegur árangur.
Nanna Leifsdóttir, varö í 38.
sæti í gær — tími hennar var um
14 sekúndum lakari en tími
Armstrong. Þess má geta aö
Nanna varð fyrir því óhappi i seinni
feröinni aö missa annan stafinn en
fór þó alla leiö. Það taföi hana aö
sjálfsögöu aö hafa ekki nema einn
staf og heföi hún eflaust hafnaö
Tvö íslandsmet
GUÐRÚN Fema Ágústsdóttir,
Ægi, setti nýtt íslandsmet í 200 m
bringusundi á innanfélagsmóti
hjá Ægi síöastlióinn föstudag.
Tími Guðrúnar var 2:41:07 mín. Þá
setti Hrafn Logason, Ösp, nýtt ís-
landsmet í 400 m skriösundi
þroskaheftra, synti á 6:13:0'"
eitthvaö ofar heföi þetta ekki
gerst. Nanna haföi rásnúmer 48 en
keppendur voru 53.
Tímar efstu keppenda í gær
voru þessir:
Debbie Armstrong, Bandar.
1:08,87 — 1:12,51 =2:21.38
Christine Cooper, Bandar.
1:08,87 — 1:11.76 = 2:21.38
Perrine Pelen, Frakkl.
1:09,64 — 1:11,76 = 2:21,40
Tamara McKinney, Bandar.
1:10,11 — 1:11,72 = 2:21,83
Marina Kiehl, V-Þýskal.
1:09,70 — 1:12,33 = 2:22,03
Fernandez-Ochoa. Spáni
1:09,52 — 1:12,62 = 2:22,14
Erika Hess, Sviss
1:10,54 — 1:11,97 = 2:22,51
Olga Charvatova, Tékkósl.
1:09,94 — 1:12,42 = 2:22,57
Liisa Savijarvi, Kanada
1:10,31 — 1:12.42 = 2:22,73
Anne-Flore Rey, Frakkl.
1:10,09 — 1:12.86 = 2:22,95
Nanna Leifsdóttir varö svo í 38.
sæti eins og áöur sagöi; tími
Nönnu í fyrri feröinni var 1:14,82
og 1:20,02 í þeirri seinni. Saman-
lagöur tími því 2:34,84 mín.
Debbie Armstrong varö viö sig-
urinn í gær fyrsti gullverölaunahafi
Bandaríkjamanna í alpagreinum á
Ólympíuleikum síðan Barbara
Cochran sigraói í svigi í Sapporo
1972. Armstrong varö fyrír því
• Nanna Leifsdóttir
Tvö töp
KA LÉK tvo leiki í 1. deildinni í
handknattleik um helgina og tap-
aöi báóum. Á laugardaginn lék
KA gegn Haukum í Hafnarfiröi og
tapaði 24—15 eftir að staðan
haföi veriö 10—8 í hálfleik fyrir
Hauka. Haukar höfðu mikla yfir-
buröi í leiknum eins og markatal-
an segir til um.
Á sunnudaginn tapaöi svo KA
fyrir Stjörnunni og fékk þá aftur
skell, tapaði þá með níu marka
óhappi í fyrra aö fótbrotna og því
gat því lítiö tekiö þátt í heimsbik-
arkeppninni síöasta keppnistíma-
bil. Hún fékk þó stig í fimm slíkum
keppnum þá og í vetur hefur hún
staöið sig vel. Varö þriðja í risa-
stórsvigi í Frakklandi og fimmta í
stórsvigskeppni heimsbikarsins
skömmu fyrir leikana. Hefur því
greinilega veriö á uppleiö.
Vestur-þýska stúlkan Irene
Epple, silfurverölaunahafi á
Ólympíuleikunum í Lake Placid, olli
vonbrigöum í gær og hafnaöi í 22.
sæti.
Meðal þeirra sem heltust úr lest-
inni voru ekki ófrægari skíðakonur
en Elisabeth Kirchler frá Austur-
ríki, svissneska stúlkan Maria
Walliser og Fabienne Serrat frá
Frakklandi.
hjá KA
mun, 21—30. KA hefur gengið af-
ar illa í 1. deildinni í vetur og sýnt
litla getu.
Markahæstur Hauka í leiknum
gegn KA var Höröur Sigmarsson
með 8 mörk. Þorleifur og Erlingur
skoruöu 3 mörk fyrir KA. Gunnar
Einarsson var markahæstur leik-
manna Stjörnunnar í leiknum gegn
KA, skoraöi 15 mörk. Sigurður
Sigurösson skoraöi flest mörk KA
eöa 4.
Morgunblaöiö/Símamynd AP. Tpm Smart.
• Svíinn Gunde Svahn sigraði í 15 kílómetra skíöagöngunni í Sarajevo í gær.
Svahn er óhemju sterkur göngumaóur og sagði Gottlieb Konráðsson, annar
íslensku keppendanna, í samtali viö Morgunblaðið eftir 30 kíiómetra gönguna á
dögunum aö Svahn væri einna sigurstranglegastur í 15 km göngunni. Sigur
hans kom því ekki á óvart. Hér er hann á fullri ferð í keppninni í gær.
• Heimsmeistarinn í skíöastökki, Finninn Nykaenen, sem hér er aö leggja af stað niöur stökkpallinn, varð
að sætta sig viö annaö sætið í skíðastökki af 70 metra palli á Ólympíuleikunum í Sarajevo.
A-Þjóóverji sigraði í
stökki af 70 metra palli
JENS Weissflog frá A-Þýska-
landi sigraðí í stökki af 70
metra palli á vetrarólympíu-
leikunum í Sarajevo. Heims-
meistarinn í greininni, Matti
Nykaenen, haföi forystu eftir
fyrra stökkiö, hafði stokkið 91
metra en Weissflog 90 metra.
í síðari umferðinni stökk
Weissflog hinsvegar 87 metra
Aðeins munaði
hársbreidd
— í 5.000 metra skautahlaupinu
TOMAS Gustafson, Svíþjóö, vann
gullverðlaun í 5.000 metra
skautahlaupi á sunnudag. Sigur
hans var naumur, aöeins munaði
hársbreidd á honum og Sovét-
manninum Igor Malkov.
Tími Gustafson var 7:12.28 mín.
en Malkov var aðeins 0,02 sek. á
eftir, fór vegalengdina á 7:12,30
min. Austur-Þjóöverjinn Rene
Schoefisch var þriöji á 7:17,49
mín.
„Ég haföi þaö á tilfinningunni aö
mér gæti tekist þetta," sagöi Gust-
afson sæll og glaöur eftir sigurinn.
Hann er heimsmeistari í 10.000 m.
skautahlaupi og var ekki búist viö
honum svo sterkum í 5.000 metr-
unum. Hann er aftur á móti talinn
sigurstranglegastur í 10.000 metr-
unum á laugardag.
í 500 metra skautahlaupi á
föstudaginn sigraöi Sergei Fokich-
ev, Sovétríkjunum, á 38,19 sek-
úndum, annar varð Yoshihiro Kit-
azawa, Japan, á 38,30 og þriöji
Gaetan Boucher, Kanada, á 38,39
sek.
i 500 metra skautahlaupi
kvenna sigraöi Christin Rothen-
burger frá Austur-Þýskalandi. Hún
setti nýtt ólympíumet; 41,02 sek.,
en gamla metið átti Karin Enke,
sem hefur veriö mjög sigursæl á
leikunum. Þaö var 41,76 sek. sett í
Lake Placid 1980.
Enke varö nú í ööru sæti á 41,28
sek. og Natalia Chive frá Rússlandi
varö þriöja á 41,50 sek.
Bjarni sigraði
alla á „lppon“
AFMÆUSMÓT Júdósambands
íslands fór fram í íþróttahúsi
Kennaraskólans um helgina. Var
þetta síöari hluti mótsins og
keppt var í opnum flokkum.
Bjarni Friðriksson sigraöi örugg-
lega í opnum flokki karla. Glímdi
hann til úrslita viö Kolbein Gísla-
son. Bjarni sigraöi eftir hörku viö-
ureign á Ippon. Bjarni sigraöi í
öllum sínum glímum á Ippon.
Úrslit, opinn flokkur karla:
Bjarni Friöriksson, Kolbeinn Gísla-
son, Runólfur Gunnlaugsson og
Magnús Hauksson.
í flokki unglinga sigraöi Gunnar
Jónasson, Gerplu, bráöefnilegur
júdómaöur. Sævar Kristjánsson
varö í ööru sæti og Rögnvaldur
Guömundsson i þriöja sæti. Kepp-
endur á mótinu voru ekki nema
ellefu. __pp
• Bjarni Friðriksson (t.v.) og
Kolbeinn Gíslason glímdu til úr-
slita í opna flokknum. Bjarni sigr-
aði á „lppon“ eftir haröa viður-
eign. Um næstu helgi fer opna
skoska meistaramótiö í júdó tram
og þar veröur Bjarni á meöal
keppenda.
en Nykaenen 84 metra. Þar
meö var sigurinn í höfn hjá
A-Þjóðverjanum.
Erfitt var aó stökkva vegna
óhagstæós veöurs. Jari
Puikkonen frá Fínnlandi varö
í þriðja sæti.
• Unnusti Enke óskar henni
til hamingju meö sigurinn í
1.500 metra hlaupinu é dögun-
um.
Enke kom-
in með
þrenn
verðlaun
KARIN Enke frá Austur-
Þýskalandi varð í gær fyrsti
keppandinn á 14. vetraról-
ympíuleikunum í Sarajevo til
aö vinna þrenn verólaun er
hún sigraöi í 1.000 metra
skautahlaupi á 1:21,61 mín.
Áöur hafói hún sigrað í 1.500
metra skautahlaupinu og orö-
iö önnur í 500 metra hlaupinu.
Andrea Schoene, einnig frá
Austur-Þýskalandi, varö í ööru
sæti, 1,22 sek. á eftir Enke.
Enke setti nýtt Ólympíumet,
og tímar fimm fyrstu í keppn-
irthi voru raunar betri en gamla
metið, sem rússneska stúlkan
Natalya Petruseva setti i Lake
Placid fyrir fjórum árum. Petr-
useva, heimsmethafinn í grein-
inni, varö aö gera sér þriöja
sætiö aö góðu í gær, hún fékk
tímann 1:23,21 min.
V.