Morgunblaðið - 14.02.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984
JLjt
w' £*»
.
, ~z~ X. ■* *
'
Bræla á loðnumiðunum og flotinn í landvari við Vestmannaeyjar.
Ljósmynd Sigurgeir.
Loðnuveiðin í gær:
17 skip með
10.820 lestir
SLÆMT veður var á loðnumiðunum fyrir Suðuriandi í gær en þá höfðu alls
17 skip tilkynnt loðnunefnd um afla samtals 10.820 lestir og voru þau á leið
í land og engin veiði vegna veðursins. Enn er þróarrými af skornum
skammti.
Saltsfldarsalan til Sovétríkjanna:
180.000 tunnur
fyrir 600 milljónir
— stærstu samningar um sölu á saltaðri Suðurlandssíld
UNDIRRITAÐUR hefur verið í
Á föstudag bættist eitt skip við
þau, sem áður er getið í blaðinu.
Var það Heimaey VE, sem var
með 230 lestir. A laugardag til-
kynntu eftirtalin skip um afla
samtals 3.740 lestir: Skarðsvík SH,
450, Guðmundur Ólafsson ÓF, 250,
Erling KE, 300, Rauðsey AK, 500,
Örn KE, 500, Helga II RE, 470,
Fífill GK, 340, Sæberg SU, 350,
Þórður Jónasson EA, 170, Jón
Finnsson RE, 130, Dagfari ÞH, 200
og Bergur VE 80 lestir.
Á sunnudag tilkynntu eftirtalin
6 skip um afla, samtals 3.390 lest-
ir. Jón Kjartansson SU, 800, Jöfur
KE, 460, Grindvíkingur GK, 450,
Þórshamar GK, 550, Guðrún Þor-
kelsdóttir SU, 680 og Svanur RE
650 lestir.
Til klukkan 17 í gær tilkynntu
eftirtalin skip um afla: Þórður
Jónasson EA, 480, Keflvíkingur
KE, 500, Dagfari ÞH, 510, Harpa
RE, 580, Jón Finnsson RE, 600,
Pétur Jónasson RE, 150, Sæbjörg
VE, 580, Súlan EA, 650, Fífill GK,
500, Beitir NK, 1.250, Sjávarborg
GK, 720, Hilmir SU, 950, Eldborg
HF, 1.100, Bergur VE, 400, Huginn
VE, 400, Höfrungur AK, 700 og
Bjarni Ólafsson AK 750.
Reykjavík viðbótarsamningur um
sölu á 20.000 tunnum af saltaðri
Suðurlandssfld til Sovétríkjanna,
þannig að heildarsalan á saltsfld
þangað, framleiddri á nýafstaðinni
vertíð, nemur samtals 180.000 tunn-
um að verðmæti um 20 milljónir
bandaríkjadollara eða um 600 millj-
ónir íslenzkra króna. Þetta eru
stærstu samningar sem nokkru sinni
hafa verið gerðir um sölu á saltaðri
Suðurlandssfld.
Vegna þessa hafa Morgunblað-
inu borizt eftirfarandi upplýs-
ingar frá Síldarútvegsnefnd:
„Viðræðurnar um viðbótar-
magnið hafa staðið yfir alllengi og
tókst að lokum samkomulag um
óbreytt söluverð á öllum þeim teg-
undum, sem tilgreindar eru í
samningunum og er söluverðið
áfram í bandarískum dollurum.
Af hálfu Sovétmanna undirrit-
uðu samninginn Boris L. Radivi-
lov, viðskiptafulltrúi, og Vladimir
P. Andriyashin, fulltrúi V/O
Prodintorg á Islandi að viðstödd-
um sovézka sendiherranum
Mikhail N. Streltsov.
Vegna erfiðleika, sem á því urðu
hjá síldarflotanum að losna við
aflann eftir að saltað hafði verið
upp í alla gerða sölusamninga,
tóku ýmsir framleiðendur þá
áhættu að léttsalta nokkurt magn
af smásíld, sem illa gekk að losna
við í frystingu sökum sölutregðu.
Auk þess voru um 7.000 tunnur
saltaðar á síðustu dögum vertíðar-
innar eftir að fréttir bárust um að
grundvöllur hefði fengizt fyrir
viðræðum um viðbótarsölu til Sov-
étríkjanna. Með hinum nýja við-
bótarsamningi er öll þessi síld nú
seld.
Eins og áður hefir komið fram í
fréttum hafa Sovétmenn síðustu
árin sett það sem skilyrði fyrir
kaupum, að öll síldin, sem verkuð
er fyrir þá, skuli vera mjög létt-
söltuð, enda er hún seld í verzlun-
um í Sovétríkjunum í því ástandi
sem hún kemur upp úr tunnunum
en í Sovétríkjunum og víðar er það
talinn ókostur að þurfa að útvatna
síldina eins og gert er t.d. á Norð-
urlöndum.
Yfirtaka og lestun á léttverkuðu
síldinni fyrir Sovétríkin hófst um
miðjan desember eða strax eftir
að fyrsta síldin var orðin fullverk-
uð og hafa til þessa fimm stórir
farmar verið sendir til sovézkra
hafna. Auk þess hafa 6 farmar
verið sendir til Svíþjóðar, Finn-
lands o.fl. landa.
Samkvæmt sölusamningum á
afgreiðslu á allri síld þeirri, sem
söltuð var á vertíðinni, að ljúka í
apríl. Mikil vinna hefir verið á
söltunarsvæðinu við umhirðu og
frágang síldarinnar til útflutnings
og þá ekki sízt hjá þeim starfs-
mönnum Framleiðslueftirlits
sjávarafurða, sem skoða og meta
alla síldina áður en hún er send á
hina ýmsu markaði."
Vigri RE
seldi
erlendis
VIGRI RE seldi afla sinn í Brem-
erhaven í gær fyrir tæpar 6 mill-
jónir króna. Verð er nú fremur
lágt á fiskmörkuðum erlendis
vegna aukins framboðs og hás
verðs að undanrörnu.
Vigri seldi alls 280,8 lestir,
mest karfa. Heildarverð var
5.917.900 krónur, meðalverð
21,07. Fyrirhugað er að tvö
skip til viðbótar selji afla sinn
í Þýzkalandi í þessari viku,
Gullver NS í dag, þriðjudag og
Ingólfur Arnarson RE á mið-
vikudag.
Fyrsta loðnan til
Fáskrúðsfjarðar
FYRSTU loðnunni var landað hér á
föstudaginn, er vélskipið Svanur RE
kom með fullfermi. Er hann væntan-
legur hingað aftur í kvöld með full-
fermi.
Hins vegar kom Helga RE
hingað í gærmorgun, en að sögn
forráðamanna Fiskimjölsverk-
smiðjunnar, reyndist ekki unnt að
landa úr skipinu vegna úrkomu.
Má telja nokkuð undarlegt, að
skipið skyldi látið sigla hér inn.
Skuttogarinn Hoffell kom inn
til hafnar um helgina með 120
lestir eftir átta daga veiði og voru
um 90 tonn af aflanum þorskur.
Annars hefur verið allgóð þorsk-
veiði hér út af, en bræla hefur
mjög hamlað veiðum.
— Albert.
Rithöfundasamband íslands um Spegilsmálið:
Tryggja verður að rit-
frelsi sé f heiðri haft
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá almennum
fundi Rithöfundasambands íslands,
sem haldinn var þann 9. febrúar sl.
„Almennur fundur í Rithöf-
undasambandi íslands, haldinn í
Norræna húsinu 9. febrúar 1984,
lýsir þungum áhyggjum sínum
vegna framgöngu saksóknara rík-
isins í Spegilsmálinu svonefnda.
Einkum þykir fundinum það
háskalegt ef lagastoð telst fyrir
því að leggja megi hald á prentað
mál án þess að leita úrskurðar
dómara og án þess að formleg
ákæra sé birt fyrr en saksóknara
sjálfum þykir henta.
Slíkt fyrirkomulag hlýtur að
veita eipstaklingum óeðlilegt
svigrúm til geðþóttaákvarðana
sem stefnt geta ritfrelsinu í
hættu.
Prentað mál ætti aldrei að vera
unnt að leggja hald á eða gera
upptækt nema vel rökstuddar sak-
argiftir eða formlegar kærur séu
fyrir hendi.
Fundurinn skorar á viðeigandi
yfirvöld að sjá til þess að löggjöf
verði ótvírætt þannig hagað að
tryggt sé að ritfrelsi verði ætíð í
heiðri haft.“