Morgunblaðið - 07.03.1984, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.03.1984, Qupperneq 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 55. tbl. 71. árg.____________________________________MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins - Sækjast eftir sigri í Vermont Montpelier, Vermont, 6. marz. AP. Demókratar í Vermont efndu til óbindandi forkosninga í dag, en úrslit voru ekki kunn þegar Mbl. fór í prent- un. Gary Hart vonaðist til að kjósend- ur í Vermont fylgdu fordæmi ná- grannaríkjanna og veittu sér braut- argengi í keppninni um útnefningu demókrataflokksins við forseta- kosningarnar í nóvember. í forkosningunum í Vermont eru ekki valdir fulltrúar á flokksþing demókrataflokksins í júlí, en bæði Hart og Mondale vonuðust eftir sigri er hefði sálrænt gildi. Kjörsókn var lítil framan af degi í Burlington en stöðugt streymi í kosningaskrifstofur í Montpelier. Jimmy Carter fyrrum forseti sagði að ef forsetakosningar færu fram í dag héldi Ronald Reagan auð- veldlega velli, en demókratar ættu möguleika í haust ef þeir sameinuð- ust um frambjóðanda sinn. Hart Mondale fsraelskir hermenn standa vörð við höfnina í Sídon í suðurhluta Líbanon. Þar særðust 11 ísraelskir hermenn á sunnudag er sprengjur, sem skæruliðar höfðu komið fyrir, sprungu. AP/Símamynd. Viðræður deiluaðila í Líbanon boðaðar Beirút, Bern, 6. marz. AP. Noregur: Hægriflokk- urinn í sókn Osló, 6. marz. Frá Jan Krik Lauré, rrétlaritara Mbl. Hægriflokkurinn er í sókn að nýju eftir slæma útreið í sveitarstjórnakosning- unum í fyrrahaust og nýtur nú fylgis um 30 af hundraði kjósenda sam- kvæmt skoðanakönnunum. f kosningunum í haust fékk flokk- urinn um 25% atkvæða, en hefur unnið jafnt og þétt á, og í síðustu könnun er fylgi hans orðið 29,4%. Fylgi Verkamannaflokksins hefur minnkað á sama tíma, og er talið að uppljóstrunin um njósnir Arne Tre- hoíts fyrir Rússa sé helzta skýringin. Hægriflokkur er talinn taka fylgi fyrst og fremst af hinum íhaldssama Framfaraflokki, sem fylgi hefur hrunið af, samkvæmt könnunum. Búist er við að fylgi Hægriflokks eigi enn eftir að aukast þar sem Erl- ing Nordvik hefur sagst mundu taka við flokksformennsku að nýju. Nord- vik hefur sagt að hann ætli að reyna að blása nýju lífi í flokkinn. STRÍDANDI fylkingar í Líbanon hafa fallizt á að hefja aðra lotu frið- arviðræðna næstkomandi mánudag í Lausanne í Sviss, og bauð Amin Reagan sagði í dag að Bandarík- in yrðu að hjálpa Rússum til að finna leiðir að samningaborðinu í viðræðum um fækkun kjarnorku- vopna, en að sögn þingmanna, sem ræddu nýlega við ráðamenn í Moskvu, eru valdherrar þar van- trúaðir á samningavilja Banda- ríkjamanna. TASS-fréttastofan sagði að Gemayel forseti formlega til við- ræðnanna í dag, en þær fara fram í Beau Rivage-hótelinu. Andstæðingar Gemayels kváð- Reagan og Kohl hefði mistekist að finna nýjar leiðir til takmörkunar vígbúnaðar og afvopnunar, en Kohl sagði í Washington að það væri ekki vesturveldanna að stíga næsta skref til bættra samskipta austurs og vesturs, mörg slík skref hefðu verið stigin án samsvarandi viðleitni austantjaldsríkja. ust reiðubúnir að vinna að nýju og varanlegu vopnahléi og lýstu sam- starfsvilja í viðræðum um þjóðar- sátt, þar sem forsetinn hefði orðið við aðalkröfu þeirra um riftun samkomulags við ísraela um brottflutning erlendra herja frá Líbanon. Nabih Berri leiðtogi shíta og Walid Jumblatt leiðtogi drúsa höfðu í dag dregið úr kröfum um afsögn Gemayels, sem hingað til hafa verið eindregnar. Jumblatt sagði að Gemayel þyrfti ekki að segja af sér, heldur þyrfti að leggja stefnu hans á hilluna. Berri sagði að ef Jumblatt reyndist ófús til afsagnar, væru shítar tilbúnir til samninga um stjórnarhætti. Kuwait varð fyrsta Persaflóa- ríkið til að styðja þá ákvörðun Gemayels að rifta samkomulaginu við fsraela, og sögðust ráðamenn vona að þetta væri fyrsta skrefið til einingar og öryggis í Líbanon. Einnig hvöttu Egyptar ísraela til að ihuga leiðir til að koma á öryggi og jafnvægi í Líbanon, er styrkja myndu sjálfstæði landsins og um síðir leiða til brottflutnings erlendra herja og þjóðarsáttar. Kohl efins um leiðtogafund \Va.shington, 6. marz. AP. HELMUT KOHL kanzlari Vestur-Þýzkalands sagði að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hefði fullvissað sig um að hann myndi íhuga gaumgæfilega að sækjast von bráðar eftir fundi með Konstantin Chernenko, leiðtoga sovézka kommúnistaflokksins. Kohl kvaðst hins vegar efins að fundur af þessu tagi yrði haldinn í bráð vegna bandarísku forsetakosninganna í haust. írakar neita efnavopna- notkun og hefja gagnsókn Bagdad, 6. marz. AP. ÍRAKAR hófu gagnsókn í dag á olíu- svæði, sem fimm írönsk stórfylki lögðu undir sig fyrir 10 dögum, að sögn varnarmálaráðherra írak, sem neitaði ásökunum um að írakar hefðu beitt efnavopnum í styrjöld- inni við íran. í bandaríska utanríkisráðuneyt- inu þykir hins vegar nær áreiðan- legt að írakar hafi beitt efnavopn- um undanfarnar tvær vikur, og í dag lést í Vínarborg einn írönsku hermannanna, sem bar þess merki að hann hefði hlotið sár, sem rekja mætti til efnavopna. íranir buðu sendifulltrúum er- lendra ríkja að heimsækja sjúkra- hús í dag, þar sem særðir her- menn liggja, sem sagðir eru hafa orðið fyrir barðinu á eiturvopnum. íranir halda því fram að Irakar hafi fengið efnavopn frá Bret- landi, sem utanríkisráðherran breski neitar. Kvaðst hann hlynntur rannsókn á því hvernig írakar hefðu komist yfir efna- vopn, en íranir hafa í hyggju að óska eftir því við Sameinuðu þjóð- irnar að þær láti málið til sín taka. Háttsettur ísraeli sagði að rift- un samkomulagsins yrði til að flýta ákvarðanatöku um framtíð hersveitanna í Líbanon og brott- flutning þaðan. Ljóst er að ákvörðun Gemayels að rifta samkomulaginu við ísra- ela hefur orðið til að draga úr spennu í Beirút, en samt sem áður kom til stöku átaka í nótt og morgun, með þeim afleiðingum að tveir óbreyttir borgarar féllu og 16 særðust. Héldu sjófugla vera froskmenn Stokkhólmi, 6. mar/ Frá Olle Fkström, fréttaritara Mbl. AP. Talsmaður sænska sjóhersins sagði að í Ijós hefði komið, að hermenn á kafbátaleitarsvæðinu við Karlskrona hefðu skotið á sjófugla á mánudagskvöld, en ekki froskmenn sem voru að reyna landgöngu, eins og þeir hefðu talið sig vera að gera. Tíðindalaust var af leitar- svæðinu í dag, en strangri leit er þó haldið áfram. Til marks um það var skoðað ofan í lík- kistu við útför í Karlskrona, þar sem líkfylgdin fór um það svæði sem vörður er hafður á. Yfirmaður sænska herráðs- ins, Bror Stefenson, skýrði leiðtogum stjórnarandstöðu- flokkanna frá stöðu kafbáta- leitarinnar, og sagði á annan tug áreiðanlegra vísbendinga um ferðir óþekkts kafbáts hafa komið fram síðustu þrjár vik- urnar, sumar síðustu dagana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.