Morgunblaðið - 07.03.1984, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984
3
„Ráðherrann veit vel
hvar þetta fóik er“
— hann þarf ekki að leita að því,
segir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
um ummæli fjármálaráðherra
„VIÐ HÖFUM ítrekað bent Albert
Guðmundssyni, fjármálaráðherra,
á að það viðgangist misrétti gagn-
vart félagsmönnum í Sókn, Fram-
sókn og fleiri félögum hjá ríkis-
stofnunum. Hann hefur ekkert
viljað gera til að bæta hag þeirra,“
sagði Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
formaður Starfsstúlknafélagsins
Sóknar, í samtali við blaðamann
Mbl. í framhaldi af viðtali blaðsins
við fjármálaráðherra á bls. 2 í
blaðinu í gær. I*ar var haft eftir
Albert, að „ef ASÍ gæti bent sér á
sambærilegt misræmi annars stað-
ar (en hjá Dagsbrún, innsk. Mbl.)
myndi hann að sjálfsögðu leiðrétta
það einnig... Ég verð að finna
þetta fólk og ASÍ að hjálpa mér til
þess“, sagði ráðherrann.
„Ég var í desember sl. í samn-
inganefnd fyrir Alþýðusam-
bandið," sagði Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir. „Þá fórum við
Ásmundur Stefánsson og Guð-
mundur Þ. Jónsson á fund ráð-
herrans — og að minnsta kosti
þriggja aðstoðarmanna hans —
og kynntum honum kröfur okk-
ar, m.a. um 15 þúsund króna lág-
markslaunin. Við fórum einnig
fram á, að hann veitti konum í
Framsókn desemberuppbót eins
og t.d. BSRB-félagar hjá ríkinu
fengju. Hann neitaði því á þeirri
forsendu að þær væru of margar
og að hann treysti sér ekki til
þess af þeim sökum.
Síðan höfum við í Sókn átt
bæði munnleg og bréfleg sam-
skipti við ráðherrann um mis-
rétti, sem okkar konur í vinnu
hjá ríkisspítölunum sæta varð-
andi barnaheimilispláss þar.
Sóknarkonur fá alls ekki inni á
þeim heimilum og Albert hefur
vísað málinu frá sér á Matthías
Bjarnason heilbrigðisráðherra.
Fjármálaráðherra hefur í engu
sinnt réttlætiskröfu okkar í
þessu máli. Hann veit vel af
þessu fólki og þarf ekki að leita
að því,“ sagði Áðalheiður Bjarn-
freðsdóttir.
fíalaráðherra um bréf
Að sjálfsögðu
leiðrétti ég
— ef ég finn þetta fólk
Fjármálaráöherra hefur haft bréf
Alþýdusambands íslands, þar sem
það fer fram á sömu vilyröi fyrir
félagsmenn sína og ráðherra hefur
gefið Dagsbrún fyrirheit um, til at-
hugunar. Sagði ráöherrann í viðtali
við Mbl. í gær, að hann v*ri að
reyna að fínna út, hvort einhverjir
innan ASÍ væru beittir aama misrétti
og Dagsbrúnarmenn hjá því opin-
bera. „Ég vil ekkert fullyrða um
þetta, en ég verð þá að finna þetla
fólk og ASI að hjálpa mér til þess,“
sagði hann.
Albert sagði varðandi bréf ASI
að i Dagsbrúnarsamningum væri
um aö ræða verkamenn sem ynnu
hjá ríkinu og hefðu ekki beina
samninga við ríkið. Hann kvaðst
halda að verkalýðsfélögin innan
ASl og Verkamannasambandsins
semdu beint við viðkomandi ríkis-
aðila, en ef ASÍ gæti bent sér á
sambærilegt misræmi annars
staðar þá myndi hann að sjálf-
sögðu leiðrétta þaö einnig. Hann
kvað málið í athugun í Ijósi þessa.
Ráðherrann var þá spurður,
hvort Dagsbrúnarmenn hefðu
haldið því fram að þeirra félagar
væru þeir einu sem þessu misrétti
væru beittir. Hann svaraði: „Ég
leitaði upplýsinga hjá mínu fólki
og þeir gátu ekki séð sambæri-
legan mismun annars staöar, þar
sem flest önnur verkalýðsfélög
semja beint við ríkið, sem Dags-
brún gerir ekki. Ég vil þó ekki full-
yrða neitt um þetta. Ég verð þá að
finna þetta fólk og ASl að hjálpa^
mér til þess.“
Frétt í Mbl. í gær, sem Aðalheiður vísar til í viðtalinu.
Fjórir sækja
um Borgar-
skipulag
FJOKAR umsóknir bárust um stöðu
forstöóumanns Borgarskipulags
Reykjavíkur. Umsóknirnar voru
lagðar fram á borgarráðsfundi í gær
og verður á sama vettvangi fjallað
nánar um þær nk. (ostudag.
Umsóknir bárust frá Bjarna
Reimarssyni, landfræðingi, Lín-
eyju Skúladóttur, arkitekt, og
Þorvaldi S. Þorvaldssyni, arkitekt.
Eftir að umsóknarfrestur rann út
29. febrúar barst fjórða umsóknin
frá Haraldi V. Haraldssyni, arki-
tekt.
Leitað verður umsagnar skipu-
lagsnefndar borgarinnar áður en
borgarráð veitir stöðuna. Fráfar-
andi forstöðumaður Borgarskipu-
lagsins er Guðrún Jónsdóttir, sem
mun á næstu 2—3 árum vinna að
sérstökum verkefnum varðandi
skipulag miðborgar Reykjavíkur.
Á fundi borgarráðs í gær var
jafnframt úthlutað 44 byggingar-
lóðum undir raðhús og einbýlis-
hús, þar af 37 í Grafarvogi. Aðrar
úthlutunarlóðir voru í Jakaseli,
Selási og við Neðstaberg, skv. upp-
lýsingum Markúsar Arnar Ant-
onssonar, forseta borgarstjórnar.
Grindavíkurskákmótið:
Jón L. efstur
SJÖUNDA umferð alþjóðaskákmóts-
ins í Grindavík var tefld í gærkvöldi.
Úrslit urðu þau, að Jón L. Árnason
vann Helga Olafsson, Haukur Angan-
týsson vann Elvar Guðmundsson,
Lombardy vann McCambridge, og
jafntefli gerðu Björgvin Jónsson og
Larry ('hristiansen. Skákir Gutmans
og Jóhanns Hjartarsonar og Ingvars
Asmundssonar og Knezevics fóru í bið.
Jón L. Árnason er efstur á mótinu
með 5 V4 vinning, næstur er Christi-
ansen með 5 vinninga, þriðji Gut-
man með fjóra vinninga og biðskák
og fjórði Helgi Ólafsson með fjóra
vinninga. Næsta umferð verður tefld
í kvöld.
Kona rænd
á götu
MIÐALDRA kona var rænd nærri
söluturninum Florida á Hverfisgötu
um hálftíuleytið í gærkvöldi. Réðust að
henni tveir piltar, hrifsuðu af henni
veskið og hurfu út í myrkrið. í veskinu
voru um 12 þúsund krónur í peningum,
skilríki hennar og tvær bankabækur.
Fyrr í gær hrifsuðu þrír piltar
veski af konu á Bergþórugötu. Bæði
málin voru í frumrannsókn er Mbl.
fór í prentun í gærkvöldi.
NU VERÐUR
KLUBB-KVOLD UTSYNAR
sunnudaginn
11. marz
í KARNIVALSTIL
BCCAÐWAy
Aðsóknin að Klúbb-kvöldum Fríklúbbsins og Útsýnar hefur verið slík, að
ekki hefur verið unnt að anna eftirspurn. Þriðja klúbbkvöldið verður nk.
sunnudag og nú er ráö að tryggja sér miða í tíma. Jafnhliða kynningu á
nýrri, fjölbreyttri sumaráætlun Utsýnar með glæsilegum ferðamöguleikum
og kynningu á FRÍ-KLÚBBNUM, sem veitir þér þjónustu og afslætti innan-
lands og utan á stórlækkuöu verði, er í boði bæjarins bezta
skemmtun og fjöldi happavinninga. " rlr
DIXIE-BAND SVANS
Gestir eru hvattir til að klæða sig
frumlega í Karmvalstíl, en annars
er allur klæðnaður — og flest
annað leyfilegt — eins og vera
ber í Karnivalhátíð.
Á síðustu klúbbkvöldum seldist
allt upp löngu fyrirfram, svo
tryggðu þér miða í tíma í Broad-
way, símar 77500 og 687370.
Skemmtiskrá:
Kl. 19.00: Húsiö opnaö með músík og Ijúffengum fordrykk handa
matargestum, sem koma fyrir kl. 20.00. Ný video-kynning Útsýnar
í gangi, sem sýnir góöa veðriö, fjörið og káta fólkið í Útsýnarferö-
um við beztu aöstööu sem völ er á í sumarleyfinu. Happdrættis-
miðinn hljóöar upp á ókeypis ÚTSÝNARFERÐ í vasann!
Kynnir hinn skemmtilegi og síhressi Hermann Gunnarsson
Kl. 20.00: Kjötkveðjuhátíöin. Ljúffengur kvöldveröur.
Verð aðeins kr. 450.-
Le Potage la Creme Canard
Rjómalöguð alifuglasúpa.
Les Medaillons D’Agneau De Boeuf
Glóðarsteikt Broadway-buffsteik með
smjörsteiktum sveppum, bökuðum jarð-
eplum, sykurgljáðum gulrótum, rjóma-
soðnu blómkáli, hrásalati og Madeirasósu.
Matreiðslumeistari: Ólafur Reynisson.
Dixie-Band Svansins, leikur fjöruga
Karnivalmúsík
Dinnertónlist: Hillel Tokazter.
Inn í Karnival-boröhaldiö fléttast lauflétt feröakynning „Hopp og Hí“ á
sviöinu, fislétt fimleikasýning í Frí-klúbbstíl með þátttöku gesta undir
stjórn Kristínar Sigtryggsdóttur.
Vaxtarræktarparið glæsilega, Kári og Arndís, sýna falleg form. Ungur
íslenzkur söngvari með „gullrödd“ tekur lagið.
Tízkusýning: Módelsamtökin sýna nýjasta bað- og sportfatnaöinn frá
Sportfataverzluninni Spörtu og Henson.
Danssýning frá steppstúdíói Draumeyjar — og „Seiðandi suðrænt“.
Dansnýjung frá Kolbrúnu Aðalsteins.
Fegurðarsamkeppni — Ungfrú og Herra ÚTSÝN, valin úr hópi gesta.
Síðustu forvöð að komast í forkeppnina.
Bingó — 3 umferðir — glæsilegir ferðavinningar.
Inn á milli, og síðast en ekki síst, verður dansinn stiginn af
list, lífsnautn og dillandi fjöri í sönnum Karnival-Klúbbstíl til
kl. 01.00. Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar og í diskótekinu
verða Jón Axel Ólafsson og Gunnar Gunnarsson.