Morgunblaðið - 07.03.1984, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984
126 nauðgunar-
kærur til RLR á
sex og hálfu ári
Rannsóknalögregla ríkisins hef-
ur skráð alls 126 nauðgunarkærur
frá því hún hóf starfsemi sína árið
1977, og til áramóta 1983/1984. Af
þeim kærum hafa 40 ekki farið
lengra af ýmsum ástæðum, 2 hafa
verið sendar öðrum umdæmum, 2
eru enn í rannsókn og 82 hafa
verið sendar ríkissaksóknara til
frekari meðferðar. Þetta kom m.a.
fram í svari Jóns Helgasonar
dómsmálaráðherra, við fyrirspurn
frá Kristínu Halldórsdóttur, en
hún spurðist fyrir um afdrif nauðg-
unarmála.
Þá sagði Jón að af þeim tilvik-
um sem kærð hefðu verið á
tímabilinu 1. júní 1977 til 31.
desember 1983, hefðu 58 leitt til
ákæru. Eins og fram kemur hér
að ofan hafa 82 kærur verið
sendar ríkissaksóknara á
fyrrgreindu tímabili frá rann-
sóknalögreglunni, en einnig
hafa nokkrar kærur verið send-
ar frá öðrum umdæmum, en
fjöldi þeirra liggur ekki fyrir.
Hins vegar hafa ákærur verið
gefnar út í 58 tilvika. Þá hafa
a.m.k. 24 mál ekki leitt til út-
gáfu ákæru af hálfu ríkissak-
sóknara.
Sagði Jón að helstu ástæður
þess að ekki hefði komið til út-
gáfu ákæru vegna nauðgunar-
kæru og væru þessar helstar:
Framkomin sakargögn þykja
ekki nægileg eða líkleg til sak-
fellis. Þó sakargögn þyki eigi
veita sönnun fyrir nauðgun, get-
ur verið að þau veiti upplýsingar
um önnur brot, t.d. líkamsárás,
frelsisskerðingu og þ.h. og því
grundvöllur fyrir að gefa út
ákæru fyrir þau brot. Þá geti
verið að mál séu felld niður
vegna sannanaskorts. Þá hefur
komið fyrir að sögn Jóns, að sá
sem nauðgun kærir, viðurkennir
síðar að hafa vísvitandi lagt
fram ranga kæru.
Af þeim áðurgreindu 58 til-
fellum sem ákært hefur verið
fyrir, hafa 44 leitt til dóms, en
14 eru ódæmd. Refsingar eru yf-
irleitt á bilinu 12—18 mánaða
fangeisi, en sé um fleiri nauðg-
anir að ræða hefur refsing orðið
tvö og hálft ár og einu sinni 3 ár
í fangelsi.
Myndasýning-
ar í Menning-
arstofnun
Menningarstofnun Banda-
ríkjanna mun í dag kl. 17.30 gang-
ast fyrir myndbandasýningu á
fréttum frá bandarísku sjón-
varpsstöðinni ABC um samskipti
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
undanliðin 50 ár.
í bígerð er að halda miðviku-
dagssýningum þessum áfram og
verður eftirleiðis lögð áhersla á
efni sem lýtur að kosningabar-
áttunni í Bandaríkjunum þar eð
nú er þar kosningaár.
Aðalbjörn Jóakimsson, skipstjóri á Hafþóri, við skip sitt í gær.
Morgunbla4M)/Úiru.
ísafjörður:
Rannsóknaskipið Haf-
þór með góðan rækjuafla
— skil ekki hvernig hægt var að telja fiskistofnana við
landið á þessu skipi, segir Aðalbjörn Jóakimsson skipstjóri
Tölvusnillingurinn Flynn, sem Jeff
Bridges leikur.
Bíóhöllin
sýnir „Tron“
BÍÓHÖLLIN sýnir um þessar
mundir kvikmyndina „Tron“.
Framleiðandi er Walt Disney. Að-
alhlutverk er í höndum Jeff Bridg-
es. Hann leikur tölvusnilling að
nafni Flynn. Þetta er einskonar
ævintýramynd sem gerist að hluta
til í annarri víðáttu, rafeinda-
heimi.
Hvellhettum
og dínamíti
stolið
BROTIST var inn í geymslur í
grjótnáminu við Öskjuhlíð og
þaðan stolið um 120 hvellhettum
og um 3 kg. af dínamíti. Ekki er
ljóst hvernær brotist var inn,
líklega um helgina. Járnkistur
voru brotnar upp og hvellhett-
unum og dínamítinu stolið.
Rannsóknalögreglan biður þá,
sem kunna að búa yfir vitneskju
um hvar sprengiefnið er niður-
komið, vinsamlega að láta sig
vita.
Ísafírdi, 6. mars.
HAFÞÓR, skip Hafrannsókna-
stofnunar, sem hér er í ieigu til
rækjuveiða, kom úr sinni fyrstu
veiðiferð tii ísafjarðar í gær með
tæpar 40 lestir af ísaðri rækju eftir
sjö daga veiðiferð. Aflinn fékkst í
Reykjafjarðarál og 50 mflur norður
af Horni. Helmingur rækjunnar var
í stærðarflokknum 90—120 stk. í kg,
hinn helmingurinn minni rækja.
Fréttaritari Mbl. á ísafirði
ræddi við Aðalbjörn Jóakimsson,
skipstjóra, um borð í skipinu í
dag. Hann lét vel af veiðunum og
sagði að búnaður skipsins hefði
allur verið í lagi þótt hann væri
yfirleitt orðinn mjög gamaldags
og allskostar ólíkur þeim tækjum,
sem Aðalbjörn á að venjast, en
hann hefur verið skipstjóri og
stýrimaður á skuttogaranum
Bessa frá Súðavík.
„Það er einn sæmilegur dýpt-
armælir í brúnni en léleg stað-
setningartæki og það er greinilegt,
að þarna hefur vantað veiðikappið
í störfin. Ég skil ekki hvernig
hægt var að telja fiskistofnana við
fsland á þessu skipi Hafrann-
sóknastofnunarinnar," sagði Aðal-
björn. „Allur spilbúnaður er mjög
hægur og seinvirkur en við erum
með nýtt rækjutroll frá Netagerð
Vestfjarða og toghlera frá J.
Hinrikssyni í Reykjavík og reynd-
ist hvort tveggja mjög vel.“
í fyrstu veiðiferðinni voru
þrettán menn um borð en eftir-
leiðis verða tólf í áhöfn þangað til
settur verður frystibúnaður í skip-
ið en þá þarf eitthvað að fjölga
mönnum.
f dag eru þrjú stór skip önnur á
rækjuveiðum og er von á enn einu
einhvern næstu daga. Aðalbjörn
sagðist draga það mjög í efa að
rækjustofninn þyldi mikið meiri
sókn en var á sl. sumri nema ný
veiðisvæði fyndust.
Hafþór er leigður þremur
rækjuverksmiðjum hér, O.N.
Olsen, Rækjustöðinni hf. og
Rækjuverksmiðjunni hf. í Hnífs-
dal. Framkvæmdastjóri útgerðar-
innar er Birgir Valdimarsson.
Hann sagði í stuttu spjalli að
útgerðin legðist vel í sig. Ekki
þýddi annað en að vera bjartsýnn,
því hér væri eiginlega á ferðinni
fyrsta nýjungin í útgerðarmálum
fsfirðinga síðan skuttogaratíma-
bilið hófst fyrir tæpum fimmtán
árum. Hann taldi uppá að ef afl-
inn yrði ekki minni en í fyrstu
veiðiferðinni og að engin óhöpp
yrðu ætti útgerðin að geta staðið
undir sér. Hann tók undir það með
Aðalbirni, að flestur búnaður um
borð í Hafþóri væri orðinn ansi
gamaldags og þyrfti endunýjunar
við. Hafþór er leigður hingað til
eins árs. Hann fer aftur til veiða í
kvöld.
- Úlfar.
Ekki eðlilegt að skipta mönnum út
eingöngu endurnýjunarinnar vegna
— segir Ásmundur Stefánsson
„SÚ GAGNRÝNI sem fram hefur komið er af sitt hvorum toganum.
Vinnubrögð gagnvart þessum samningum hafa verið gagnrýnd og því
nánast haldið fram af einstökum aðilum. að samningurinn sem gerður
var, hafi nánast verið einkamál mitt og Magnúsar Gunnarssonar. Sú
gagnrýni byggir ekki á staðreyndum, því ákvarðanir um hvernig á málum
skyldi haldið, voru teknar á formannafundi í byrjun desember og þegar
línur fóru að skýrast, voru málin rædd í miðstjórn og samböndum og
síðan voru teknar ákvarðanir á formannafundum j febrúar. í reynd kom
mjög stór hópur að öllum ákvörðunum," sagði Ásmundur Stefánsson,
forscti ASÍ, í samtali við Mbl., en hann var spurður álits á gagnrýni þeirri
sem verkalýðsforystan hefur orðið fyrir eftir gerð síðustu samninga.
„Þá er einnig uppi sú gagnrýni
að virknin innan verkalýðshreyf-
ingarinnar sé mjög slök og það sé
okkur að kenna sem erum í for-
ystu heildarsamtakanna. Ég dreg
ekki úr því að eflaust gætu fund-
ist einhverjir menn sem gætu
gert sumt af því og kannski allt
sem við gerum mikið betur en við,
en ég held að grundvallaratriðið í
félagslegu starfi sé sjaldnast það,
hvernig einhver ákveðinn ein-
staklingur er, heldur hitt, hvern-
ig tekst að fá fólk til að vinna
saman. Það er augljóst að innan
verkalýðshreyfingarinnar eigum
við í erfiðleikum þar, eins og
kannski flest önnur félagasamtök
í landinu," sagði Ásmundur.
„Starf í verkalýðsfélögum er
tímafrekt starf fyrir hvern og
einn, menn þurfa að setja sig inn
í mál, fylgja þarf þeim eftir og sá
tími sem þetta tekur er yfirleitt
utan hefðbundins vinnutíma. Ef
menn gerðust virkir í félögunum
gætu þeir einnig orðið fyrir
tekjutapi, álag á fjölskyldu gæti
orðið mikið og ýmis atriði væri
hægt að telja upp sem stuðla að
því að erfitt er að fá fólk til að
vera virkt í hreyfingunni," sagði
Ásmundur.
Ásmundur gat þess, að það sem
heildarsamtökin gætu gert til úr-
bóta, væri upplýsingamiðlun um
stöðuna á hverjum tíma. ASÍ
hefði staðið fyrir auknu fræðslu-
starfi undanfarin ár, út væri gef-
ið fréttabréf, og einnig tímaritið
Vinnan og ennfremur hefðu ýmis
smárit verið gefin út.
Aðspurður um það, hvort
verkalýðsforystan hefði staðið í
vegi fyrir eðlilegri endurnýjun,
og viljað sitja ein að kjötkötlun-
um, sagði Ásmundur, að stærstur
hluti formanna út um landið væri
í vinnu á sínum vinnustöðum og
hefðu sín félagsstörf sem auka-
störf. „Það er ekki um stóra kjöt-
katla að ræða í þessu efni, þetta
eru ekki svo eftirsóknarverð störf
og reyndar ekki svo eftirsótt
heldur, þó önnur staða geti verið í
helstu félögunum. Varðandi
endurnýjun í stjórn heildarsam-
takanna, þá komu 9 af 15 nýir inn
í miðstjórnina síðast. Endurnýj-
un er ágæt, en hún er ekki
markmið í sjálfu sér, það er ^Jtki
eðlilegt að skipta mönnum út,
sem unnið hafa vel, eingöngu
endurnýjunarinnar vegna," sagði
Ásmundur Stefánsson.
Inge Eriksen
flytur fyrir-
lestur
DANSKI rithöfundurinn Inge Krik-
sen, sem þekktust er fyrir skáldsög-
una „Victoria og verdensrevolution-
en“, flytur opinberan fyrirlestur í
boði heimspekideildar Háskóla ís-
lands fimmtudaginn 8. mars kl.
17.15 ■ stofu 422 í Árnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist „Kvinder
og science fiction" og verður hald-
inn á dönsku.
Öllum er heimill aðgangur.
Athugasemd
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi athugasemd frá Hall-
dóri Bjarnasyni fyrir hönd rit-
nefndar tímaritsins Sagna:
„í greinum um íslandssögu-
kennslu í Mbl. undanfarið hefur
oft verið vitnað til tímaritsins
Sagna sem tóku sögukennslu sér-
staklega fyrir í 1983-heftinu, m.a.
er vitnað i ummæli Erlu Krist-
jánsdóttur, núverandi námstjóra í
samfélagsfræði í blaðinu 18.2. sl.
og Erla sögð „talsmaður" mennta-
málaráðuneytisins. Þegar hún
svaraði spurningum Sagna í nóv-
ember 1982 hafði hún ekki tekið
við starfi námstjóra en það láðist
okkur að taka fram. Biður rit-
nefnd hlutaðeigandi fyrirgefn-
ingar á þeim misskilningi sem
þessi yfirsjón hefur valdið. Af
þessu er ljóst að ummæli hennar í
Sögnum verða með engu móti
túlkuð sem stefna menntamála-
ráðuneytisins. Auk þess var leitað
til allra þeirra sem svöruðu spurn-
ingum Sagna sem einstaklinga en
ekki sem talsmanna stofnana. Rit-
nefnd Sagna raðaði síðan svörun-
um saman, með það fyrir augum
að fá fram sem ólíkust sjónar-
mið.“