Morgunblaðið - 07.03.1984, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984
Sigurvegarar í sveitakeppni á bridgehátíð 1984, sveit Alan Sontag. Myndin var tekin aðfararnótt þriðjudagsins. Það
er Björn Theodórsson, forseti Bridgesambands íslands, sem afhenti verðlaunin. Talið frá vinstrí: Mark Molson, Alan
Cokin, Steve Sion, Alan Sontag og Björn. MorgunbiaAið/Arnór.
Stjórn Landsmálafélagsins Varðar ályktar:
Bændur fái lánin
strax í hendur
Bridgehátíð 1984 — sveitakeppni:
Yfirburðasigur hjá Alan
Sontag og félögum hans
SVEIT Alans Sontag, bandaríska
heimsmeistarans, sýndi gífurlega yf-
irburði í sveitakeppninni á Bridge-
hátíð sem lauk aðfaranótt þriðju-
dagsins. Hlaut sveitin 161 stig af 170
mögulegum, en hafa verður í huga
að spilaðir voru 16 spila leikir, þann-
ig að árangurinn er enn glæsilegri
fyrir það.
Jöfn og skemmtileg keppni var
aftur á móti um 2. sætið í mótinu.
Tvær sveitir urðu jafnar að stig-
um, Samvinnuferðir/Landsýn og
sveit Gests Jónssonar. Hinir fyrr-
nefndu höfðu betra punktahlutfall
úr mótinu og voru þar með í öðru
sæti.
Sveit Tony Sowter varð í fjórða
sæti og Thorsten Bernes í fimmta
sæti. 1200 dalir voru í 1. verðlaun,
800 dalir í 2. verðlaun og 500 dalir
í 3. verðlaun.
Nánar verður sagt frá mótinu í
bridgeþætti.
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi ályktun frá stjórn-
arfundi Landsmálafélagsins
Varðar, sem samþykkt var sam-
hljóða á fundi félagsins í gær:
„Stjórn Landsmálafélagsins
Varðar minnir á að þriðjudag-
inn 25. október 1983 hélt félag-
ið ráðstefnu um málefni land-
búnaðarins. Kom þar fram í
máli Eyjólfs Konráðs Jónsson-
ar alþingismanns að árið 1979
var samþykkt þingsályktun um
að ríkisstjórninni sé falið að
hlutast til um að settar verði
reglur um rekstrar- og afurða-
lán landbúnaðarins, sem tryggi
að bændur fái í hendur þá fjár-
muni sem þeim eru ætlaðir um
leið og lánin eru veitt.
Á sömu ráðstefnu las þing-
maðurinn upp orðsendingu frá
viðskiptaráðherra, Matthíasi
Á. Mathiesen, þar sem hann
hugðist framfylgja þessu rétt-
lætismáli og sagði: „Viðskipta-
ráðherra hefur tekið mál þetta
sérstaklega upp við Seðlabanka
íslands í sambandi við heildar-
endurskoðun á rekstrar- og af-
urðalánakerfinu. Stefnt er að
því að endurkaup afurðalána,
annarra en af útflutningsaf-
urðum, flytjist til viðskipta-
banka og sparisjóða, og mun
það greiða fyrir því að fjár-
magnið fari beint frá lána-
stofnunum til bænda."
Stjórn Landsmálafélagsins
Varðar fagnar þessari ákvörð-
un og yfirlýsingu viðskipta-
ráðherra og treystir á að þessu
máli verði hrint tafarlaust í
framkvæmd."
Fulltrúi
sandinista
heimsækir
ísland
UM ÞESSAR mundir er staddur hér
á landi fulltrúi sandinista, Edga Vél-
ez frá Nicaragua. Er hún hér í boói
eftirtalinna samtaka: El Salvador-
nefndarinnar á íslandi, Kvenna-
framboðsins, Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, Alþýðubandalagsins,
Menningar- og friðarsamtaka ís-
lenskra kvenna, Fylkingarinnar,
Bandalags jafnaðarmanna, Vináttu-
félags Islands og Kúbu, Æsku-
lýðsfylkingar Alþýðubandalagsins,
Samtaka herstöðvaandstæðinga og
Stúdentaráðs Háskóla íslands.
Þann 7. mars flytur Vélez ræðu
á Hótel Borg þar sem fundarefnið
er: Hvað er að gerast í Nicaragua?
Á eftir verða fyrirspurnir og um-
ræður.
Á alþjóðlegum baráttudegi
kvenna, 8. mars, mun Vélez
ávarpa fund nokkurra kvenna-
samtaka í Félagsstofuun stúdenta.
[ raðauglýsingar — raóauglýsingar — raðauglýsingar
Maöur er nefndur
Jóhann Pétur Sveinsson
Næstkomandi föstudagskvöld
9. mars kemur Jóhann Pétur
Sveinsson laganemi á
umræðukvöld hjá Heimdalli.
Yfirskrift kvöldsíns veröur
„fatlaðir og féiagaatðrf*. Fundurinn veröur sKv.,
venju haldinn í kjallara Valhallar og hefst kl
20.30. Veitingar.
Næstu föstudagskvöid veröa á sama staö og
tíma, eftirtalin umræöukvöld.
Föstudagur 16. mars.
.Unga fófkiö og krisfindómurinn". Sr. Ólafur Jó-
hannsson, skólaprestur.
Föstudagur 23. mars.
.Staöa kvenna innan Sjálfstæöisflokksins*. Ester
Guömundsdóttir, þjóöfélagsfræöingur.
Föstudagur 30. mars.
.Framtiö fjölmiölunar*. Kristján Jóhannsson
framkvæmdastjóri AB.
Föstudagur 6. april.
.Hryöjuverk vinstri manna á hugtökum"
G. Kjartansson, heimspekinemi.
Kjartan
ALLIR VELKOMNIR.
TÝR Kópavogi
NATO gagnvart Sovét
2. fundur í fundaröð
Björn Bjarnason veröur
framsögumaöur á fimmtu-
dagskvöldi 8. mars í Sjálf-
stæöishúsinu aö Hamraborg
1, 3. hæö, kl. 20.30. Sýnt
verður myndband þar sem
borin er saman styrkur
Atlantshafsbandaiagsins og
Varsjárbandalagsins.
Allir eru velkomnir.
Björn Bjarnaaon
Stjórn TÝS.
Stjórnmálanámskeið
á Sauöárkróki
Dagana 9.—11. mars veröur haldiö stjórn-
málanámskeiö í Sæborg, Sauöárkróki. Auk
undirstööuatriða í ræöumennsku og félags-
störfum, veröur fjallaö um verkalýðs- og
kjaramál og stefnu Sálfstæðisflokksins og
störf hans í núverandi ríkisstjórn.
Meöal leiöbeinenda verða Hilmar Jónasson
form. Verkamannafélagsins Rangæings og
Friörik Friöriksson 1. varaform. SUS.
Nánari upplýsingar veitir Jón Ásbergsson í
síma 5600 eöa 5544.
Sjálfstæðisfélögin,
Sauöárkróki.
Mosfellssveit
Viðtalstími oddvita Sjálfstaeöisflokksins, Magnúsar Sigsteinssonar,
og formanns skipulagsnefndar, Jóns M. Guömundssonar, veröur í
fundarsal Hlégarös, uppi, i dag, miövikudag 7. marz, milli kl. 17 og 19.
Allir veikomnir meö tyrir-
spurnir og ábendingar
um sveitarstjórnarmál og
annaó er þeim liggur á
hjarta.
Sjálfstæöisfélag
Mosfellinga
Sjálfstæðiskvennafélagið
Edda — Kópavogi
heldur fund mánudaginn 12. mars í
Hamraborg 1, 3. hæö kt. 20.30
Dagskrá:
1. Þuriöur Pálsdóttir heidur erindi um
breytingaskeiö kvenna.
2. Umræöur
3. Kafti
Allar konur hvattar til aö mæta.
Stjórnin.
Gildi norrænnar sam-
vinnu fyrir íslendinga
Ráöstefna á vegum utanríkismálanefndar SUS i Valhöll, miövikudag-
inn 7. mars kl.20.30.
Framsöguerindi flytja:
Matthías Á. Mathiesen, ráóherra norrænar
samvinnu.
Indriöi G. Þorsteinsson, rithöfundur.
Snjólaug Ólatsdóttir, starfsmaöur íslands-
deildar Noröurlandaráös.
Ráöstefnustjóri: Ólatur isleifsson, hagfræö-
ingur.
Öllum heimill aögangur.
Utanrikismálanetnd SUS.