Morgunblaðið - 22.03.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MARZ 1984
3
Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra:
Tel eðlilegt að Mikli-
garður sé sjálf-
stæður skattaðili
„ÉG HEFÐI talið eðlilegt að Mikli
garður væri sjálfstæður skattaðili, en
mér hefur verið tjáð, af embættis-
mönnum, að algengt sé að eigendur
fyrirtækja, þó svo að um hlutafélag sé
að ræða, séu einn skattaðili," sagði
Albert Guðmundsson, fjármálaráð-
herra, aðspurður vegna fréttar Mbl.
16. mars sl. um að stórmarkaðurinn
Mikligarður sé ekki sjálfstæður
skattaðili, heldur séu skattar fyrir-
tækisins geröir upp í sköttum eig-
enda, þ.e. KRON, SÍS og kaupfélag-
anna í Mosfellssveit, Hafnarfirði og
Keflavík.
Fjármálaráðherra kvaðst nú
vera að láta athuga hvort eðlilegt
væri að breyta þessu fyrirkomu-
lagi. Sagðist hann ekki hafa ákveð-
ið hvort hann myndi beita sér fyrir
lagabreytingu, þannig að stór-
mörkuðum yrði gert að vera sjálf-
stæðir skattaðilar, engar ákvarð-
anir yrðu teknar fyrr en hann hefði
fengið staðfestar allar upplýsingar
um málið.
Guðjón Einarsson
fulltrúi látinn
GIJÐJÓN Einarsson er látinn í
Reykjavík 79 ára að aldri.
Guðjón fæddist 18. júní 1904 að
Holtahólum á Mýrum, Austur-
Skaftafellssýslu, sonur hjónanna
Guðrúnar Eiríksdóttur og Einars
Sigurðssonar. Guðjón lauk prófi
frá Verslunarskóla íslands 1927 og
hóf störf hjá Eimskipafélagi ís-
lands sama ár og vann þar óslitið
til 1971, er hann hætti störfum
fyrir aldurs sakir.
Guðjón var fyrsti íslenski al-
þjóðaknattspyrnudómarinn og
vann alla tíð mikið að félagsmál-
um bæði innan íþróttasamtak-
anna og Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, þar sem hann var
formaður í mörg ár. Guðjón Ein-
arsson var heiðursfélagi í knatt-
spyrnufélaginu Víkingi.
Eftirlifandi kona Guðjóns er
Hjördís Hjörleifsdóttir.
Risa-rótarhnyðja á Skógarsandi
Þó enn eigi eftir að ganga frá end- manna hópur, flest Bretar, hefur stíl við Star Wars og E.T. og mun
anlegum samningum verður vart unnið við leikmyndasmíði síðast- ísland eiga að vera í hlutverki
annað séð en að kvikmyndafyrirtæk- liðna viku. Fyrirtækið mun einnig einhverskonar eyðihnattar.
ið bandaríska 20th Century Fox hafi vera búið að gera samninga við Á myndunum sést risastór rót-
fullan hug á að taka hluta myndar fjölda íslendinga um að annast arhnyðja, sem gegna á veigamiklu
sinnar „Enemy Mine“ hér á landi. verklegar framkvæmdir af ýmsu hlutverki í leikmyndinni, og hvar
Þessar ljósmyndir voru teknar tagi víðsvegar um land. Kvik- unnið er við grindina.
austur á Skógarsandi, þar sem 30 myndin verður ævintýramynd í
Hellissandur:
Nýtt frystihús tekið í notkun
Hellissandi, 19. mars.
REYTINGSAFLI hefur verið hjá
Rifshafnarbátum undanfarið og hafa
bátar fengið frá 10 tonnum og allt
upp í 35 tonn í einum róðri. Til að
mynda fékk einn bátur, Hamrasvan-
urinn, 195 tonn í sjö róðrum og afla-
hæstu bátarnir eru Hamrasvanur
með 450 tonn, Rifsnes með 420 tonn
og Saxhamar með 410 tonn.
Nýtt frystihús, sem nefnist
Búrfell, var tekið í notkun á Rifi
nýlega og er það í eigu Hrings
Hjörleifssonar og fleiri aðila.
Starfsmenn frystihússins eru um
20 manns. Fréttaritari.
-------
°3 viVr
Minnum á islands-
mót í vaxtarrækt 25.
mars nk. Gestur
mótsins Mohamed
Makkawy, atvinnu-
maður í vaxtarrækt.
grilla°
ýaý°f,á 3.272 kronum
Gunnar
Aðgöngumiðaverð eftir kl. 23 er kr. 150
Guöbergur
Siguröur Rúnar
Sigurdór
Þorsteinn
Garöar
Stebbi
Einar
Astrid
okksvnwg—
TTpOKKLOGQ^
SíITmÉSnhín
k i ftNPWUj