Morgunblaðið - 17.04.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1984
35
TLGIÖGGVUNAR
Til að sjá
eru páskaegg eiginlega ekki
mjög frábrugðin hvert öðru.
En vegna þess
hve þau eru ólík að bragði og innihaldi
er mikilvægt
að geta greint á milli tegunda.
Hér fylgir því
ofurlítill leiðarvísir um páskaegg
frá Nóa og Síríus.
Verði ykkur að góðu!
D D
Öruggasta leiðin er auðvitað að kaupa egg, brjóta það og bíta í.
Pá finna bragðlaukarnir hvort um rétt egg er að ræða.
En það má líka treysta því, að ef miði með
5 litlum og sætum ungum prýðir pokann, er eggið frá Nóa Sírlus.
Poki úr glæru plastefni.
Ganga má úr skugga um að um réttan poka sé að ræða,
með því að blása hann upp, halda fyrir opið og slá síðan
þéttingsfast á botninn með lausu höndinni.
Á pokinn þá að gefa frá sér hátt og hvellt hljóð
til merkis um að hann sé frá Nóa Síríus.
Súkkulaðibragðið á að minna ákveðið á bragðið
af Síríus hjúpsúkkulaði og Pippi.
Kúlur, kropp, konfekt, karamellur og brjóstsykur
benda eindregið til þess að eggið sé
frá Nóa Sfríus.
Pó því aðeins að bragðið sé Ijúffengt.
Gulur ungi af vandaðri þýskri gerð.
Athugið þó að aðrir framleiðendur
hafa einnig gula unga á eggjum sínum.
Hnyttinn, rammíslenskur málsháttur
skráður með svðrtu letri á litaðan borða.
/
QOTT FOLK