Morgunblaðið - 17.04.1984, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 17. APRfL 1984
41
Akranes:
Söngleikur sviðsettur í haust
Akranesi 9. apríl.
SÖNGDEILD Tónlistarskólans á
Akrancsi hélt rjáröflunartónleika í
Bíóhöllinni á Akranesi, laugardag-
inn 7. apríl sl. Þar voru flutt íslensk
og erlend sönglög m.a. vinsælir dú-
ettar. Einnig voru fluttir í konsert-
formi nokkrir kaflar úr söngleiknum
„Pirates of Penzance“ eftir Gilbert
og Sullivan, en það verk hefur verið
í æfingu í vetur í íslenskri þýðingu
og mun ætlunin að það verði sviðsett
á Akrancsi í haust. Söngkennari
skólans, Unnur Jensdóttir, mun ann-
ast allan undirleik nemenda á tón-
lcikunum. Karlakór íslcnska Járn-
blendifélagsins söng einnig nokkur
lög undir stjórn Matthísaar Jónsson-
ar við undirleik Bjarka Sveinbjörns-
sonar. Aðgangseyrir á tónleikana
gekk upp í kostnað vegna uppfærslu
söngleiksins.
Það er ekki á hverjum degi sem
söngleikur er settur upp á Akra-
nesi og af því tilefni ræddi frétta-
ritari Mbl. við nokkra þátttakend-
ur.
Þegar komið var í sal Bíóhallar-
innar hljómuðu raddir þeirra
Ragnhildar Theódórsdóttur og
Wilma Young í „Barkarollunni" úr
Ævintýrum Hoffmanns. Við
spurðum Jón Karl Einarsson
skólastjóra Tónlistarskólans um
aðdraganda þessara tónleika?
„Það er allt til komið út frá því
að við ætlum að sviðsetja söng-
leikinn „Sjóræninginn frá Penz-
ance“ í íslenskri þýðingu kennara
Tónlistarskólans. Þessir tónleikar
voru haldnir til að afla fjár vegna
þeirrar uppfærslu. í þessum
söngleik koma fram flestir þeir
nemendur sem stunda nám í söng-
deildinni og auk þess nokkrir fé-
lagar úr Kirkjukór Akraness og
kór Íslenska Járnblendifélagsins.
Unnur Jensdóttir og Wilma Young
Jón Karl Einarsson skólastjóri og
Guðrún Ellertsdóttir syngja í Síg-
aunabaróninum.
stjórna æfingunum, en Wilma
hefur tekið þátt í uppfærslu þessa
söngleiks í Skotlandi þar sem hún
stundaði nám. Þar er hann vin-
sælt verkefni hjá nemendaleik-
húsum."
— Við spurðum Jón að lokum
hve langt æfingar á söngleiknum
væru komnar?
„Við erum þegar búnir að æfa
alla kóra, og einsöngvararnir eru
langt komir með sitt.“
Skemmtilegast að geta
á gamalsaldri verirt í
námi hjá menntuðum
tónlistarmönnum
Einn af einsöngvurunum á tón-
leikunum var Kristján Elís Jón-
asson kennari við Fjölbrautaskól-
ann á Akranesi. Hann stundar
söngnám í frístundum sínum við
Tónlistarskólann, svokallað
stigsnám og ætlar að ljúka 8. stigi
á næstunni. Við spurðum Kristján
um söngnám hans.
„Þetta er nú mest til gamans
gert. Ég hef nú sungið töluvert áð-
ur og persónulega finnst mér
skemmtilegast að geta á gamals-
aldri verið í námi hjá menntuðum
tónlistarmönnum. I skólanum er
einstaklingskennsla og þar tekst
ég á við námsefni, og fyrir utan
það er ég í skemmtilegum félags-
skap. Fyrir utan námið komum
við oft saman og höldum músík-
fundi, þá syngjum við hvert fyrir
annað, það tel ég vera mjög lær-
dómsríkt," sagði Kristján.
Þess má geta að Kristján hefur
mikið tekið þátt í leiklistarstarf-
semi hér á Akranesi og áður á
Húsavík. Við spurðum Kristján
hvort hann hafi sungið mikið í
leikritum sem hann hefur tekið
þátt í?
„Ég hef tekið þátt í leiklistar-
starfsemi í 20 ár og sungið þar
töluvert. Reyndar var mitt fyrsta
hlutverk á Húsavík í söngleik."
I>etta verkefni er ekki
ofvióa skólanum |»ó hann
sé úti á landi
Við náðum tali af Unni Jens-
dóttur söngkennara og spurðum
hana hvernig æfingar hefðu geng-
ið?
„Þegar maður hugsar um hve
margir úr hópnum eru tiltölulega
óvanir að syngja svona músík, þá
er víst ekki annað hægt að segja
en þetta hafi gengið vel. Þeir voru _
nokkuð fleiri sem byrjuðu í haust,
en allir áttu að ráða því hvort þeir
væru með eða ekki svo nú eru þeir
eftir sem best finna sig í þessu og
hópurinn er mjög samstilltur og
skemmtilegur."
— En hvað er skóli úti á landi
að berjast við að setja upp söng-
leik?
„Skóli út á landi. Ég skal segja
þér það að þetta verkefni er alls
ekki ofviða þessum skóla, hvort
sem hann er úti á landi eða ein-
hvers staðar annars staðar. Til-
gangurinn með þessu frá mínum
sjónarhóli er auðvitað að kynna
nemendunum fleiri hliðar á
söngnáminu, að gera starf skólans
fjölbreytilegra, ekki síst út á við,
svo að bæjarbúar sjái að það eru
hlutir að gerast í þessari stofnun.“
Við þökkuðum Unni fyrir og
snerum okkur að Pálínu Skúla-
dóttur en hún er nemandi á tón-
listarbraut Fjölbrautaskólans á
Akranesi.
— Nú átt þú að syngja hlutverk
stúlkunnar í ástardúettinum, sem
nauðsynlegir virðast í öllum óper-
um. Hvernig er að standa í spor-
um ;,stórstjarnanna“?
„Ég lít nú ekki svo á að ég
standi í þeirra sporum. Ég stend
og geri eins vel og ég get. Ég er
ekki búin að læra söng svo lengi,
þó ég hafi sungið með kórum í
nokkur ár.“
— Hvernig finnst þér þá breyt-
ingin?
„Það er nú mesti munurinn,
kórmúsíkin er oft svo þung, eða
sungið þannig, þessi er aftur á
móti öll upp á léttleikann, en ég vil
þó ekki segja að hún sé neitt
léttmeti."
- J.G.
Verðlækkun:
SImicromaíS
■ ■^SWISSQUARTZ^^JH
ATH: ÞETTA ERU AÐEINS NOKKUR SÝNISHORN
LAS 4 10Y
Var 3.477
Nú 2.928
4 skífulitir
Gullhúðað
LA 340Y
Var 3.554
Nú 2.793
3 skífulitir
Gullhuðað
LA 364Y
Var 4.389
Nú 3.300
3 skífulitir
Gullhuðað
LA 262Y
Var 4.218
Nu 3.950
1 skifulitur
Gullhuðað
Vegna 75 ára afmælis úrsmíðavinnustofu Michel-
sens tókst okkur aö fá rosalega verðlækkun á úrum
frá Microma Swiss Quarts.
FRANCH MICHELSEN
ÚRSMIÐAMEISTARI
LAUGAVEGI 39, SÍMI 28355
REYKJAVÍK
2ára
ábyrgð
Ingvar Benjamínsson
úrsmiöur
Miöbæ Háaleitisbr. S-30720. Reykjavík.
2ára
ábyrgð
Guömundur Þorsteinsson
Bankastræti 12. S-14007. Reykjavík.