Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 17. APRÍL 1984
Enn um eftírmál Þelamerkurmála:
Valdníðsla eða
embættisafglöp?
eftir Anders Hansen
Fyrir nokkru gerðist það, að
Kennarasamband íslands ákvað
að höfða mál á hendur mennta-
málaráðherra fyrir ólöglega brott-
vikningu Ormars Snæbjörnssonar
kennara, úr starfi við Þelamerk-
urskóla í Eyjafirði síðastliðið
haust. Undirritaður reit grein um
þetta mál í Morgunblaðið hinn 27.
október síöastliðinn, þar sem með-
al annars var beint nokkrum
spurningum til Ragnhildar Helga-
dóttur menntamálaráðherra.
Ráðherrann hefur hins vegar enn
ekki séð ástæðu til að svara spurn-
ingum þessum, eða skýra málið á
opinberum vettvangi, og verður
málið því enn reifað hér og áleitn-
um spurningum beint til ráðherr-
ans.
Upphaf málsins
víðtækar deilur
á Þelamörk
Þar sem nokkuð er nú um liðið
frá því Þelamerkurmál stóðu sem
hæst, er rétt að rekja aðalatriði
þeirra í nokkrum orðum áður en
lengra er haldið.
Síðastliðinn vetur gerðist það,
að illvígar deilur blossuðu upp f
heimavistarskólanum á Þelamörk
í Eyjafirði. Upphaflega snerust
þær um kennslutilhögun og fleira,
en urðu brátt að mjög víðtækum
og flóknum illindum, þar sem
einkum voru á öndverðum meiði
þeir Sturla Kristjánsson skóla-
stjóri og Kjartan Heiðberg kenn-
ari. Trúnaðarmaður kennara við
skólann, Ormarr Snæbjörnsson,
blandaöist síðan inn f deilurnar,
vegna stöðu sinnar. Um skeið var
málið áberandi f fjölmiðlum, og
starfsmenn menntamálaráðuneyt-
isins fóru oftar en einu sinni á
vettvang til að kanna málið og
reyna að setja deilurnar niður.
óþarft er að rekja það mál til hlít-
ar nú, en deilunum lauk loks með
því að þeim Sturlu Kristjánssyni
og Kjartani Heiðberg var báðum
vikið frá störfum við skólann.
Ormarr Snæbjörnsson hélt hins
Anders Hansen
vegar sinni stöðu, en var víttur af
Ingvari Gíslasyni menntamála-
ráðherra, fyrir að hafa keypt
freyðivín fyrir tvo af fyrrum nem-
endum skólans á Þelamörk, sem
voru undir lögaldri.
VínkaupamáliÖ
í fljótu bragði mætti ætla, að
vínkaupamálið tengdist ekki Þela-
merkurmálum, en það gerir það
einmitt, vegna þess að það var
vakið upp í deilunum og notað af
skólastjóranum, Sturlu Kristjáns-
syni, er hann sá fram á að verða
sjálfur rekinn frá skólanum.
Þegar starfsmenn menntamála-
ráðuneytisins voru nyrðra að
kynna sér deilurnar á Þelamörk,
komust þeir meðal annars að þvi
að talsverð brögð höfðu verið að
bruggi, áfengiseimingu, drykkju-
skap og jafnvel sölu á áfengi frá
heimavistarskólanum. Ormarr
Snæbjörnsson skýrði ráðuneytis-
mönnum jafnframt frá því, að
vorið áður hefði hann keypt tvær
flöskur af freyðivíni fyrir tvo af
fyrrverandi nemendum skólans.
Upplýstist að bæði skólanefndar-
formaður og skólastjóri vissu um
vínkaupamálið áður, en ákveðið
hefði verið að gera ekkert í mál-
inu.
Eftir að sýnt varð, að Sturla
Kristjánsson skólastjóri yrði lát-
inn víkja frá skólanum, tók hann
málið á hinn bóginn upp á ný,
hálfu ári eftir að honum varð
fyrst kunnugt um vínkaupin, og
kærði þau til menntamálaráðu-
neytisins. Hefur komið fram, að
þetta gerði Sturla sakir þess að
hann taldi Ormar Snæbjörnsson
hafa verið sér andsnúinn í deilun-
um og yrði hann að fara frá skól-
anum, þá skyldi Ormarr einnig
víkja.
Órmarr skrifaði þá mennta-
málaráðuneytinu bréf vegna þessa
máls, játaði yfirsjón sína og baðst
afsökunar á henni. Ingvar Gfsla-
son svaraði með því að veita
Ormari alvarlegar vftur, en lauk
bréfi sínu á þvf að segja málið þar
með úr sögunni af hálfu ráðuneyt-
isins.
Ragnhildur Helgadótt-
ir verður ráðherra
En málinu var ekki aldeilis lok-
ið, þegar þarna var komið sögu.
Áður en Ingvar Gíslason mennta-
málaráðherra lét af störfum vorið
1983, hafði hann endursett Ormar
Snæbjörnsson í stöðu kennara við
Þelamerkurskóla, enda hafði
Ormarr meðmæli allra skóla-
nefndarmanna. Hefur Ingvar
Gíslason opinberlega vottað að
hann hafi endursett Ormar í stöð-
una.
Af einhverjum enn óútskýrðum
ástæðum, fór setningarbréf Ingv-
ars þó ekki í póst þegar í stað, og
lá bréfið enn í ráðuneytinu við
stjórnarskiptin og þegar Ragn-
hildur Helgadóttir tók við emb-
ætti menntamálaráðherra. Það
verður svo eitt fyrsta embættis-
verk Ragnhildar að rifta endur-
setningu Ingvars Gíslasonar, og
skyldi Ormarr nú ekki fá stöðu
sína við Þelamerkurskóla. Hefur
Ragnhildur sagt þetta vera gert
vogna vínkaupamálsins, málsins
sem gerst hafði ári fyrr, verið gert
opinbert hálfu ári fyrr, beðist
hafði verið afsökunar á og vítt
fyrir og sfðan lokið af hálfu
menntamálaráðuneytisins!
En það var sama, hvernig reynt
var að fá skýringar á málinu, þær
lágu ekki á lausu, aðeins var klifað
á vínkaupamálinu, og þegar spurt
var um brugg og áfengissölu ann-
arra kennara á Þelamörk, var
engu svarað. — Sú undarlega
staða var þar með komin upp í
eftirmálum Þelamerkurmála, að
þeir tveir, sem reknir voru frá
skólanum, Sturla Kristjánsson og
Kjartan Heiðberg, voru báðir í
starfi hjá menntamálaráðuneyt-
inu; annar sem skólastjóri, en
hinn sem fræðslustjóri, en
Ormarr, sem ekki var rekinn frá
störfum, fékk nú ekki stöðu á ný!
Hvað var það
sem gerðist?
Enn hefur ekki verið frá því
skýrt opinberlega, hvað það var í
raun og veru sem gerðist. Það er
þó ljóst, að vegna áhrifa Birgis
Thorlacius fyrrum ráðuneytis-
stjóra menntamálaráðuneytisins,
var setningarbréfi Ormars Snæ-
björnssonar stungið undir stól.
Það var geymt uns nýr ráðherra
tæki við, „Birgir sjálfur" ákvað að
hunsa fyrirmæli menntamálaráð-
herra í þessu máli. Athygli
Ragnhildar hefur sfðan veið vakin
á málinu er hún kom f ráðuneytið,
væntanlega ekki með jákvæðum
formerkjum fyrir Ormar Snæ-
björnsson. Það er einnig vitað, að
beint eða óbeint hafði Sturla
Kristjánsson áhrif á þetta mál, og
blönduðust þar inn f áhrifamenn f
stjórnmálum f Norðurlandskjör-
dæmi eystra, en Sturla Kristjáns-
son hafði áður komið þar við sögu
sem frambjóðandi á sérlista Jóns
G. Sólness við alþingiskosningar.
Hvernig sem málið bar að í ein-
stökum atriðum, varð niðurstaðan
sú, að Ragnhildur Helgadóttir
rifti endursetningu þeirri, sem
forveri hennar í starfi hafði geng-
ið frá, Ormari var í raun vikið frá
störfum við Þelamerkurskóla. —
Löngu sfðar, eftir mikið mála-
vafstur og þref fram og aftur,
bauð Ragnhildur Ormari síðan
kennarastöðu við barnaskólann á
Grenivík, hinu megin Eyjafjarðar!
Var því borið við, að Ormarr
mætti ekki kenna áfram við
heimavistarskóla eins og á Þela-
mörk, en í lagi væri að hann
kenndi við skólann á Grenivík!
Þessu hafnaði Ormarr að sjálf-
sögðu, enda ekki unnt að stunda
kennslu á Grenivík frá Akureyri
þar sem hann og fjölskylda hans
búa.
Þetta „tilboð" ráðherra var hins
vegar lokaorð ráðuneytisins í mál-
inu og því ekki um annað að ræða
fyrir Kennarasamtökin en að
hefja málaferli til að ná fram rétti
Ormars. Þau málaferli eru nú ha-
fin.
Áleitnum spurningum
ósvarað
Öll þessi eftirmál Þelamerk-
urmála hafa vakið ótal áleitnar
spurningar, sem enn er ósvarað,
og leyfir undirritaður sér að fara
fram á það við menntamálaráð-
herra, að eftirfarandi spurningum
verði svarað opinberlega.
• Hvers vegna gengu starfsmenn
menntamálaráðuneytisins ekki
frá endursetningu Ormars
Snæbjörnssonar, samkvæmt
fyrirmælum Ingvars Gíslason-
ar menntamálaráðherra?
• Var athygli Ragnhildar sér-
staklega vakin á þessu m áli
eftir ráðherraskiptin og þá af
hverjum og á hvern hátt?
• Hvers vegna þótti ástæða til að
taka vínkaupamálið upp að
nýju, eftir að því hafði verið
formlega lokið af hálfu ráðu-
neytisins?
• Athygli Ragnhildar Helgadótt-
ur og fleiri starfsmanna
menntamálaráðuneytisins hef-
ur verið vakin á bruggi, eim-
ingu, drykkju og jafnvel áfeng-
issölu frá heimavistarskólanum
á Þelamörk. Af hverju hefur
það mál ekki verið kannað nán-
ar?
• Er Ragnhildi Helgadóttur
kunnugt um að Ormarr Snæ-
björnsson neytir ekki áfengis?
• Athygli hefur vakið, að Ormari
var boðin kennarastaða við
Grenivík, þar sem er heima-
ngönguskóli. Þótt Ormarr hafi
kennt við heimavistarskólann á
Þelamörk hefur hann aldrei bú-
ið þar. Var honum af einhverj-
um ástæðum betur treystandi
til að annast uppfræðslu á
Grenivík?
• Er Ragnhildur Helgadóttir
reiðubúin að birta opinberlega
gögn í máli þessu, svo sem
endursetningarbréf Ingvars
Gíslasonar til Ormars Snæ-
björnssonar?
• Er Ragnhildi Helgadóttur
kunnugt um að kennari með
full réttindi, sem sótti um stöðu
Ormars við Þelamörk, vildi ekki
taka starfið er hann frétti
málavöxtu?
• Er Ragnhildi Helgadóttur
kunnugt um að hún setti að lok-
um í starf Ormars réttinda-
lausan kennara?
Dularfull þögn
um málið
Svo sem áður segir, hefur
Ragnhildur Helgadóttir ekki séð
ástæðu til þess að svara grein
minni um þetta- mál frá 27. októ-
ber í haust. óneitanlega er sú
þögn dularfull. Bendir hún ef til
vill til slæms málstaðar?
Sá, sem þessar línur ritar, er
þess fullviss, að skýringarnaa á
gjörðum Ragnhildar Helgadóttur í
þessu máli geta aðeins verið tvær.
Annaðhvort hefur ráðherrann í
bráðræði gengið til verks í þessu
máli, framið embættisafglöp
byggð á óheilum ráðum og upplýs-
ingum, eða þá að um er að ræða
hreina valdníðslu á Ormari fram-
kvæmda í trausti þess að enginn
yrði til andsvara, og gerða til að
friða einhverja utanaðkomandi
aðila þessa máls.
Menn hafa vafalaust misjafnar
skoðanir á Ragnhildi Helgadóttur
sem stjórnmálamanni. Undir-
ritaður hefur oftar en ekki fylgt
ráðherranum að málum í svipti-
vindum stjórnmálanna undanfar-
in ár. Engin afreksverk á því sviði
megna hins vegar að draga úr
þeim mistökum, sem gerð hafa
verið í máli Ormars Snæbjörns-
sonar. Enginn stjórnmálamaður
er svo merkilegur.að honum eigi
að líðast að níðast á varnarlausu
fólki í krafti embættis síns. Það er
alvarlegur hlutur, þegar manni er
vikið frá störfum að tilefnislausu,
eftir að hinn sami hefur varið
mörgum árum til að mennta sig í
starfsgrein sinni.
Ragnhildur Helgadóttir þarf
ekki að búat við að slíkt gerist
hljóðalaust. Þögn hennar er fyrir
löngu orðin æpandi.
\TTTTTT TTT INýju 35 mm litfilmurnar fra Kodak.
IN UU * iLÍYr 'iKODACOLOR VR.skila hlutverki sin
QTTÖDMITDfJAD U!fðsomV,ð ollkusJu skll>Lrðí -
UivJLN/XKV 1 litljosmyndunar. enda eiga þær ekki
FRÁKODAK! j..lithæfileika sina.
Kodacok»vt
JQO
%lacoio r
i
24.
■assr^
á
24
fd/ÍL'&LC* -» 1 •-* /;'.“»COLOB VB J*5C rooACO'.o^ 4cr K OCACOv-C'A
^4 ' -;*r Oösnæm <? ftr- »r ailra \c;-. ,i
í.nkocn* i>’ *- **■ t><■- ■ & " *»•• i <•'> rtyrra mtr. . ■
<». ía!*’-> tt, slæxkurar. |atni. ".t r , * óvasntar uppanom x. jr -yiíjr
KODAK
UMBOÐIÐ