Morgunblaðið - 17.04.1984, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 17. APRÍL 1984
53
Æ-
Islandskynning-
ar í tvo áratugi
Fyrsta tölublað Iceland Review 1984 komiö út
FYRSTA tölublað þessa árs af Ice-
land Review er nú komið út og er
efni þess að vanda hið fjölbreyti-
legasta. Meðal efnis í þessu blaði
má nefna grein um Stjórnarráðshús-
ið í Reykjavík eftir Illuga Jökulsson,
frásögn af veiðitúr á togara, einnig
eftir Illuga, viðtal og grein um gler-
listamennina Sigrúnu Ó. Einarsdótt-
ur og Sören Larsen í Bergvík eftir
Aðalstein Ingólfsson, samantekt Að-
alsteins um Hitaveitu Suðurnesja á
Svartsengi með Ijósmyndum eftir
Guðmund Ingólfsson og grein eftir
Don Brandt um teistuna með Ijós-
myndum Sigurgeirs Jónassonar.
Sigurður A. Magnússon skrifar
um þýðingar sínar á íslenskum
ljóðum yfir á ensku og birtar eru
þýðingar hans á ljóðum eftir Nínu
Björk Árnadóttur, Hannes Pét-
ursson, Matthías Johannessen,
Sigfús Daðason, Steinunni Sigurð-
ardóttur og Stefán Hörð Grímsson
Opnuð hefur verið bílaþvotta- Þar geta bílaeigendur fengið
stöð í Kolaportinu; bílageymslunni vagna sfna þrifna að utan sem
nýju í Seðlabankahúsinu við Kalk- innan. Geta þeir skilið þá þar
ofnsveg. Eigandi hennar er Trausti eftir á meðan þeir fara til vinnu
Bergsson. Þvottastöðin er opin alla eða versla í miðbænum og sótt
virka daga frá kl 8.00 til 18.30 alla þá þangað aftur síðar um dag-
virka daga. inn.
Bflaþvottastöð opnuð
með grafíkmyndum eftir Valgarð
Gunnarsson. Kynntur er leður-
fatnaður eftir íslenska hönnuði og
birtar eru ljósmyndaðar hugleið-
ingar Max Schmid um vetur á ís-
landi.
Iceland Review hefur ætíð gert
sér far um að kynna íslenskan iðn-
að og atvinnulíf á erlendri grundu,
en frá og með þessu tölublaði
verða skrif um íslenska verslun,
viðskipti og þjóðarhag aukin til
muna. Fjallað er um 70 ára af-
mæli Eimskips, fyrirhugaða sjáv-
arútvegssýningu, „Icelandic Fish-
eries ’84“ í Laugardalshöll í sept-
ember nk., flutninga með flugi til
og frá íslandi, uppgang fyrirtæk-
isins Hildu hf., nýja prenttækni á
Morgunblaðinu og aukin umsvif
Arnarflugs. Loks fjallar Björn
Matthíasson hagfræðingur um
hjöðnun verðbólgu á íslandi.
Ýmislegt annað efni er í blað-
inu, sem er 88 bls. að stærð. Ice-
land Review kemur út ársfjórð-
ungslega.
Iceland Review hefur nú verið
gefið út í meira en tvo áratugi.
Ritstjóri og útgefandi er Haraldur
J. Hamar.
Stjórnunar
námskeið
með Dr.Alec
McKenzie
IMPROVING MANAGERIAL PERFORMANCE
f samvinnu við samstarfsaðila Stjómunarfélagsins í Englandi hefur
tekist að fá hinn þekkta stjómunarráðgjafa Dr. Alec McKenzie til
íslands til að halda hér námskeið. Dr. McKenzie hefur síðastliðin
20 ár starfað við stjómunarráðgjöf og námskeiðahald í 30 löndum
hjá mörgum stærstu fyrirtækjasamstæðum í heimi. Hann hefur
ritað bækur og tímaritsgreinar um stjómun. og hann er höfundur
hinnar þekktu bókar ,,The time trap“ sem þýdd hefur verið á 9
tungumál. Efni námskeiðsins erm.a.:
- Overview of Management and Leadership • Yfirlit yfir stjóm-
un og störf stjórnandans
- Decesionmaking • Ákvarðanataka
- Planning • Áætlanagerð
- Organizing • Skipulagning
- Staffing • Starfsmannahald
- Leading • Leiðtogastörf
- Controlling • Eftirlit
- Communicating • Samskipti
- Conclusion Ályktun
A námskeiðinu er lög áhersla á að skilgreina hlutverk stjóm-
andans í skipulagsheildinni og mikið lagt upp úr samræmdum
vinnubrögðum stjórnandans. A hverju starfssviði stjómandanser
áhersla lögð á greiningu aðalatriða, og lagt er mat á frammistöðu
stjórnandans. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að virkja þátt-
takendur með verkefnum. umræðuhópum og sýningu stjómunar-
mynda.
Námskeið þetta er ætlað öllum sem sinna ábyrgðarmiklum stjóm-
unarstörfum.
STAÐUR OG TÍMI
Námskeiðið verður haldið 30. apríl -1. maí 1984 í Kristalsal Hótels
Loftleiöa.
ATH: Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafelags rikisstofnana styrkir
félaga sína á þetta námskeið og skal sækja um það til skrifstofu SF'R.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
STJÓRNUNARFÉLAG
^ÍSIANDS lyS)23