Morgunblaðið - 17.04.1984, Qupperneq 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1984
Dregur úr at-
vinnuleysinu
ATVINNUÁSTAND virðisl óðum vera
að færasl í svipað horf og var á sama
líma í fyrra eftir erfiða bvrjun fyrstu
mánuði ársins vegna þess hve vertíð
fór seint af stað, stirðra gæfta og
minni afla framan af, að því er segir í
marsyfirliti vinnumáladeildar félags-
málaráðuneytisins.
í marsmánuði fækkaði atvinnu-
leysisdögum um 18 þúsund frá
febrúar og atvinnulausum á land-
inu fækkaði um 800. Atvinnuleys-
isdagar í mars voru skráðir 38.500
(56.500 í febrúar), sem svarar til að
tæplega 1800 manns hafi verið á at-
vinnuleysisskrá allan mánuðinn eða
1,6% af mannafla skv. áætlun Þjóð-
hagsstofnunar.
„Atvinnuástandið á höfuðborg-
arsvæðinu og þó einkum á Norður-
landi eystra hlýtur þó að vera nokk-
urt áhyggjuefni nú, þegar sá tími
fer í hönd að mannafli á vinnu-
markaði eykst verulega, en gera má
ráð fyrir því að mannaflinn aukist
um 3000 manns að meðaltali næstu
fjóra mánuði, eftir því sem skólar
ljúka starfsemi sinni,“ segir í mán-
aðaryfirliti ráðuneytisins.
Stóri földungur,
gjölnir og lýr í
vertíðaraflanum
NOKKUÐ hefur borið á því að
kynjafiskar hafi komið í net og troll
hér við land að undanfórnu. Blm.
Morgunblaðsins ræddi við Gunnar
Jónsson, fiskifræðing, af þessu til-
efni og sagði hann að hér væri um
þrjár fisktegundir að ræða, stóra
fóldung (alepisaurus ferox), gjölni
(alcpoeephalus hairdii) og líklega lý
(pollachius pollachius).
Gunnar sagði að stóra földungi,
sem er af laxsíldaætt, hefði verið
landað á Höfn í Hornafirði. Stóri
földungur er miðsævisfiskur og
getur orðið allt að 2 metrar á
lengd. Hans varð fyrst vart 1844
við Vestmannaeyjar. Síðan 1909
hafa margir ýmist veiðst eða
fundist reknir á fjörur frá
Eystra-Horni, vestur og norður,
allt til Eyjafjarðar. Lítið er vitað
um stóra földung. Hann mun þó
vera gráðugur ránfiskur eftir
tönnunum að dæma.
Gjölnir, sem er af berhausaætt,
veiddist suður af Stórhöfða. Hér
við land finnst gjölnir helst á
miklu dýpi undan suður- og suð-
vesturströndinni og er orðinn
fremur algengur fengur eftir að
togarar tóku að leita fiskjar á
dýpri miðum. Gjölnir veiddist
fyrst sumarið 1903 á 500 m dýpi
suður og austur af Vestmannaeyj-
um. Gjölnir er botn- og djúpfisk-
ur.
Þriðji fiskurinn veiddist á Sel-
vogsbanka og sagði Gunnar að eft-
ir lýsingum að dæma væri þar
kominn lýr, af þorskaætt. f bók-
inni íslenskir fiskar eftir Gunnar
Jónsson segir að Jónas Hall-
grímsson, skáld og náttúrufræð-
ingur, hafi talið að lýr, sem hann
vildi nefna gullufsa, hefði fengist í
Eyjafjallasjó og er það talið senni-
legt. 1938 veiddist lýr á Selvogs-
banka og hafa margir veiðst síðan.
ICFI ANDAIR Ifíl ANDS TIJRISTRAD
V ■
íslensk ferðaþjónusta kynnt í Kaupmannahöfn
Ilagana 14.—18. mars var ferða-
sýningin REJS-84 haldin í Bella
Center í Kaupmannahöfn.
Ferðamálaráð og Flugleiðir
tóku á leigu sýningarpláss á
svæðinu og kynntu ferðir til ís-
lands, í samvinnu við Ferða-
skrifstofu ríkisins, Ferðaskrif-
stofu BSÍ, Samvinnuferðir-
Landsýn, Ferðaskrifstofu Guð-
mundar Jónassonar, Ferða-
skrifstofuna Úrval, Ferðaskrif-
stofuna Útsýn og Ferðaþjónustu
bænda.
Fjöldi sýningargesta heim-
sótti íslenska sýningarsvæðið.
Samtals sóttu um 38 þúsund
gestir sýninguna.
Frestur krítarkortafyrirtækjanna senn á enda:
Kaupmenn staðráðnir í
að segja samningum upp
KAUPMENN virðast staðráðnir í að
segja upp samningum sínum við krít-
arkortafyrirtækin Visa og Eurocard
frá og með næstu mánaðamótum til-
kynni þau ekki lækkun þóknunar
fyrir páska.
Gunnar Snorrason er formaður
nefndar, sem ræddi við krítar-
kortafyrirtækin fyrir hönd rúm-
lega 20 verslana eftir að þær
höfðu farið fram á að fyrirtækin
tækju lægri þóknun en verið hefði.
Hann tjáði blm. Mbl., að kaup-
menn hefðu fundað vegna þessa
máls í gær og lýst yfir áhyggjum
sínum vegna þess að engin jákvæð
viðbrögð hefðu enn borist. Þeim
hefði verið gefinn frestur til 20.
apríl til þess að lækka þóknunina,
en enn hefði ekkert gerst.
„Ég geri fastlega ráð fyrir að
allar þær verslanir, sem stóðu að
upphaflegu kröfunni, og fleiri til,
segi samningunum við fyrirtækin
upp fyrir mánaðamótin komi þau
ekki til móts við kröfur okkar,“
sagði Gunnar. „Ef þessi þóknun
lækkar ekki erum við hræddir um
að hún komi fram í hærra verðlagi
og það er nokkuð, sem við viljum
afstýra með öllum tiltækum ráð-
um.“
Fjölþætt þjónusta
á gömlum grunni
llvannatúni í Andakíl, 7. apríl.
BÍLA- og búvélaverkstæðið Véla-
bær hf., að Bæ í Borgarfirði. Þetta
gæti verið algengt nafn á verk-
stæði til sveita, þar sem margir
hugsa sér, að geta fengið fyrstu
bráðabirgðaviðgerð, þannig að
áfram megi halda í það skipti.
En það á ekki við þetta verk-
stæði. Eftir síðustu stækkun,
sem tekin var í notkun að fullu á
sl. ári er gólfflötur nú um 500 m2
og rúmgott um alla þætti verk-
stæðisins. Það þarf enginn
Borgfirðingur að fara langt til
að fá fullkomna þjónustu fyrir
bílinn eða búvélarnar.
í hljóðlátum enda byggingar-
innar er Pétur Guðmundsson að
stilla bíl með nýjum fullkomnum
mótor- og hemlastillingartækj-
um. Hann sagðist kunna vel við
að geta bæði heyrt í vél bílsins
og séð mælitækin, þegar hann
fínstillir gang vélarinnar eftif
nákvæmar mælingar.
Sprautun fer fram í lokuðum
klefa eins og sérhæfð málningar-
verkstæði nota. Tveir nýspraut-
aðir bílar sýndust sem nýir, ef
fréttaritari hefði ekki vitað ann-
að.
Ryðvörn
Nýjasta þjónustan er ryðvörn.
Með bestu fáanlegu efnum og
fullkomnum tækjabúnaði er
hægt að fá endurryðvörn eða
fyrstu ryðvörn, því Vélabær hf.
er með söluumboð fyrir nokkra
bíla- og búvélainnflytjendur.
„Ég hef stundum ekið bílum
hingað í ryðvörn fyrir viðskipta-
vini í Borgarnesi,“ segir Símon
Aðalsteinsson, framkvæmda-
stjóri, „það sparar tvær ferðir til
Reykjavíkur og mikla fyrirhöfn
fyrir bíleigendur". Það er auðséð
hvílíkur kostur það er fyrir bíl-
eigendur í Borgarfirði ofan
Skarðsheiðar að hafa aðgang að
svo fullkomnu verkstæði.
Slærsti vinnuveilandinn
„Vélabær hf. er stærsti vinnu-
veitandinn í sveitum Borgar-
fjarðar ofan Skarðsheiðar, utan
skólanna. Hér vinna 9 menn og
verkefni hafa verið jöfn og næg í
allan vetur,“ segir Einar Gísla-
son, stjórnarformaður, sem unn-
ið hefur hjá Vélabæ síðan hluta-
félagið með 40 hluthöfum var
stofnað 1980. Hann hafði verk-
stæðið á leigu í nokkur ár á með-
an Búnaðarfélag Andakíls-
hrepps átti það. Eru bráðum 30
ár síðan búnaðarfélagið byggði
fyrsta hluta húsnæðisins og hef-
ur það verið margstækkað síðan.
Við verkstæðið starfar raf-
virki. Hann sér um alla sérvinnu
við verkstæðið og vinnur við al-
mennar raflagnir í sveitunum
jöfnum höndum.
Vélabær lætur í té sérfræði-
þjónustu í allar gerðir heybindi-
véla fyrir allt Vesturlandskjör-
dæmið. Varahlutalager í svo
fjölþætta þjónustu er að sjálf-
sögðu takmarkaður, en daglegar
samgöngur frá Reykjavík leysa
Einar Gíslason við aðra lyftuna.
MorKunblaöið/Diðrik.
þann vanda. „Vélabær hefur
varahlutaþjónustu fyrir nokkur
umboð og eigum við mikið í þær
tegundir." Þannig lýkur tali
okkar Símonar um leið og hann
hverfur til að ganga frá verk-
beiðni bíleiganda.
D.J.
Grásleppu-
veiðin
eins og í
meðalári
- segir Guðmundur
Halldórsson á Húsavík
„ÞAÐ MÁ segja að grásleppuaflinn
hér norðanlands og austan sé eins
og í meðalári og útlitið er því held-
ur betra en tvö síðastliðin ár, en
þau voru afskaplega léleg. Það
voru fluttar út tæpar 7.000 tunnur
af hrognum í fyrra og á milli 5.000
og 6.000 árið áður,“ sagði Guð-
mundur Halldórsson, útflytjandi á
Húsavík, í samtali við Morgunblað-
ið.
Guðmundur sagði, að afli hefði
aðallega verið mikill í fjölmiðl-
um, en þar hefði verið talað um
mjög góða róðra. Skýringin á því
væri hins vegar sú, að vegna þess
hve stormasamt væri, kæmust
menn sjaldnar á sjó til að draga
netin og því væri oft mikið í þeim
eftir langa legu.
Viðskiptaráðuneytið ákvað
fyrir skömmu lágmarksverð á
hrognum til útflutnings og er þar
um að ræða lítilsháttar lækkun í
dollurum talið frá síðasta ári. Þá
var lágmarksverð á tunnu um
330 dollarar, en er nú um 310 eða
20 dollurum lægra. Aðspurður
sagði Guðmundur, að hann vildi
ekki tjá sig um þessa verðákvörð-
un að svo stöddu.