Morgunblaðið - 17.04.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1984
56
AFS á íslandi:
Heimili
erlenda
vantar fyrir
skiptinema
Hópur íslenzkra skiptinema, sem njóta nú gestrisni á erlendum heimilum. Þetta
er aðeins hluti þess hóps, sem nú dvelur erlendis, en aðstandendur AFS á íslandi
óttast, að tækifæri islenzkra ungmenna minnki til slíkrar dvalar, ef ekki tekst að
útvega fleiri íslenzk heimili handa erlendum skiptinemum.
Á landsbyggðarráðstefnu skiptin-
emasamtakanna AFS á íslandi, sem
haidin var í Reykjavík nýverið, kom
m.a. fram að eitt crfiðasta viðfangs-
efni deildanna á hverjum stað er að
útvega fjölskyldur fyrir erlenda skipti-
nema, sem sækja árlega í stórum hópi
um að koma til íslands, - stærri hóp-
um en nokkru sinni hefur verið unnt
að sinna vegna skorts á heimilum. Á
sama tíma og AFS á fslandi sendir
110 íslenzka nema til útlanda, tekur
það einungis á móti 50 erlendum
nemum til dvalar hér.
Landsbyggðarráðstefnan sem
haldin var dagana 24. og 25. marz
sl. var vel sótt og voru mættir full-
trúar frá öllum deildum og stöðum
þar sem AFS hefur starfsemi. Á
þessum vetri hafa verið stofnaðar
deildir á Suðurnesjum, Austurlandi
og Húsavík. Á ráðstefnunni kom
fram sterkur vilji til þess að deild-
irnar verði sem sjálfstæðastar og
að einn liður í því sé að tryggja
fjárhagslegt sjálfstæði þeirra.
Miklar umræður urðu á fundin-
um um fjölskylduöflun fyrir er-
lenda skiptinema. Ekki er hægt að
vista erlenda ársnema annars stað-
ar en þar sem viðeigandi mennta-
stofnanir eru fyrir hendi. Hér er
einkum átt við mennta- og fjöl-
brautaskóla. Fulltrúar frá AFS á
Austurlandi og Akranesi sögðu að
þrátt fyrir góðar menntastofnanir á
þeirra svæði, þ.e. Menntaskólann á
Egilsstöðum og Fjölbrautaskólann
á Akranesi, hefði ekki verið unnt að
bjóða erlendum nema námsdvöl, því
hvorki á Egilsstöðum né Akranesi
hefðu fengist fjölskyldur.
AFS hefur tekið að sér ýmis ný
verkefni, svo sem að senda nema til
sumardvalar og útvega kennara til
starfa í Ghana. Á næstunni mun
félagið hefja undirbúning að svo-
kölluðu YWP (Young Workers
Program) sem er ætlað ungu iðnað-
ar- og verkafólki og einnig er í at-
hugun að hefja nemendaskipti á
grunnskólastigi, en þau eru þegar
hafin milli ýmissa Evrópulanda.
Á þeim 27 árum sem AFS hefur
starfað hér á landi, hafa 550 ís-
lenskir nemar farið til náms er-
lendis á vegum samtakanna, en 230
erlendir nemar dvalið á íslandi.
Stjórn AFS á íslandi skipa: Kristín
Sigurðardóttir formaður, Pétur
Þórir Pétursson gjaldkeri og Mar-
grét Gunnarsdóttir ritari. Fram-
kvæmdastjóri félagsins er Sólveig
Karvelsdóttir.
FALLEGT ÚR
ER GÓÐOG
NYTSÖM GJÖF
Leitið til úrsmiðsins, hann býður aðeins
vönduð úr í mörgum verðflokkum,
auk þess tryggir hann örugga þjónustu.
Merkið er í glugga fagmannsins.
/V \ MEPKI URSMIOAFELAGS ISLANDS £ i MERKl URSMIOAFELAGS ISLANDS
TRYGGIR GÆOI OG PJONUSTU V TRYGGIR GÆOI OG PJONUSTU
■ ■ % rn JL MVA OFURKRAFTUR -
|W! \#A DTA - OFURKRAFTUR -
▼ V A\IV I AK ~ ÓTRÚLEG ENDING
hitastillta baðblöndunartækið
slær í gegn fyrir tæknilega hönnun,
fallegt útlit og ótrúlegt verð!
Stöðugur baðvatnshiti, handstýring á kaldasta og
heitasta vatnshitanum. Bamaöryggi. Auóvelt í notkun,
auðvelt að halda hreinu. Keramik þétting, drýpur því
ekki. Allt þetta fyrir ótrúlegt verð.
Endurnýjið með Danfoss það borgarsig
- svo er það svo þægilegt.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2, SlMI 24260
FRAMLEIÐENDUR
BETRI BÍLA í EVRÓPU
VELJA
VARTA RAFGEYMA
í BÍLA SÍNA
Það segir meira en mörg orð.
Framleiðendur Mercedes Benz, BMW, Volkswagen
og fleiri, velja VARTA rafgeyma,
enda hefur reynslan sýnt að VARTA rafgeymum
má treysta. Þeir bjóða upp á meira kaldræsiþol,
eru viðhaldsfríir og einnig ódýrir.
60 AMP-stundir kr. 1.494.00.
70 AMP-stundir kr. 1.788.00.
Hentar flestum gerðum bifreiða.
Á OLÍS stöðvum færðu VARTA rafgeymi,
og ísetningu á staðnum.
VARTA GÆÐIÁ GÓÐU VERÐI
ávallt í leiðinni