Morgunblaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1984
Sjósókn og aflabrögð í Vestfirðinga-
fjórðungi í marz:
Gæftir góðar
en afli misjafn
Sléttanes aflahæst togara, Patrekur neta
báta og Jakob Valgeir aflahæstur línubáta
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi yfirlit yfir aflabrögö í Vestnrð-
ingafjórðungi í marz frá skrifstofu Fiskifélags íslands á ísafirði:
Gæftir voru góðar i marz, en
afli var mjög misjafn eftir veið-
arfærum. Togararnir voru á
heimamiðum fyrri hluta mánað-
arins, en fluttu sig svo suður
vegna þess hve afli var tregur.
Voru togararnir því yfirleitt með
mjög blandað af afla í mánuðin-
um. Línubátarnir öfluðu ágætlega
fyrst í mánuðinum, en afli tregað-
ist mjög, þegar leið á mánuðinn.
Var línuaflinn nær eingöngu
steinbítur. Afli netabáta var góð-
ur allan mánuðinn.
í marz stunduðu 14 (14) togarar
og 15 (23) bátar botnfiskveiðar frá
Vestfjörðum. Fjórir (6) bátar réru
með net, en hinir allir með línu.
Heildaraflinn í mánuðinum var
Aflinn í einstökum verstöðvum:
Patreksfjörður:
8.073 lestir, og er heildaraflinn frá
áramótum þá orðinn 18.101 lest. {
fyrra var aflinn í mars 8.721 lest
og heildaraflinn í marzlok 18.332
lestir.
Aflahæstur línubáta í marz var
Jakob Valgeir frá Bolungarvík
með 222,7 lestir, en hann var einn-
ig aflahæstur í marz í fyrra með
253,8 lestir. Patrekur frá Pat-
reksfirði var aflahæstur netabáta
með 287,7 lestir en í fyrra var
Pálmi frá Patreksfirði aflahæstur
með 331,5 lestir. Sléttanes frá
Þingeyri var aflahæst togaranna í
mánuðinum með 594,5 lestir, en í
fyrra var Bessi frá Súðavík afla-
hæstur með 513,2 lestir.
Tálknafjörður:
Bíldudalur:
Þingeyri:
Flateyri:
Suðureyri:
Bolungarvík:
ísafjörður:
Sigurey tv.
Patrekur n.
Vestri n.
Þrymur n.
Tálknfirðingur tv.
María Júlía 1/n
270.5 lestir í 5 ferðum
287,7 lestir í 5 ferðum
233,4 lestir í 5 ferðum
219,0 lestir í 5 ferðum
434.6 lestir í 3 ferðum
168,3 lestir í 17 ferðum
Súðavík:
Sölvi Bjarnason tv. 323,3 lestir í 3 ferðum
Sléttanes tv. 594,5 lestir í 4 ferðum
Framnes I tv. 246,4 lestir í 3 ferðum
Gyllir tv. 1) 296,9 lestir í 2 ferðum
Sif 148,3 lestir í 23 ferðum
Ásgeir Torfason 125,6 lestir í 19 ferðum
Elín Þorbj.d. tv. 145,7 lestir í 1 ferð
Sigurvon 191,6 lestir í 22 ferðum
Dagrún tv. 393,7 lestir í 3 ferðum
Heiðrún tv. 318,9 lestir í 3 ferðum
Jakob Valgeir 222,7 lestir í 15 ferðum
Hugrún 212,2 lestir í 18 ferðum
Halldóra Jónsd. 123,9 lestir í 21 ferð
Páll Helgi n. 39,0 lestir í 10 ferðum
Guðbjörg tv. 587,8 lestir í 3 ferðum
Páll Pálsson tv. 484,9 lestir í 3 ferðum
Guðbjartur tv. 368,9 lestir í 3 ferðum
Orri 211,8 lestir í 27 ferðum
Víkingur III 210,5 lestir í 27 ferðum
Guðný 190,3 lestir í 26 ferðum
Júlíus Geirm.s. tv. 2) 51,0 lest í 1 ferð
Bessi tv. 415,5 lestir í 3 ferðum
Framanritaðar aflatölur eru miðaðar við slægðan fisk hjá togurum,
en óslægðan fisk hjá bátum. 1) Landaði 163,9 lestum í Hafnarfirði 2) Landaði 213,9 lestum í Þýzkalandi. Aflinn í einstökum verstöðvum í mars 1984 1983
Patreksfjörður 1.043 lestir (1.398 lestir)
Tálknafjörður 655 lestir ( 794 lestir)
Bíldudalur 372 lestir ( 354 lestir)
Þingeyri 927 lestir ( 558 lestir)
Flateyri 615 lestir ( 644 lestir)
Suðureyri 343 lestir ( 708 lestir)
Bolungarvík 1.358 lestir (1-533 lestir)
ísafjörður 2.287 lestir (2.174 lestir)
Súðavík 473 lestir ( 558 lestir)
Janúar/febrúar
8.073 lestir
10.028 lestir
(8.721 lestir)
(9.611 lestir)
18.101 lestir (18.332 lestir)
Kækjuveiðarnar í mars-mánuði
Sjávarútvegsráðuneytið hefir
nú veitt leyfi til veiða á 4.138 lest-
um af rækju á innfjarðarmiðum
við Vestfirði á þessari vertíð, sem
er svipað magn og á síðasta ári.
Rækjuafli var tregur í mars í
Arnarfirði, en rækjan yfirleitt
góð. í ísafjarðardjúpi og Húnaflóa
var ágætur afli og langt komið að
veiða þann afla, sem leyfilegt er.
Heildaraflinn í mánuðinum var
889 lestir (915), og er heildaraflinn
frá byrjun vertíðar í haust þá orð-
inn 3.790 lestir (3.634). Er því að-
eins eftir að veiða um 350 lestir á
vertíðinni.
Aflinn í mars skiptist þannig eftir veiðisvæðum:
1984 Lestir 1983 Bátar Alls Leyft Lestir Bátar
Arnarfjörður 65 8 322 500 103 9
ísafjarðardjúp 544 34 2.381 2.488 551 28
Húnaflói 280 13 1.087 1.150 261 10
889 55 3.790 4.138 915 47
Rækjuveiðar á djúpslóð eru ekki háðar aflamörkum, sem kunnugt er.
Eftirtalin skip lönduðu rækjuafla af djúpslóð á Vestfjörðum í mánuðin-
um:
Bolungarvík: Sveinborg GK (í febr.) 58,3 lestir
Sveinborg GK 47,0 lestir
ísafjörður: Fengur 9,9 lestir
Hafþór RE 144,0 lestir
Dalborg 31,3 lestir
Arnarnes 22,5 lestir
Björgvin Már 20,9 Iestir
Sænes EA 10,0 lestir
Hólmavík: Hólmadrangur 66,1 lest
í rafmagnsleysinu styttu menn sér stundir við fjöldasöng. Myndin sýnir leikarana syngja fyrir og einn af þeim
heldur á kerti til að undirleikarinn sjái betur á nóturnar í myrkrinu.
Ungmennafélag Reykdæla sýnir Saumastofuna í Logalandi:
Kossinn varði óvenju lengi
Borgarfirói, 9. apríl.
Á SJOTTU sýningu Ungmennafé-
lags Reykdæla á leikritinu
„Saumastofunni" eftir Kjartan
Ragnarsson á laugardagskvöldið
var, fór rafmagnið af við upphaf
sýningarinnar. Orsakaðist það af
seltu, sem hafði sest á rafmagns-
línurnar i útsynningshvelli fyrr um
daginn og sló því rafmagnið út.
Varði rafmagnsbilunin í um
klukkutíma til að byrja með.
Styttu menn sér stundir við
fjöldasöng í upphafi undir stjórn
Sigurðar Guðmundssonar undir-
leikara í leiksýningunni. Voru
leikararnir forsöngvarar og tóku
menn vel undir í salnum. Voru
m.a. leikarar úr Mosfellssveit
mættir, sem eru einnig að sýna
Saumastoíuna og fengu áhorf-
endur smá forheyrn að söngvun-
um í leikritinu, þegar leikararnir
sameinuðu krafta sína úr Reyk-
holtsdalnum og Mosfellssveit-
inni og sungu söngvana saman.
Rafmagnið komst á aftur um
kl. 22. Hélst það með smáhléum
á milli. Oftast fór það af á kát-
legum stöðum, einkum og sér í
lagi, þegar Sigga gamla var að
kyssa Himma, sendilinn á staðn-
um. Leið dulítill tími þar til
rafmagnið komst á aftur og enn
var hún að, þar sem leikararnir
héldu áfram frá því sem var
horfið, þegar birti.
Oktavía Stefánsdóttir er leik-
stjóri í Saumastofunni. Leikend-
ur eru Steinunn Garðarsdóttir,
María Ingadóttir, Steinunn
Geirsdóttir, Guðleif Benedikts-
dóttir, Valgerður Jónasdóttir,
Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Þor-
valdur Jónsson, Ármann Bjarna-
son og Gunnar Bjarnason.
— pþ
Stelpurnar á Saumastofunni hafa hópast í kringum Kalla klæðskera.
Sala á kísiljárni til Japan:
Frumvarp um endurskipulagn-
ingu fjárhags Járnblendifélagsins
Sverrir Hermannsson iðnað-
arráðherra lagði í gær fram á
Alþingi stjórnarfrumvarp sem
hcimilar ríkisstjórninni að
leggja fram jafnvirði allt að 33
milljóna Bandaríkjadala, til að
halda 55% hlutdeild í járn-
blendiverksmiðjunni á Grund-
artanga. Frumvárp þetta tengist
endurskipulagningu á fjárhag ís-
lcnzka járnblendifélagsins hf.
að Grundartanga, sem nauðsyn-
leg er til að unnt verði að ganga
frá samingum við Elkem a/s í
Noregi og Sumitomo Corpora-
tion í Japan um þátttöku hins
síðarnefnda sem samstarfsaðila
ríkisins í félaginu við hlið Elk-
em.
Sumitomo eignast 15%
hlutafjár, eignarhluti Elkem
verður 30% og íslenzka ríkis-
ins 55%. Hin nýja samvinna
byggist m.a. á því að komið
verður á samskiptum við Sum-
itomo til langs tíma um sölu á
í UNDIRBÚNINGI er að bjóða út
rekstur sorphauga Reykjavíkurhorg-
ar í Gufunesi. Að sögn Péturs Hann-
essonar, forstöðumanns hreinsun-
ardeildar borgarinnar, munu þó að
líkindum líða nokkrar vikur þar til
útboðin verða auglýst. Rekstur
sorphauganna kostaði um 15 millj-
ónir á síðasta ári.
Tala starfsmanna við sorphaug-
ana er á bilinu 6—8 og fer það
verulegu magni kísiljárns til
Japan sem auka mun rekstr-
arnýtingu og bæta rekstrar-
stöðu verksmiðjunnar.
nokkuð eftir umfangi verkefna.
Pétur sagði ljóst, að þessir
starfsmenn myndu missa vinnu
sína við sorphaugana en reynt
yrði að útvega þeim önnur störf
hjá borginni. Rekstur sorphaug-
anna felst einkum í því að ryðja
jarðvegi yfir sorp og eins er um
talsverða efnisflutninga að ræða
að sögn Péturs.
Rekstur sorphauganna
í Gufunesi boðinn út