Morgunblaðið - 19.04.1984, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRlL 1984
Davíð Oddsson borgarstjóri um skattbyrð-
isáætlun Þjóðhagsstofnunar:
„Villandi fréttir
og ekki sæmandi
Þjóðhagsstofnun“
„ÉG HEF EKKI fengið þessa útreikninga Þjóðhagsstofnunar, cn það er alveg
Ijóst að sveitarfélögin mörg hver lækka sína innheimtuprósentu frá því sem áður
var, þannig að nú er hún kannski komin í svipað horf eins og var þegar Alþingi
setti lögin um tekjustofna sveitarfélaga," sagði Davíð Oddsson borgarstjóri m.a.
er Mbl. spurði hann hvort það væri að hans mati réttlætanlegt að útsvarsálagning
hækkaði um 41% á milli ára á sama tíma og laun hækkuðu einungis um 20%.
Davíð sagði jafnframt: „Menn
hafa haft til þess einhverja undar-
lega tilhneigingu núna að miða lögin
við það hvernig þau virkuðu á meðan
efnahagslíf landsins var í molum, og
telja þar með að alla framreikninga
á útsvari og tekjustofnum sveitarfé-
laga skuli framvegis miða við það
ástand sem var þegar efnahagslegt
ðngþveiti ríkti hér og verðbólgan
stefndi í 100 til 130%.“
Borgarstjóri sagði að aldrei hefði
verið rætt um að bæta sveitarfélög-
unum það tap sem þau urðu fyrir á
árunum þegar öfugþróunin var sem
verst, en á þeim árum hefðu mörg
sveitarfélög safnað stórkostlegum
skuldum. Nú þegar verðbólgan væri
á niðurleið, eftir stórkostlega verð-
bólguhrinu, þá lægi það í augum
uppi að munurinn yrði talsvert mik-
ill fyrsta árið á milli þessara tveggja
ára.
„Það er að okkar mati algjörlega
rangt að gera samanburð með þeim
hætti sem gerður er í áætlun Þjóð-
hagsstofnunar," sagði Davíð, „auk
þess sem okkur finnst sérkennilegt
að fjalla um skattbyrðina með þeim
hætti sem þarna var gert. Okkur
finnst það jafnframt sérkennilegt að
taka til svokallaða beina skatta sér-
staklega, ríkis og sveitarfélaga ann-
ars vegar og vægi þeirra og taka síð-
an inn gjöld eins og fasteignagjöld
með þeim sköttum, sem eiga alls
ekki heima þar. En svo er ekkert
litið til þeirra skatta sem ríkið hefur
innheimt með tollum, vörugjöldum
og óbeinum sköttum."
Davíð sagði að sveitarfélögin væru
síður en svo of vel stæð, þótt út-
svarsprósentan hækkaði þetta, og
mörg þeirra ættu í miklum erfiðleik-
um. Hann sagði það t.d. ljóst miðað
við þær áætlanir sem gerðar hefðu
verið, að um næstu áramót yrði yfir-
dráttur Reykjavíkurborgar hjá
Landsbankanum um 120 milljónir
króna.
Davíð var spurður hvort hann
teldi ekki að þessi aukning útsvars
um 41% á sama tíma og laun hækk-
uðu um 20%, gæti orðið einhverjum
launþega ofviða. „Nei, við teljum að
laun á milli ára, þegar allt er tiltek-
ið, hafi hækkað meira en þarna er
tiltekið í frétt Þjóðhagsstofnunar.
Þar er t.d. ekki tekið tillit til neinna
launaskriða eða þess háttar og við
teljum raunar að þetta séu ákaflega
villandi fréttir og í rauninni ekki
sæmandi fyrir Þjóðhagsstofnun að
bera fréttir á borð með þessum
hætti," sagði Davíð.
Austurrískur skíðakennari í Skálafelli
N/EGI'R snjór er t Kkálafelli og verður skíðaskólinn þar starfræktur um páskana
undir stjórn Eyjólfs Kristjánssonar og Viktors Urbancic. Þeir félagar hafa fengið
til liðs við sig austurrískan skíðakennara að nafni Herbert Brtigger, sem kemur
gagngert til að aðstoða þá við skíðakennsluna um páskana. Skíðakennslan er fyrir
alla getu- og aldurshópa, barnakennsla og barnagæsla veröur á staðnum.
Konurnar í Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra sem undirbúiö hafa hinn
árlega hjólreiðadag. Morgunblaðift/ól.K.M.
Árlegur hjólreiðadagur
Lýkur með skemmtun á Lækjartorgi
Kvennadeild Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra mun efna til hins
árlega hjólreiðadags 14. maí næstkomandi. Allur ágóði af deginum mun
renna óskiptur til styrktar íslenskum börnum, það er til uppbyggingar
dvalar- og hvfldarheimilis fatlaðra barna í Reykjadal.
Á fundi sem kvennadeildin
boðaði til kom fram að börn i
grunnskólum borgarinnar munu
safna áheitum og hjólað verður
frá hverjum skóla niður á Lækj-
artorg þar sem boðið verður upp
á ýmis skemmtiatriði. Lækjar-
torg verður einn af þremur
áfangastöðum á höfuðborgar-
svæðinu sem hjólað verður til,
en nánar verður tilkynnt í skól-
um hvar bðrn f Hafnarfirði,
Garðabæ og Kópavogi safnast
saman.
Þetta er í fjórða skipti sem
efnt er til slíks dags og hefur
ætíð tekist mjög vel til. Spjðldin
sem börnin fá til áheitasafnana
eru einnig happdrættismiðar og
verða vinningar dregnir út að að
hjólreiðunum loknum. Meðal
vinninga verður útsýnisflug
fyrir átta með Ómari Ragnars-
syni.
Stykkishólmur:
Þrjár kristni-
boðssamkomur
í kirkjunni
Stykkishólmi. 5. apríl.
Kristniboðssambandið hefir að und-
anförnu kynnt starfsemi sína og árang-
ur á Snæfellsnesi. Kristniboðarnir
Benedikt Arnkelsson og Skúli Svav-
arsson hafa ferðast hér um og haldið
samkomur.
Hér í Stykkishólmi hafa þeir hald-
ið þrjár samkomur í kirkjunni og
einnig hafa þeir heimsótt skólana,
sjúkrahúsið og dvalarheimilið. Á
þessum samkomum hafa þeir kynnt
starfsemina bæði í máli og myndum
og vakið athygli á fjárþörf til þessa
góða og árangursrika starfs. Er
ótrúlegt hversu áunnist hefir á
kristniboðsakrinum.
Héðan héldu þeir félagar til
Grundarfjarðar, þar verður ein sam-
koma og svo munu þeir prédika við
guðsþjónustur í Ingjaldshólskirkju
og Ólafsvíkurkirkju á sunnudag og
einnig halda þeir samkomur á kvöld-
in í Ólafsvík.
Mikil þörf er nú á aukinni hjálp til
þessa starfs og er það von manna að
fólk bregðist vel við og geri sitt til að
halda uppi þessu mikla líknarstarfi,
eins og svo oft áður, enda er þetta
starf einungis byggt upp á frjálsum
framlögum. _ Árni
Fermingarbarn
1 LISTA yfir fermingarbörn í Mbl.,
hefur fallið niður nafn Hjördísar
Auðar Árnadóttur, Skeiðarvogi 103,
sem verður fermd i Langholtskirkju
á annan páskadag.
Mikil umferð um hátíðirnar:
17—1800 bókaðir með vélum
Flugleiða annan dag páska
MIKIÐ annríki var í innanlandsfiugi
Flugleiða í gær. Sömu sögu var að
segja hjá Arnarflugi. Þá var mikil ös á
Umferðarmiðstöðinni. Alls voru 22
feröir á vegum Flugleiða frá Reykjavik
í gær, þar af 7 til Akureyrar. Þrjár
þotuferðir voru þangað á þriðjudag.
Arnarflug fór þrjár aukaferðir og ráð-
gerði að fljúga á meðan birta leyfði.
Ollum viðmælendum blaðsins bar sam-
an um að umferðin nú væri svipuð og
um páskana í fyrra.
Að sögn Sæmundar Guðvinssonar,
blaðafuiltrúa Flugleiða, er megin-
straumurinn um hátíðarnar til Ak-
ureyrar, en einnig er talsverður
straumur til ísafjarðar og Egils-
staða. Fjölda farþega taldi Sæmund-
ur vera um 1.100—1.200 dag hvern
um hátíðarnar. Sautján ferðir eru
ráðgerðar hjá Flugleiðum í dag,
skírdag. Ekkert verður flogið á
morgun og á páskadag venju fremur.
Annirnar verða mestar á annan dag
páska. Þá eru 1.700—1.800 farþegar
bókaðir með vélum félagsins og
verða þá tvær þotur í notkun.
Hjá Arnarflugi fengust þær upp-
lýsingar, að þar hefði verið mikið að
gera og ljóst yrði að mikil umferð
yrði yfir hátíðarnar. Flug hófst
eldsnemma i gærmorgun og átti að
fijúga á meðan birta leyfði í gær-
kvöld. Þrjár aukaferðir voru farnar
á vegum Arnarflugs í gær. Að sögn
viðmælanda blaðsins stefndi allt í að
annar dagur páska svo og þriðjudag-
urinn eftir hátíðarnar yrðu mestu
annadagarnir.
Mikil ös var einnig á Umferðar-
miöstöðinni í gær. Lá straumur fólks
nokkuð jafnt í allar áttir eins og við-
mælandi blaðsins komst að orði. Sið-
ustu áætlunarbifreiðir áttu að leggja
af stað til Akureyrar kl. 18, en
klukkustundu síðar voru sfðustu
ferðir vestur á Snæfellsnes.
íkornabörnin: Hilmar Björgvinsson og Kári Reynisson. Þeir
eru yngstu bömin sem þátt taka í leikritinu.
Friðrik Adolfsson og Elsa Jónsdóttir í hlutverkum sínum í
Dýrunum í Hálsaskógi.
Hérastubbur bakari ásamt bakaradrengnum. Frá vinstri:
Ársæll Arnarsson og Ingimar Garðarsson.
Skagaleikflokkurinn sýnir Dýrin í Hálsaskógi
Akranesi, 17. april.
Skagaleikfiokkurinn á Akranesi
frumsýnir nú um páskana barna-
ieikritið Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjöm Egner.
Er hér um að ræða 21. verk-
efni leikflokksins en um þessar
mundir eru 10 ár liðin frá stofn-
un hans. Á þeim tíma hafa verið
sett upp mörg minnisstæð Ieik-
verk. Leikstjóri í þessari sýningu
er Guðrún Þ. Stephensen leikari,
sem fastráðin er við Þjóðleik-
húsið. Má segja að það sé tilraun
af ieikhússins hálfu, að veita
henni leyfi til að starfa með
Skagaleikflokknum að þessu
sinni. Guðrúnu er einkar lagið að
vinna með börnum og að sögn
heimamanna hefur þeim fundist
sérlega gaman og fróðlegt að
starfa með henni.
Óþarft er að kynna þctta leik-
rit fyrir fólki, svo þekkt sem það
er orðið hér á landi. Alls taka
þátt í leiknum 27 leikendur og
fjöldi annarra starfsmanna, þar
af eru rúmlega 20 börn og ungl-
ingar sem starfa bæði á sviði og
eins í leiknum.
Þýðendur leikritsins eru
Hulda Valtýsdóttir og Kristján
frá Djúpalæk. Leiktjöld og
leikmynd gerir Bjarni Þ. Bjarna-
son með aðstoð unglinga úr 8.
bekk Brekkubæjarskóla. Undir-
leikari er Jensína Waage, og
förðun stjórnar Jón Björnsson,
en hún er mikil og vandasöm.
Helstu hlutverk eru leikin af
Björgvini Leifssyni, sem leikur
Mikka ref, Helga Grímssyni sem
leikur Lilla klifurmús, og Jóni S.
Þórðarsyni sem leikur Martein
skógarmús. Yngsti leikarinn er
aðeins 9 ára.
Þetta er þriðja barnaleikritið
sem Skagaleikfiokkurinn setur á
svið. Fyrst var það Lína lang-
sokkur og síðar Litli Kláus og
Stóri Kláus.
Skagaleikflokkurinn vill að
gefnu tilefni þakka Þjóðleikhús-
inu fyrir að hafa gefið leikstjór-
anum leyfi frá störfum til að
vinna með flokknum, og einnig
búningalán og alla veitta aðstoð.
Þá vill hann einnig þakka þjóð-
leikhússtjóra, Gísla Alfreðssyni,
fyrir að hafa gefið Skagaleik-
flokknum kost á sýningarrétti af
þessu leikhúsverki.
Ástæða er til að hvetja alia
Akurnesinga til að koma í Bíó-
höllina og fylgjast með frábærri
skemmtun, um leið og þeir sýna
Skagaleikflokknum stuðning
sinn.
J.G.