Morgunblaðið - 19.04.1984, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1984
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Skýrsluvélar
ríkisins og
Reykjavíkurborgar
óska eftir að ráða starfsmann í kerfisfræði-
deild stofnunarinnar og í kerfisforritun.
Við leitum að:
1. Tölvunarfræðingum/reiknifræðingum/
stærðfræðingum eða fólki með menntun
frá sérskólum í gagnavinnslu.
2. Verkfræöingum/tæknifræðingum.
3. Viöskiptafræðingum.
4. Fólki með aðra háskólamenntun auk
reynslu á náms- og/eða starfssviði tengdu
tölvunotkun.
5. Fólki með reynslu.
Áhugi okkar beinist að fólki með fágaða
framkomu, sem er samstarfsfúst og hefur
vilja til að tileinka sér nýjungar og læra.
SKÝRR bjóða:
1. Góöa vinnuaðstöðu og viðfeldinn vinnu-
stað í alfaraleið.
2. Fjölbreytt og í mörgum tilvikum um-
fangsmikil viðfangsefni.
3. Nauðsynlega viðbótarmenntun og nám-
skeið, sem auka þekkingu og hæfni.
4. Sveigjanlegan vinnutíma.
Umsóknum er greini aldur, menntun og fyrri
störf skal skila til SKÝRR, ásamt afriti próf-
skírteina fyrir föstudaginn 11. maí 1984.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu og hjá
starfsmannastjóra, sem einnig veitir nánari
upplýsingar.
Skýrsluvélar ríkisins og
Reykja víkurborgar,
Háaleitisbraut 9.
| l; un ; ino| ir h| RADNINGAR
I ldw\illUUI lll. ÞJONUSTA
OSKUM EFTIR AÐ RAÐA:
Kerfisfræðing (73)
til starfa hjá stórfyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið: Þátttaka í áframhaldandi tölvu-
væðingu stórs þjónustufyrirtækis með mikil
umsvif innanlands og utan. Starfið feiur í sér
daglega stjórnun tölvudeildar, þátttöku í
mótun markmiða, kerfissetningu og forritun
tölvuverkefna.
Við leitum að manni meö þekkingu og
reynslu í kerfissetningu og forritun. Starfs-
maðurinn þarf hæfileika til að umgangast
fólk og geta unnið sjálfstætt.
/Eskilegt aö viökomandi geti hafið störf eigi
síðar en 1. ágúst nk.
í boði er: Áhugavert framtíðarstarf hjá fram-
sæknu fyrirtæki og gott starfsumhverfi.
Vinsamlegast sendið umsóknir á eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktum númeri viðkomandi starfs.
GAGNKVÆMUR TRÚNAÐUR
Hagvangur hf.
n 'idningarþjonusta
GHtNöASVEGI 13 R
Þórir Þorvardarson,
Katrín Óladóttir.
SÍMAR 83172 & 83183
Framkvæmdastjori: Olafur Örn Haraldsson.
REKSTRAR- OG
TÆKNIÞJÖNUSTA. ’
MARKADS- OG
SOLURADGJOF.
ÞJODHAGSFRÆDI
ÞJONUSTA.
TÖL VUÞJÓNUSTA. .
SKOOANA OG
MARKADSKANNANIR.
NAMSKEIDAHALD.
„Innskrift
frá tölvuskermi“
Óskum eftir að ráða nú þegar starfsmann til
að vinna við innskrift frá tölvuskermi.
Vélritunarkunnátta æskileg. Laun samkv.
launakjörum opinberra starfsmanna.
Tilboð merkt: „Tölvuvinnsla“ sendist fyrir 25.
apríl nk.
Sölumaður
Óskum eftir að ráða sölumann frá maí til
ágústloka. Þarf aö vera líflegur, áhugasamur
og stundvís.
Upplýsingar á Borgarbílasölunni milli kl. 10
og 12 laugardaginn, 28. apríl, (upplýsingar
ekki í síma).
Borgarbílasalan hf.
Blómaverzlun
Ný blóma- og gjafavöruverzlun óskar eftir að
ráða hressan og hugmyndaríkan starfsmann
með reynslu í blómaskreytingum til aö sjá um
rekstur blómadeildar.
Umsóknir leggist inn á afgr. Morgunblaðsins
merkt: „Blómlegt — 3075“, fyrir nk. þriðju-
dagskvöld.
Trésmiðir óskast
strax. Mikil verkefni framundan. •
Uppl. í símum 72812, 74435 og 79971 nk.
laugardag.
Ritarastarf óskast
27 ára stúlka óskar eftir framtíðarstarfi. Hef 5
ára reynslu í almennum skrifstofustörfum.
Upplýsingar í síma 10007.
Sjálfstætt starf
Óskum eftir að ráða starfsmann til fjöl-
breyttra starfa við kynningarstörf og sem rit-
ari. Háskólapróf og/eða reynsla af skrifstofu-
störfum æskileg.
Umsóknir sendist Morgunblaöinu fyrir 26/4
merkt: „S — 1236“.
Listhneigður
starfskraftur
Hefur þú áhuga á aukavinnu við skrautskrift í
tré. Gæti verið heimavinna.
Ef svo er, hafðu þá samband í síma 76713.
Hafrannsókna-
stofnunin
Reiknideild
óskar að ráða starfsmann.
Starfssviö: Umsjón meö tölvum og daglegri
úrvinnslu stofnunarinnar.
/Eskileg menntun stúdentspróf eða hliðstæð
menntun.
Upplýsingar fást hjá reiknideild Hafrann-
sóknastofnunarinnar.
Framreiðslunemi
óskast
Framreiðslunemi óskast.
Þarf að vera reglusamur og hafa góða fram-
komu. Upplýsingar hjá yfirframreiöslumanni.
Ekki í síma.
H■þ’x iivmr hi' mdningar
I lil;-\ill IwAll III. ÞJONUSTA
ÓSKUM EFTIR AÐ RADA:
Sölustjóra (75)
til starfa hjá inn- og útflutningsfyrirtæki í
Reykjavík.
Starfssvið: Dagleg verkstjórn í söludeild,
gerð söluáætlana, markaðsöflun, auglýsinga-
stjórnun, pantanaákvarðanir o.fl.
Við leitum aö sjálfstæöum manni meö
reynslu af störfum við sölu og markaðsmál.
/Eskileg menntun viðskiptafræði eða önnur
haldgóð menntun á sviöi viöskipta og versl-
unar. Nauðsynlegt að viökomandi geti unnið
sjálfstætt og hafi hæfileika til aö umgangast
og stjórna fólki.
í boöi er ábyrgðarstarf hjá traustu fyrirtæki.
Framtíðarstarf.
Vinsamlegast sendið umsóknir á eyðublöö-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktum númeri viökomandi starfs.
GAGNKVÆMUR TRÚNAÐUR
Hagvangur hf.
n tnNINGARÞJONUSTA
GHtHzASVEGI 13 R
Þórir Þorvarðarson,
Katrín Óladóttir.
SIMAR 83172 8 83183
Framkvæmdastjóri: Olafur Örn Haraldsson.
REKSTRAR- OG
TÆKNIÞJÖNUSTA.
MARKADS- OG
SÖLURADGJÓF.
ÞJODHAGSFRÆDI-
ÞJONUSTA.
TÖLVUÞJÓNUSTA.
SKODANA OG
MARKADSKANNANIR.
NAMSKEIDAHALD
Starfskraftur
óskast
í Ijósmyndavöruverslun í miðbænum frá kl.
1—6. Tilboð sendist Morgunblaöinu fyrir 25.
apríl merkt: „S — 1233“.
Kennara vantar
Nokkra kennara vantar að grunnskóla Fá-
skrúðsfjarðar næsta skólaár.
/Eskilegar kennslugreinar: Tungumál,
myndmennt, íþróttir, söngur, eðlisfræði og
kennsla yngri be.kkja.
Nýtt skólahúsnæði. Vinnutími frá kl. 9—4.
Gott húsnæði í boði.
Upþl. gefur skólastjóri í síma 97-5159 og
5224.
Skólanefnd.
Framkvæmdastjóri
Félag löggiltra endurskoöenda óskar að ráöa
framkvæmdastjóra.
Starfið felst í umsjón með daglegum rekstri á
skrifstofu félagsins, sem annast ýmiss konar
þjónustu við félagsmenn.
Við leitum að endurskoðanda, lögfræðingi
eða viöskiptafræðingi með góða kunnáttu í
ensku og a.m.k. einu noröurlandamáli.
Umsóknir sendist Morgunblaöinu fyrir 1. maí
nk. merkt: „F — 1237“.
Rafmagnstækni-
fræðingur - rafvirki
— kennari
óskar eftir sumarstarfi frá miðjum júní til loka
ágústs. Margt kemur til greina, hvar sem er á
landinu, langur vinnutími æskilegur.
Uppl. í síma 95-5632.