Morgunblaðið - 19.04.1984, Page 9

Morgunblaðið - 19.04.1984, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1984 57 legt, að draugar kæmu einmitt til að stytta þeim einverustundirnar. Búðir voru næsti áfangastaður. Þangað koma allir, sem fara fjallaleiðina að Horni. Ingibjörg húsfreyja hresti okkur á svart- fuglseggjum og mjólk, áður en við legðum í hann Skálakamb, sem er himinhár og svo brattur, að varast má að líta niður, svo að menn sundli ekki. Örmjó gata liggur upp snarbratt fjallið í ótal krákustig- um. Ferð yfir Kambinn að vetrar- lagi hygg jeg ekki vera barnaleik. Varla máttum við vera að því að skjálfa af hræðslu, meðan við klif- um þessa torfæru. Svo mjög fanst okkur hún óttaleg. En upp kamb- inn komumst við og lentum í Rekavík bak Höfn, aftaninn um 10 leytið. Sól var ennþá á lofti, og heima- sæturnar í Rekavík fluttu okkur yfir fjörðinn í árabát. Var róið sterklega, og lentum við hjá Horni, þegar sigmennirnir voru að koma heim frá síðasta siginu. Var tekið vel á móti þessum skringi- legu ferðalöngum, sem höfðu gengið norður til þess að sjá bjargsig, en vildu nú fá eitthvað fyrir snúð sinn og heimtuðu að fara að skoða bjargið þegar um nóttina. Það var Jónsmessunótt, og ekki tjóaði að láta þá nótt ganga úr greipum sjer. Við geng- um út á bjargið ásamt Önnu frá Horni. Varaði hún ákaft við að stíga of tæpt, en þess hefði ekki þurft með. Hrikaleiki hamranna sagði okkur, hvað bæri að óttast. Sólin hjekk fyrir ofan sjóndeild- arhring og henni datt ekki í hug að þoka þaðan. Einstaka fugl flögraði upp frá bjarginu. Annars var kyrð yfir. Þá stakk yrðlingur upp hausnum úr greni sínu. For- vitin augun horfðu lengi á okkur og hurfu loks aftur í holuna, þegar við vorum komnar alveg að henni. En jafnskjótt gægðust 20 aðrir yrðlingshausar upp úr grenjunum víðsvegar í kring. Grassvörðurinn á Hornbjargi er allur sundurgraf- inn af tófu. — „Reynið þið ekki til að drepa hana?“ spurði jeg Önnu. „0, nei, hún gerir engan usla“ — svaraði hún. Við vöktum fram eftir nótt og dáðumst að fegurð þessa lands, og þessarar nóttlausu voraldar ver- aldar. Næsta dag hjeldum við í Látra- vík, sem er næsta vík fyrir austan Horn. Þar er myndarlegur viti og allstór og reisulegur vitavarðar- bústaður, sem getur rúmað tvær fjölskyldur, ef vill. Var okkur sýndur vitinn og húsið, og þótti okkur það afar merkileg bygging. Gátum við ekki nægilega dásamað þessa dýrð. En við hann Blakka- bás drynja öldurnar þunglyndis- legt lag, og hlýtur að vera ein- manalegt að búa þarna á vetrum langt frá öllum öðrum. Þess vegna er húsið ætlað tveim fjölskyldum. Húsfreyjan og tvær dætur hennar fylgdu okkur af stað. Þá sagði hús- freyja okkur sögu, sem var á þessa leið: „Hingað kom afi minn og nam fyrstur land. Hann erjaði og erfið- aði eftir megni, fór svo til heim- kynnanna og sókti ömmu, sem lá ekki á liði sínu, þegar hingað norð- ur kom. Þegar þau höfðu unnið baki brotnu í mörg ár, komu yfir- völdin og tóku jörðina af þeim. Og þótt alt væri hans verk, sem á jörðinni hafi verið unnið, varð hann að láta undan og flosnaði upp. Þetta var fyrir löngu síðan. En þegar jeg kom hingað fyrst og var sýnt þetta glæsilega hús, fanst mjer auðvitað mikið til þess koma. Var mjer síðan ráfað út á tún, og þar fann jeg gamlar tættur, og í þeim lá gamall hlóðarhringur. Og jeg skal segja ykkur, að mjer fanst þessi gamli hlóðarhringur miklu fallegri og merkilegri en öll dýrðin i nýja vitavarðarbústaðnum.— Það, sem unnið var af þreyttum og duglegum höndum, fanst mjer stærra en glæsileiki, sem ekkert er bak við“. „Mamma, þú ert farin að skálda" — sögðu dætur hennar. „Þessari húsfreyju þótti vænt um útvarpið sitt, þótt hún elskaði gamlar minjar. „Jeg hlakka altaf til að setjast við útvarpið og hlusta", sagði hún, — „þegar það er í lagi“. Að lokum átti jeg að skila kveðju til hans Páls Isólfssonar og biðja hann að koma sem oftast í útvarpið. Síðan var haldið heim- leiðis. Hið gestrisna fólk á Horni, Jóna húsfreyja og Stígur, voru kvödd, og síðan var okkur róið yfir í Höfn. Sumarliði bóndi tók á móti okkur og hitaði kaffi. Næsti áfangastaður var Rekavík, og var okkar beðið þar með súkkulaði og pönnukökur. Ekki vantar vel- gjörningana á Ströndum. Og svo var skálmað af stað í Hælavík. Jón bóndi var i mógröfum, fleygði frá sjer ristuspaða og tók á móti gest- unum. — Aldrei skal jeg gleyma gömlu, fallegu baðstofunni í Hælavík. Hún var hvítskúruð og með skarsúð, og fanst mjer sem jeg hefði aldrei vistlegri stofu komið í hér á landi. Jón bóndi reri okkur yfir að Búðum. Þokusúld var yfir og fylgdi yngissveinn okkur áleiðis. Við þræddum leið- ina yfir fjallið til Hesteyrar eftir vörðunum, og nú voru þær allar sammála um að hjálpa okkur áfram. „Þessa leið, þessa leið“ — taut- uðu þær, og við hlýddum. Þokunni ljetti, og við tíndum fjallagrös í náttfallinu og komum heim á Hesteyri, þegar allir voru þar í fasta svefni. En þá var líka komið fast að kosningum. Og svo einn daginn sást til þingmannaefnanna í Djúpbátnum. Var slegið á fundi í skólahúsinu og tekið vingjarnlega í höndina á þessum óþekta kjós- anda, sem jeg var. Loks bar að Sigurð Bjarnason, sem kvað upp dóminn yfir mjer og sagði: „Ekki bjóst jeg við að hitta Reykjavík- urstúlku norður á Ströndum". Var þá forvitninni svalað og mín pers- óna einskis virði. Eftir það var gengið til eldheitra umræðna og mátti aldrei í milli sjá, hver myndi bera sigur úr býtum. Að minsta kosti höfðu allir jafnmikið að segja hver öðrum. Kosningadaginn var afar slæmt veður og ekkert um dýrðir, enda hafði verið dansleikur kvöldinu áður, því að harmonika hafði kom- ið á eyrina með Djúpbátnum og fylgdi eigandinn með. Eins og nærri má geta, fóru allir, sem vetlingi gátu valdið á dansleikinn, og hjelst glaðværðin þar til kl. 7 um morguninn, nema hvað karl- arnir þurftu að skreppa burt tvo — þrjá tíma til þess að afferma skip, sem kom þá um nóttina. All- ir voru því syfjaðir næsta dag, en gengu samt til kosninga. Var fólk afar dularfult þessa daga og ljet enginn uppi sína stjórnmálaskoð- un nje hvern kosið hefði. Skömmu eftir að kosningar voru um garð gengnar, var jeg og fyr- nefnd Ragna á gangi skamt frá Hesteyri. Heyrum við jódyn í fjar- lægð og eygjum brátt riddara á hvítum fáki, sem kemur þeysandi á eftir okkur. „Sælar stúlkur", er sagt, og við tökum undir kveðjurn- ar — „Viljið þið gera mjer greiða", segir riddarinn, og við erum fúsar til þess. „Það er nú ekki mikið", segir hann, „rjett að koma þessum kassaræfli til Hesteyrar. Hann á að fara með bátnum í dag“. Við tókum við kassanum og riddarinn sneri hestinum heim á leið. „Hvað er í kassanum?" spyr jeg. „0, það er ekkert merkilegt, bara kjörseðl- arnir fyrir hreppinn hjerna", svaraði hann og skellti undir nára, sneri sjer við eftir örstund og hrópaði: „Þeir verða undrandi þegar ég kem svona fljótt aftur. Jeg hefi víst slegið met í dag“ — og trúnaðarmaður kjörstjórnar- innar var horfinn. Auðvitað komst kassinn til skila, en margir undrast hvernig kosningarnar fóru norður þar. Þegar jeg skilaði kveðju til Páls ísólfssonar, spurði hann: „Hvernig líður þeim þarna fyrir vestan? — Eru þeir ennþá að blása í Horn- ið?“ — Læt jeg því ósvarað hér, en vísa málinu til háttvirts þing- manns þeirra Norður-ísfirðinga, Sigurður Bjarnasonar frá Vigur. Drífa Yiðar skrifaði ferðasögu í léttum dúr sem birtist í Lesbók S. ágúst 1943. Leitið og þér munuð ekki finna Finna Hljóm- plotur Finnbogi Marinósson Classix Nouveaux. Secret. EMI/Fálkinn. Eitt af því sem ég fæ seint skilið er hvers vegna fyrsta plata Classix seldist í yfir 4000 eintök- um hérlendis. Einhverra hluta vegna hefur platan fallið land- anum vel í geð og fólk hlaupið til í hópum að tryggja sér eintak. Samt sem áður mættu ekki eins margir í Laugardalshöllina síð- astliðið sumar þegar Classix tróð þar upp sælla minninga. Kvöldstundin sú arna var hin mesta unun og kom Classix mér, sem öðrum, gífurlega á óvart, sem gæða-hljómsveit. í beinu framhaldi biðu margir spenntir eftir næstu plötu flokksins, sem að sögn hans var í deiglunni um þær mundir sem hljómsveitin var hér. Platan sú arna tafðist, svona rétt eins og verða vill og má rekja eina af ástæðunum beint til klakans og ferðarinnar hingað. Drengirnir duttu hér um listaverkabók um Erró og féllu flatir af hrifningu fyrir mynd- unum hans. Hjólin voru sett í gang því þeir vildu ólmir að verk Errós prýddi umslagið á kom- andi plötu. En eins og sjá má í dag gekk dæmið ekki upp og er það að „þakka" þvermóðskufólki sem frekar hugsaði um eigin pyngju en heill umbjóðanda síns. Nýja breiðskífa Classix Nouv- eaux heitir „Secret“ og á henni eru 9 lög. Til að byrja með átti ég varla orð yfir hversu léleg platan væri. A.m.k. hljómaði tónlistin þveröfugt við það sem ég hafði átt von á. Ég bjóst við góðri plötu af nýrómantík og tækni- poppi sem hvað helst er nú í tísku. Þannig kom hljómsveitin mér fyrir eyru í höllinni. „Never Never Comes" er létt, rólegt og því sem næst svífandi, alla vega laust í loftinu. „The Unloved" hefst á blönduðum áslætti sem er grunnur lagsins. Þetta fannst mér nú þunnur þrettándi. En ekki er öll sagan sögð. Það hlaut að leynast góður taktur einhvers staðar á plöt- unni. Þegar ég hlustaði frekar og með því hugarfari að hún væri á rólegri reininni breyttist afstað- an. Platan vann á og lög á borð við fyrrgreint „Never Never Comes" urðu furðugóð. Einnig heyrðist kröftugt rokk í takt við tímann og er „Forever And A Day“ gott dæmi um slíkt. Eitt atriði umfram annað skortir tilfinnanlega á „Secret“. Hver hljóðfæraleikari flokksins fær að njóta sín til fulls, nema gítarleikarinn. Sá finnski piltur sýndi í Höllinni að hann kann til verka, en á þessu afkvæmi Class- ix er honum ekki gefið færi á að sýna hæfileikana, á annars óvæntri plötu. Vonandi verður bætt úr þessu á þeirri næstu, þegar og ef hún kemur út. P.s. Geti einhver giskað á hver hannaði umslagið, þá á hann skilið að fá plötu David Bowie, „Scary Monsters" í verðlaun. FM/AM. Það er auðvelt að mála með HÖRPUSILKI Hörpusilki er málning sem viö höfum aölagaö sérstaklega íslenskum aöstæöum. Málning meö mikiö þensluþol, viðloöun og fyllingu. Málning, sem létt er aö mála meö og þekur vel. Hörpusilki er málning sem fagmennirnir sjálfir velja til aö vinna meö.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.