Morgunblaðið - 19.04.1984, Síða 14

Morgunblaðið - 19.04.1984, Síða 14
4r..rv (v vr<» í\qa > » ar; r» a .ar ,m»ir juttt* .nr?rt a rrn * 'i r-/>n 62 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1984 eftir SIGURÐ NORDAL í vor hjelt Sigurdur Nordal, pró- fessor, fyrirlestur þann er hjer birt- ist og sem hann nefnir „Málfrelsi". Fjallar hann um yfirburði íslensk- unnar, sjerstöðu hennar, og sjer- stöðu þeirrar þjóðar, er á ræktað menningarmál, sem er óskift eign allrar þjóðarinnar. Færir hann um leið rök að því, með dæmum frá nágrannaþjóðunum, að samheldni meðal þjóðar vorrar framvegis er undir engu fremur komin en því, að sama málmenning haldist meðal allra stjetta — að tungan haldist hrein. Fyrir rúmu ári var háð í dag- blöðum Reykjavíkur ritdeila, sem almenna athygli vakti. — Hún spanst út af erlendum orðum í máli sjómanna: hvort tækilegt væri eða jafnvel æskilegt að ís- lenska þau. En þegar bæjarbúar fóru að ræða málið sín á millum, bar fleira á góma. Þá var spjallað um upptöku erlendra orða í tung- una yfirleitt, hvers virði hreinleiki málsins væri, um nýyrðasmíð o.s.frv. í þessum umræðum virtist mjer meiri hlutinn vera á bandi þeirra, sem vörðu erlendu orðin og fanst íslenskan ekki vera of hvít til þess að taka við fáeinum slett- um af hinni miklu bifreið nútíðar- menningarinnar. Vandlætingin fyrir málsins hönd væri að miklu leyti hótfyndni lærðra manna, einkum málfræðinga, sem vildu „gera sig merkilega" og prakka óhæfum nýyrðum og úreltu torfi upp á almenning. Málfrelsið er flestum mikils virði. Og nú fanst mörgum manni það ekkert mál- frelsi, ef hann mætti ekki láta út úr sjer það, sem hann vildi, á því máli, sem honum þóknaðist. Jeg stóð hjá þessari deilu, þó að hún kæmi mjer dálítið við, enda var jeg á förum utan. En hún varð til þess, að jeg veitti skyldum deilumálum annarsstaðar á Norð- urlöndum meiri athygli en jeg annars hefði gert, og ýmsar hug- leiðingar spunnust út af því. Á nokkur atriði úr þeim ætla jeg að drepa hjer. I. Hverjir eru sjerstakir yflrburöir íslenskunnar Það kveður stundum við, að tungan, íslenskan, sje mesti kjör- gripur þessarar þjóðar. Að einu leyti má undir eins færa þetta til sanns vegar. Tungan greinir manninn, framar öllu öðru, frá skynlausum skepnum. Án hennar væri mannlegt sálarlíf og fjelags- líf óhugsandi. Einsætt er, að leggja beri rækt við slfkt höfuð- tæki menningarinnar, svo að sem bestum notum komi. En nú eru tslendingar ekki einir þjóða um slíka gersemi. Allar þjóðir eiga sjer móðurmál og allar leggja þær einhverja rækt við það, þótt með misjafnri alúð sje og ýmislegum hætti. Þetta sjónarmið sker því hvorki úr um ágæti íslenskunnar nje nein önnur vafamál. Ef lof ís- lenskunnar á að reynast annað en tómt orðagjálfur, verður að benda á einhverja sjerstaka kosti, sem hún hafi fram yfir aðrar tungur. Því má halda fram með rökum, að íslenskunni sje margt stórvel gefið. Hún er gagnorð og þrótt- mikil, ijós og skýr, svo að hún fell- ur vel að rökfastri hugsun. Mál- fræðin er torveld og mikil tamn- ing að læra hana. Orðaforðinn er geysimikill á sumum sviðum. Þá er hún og skemmra komin frá frumlindum sínum en flestar aðr- ar tungur. Orðin eru ekki jafnslit- ið gangsilfur og annars gerist, auðveldara að nema hugsun þá, er hefir mótað þau í öndverðu, og hún er oft furðu spakleg. Þetta og annað fleira, hljóðvörp, viðskeyti og samsetningar, veldur grósku í málinu. Á íslensku er kostur meiri ritsnildar en á flestum öðrum tungum, ný orð spretta upp af sjálfum sjer til þess að láta í ljós nýjar hugsanir, og virðast þó vera gömul. Þau hlaupa í skörðin, sem af einhverri tilviljun hafa staðið opin handa þeim. Engin furða er þó að menn unni slíku máli, þegar það auk þess er móðurmál þeirra, — verði hrifnir af hljómi þess og kyngi í fögrum kvæðum, dáist að fjörtökum þess f snjallri frásögu. En svo er um móðurmálið sem sumt annað, sem nákomnast er manni, að hverjum þykir slnn fugl fagur. Ef aðrar þjóðir færi að telja fram kosti sinna tungna, mætti fslenskan vara sig. Áuði hennar er undar- lega háttað. Hún er sniðin eftir frumstæðum og fábreyttum lífs- háttum. Hún á tugi orða um alls- konar hestaliti, ógrynni heita á veðrum og veðurfari, sjerstakt nafn á ýmsum tegundum á rófum (danska orðið hale er útlagt á ís- lensku: rófa, skott, hali, stertur, tagl, dindill, stjel, vjel, sporður). En hana skortir enn orð um fjölda af hlutum og hugtökum, sem miklu máli skifta í hugsun, vísind- um og menningu nútímans. ís- lendingar hafa lagt rækt við sína tungu með því að vera á verði gegn erlendum orðum. Englendingar og Danir aftur á móti með því að taka upp hvert útlent orð, sem tönn á festi. Ef vjer hrósum hreinleik vorrar tungu og þeim kostum, sem honum fylgja, munu þeir tefla öðru fram til jafnaðar. Á þessar tungur er auðvelt að rita um öll mannleg efni, og sá sem á þær að móðurmáli á þvf auðveld- ara með að læra aðrar tungur sem fleiri orð eru sameiginleg. Og miklu fleira mætti fram færa gegn fslenskunni f slíkum mála- jöfnuði, þótt hjer sje hvorki rúm nje ástæða til. Eitt má enn telja íslenskunni til gildis, þótt ekki sje það beinlínis kostur á málinu sjálfu. Aðalafrek þessarar þjóðar á síðari öldum er að hafa varðveitt órofið samheng- ið í tungu sinni og bókmenntum. Fyrir því eiga íslendingar beinan aðgang að miklu eldri bókmennt- um en nokkur önnur germönsk þjóð og hafa getað gert greiðari braut annara þjóða til skilnings á fornum r:tum og fornri hugsun. Á þessum grundvelli er reist menn- ing vor heima fyrir og álit vort út á við. Það má því kalla bæði metn- aðar mál og nytsemdar að geyma þessa samhengis áfram, en það verður ekki gert nema með þvf að halda málinu hreinu. Undir eins og vjer í málfari voru fjarlægj- umst fornöldina, bresta skilyrðin til þess að skilja hana. Vjer meg- um og muna, að tungan er oss hlutfallslega enn meira virði en öðrum þjóðum. — Þær eiga fornar byggingar, listaverk, rúnasteina og bautasteina, gripi hverskonar og mannvirki. ísland lítur út eins og nýlenda, sem bygð hefir verið ein 50 ár, og verkin mannanna bæði fá og þó af vanefnum ger. Tungan ein tengir oss við fortíð- ina. Hún er einasta fornleif vor, hennar list vor einasta þjóðlist. Að henni hefir þjóðin beint öllum sínum kröftum, enda orkað furðu miklu. Mörgum mun þó ekki finnast þessi kostur vega upp á móti þeim annmarka, að tunguna skilja ekki nema h.u.b. 120.000 manns. Þeir myndi fúsir vilja skifta á sálufje- lagi við hina dauðu, ef þeir fengi í staðinn sálufjelag við fleiri lifend- ur. Það er svo mikið píslarvætti fyrir þann, sem hljóta vill fje og frama fyrir verk sín, að eiga svo fárra lesenda von, að nær því ár- lega gerast framgjarnir íslenskir æskumenn til þess að reyna að nema sjer víðari lönd með því að rita bækur á erlendu máli. Þó er þeim það áreiðanlega ekki sárs- aukalaust, því að öll ritstörf eru móðurmáli höfundar samgróin, en allra helst skáldskapurinn. En af tveim kostum taka þeir þann, sem þeim þykir skárri. II. Eignarhald íslendinga og annara Norðurlandaþjóða á tungum sínum Málstreitan í Noregi og Finnlandi er stjettabarátta Samt erum vjer þarna á rjettri leið. Afburða tslenskunnar fram yfir aðrar tungur verður ekki leit- að í tungunni sjálfri (um slíkt má deila endalaust), heldur í sam- bandi þjóðar og tungu. íslenskan er eina mál, svo að jeg viti til, sem hefir það tvent til síns ágætis: að vera ræktað menningarmál og óskift eign allrar þjóðarinnar. Hjer á landi eru engar mállýskur, engin stjettamál, ekkert almúga- mál, ekkert skrílmál. Nærri má geta, að ekki hefir tungunni verið að fyrirhafnar- lausu komið í þetta horf nje haldið í því. Einstakur málsmekkur hefir þroskast hjer í fornöld, í skjóli bókmentalífsins og einkum hins bundna stíls, og aldrei horfið síð- an, þótt misjafnlega vakandi hafi verið. Bækur og numin kvæði hafa verið mælikvarði á mælt mál, er alþýðu var jafnan tiltækur. — Latmælin fengu ekki að vaða uppi. Menn skildu svo talshætti tung- unnar, að ambögulegri hugsun var illa vært. Þessi rækt almennings við málfar sitt hefir verið aðal- uppeldi ótaldra kynslóða. Af ís- lenskunni hafa þær lært það, sem þær kunnu í sálarfræði, rökfræði og fagurfræði. Vjer hugsum ekki um, hve vel vjer erum farnir í þessu efni, skilj- um það ekki nema með því að bera oss saman við aðrar þjóðir. Ekkert almúgamerki er óafmáanlegra en málfarið. Almúginn erlendis talar ekki einungis mállýsku, með öð- rum framburði, beygingum og orðavali en viðurkent er í ríkis- málinu, heldur fylgja mál- lýskunum einatt ýmsir málkækir: menn eru nefmæltir, skrækróma eða hásir, muldra og stama. Og þó að almúgamaður sje til menta settur og læri bókmálið ágætlega, á hann bágt með að losna nokk- urntíma við þessa kæki, ef hann hefir haldið þeim fram yfir ferm- ingu. Og þeir soramarka hann æf- ina á enda. Englendingur, sem hefir h framan við orð, þar sem það á ekki heima og sleppir því þar sem það á að vera (segir t.d. hall, appy í stað all, happy), verð- ur aldrei talinn gentleman. Ekkert frjálslyndi, engin skynsamleg hugsun um, að það sje rangt að láta mann gjalda svo uppeldis síns, getur kipt þessu í lag. Áðrar þjóðir eru í því efni jafnhótfyndn- ar og miskunnarlausar og íslend- ingar, þegar þeir dæma mann ómentaðan, ef hann kann ekki rjettritun. Enda verður því ekki neitað, að heilbrigð tilfinning býr undir þessu. Þegar játað er, að tungan sje höfuðtæki mannlegs þroska, er það meira en lítið hirðuleysi og skortur á sjálfsvirð- ingu að fara illa með þetta tæki. — Kristur sagði, að menn saurguðust meira á því, sem menn ljetu út úr sjer en því, sem menn ljetu ofan í sig. Rækt við tunguna er sjálfsagður liður í and- legu hreinlæti. Jeg skal nú drepa lítið eitt á, hvernig horfir fyrir frændþjóðum vorum á Norðurlöndum í þessum efnum. Af sex þjóðum á Norðurlöndum hafa tvær einar aldrei um langan aldur lotið erlendu valdi: Svíar og Danir. Allar hinar hafa verið ósjálfstæðar öldum saman. Allar bera þær þess merki á máli sínu, nema íslendingar. Færeyskan á enn í vök að verjast fyrir ríkismál- inu, dönskunni. Norðmenn og Finnar hafa hvor- ir tveggja sömu söguna að segja. Mál drottinþjóðanna, danska og sænska, urðu um langt skeið ríkj- andi í landinu. Þau urðu menta- mál, dómsmál, kirkjumál, móður- mál embættismanna og heldri manna, mál höfuðstaðar og helstu bæja. Öll menning landsins varð bundin við þessi erlendu mál, sem almenningur lærði trauðla að skilja og alls ekki að tala. Báðar hafa þjóðir þessar á 19. öld hafið sókn til þess að koma móðurmálum sínum til vegs og valda, gera þau að ríkismálum. I Finnlandi er sigur finnskunnar vís. Sænskumælandi menn eru nú ekki nema h.u.b. */io hluti lands- búa. í Noregi er baráttan enn svo hörð, að ekki má í milli sjá, hvorir sigra muni. Helst útlit fyrir, að hvorki landsmáli nje ríkismáli verði fullnaðarsigurs auðið. En þar er bót í máli, að þessi tvö mál eru svo náskyld, að ekki er loku fyrir skotið, að þau geti á endan- um runnið saman og myndað eina tungu. Það er ekkert smáræði, sem

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.