Morgunblaðið - 06.05.1984, Side 1
96 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
102. tbi. 71. árg._____________________________________SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984__________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þrír á gangi í góða veðrinu að undanförnu
Beitir sovézki herinn
eiturgasi í Afganistan?
lnlamihiH 5 maí Al*
Islamahad. 5. maí. AP.
SOVESKAR hersveitir halda áfram sókn sinni gegn afgönsk-
um skæruliöum, sem eiga undir högg að sækja fyrir stöðug-
um loft- og stórskotaliðsárásum. í Kabúl er altalaö, að Sovét-
menn hafi beitt eiturgasi gegn skæruliðunum. Skæruliðar
segjast þó aldrei munu gefast upp og ætla að auka hernaöinn
annars staðar ef Panjsher-dalur fellur.
Talsmenn afganskra frelsis-
hreyfinga draga enga dul á, að
skæruliðar hafi hörfað fyrir
sókn tugþúsunda sovéskra her-
manna og afganskra stjórnar-
hermanna en leggja um leið
áherslu á, að baráttan hafi verið
og muni verða aukin annars
staðar í landinu. Segjast þeir
t.d. hafa setið fyrir sovéskum
Kosningar í
E1 Salvador
San Salvador, 5. maí. AP.
SkæruliAar vinstrimanna í El
Salvador kváðust hafa komið jarð-
sprengjum fyrir á þjóðvegum lands-
ins og hvöttu landsmenn til að halda
sig fjarri vegunum á morgun, er kos-
inn verður forseti landsins.
Yfirmaður í her landsins segir
að ekki sé búist við að skæruliðar
láti til skarar skríða á kosninga-
daginn, og kvað hann ekki hafa
orðið vart við skæruliða meðfram
þjóðvegunum að undanförnu, né
væru nein merki um að jarð-
sprengjum hefði verið fyrir komið.
Búist er við að Jose Napoleon
Duarte sigri öfgasinnan Roberto
D’Aubuisson í kosningunum, en
verði raunin sú eru meiri líkur
taldar á að hernaðaraðstoð Reag-
an-stjórnarinnar verði samþykkt
á Bandaríkjaþingi.
herflutningalestum í Norður-
Afganistan og unnið Sovét-
mönnum gífurlegt tjón. Þeir
benda líka á, að þótt Sovétmenn
nái Panjsher-dal á sitt vald
muni þeir aldrei geta haldið
honum til lengdar nema með
gífurlegum liðsstyrk og mann-
fórnum.
Vestrænir sendimenn í Kabúl
segja, að altalað sé í höfuðborg-
inni, að Sovétmenn noti eiturgas
í striði sínu gegn skæruliðum.
Ekki hefur enn verið unnt að
staðfesta þessar fréttir, en
sendimenn í borginni segja orð-
róminn svo sterkan, að undar-
legt sé ef ekki er fótur fyrir hon-
um.
Afganskir skæruliðar felldu í
þessari viku 17 frammámenn í
afganska kommúnistaflokknuni
og eru þær fréttir hafðar eftir
ónefndum embættismanni
stjórnarinnar. Síðasta misserið
hafa 304 félagar í kommúnista-
flokknum verið felldir víða um
landið og 447 menn úr sérstök-
um lögreglusveitum flokksins.
Meðal þeirra, sem skæruliðar
felldu í vikunni, var Ras Mo-
hammad, aðalritari flokksins í
Kabúl, en hann var talinn hafa
skipulagt pyntingar á skæru-
liðum, sem féllu í hendur lög-
reglu kommúnista.
Sovézkir skriðdrekar á ferð í Afganistan, þar sem Rússar eru enn á ný
sakaðir um að hafa gripið til eiturvopna í útistöðum við frelsissveitir Afgana.
Berri ekki
bifað og
bardagar
blossa upp
Beirúl, 5. maí. Al*.
Miklir bar-
dagar stóðu
yfir í Beirút í
nótt og í
morgun á
sama tíma og
samningavið-
ræður um
aðild shíta að
þjóöstjórn-
inni komust
í sjálfheldu.
Sveitir kristinna manna og
múhameðstrúarmanna skipt-
ust á skotum og sprengjuvarpi
yfir grænu línuna er deilir
Beirút. Einnig var barizt í suð-
urúthverfum borgarinnar, þar
sem sló í brýnu milli stjórn-
arhermanna og shíta.
Meðan bardagar stóðu sem
hæst í nótt sigldi óþekktur
varðbátur að Líbanonströnd
við Khalde, útborg suður af
Beirút, og skaut á skotmörk í
landi. Sveitir shíta og drúsa á
strandlengjunni við Khalde
svöruðu árásinni, og hvarf
skipið að vörmu spori.
í morgun hafði enn ekki tek-
izt að miðla málum vegna skil-
yrða, sem leiðtogi shíta, Nabih
Berri, hefur sett fyrir aðild
sinni að 10 manna þjóðstjórn
Líbanon. Berri krefst myndun-
ar tveggja ráðherraembætta
til viðbótar, annað er fari með
málefni suðurhluta Libanon,
og hitt er stjórni uppbyggingu
suðurhverfa Beirút, þar sem
shítar eru fjölmennir.
Walid Jumblatt, leiðtogi
drúsa, hefur tekið undir mál-
stað Berri og neitað að taka
sæti í stjórninni fyrr en geng-
ið hefur verið að kröfum Berri.
Færeyingum líkar
staðgreiðslukerfið
horshofn, 5. maí. Krá Jogvan Arge, fréUaritara
í FÆREYJUM hefur staðgreiðslu-
kerfi skatta verið vió lýði í einn
mánuð og er ekki annað aó sjá en
öllum líki þaó hið besta, a.m.k.
enn sem komið er.
Langt er um liðið síðan farið
var að ræða um staðgreiðslu-
kerfi skatta í Færeyjum en það
var fyrst fyrir rúmum þremur
árum, að stjórnmálamennirnir
tóku á sig rögg enda var þá
margra ára samansafn af
ógreiddum sköttum orðið veru-
legt vandamál og fór vaxandi.
Mbl.
Landsstjórnin í Færeyjum, sem
Sambandsflokkurinn, Fólka-
flokkurinn og Sjálvstýriflokkur-
inn standa að, ákvað þá að koma
þessu í framkvæmd og frammá-
menn í flokkunum hafa sagt, að
ef ekki væri fyrir þetta sameig-
inlega áhugamál þeirra hefði
stjórnarsamstarfið farið út um
þúfur fyrir löngu. Staðgreiðslu-
kerfið er að sjálfsögðu miklu
hagkvæmara fyrir yfirvöldin,
sem nú fá skattpeninginn áður
en launþeginn fær launin sín.
Staðgreiðslukerfið í Færeyj-
um er þannig, að engin hætta á
að vera á, að almennir launþegar
fái bakreikninga svo neinu nemi
frá gjaldheimtunni. Hvað fyrir-
tæki varðar er sá háttur hafður
á, að þaU greiða sinn skatt einu
sinni í mánuði eins og flestir
launþegar og geta farið fram á
hærri skattgreiðslu ef þau telja
hagnaðinn meiri en svarar til
skattsins. Að öðrum kosti eru
reikningarnir gerðir upp eftir
áramót.