Morgunblaðið - 06.05.1984, Blaðsíða 2
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
Qlafur G. Einarsson um mjólkurdrykkjafrumvörpin:
Látum Framsókn
ekki setja okk-
ur upp að vegg
„ÞAÐ ERU alveg hreinar línur, ad sjálfstæðismenn láta ekki setja sig upp að
vegg til að samþvkkja frumvörp framsóknarmanna um kakómjólk, Mangó-
sopa og Jóga“, sagði Ólafur G. Einarsson formaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins m. a. á fundi Sjálfstæðisfélags Seltjarnarness sl. fimmtudagskvöld,
en hann var þar aðalræðumaður ásamt Friðriki Sophussyni varaformanni
flokksins.
Ólafur fjallaði í ræðu sinni um
þau helstu mál, sem ráðherrar
ríkisstjórnarinnar væru með í
vinnslu og nefndi þar áðurnefnd
frumvörp um vörugjalds- og sölu-
skattsfríðindi á umræddum
mjólkurdrykkjum sem nokkurs
konar hliðargrein landbúnaðar-
mála.
Seyðisfjörður:
Ottó Wathne
með 90 lestir
Aflinn fékkst að mestu á tveimur sólarhringum
Seyðisnrði 4. maí.
OTIÓ Wathne NS 90 kom hingað í
morgun með um 90 lestir af fiski, mest
ufsa, en einnig ýsu og þorsk. Aflann
fékk Ottó að mestu á tveimur sólar-
hringum á nýopnuðu svæði út á Skaft-
árdýpi.
Að sögn skipstjórans í þessari
veiðiferð, Trausta Magnússonar, var
mikill fiskur á þessu svæði og mörg
skip þar að veiðum, en Ottó Wathne
er á togveiðum og landaði afla sínum
hjá Norðursíld.
Togarar héðan hafa aflað vel að
undanförnu og er aflinn að mestu
leyti karfi. Vegna þessa hefur verið
unnið á vöktum við flökun og af-
hreistingu í frystihúsinu að undan-
förnu og eru báðir togararnir vænt-
anlegir inn í næstu viku. Gullver var
kominn með 1.247 lestir um síðustu
mánaðamót og Gullberg 697 báðir í 9
veiðiferðum. Því er meðaltalsafli
Gullvers í veiðiferð 138,5 lestir en
Gullbergs 77,5. — Fréttaritari
Opið hús hjá Heklu
OFIÐ HÚS verður hjá Heklu hf. Laugavegi 170 til 172 í dag í tilefni 50 ára
afmælis fyrirtækisins. Opið verður frá klukkan 10.00 til 17.00 og eru allir
velkomnir. í gær var einnig opið hús hjá fyrirtækinu og komu þá fjölmargir
gestir í heimsókn. Meðfylgjandi mynd var tekin þar í gærmorgun.
Ýmislegt verður gestum til skemmtunar; tekið verður á móti gestum
með hornablæstri á ákveðnum tímum, sýndur verður brake-dans, Steini
og OIli koma f heimsókn, myndbandasýningar með barnaefni, lögreglu-
kórinn syngur, kynntar verðar matvörur frá SS og gosdrykkir frá
Coca-Cola og verðlaunagetraun, sem opin verður öllum. Auk þessa
verður gestum boðið að skoða fyrirtækið og sýnishorn af vörum þess og
þjónustu og sýndir verða nokkrir gamlir „gripir", svo sem Volkswagen
’48, Land Rover '48 og Hudson frá ’47.
Málalisti stjómarflokkanna:
MorgunblaðiÖ/RAX.
Herra og ungfrú Útsýn
Úrslitin í keppninni um Herra og Ungfrú Útsýn 1984 voru kunngerð í
Broadway í fyrrakvöld, á Vorblóti Útsýnar. Þau sem valin voru til þess að
bera þessa titla þetta ár eru þau Dagný Davíðsdóttir, 17 ára Reykjavík-
urmær, og ívar Hauksson, réttra 19 ára Reykvíkingur einnig. Þau eru
bæði nemar og munu þetta ár koma fram á vegum ferðaskrifstofunnar
Útsýnar hérlendis og crlendLs. Ámyndinnieru sigurvegararnir ásamtfor-
stjóra Útsýnar, Ingólfi Guðbrandssyni.
Breytingar á Rás 2:
Útvarpað
eitt kvöld
í viku og
um helgar?
ÚTVARPSRÁÐ mun á fundi sín-
um á morgun m.a. fjalla um hugs-
anlega lengingu útscndingartíma
Rásar 2. Samkvæmt hcimildum
Morgunblaðsins eru uppi hug-
myndir um að hefja útsendingar á
fimmtudagskvöldum svo og á
laugardögum eða sunnudögum.
Hefur útvarpsstjóri Rásar 2, Þor-
geir Ástvaldsson, sérstaklega
óskað eftir þessum breytingum.
Fram til þessa hafa útsend-
ingar Rásar 2 hafist kl. 10 á
morgnana alla virka daga og
staðið fram til kl. 18. Á milli kl.
12 og 14 hafa Rás 2 og Ríkisút-
varpið við Skúlagötu verið tengd
saman, þannig að hlustendur
Rásar 2 hafa náð að heyra hið
hefðbundna hádegisútvarp án
þess að breyta stillingum á við-
tækjum sínum.
Samkvæmt heimildum Mbl.
hefur rekstur Rásar 2 hefur
gengið vel undanfarna tvo mán-
uði eftir erfitt tímabil í upphafi
árs. Hafa auglýsingar aukist
jafnt og þétt frá áramótum og
mun fjárhagsstaðan nú bærileg.
Átök í Blikksmiðafélaginu:
Samninganeftidin
svipt umboðinu
þegar hún óskaði eftir verkfallsheimild
Trúnaðarmannaráð Blikksmiðafé-
lags íslands samþykkti á fundi sín-
um sl. miðvikudag að svipta samn-
inganefnd félagsins umboði sínu.
Samningaumleitanir nefndarinnar
sl. mánuð höfðu ekki borið árangur
og hafði hún óskað eftir fundi í trún-
aðarmannaráðinu til að fara fram á
verkfallsheimild. Stjórn félagsins
ákvað þá að leggja til við trúnaðar-
mennina að þeir tækju umboðið af
nefndinni og var við því orðið mót-
atkvæðalaust, skv. upplýsingum
Kristjáns Ottóssonar, formanns fé-
lagsins.
Blikksmiðir höfðu tvisvar fellt
gerða samninga og var fráfarandi
samninganefnd kosin á félags-
fundi fyrir réttum mánuði eftir að
samningarnir höfðu verið felldir
öðru sinni. Nefndin taldi sig vera
komin að vegg í viðræðum við at-
vinnurekendur og að aðstoðar
óbreyttra félagsmanna væri þörf
til að knýja á um betri samninga.
Þess má geta, að víða mun þó
greitt kaup samkvæmt samn-
ingum sem tókust, en felldir voru í
félaginu.
Mikil ólga er nú innan félagsins
en Aðalfundur þess verður hald-
inn n.k. miðvikudag og er búist við
að hópur félaga muni bjóða fram
nýtt formannsefni, en Kristján
Ottósson hefur gegnt embættinu í
tólf ár. Formaður fráfarandi
samninganefndar, Friðbjörn
Steinsson, sagði 1 samtali við
blaðamann Mbl. nýlega, að for-
maðurinn væri m.a. „fjarskyldur"
öðrum félögum í kjaramálum og
að býsna stór hópur myndi standa
að nýja formannsefninu. Virkir
félagar í Blikksmiðafélagi íslands
eru um 130..
Kosningalagabreyting
efst á blaði forsætisráðherra
Á lista yfir þingmál, sem vilji
stjórnarflokka stendur til að fái
afgreiðslu fyrir þinglausnir, auk
frumvarps um aðgerðir til að rétta
af ríkissjóð, eru m.a.: frumvarp til
stjórnarskrárbreytingar og frum-
varp um kosningalög (forsætis-
ráðherra); frumvarp um ábyrgð á
láni fyrir Arnarflug (fjármálaráð-
herra); frumvörp um hollu3tu-
hætti og heilbrigðiseftirlit (heil-
brigðisráðherra); frumvarp um
fjarskipti (samgönguráðherra);
frumvörp um sölu Siglósíldar og
sölu hlutabréfa I Iðnaðarbanka
(iðnaðarráðherra); frumvarp að
útvarpslögum (menntamálaráð-
herra); frumvarp um ríkismat
sjávarafurða (sjávarútvegsráð-
herra); frumvarp um veitingu
ríkisborgararéttar til 67 einstakl-
inga (dómsmálaráðherra); frum-
vörp um Húsnæðisstofnun ríkisins
og erfðafjárskatt (félagsmálaráð-
herra) og frumvarp um skógrækt
(landbúnaðarráðherra).
Úr starfi í leik
Sýning á frístundaverkum byggingar- og iðnaðarmanna
í GÆR VAR Opnuð í Listasafni ASÍ sýning á frístundaverkum félaga í
Sambandi byggingarmanna og Málm- og skipasmíðasambandi íslands.
Þátttakendur á sýningunni eru 23 og sýna þeir 102 verk, olíumál-
verk, vatnslitamyndir, höggmyndir, tréskurðarmyndir o.fl. Þeir
sem sýna eru: Árni Sverrisson, Ásgeir Einarsson, Birgir A. Egg-
ertsson, Björgvin Frederiksen, Einar Magnússon, Georg Vil-
hjálmsson, Guðmundur Bergmann, Guðmundur Guðmundsson,
Guðmundur Kristinsson, Halldór S. Björnsson, Helgi Gunnlaugs-
son, Jens Jóensen, Jón Magnússon, Konráð Guðmundsson, Magnús
Finnbogason, Páll Jónsson, Ríkarður Ingibergsson, Sigurður K.
Árnason, Sigurður Jónsson, Tryggvi Benediktsson, Þórir Oddsson,
Þorkell Sigurðsson og Þröstur Magnússon.
Sýningin verður opin kl. 14—20 virka daga nema mánudaga og
um helgar kl. 14—22. Sýningin stendur til 27. maí.