Morgunblaðið - 06.05.1984, Síða 5

Morgunblaðið - 06.05.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984 5 Sjónvarp annað kvöld kl. 21.40: Kusk á hvítflibbann — íslenskt mánudagsleikrit! „Kusk á hvítflibbann**, leikrif Davíds Oddssonar, veróur endur Dutt í sjónvarpinu annað kvöld kl. 21.40. Þetta verk var frumflutt á jól- um árið 1981 en hefur auk þess verið sýnt í öllum sjónvarpsstöðv- um á Norðurlöndum. Leikstjóri er Andrés Indriðason en með helstu hlutverk fara: Árni Ibsen, Elva Gísladóttir, Jón Sigurbjömsson, Sigurður Sigurjónsson, Ragnheið- ur Elva Arnardóttir, Þóra Frið- riksdóttir, Róbert Arnfinnsson, Steindór Hjörleifsson og Borgar Garðarsson. ferðin" eftir eigin handriti og leik- riti sínu „Aldrei er friður" hjá Kópavogsleikhúsinu. Árni Ibsen í hlutverki Eiríks á skrif- stofu sinni í samkvæmi sem hann efndi til þar með fólki sem hann hitti fyrir á veitingahúsi. Á myndinni má ennfremur sjá Lilju Guðrúnu Þorvaldsdóttur, Ragnheiði E. Arnar- dóttur og Sigurð Sigurjónsson í hlut- verkum sínum. í leikritinu greinir frá ungum manni, Eiríki, sem hittir fyrir fólk á veitingahúsi og býður þeim með sér á skrifstofu sína um nóttina. Þetta boð á eftir að draga dilk á eftir sér. Ávísunum er stolið og hassmola er laumað í vasa manns- ins án vitundar hans. Maðurinn segir konu sinni ekki frá þessu næturævintýri sínu daginn eftir, heldur skáldar sögu af ferðum sín- um, sem hún tekur trúanlega. Vandræðin byrja þegar hún sendir jakka mannsins í hreinsun. Hassið kemur upp á yfirborðið og rannsóknarlögreglunni er gert viðvart. Maðurinn er yfirheyrður og einnig kona hans en vegna þess, meðal annars, að framburður þeirra er ósamhljóða, koma upp grunsemdir um fíkniefnamisferli og maðurinn er úrskurðaður í gæsluvarðhald. Inn í þennan þráð fléttar höf- undur frásögn af viðbrögðum ætt- ingja og fjölmiðla, sem sjá hér góðan fréttamat. Þótt djúp alvara sé undir niðri í verkinu er gam- ansemi víða ríkjandi á yfirborð- inu. Davíð Oddsson hefur auk þessa verks skrifað leikritið „Róbert Elí- asson kemur heim frá útlöndum" fyrir sjónvarp og ennfremur verk fyrir leiksvið. „Kusk á hvítflibbann" var fyrsta leikstjórnarverkefni And- résar Indriðasonar hjá sjónvarp- inu, en auk þessa verks hefur hann leikstýrt kvikmyndinni „Veiði- Frami, félag leigu- bifreiðastjóra á höfudborgarsvæðinu: Telur samning Bæjarleiða og ríkisspítal- anna ólöglegan FKAMI, félag leigobifreiðastjóra í Reykjavík, Kópavogi og á Seltjarn- arnesi, samþykkti á fundi sínum í gær tillögu, þar sem harmaður var samningur Kæjarleiða og ríkisspít- anna um akstur Bæjarleiða fyrir spítalana. Ennfremur var stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins falið að tilkynna Innkaupastofnun ríkis- ins fyrir hönd spítalanna, að samn- ingur sem þessi væri ólöglegur og reyna að ná sáttum í málinu. Úlfur Markússon, formaður Frama, sagði í samtali við Morg- unblaðið, að í þessum samningi væri um 21% undirboð á taxta leigubifreiðastjóra að ræða og hefði þessi fundur, einn fjöl- mennasti í sögu félagsins, ein- róma harmað þessi vinnubrögð. Báðum aðilum málsins hefði ver- ið kunnugt um, að samningagerð sem þessi og undirboð væri ólög- leg, en þrátt fyrir það hefði samningurinn verið gerður. Með þessu virtust ríkisspítalarnir vísvitandi vera að brjóta niður stétt leigubifreiðastjóra. Félagið sætti sig ekki við svona óábyrg vinnubrögð en úr því sem komið væri vildu forráðamenn þess ræða máiið af viti og skynsemi og reyna að ná sáttum í því. Nokkur ord um Ítalíu, Rimini, sumarið, sólina og pig I'" talía býður þér upp á marga góða sumardvalarstaði en fáa jafn fullkomna og Rimini, hina fornu borg við Adríahafið. Hér gengur þú að öllu vísu; sól og ylvolgum sjó, aðgrunnri og breiðri strönd, glaðværu mannlífi, frábærum veitingastöðum og vandaðri gistiaðstöðu. Þú finnur fljótlega að margt er betra en þú átt að venjast annars staðar, sumt miklu betra. Áþreifanlegastur er munurinn á leikaðstöðunni fyrir börnin, þar sem barnafararstjórinn er í broddi fylkingar. Góð staðsetning Rimini gagnvart mörgum stórbrotnustu stöðum Evrópu - Feneyjum, Flórens, Róm - veitir þér að auki möguleika á skoðunarferðum sem gera Riminiferð að öðruogmeira en venjulegri sólarferð. Við minnum þig á að heppni hefur lítið með sólarlandaferðir að gera. Góður áfangastaður og gott skipulag skiptir þar sköpum. Ef þú hins vegar dregur úr hömlu að panta Riminiferð sumarsins gætir þú orðið of seinn - og það væri Ijóta óheppnin! ~ r'■- A j v ■“»' • I «*SB» Adríatic Riviera of Emilia - Romagna ( Italy ) Rimini Riccione Cattolica Cesenatico Gatteo a Mare San Mauro a Mare Misarto Adriatico Lidi di Comacchio Savignano a Mare Bellaria - Igea Marína Cervia - Milano Marittima Ravenna e le Sue Maríne Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.