Morgunblaðið - 06.05.1984, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAl 1984
22
I
Jæstkomandi föst
ty. Við það tækifa
iálfar úr sínum h
velja ljósmyndarar L
Vinsælustu stúlkun
geta greitt atkvæði þeim stúlkum, sem þeir vildu h
og Fegurðardrottningu Reykjavíkur 1984. Dþmnefn
wapfájgar fpgWrðardrpttningarp^y^rða valdar og.
drottningu Islandn
þa k væmtHjí
a th öfn unfaðra M
um dýrðir. Nu
verður
mikið
Jóhanna
Sveinjóns-
/ dóttir:
Ætla utan og
læra snyrtingu
JÓHANNA Sveinjónsdóttir er 19 ára, fædd 20. febrúar 1965. Hún
starfar á Landspitalanum og er um það bil að taka þar við ritarastarfi.
Áður hefur hún unnið verslunarstörf. Hún er fædd og uppalin í
Reykjavík og hefur verið í Módelsamtökunum síðustu 2—3 mánuði.
„Mér finnst það mjög gaman," sagði hún. „Það er eiginlega aðaláhuga-
málið núna — fyrir utan skfðaíþróttina. Góð? Ja, ég hef verið mikið á
skíðum síðan ég var níu ára, svo ég ætti að geta eitthvað!" Henni þykir
gaman að taka þátt i fegurðarsamkeppninni — „það er gaman að
kynnast þessu öllu, nýju fólki og nýjum viðhorfum, spenningnum og
öllu þvi. I framtíðinni ætla ég að fara utan og læra snyrtingu."
Heiðdís
Jónsdóttir:
Hlakka til og
kvíöi fyrir
„MÉR líst vel á þetta allt saman. Ég hef ekki gert neitt þessu likt áður,
svo ég hlakka heilmikið til — en kvíði jafnframt fyrir," sagði Heiðdis
Jónsdóttir, 20 ára Akureyringur. Hún varð tvítug í nýliðinni viku,
fæddist 3. maí 1964 og ólst að mestu upp í sveit skammt frá fæð-
ingarbæ sínum. Heiðdís stundar nú nám í fyrsta áfanga verslunar-
deildar Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hún gerði áður nokkurt hlé á
skólagöngunni og vann á meðan á sjúkrahúsinu á Akureyri og í gler-
verksmiðju. Hún hefur stundað sýningarstörf á Akureyri um tveggja
ára skeið og stundar bæði líkamsrækt og sund. >
----------------------------------------------------------1,