Morgunblaðið - 06.05.1984, Side 23

Morgunblaðið - 06.05.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984 23 Herdís Óskarsdóttir: Mest gaman að sögu, eðlisfræði og líffræði HERDÍS Óskarsdóttir er fædd í Reykjavík 27. júlí 1963 og starfar sem ritari í meginlandsdeild Eimskipafélags íslands. Hún lauk í fyrra stúdentsprófi frá MR („Hvað annað?“) og hóf sl. haust nám í lyfjafræði við Háskóla íslands en hætti og ætlar í viðskiptafræði á hausti komanda. „Ég á mér ótal mörg áhugamál, er opin fyrir öllu,“ sagði hún. „Mér finnst til dæmis mjög gaman að læra — sérstaklega sögu, eðlisfræði og líffræði. Svo held ég að það geti orðið gaman að hafa tekið þátt í þessari keppni. Ég hef verið í Módelsamtökunum í fjögur og hálft ár, hef sinnt því með skólanum af og til.“ Berglind Johansen: AUt verið mjög jákvætt og indælt „ÞETTA leggst mjög vel í mig — þetta hefur allt verið svo jákvætt og stelpurnar yndælar. Þó held ég að ég gæti orðið svolítið stressuð þegar nær dregur," sagði Berglind Johansen, tæpra 18 ára Verslunarskóla- nemi. Hún er fædd 14. maí 1966 og verður því nýlega orðin 18 ára þegar krýningin fer fram. Hún lýkur verslunarprófi frá Verslunarskóla Is- lands í vor og ætlar að halda áfram námi, a.m.k. tvo næstu vetur, og ljúka stúdentsprófi vorið 1986. „Ég er í miðjum prófum og hef alveg nóg að gera. Hvernig gengur? 0, svona upp og niður.“ Berglind er áhugasöm um heilsusamlegt líferni — stundar vaxtarrækt og er í sýningarflokki Dansstúdíós Sóleyjar. Guðlaug Stella Brynjólfsdóttir: Gæti gefið möguleika á að ferðast um heiminn GUÐLAUG Stella Brynjólfsdóttir varð 18 ára um síðustu helgi, fædd 28. apríl 1966. Hún útskrifast úr verslunardeild Verslunarskóla íslands að morgni krýningardagsins 18. maí og ætlar að halda áfram næstu vetur og ljúka a.m.k. stúdentsprófi. „Hvað gerist eftir það er ég ekki farin að hugsa um ennþá," sagði hún. Guðlaug Stella er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún hefur undanfarin tvö ár verið starfandi í Módelsamtökunum og hefur gaman af — „ekki síst fyrir þá sök, að þetta er eina áhugamálið, sem eitthvað er borgað fyrir! Svo þykir mér gaman að fara á skíði." Um fegurðarsamkeppnina sagði hún: „Þetta leggst æðislega vel í mig og ég er mjög spennt. Það er gaman að taka þátt í þessu — ég hef engu að tapa. Þetta gæti gefið góða möguleika á að ferðast um heiminn."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.