Morgunblaðið - 06.05.1984, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
23
Herdís
Óskarsdóttir:
Mest gaman að sögu,
eðlisfræði og líffræði
HERDÍS Óskarsdóttir er fædd í Reykjavík 27. júlí 1963 og starfar
sem ritari í meginlandsdeild Eimskipafélags íslands. Hún lauk í
fyrra stúdentsprófi frá MR („Hvað annað?“) og hóf sl. haust nám í
lyfjafræði við Háskóla íslands en hætti og ætlar í viðskiptafræði á
hausti komanda. „Ég á mér ótal mörg áhugamál, er opin fyrir öllu,“
sagði hún. „Mér finnst til dæmis mjög gaman að læra — sérstaklega
sögu, eðlisfræði og líffræði. Svo held ég að það geti orðið gaman að
hafa tekið þátt í þessari keppni. Ég hef verið í Módelsamtökunum í
fjögur og hálft ár, hef sinnt því með skólanum af og til.“
Berglind
Johansen:
AUt verið mjög
jákvætt og indælt
„ÞETTA leggst mjög vel í mig — þetta hefur allt verið svo jákvætt og
stelpurnar yndælar. Þó held ég að ég gæti orðið svolítið stressuð þegar
nær dregur," sagði Berglind Johansen, tæpra 18 ára Verslunarskóla-
nemi. Hún er fædd 14. maí 1966 og verður því nýlega orðin 18 ára þegar
krýningin fer fram. Hún lýkur verslunarprófi frá Verslunarskóla Is-
lands í vor og ætlar að halda áfram námi, a.m.k. tvo næstu vetur, og
ljúka stúdentsprófi vorið 1986. „Ég er í miðjum prófum og hef alveg nóg
að gera. Hvernig gengur? 0, svona upp og niður.“ Berglind er áhugasöm
um heilsusamlegt líferni — stundar vaxtarrækt og er í sýningarflokki
Dansstúdíós Sóleyjar.
Guðlaug
Stella
Brynjólfsdóttir:
Gæti gefið möguleika á
að ferðast um heiminn
GUÐLAUG Stella Brynjólfsdóttir varð 18 ára um síðustu helgi, fædd 28.
apríl 1966. Hún útskrifast úr verslunardeild Verslunarskóla íslands að
morgni krýningardagsins 18. maí og ætlar að halda áfram næstu vetur og
ljúka a.m.k. stúdentsprófi. „Hvað gerist eftir það er ég ekki farin að hugsa
um ennþá," sagði hún. Guðlaug Stella er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún
hefur undanfarin tvö ár verið starfandi í Módelsamtökunum og hefur
gaman af — „ekki síst fyrir þá sök, að þetta er eina áhugamálið, sem
eitthvað er borgað fyrir! Svo þykir mér gaman að fara á skíði." Um
fegurðarsamkeppnina sagði hún: „Þetta leggst æðislega vel í mig og ég er
mjög spennt. Það er gaman að taka þátt í þessu — ég hef engu að tapa.
Þetta gæti gefið góða möguleika á að ferðast um heiminn."