Morgunblaðið - 06.05.1984, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
i
35
Þessi ungi verkamaður í Vinnslustöðinni er
tveir metrar á hæð, en eins og sjá má hefur
lúðan ríflega vinninginn, enda 2,30 metrar á
lengd.
Vestmannaeyjar:
Verkstjórinn f Vinnslustöðinni, Viðar Elíasson,
og Þór Vilhjálmsson með lúðuna miklu.
Svo stór var lúðan að fískikar af stærstu gerð
dugði hvergi undir hana.
Morgu n blaöiö/Sitfu iyei r.
Stórlúða í þorskanetin
MIKIÐ ER AF lúðu við Vestmannaeyjar um þessar mundir og er hún lúðu, aðgerða, í netin. Hún var 2,30 metrar að lengd, 1,50 á breidd og um
mjög stór. Það er hins vegar óalgengt að stórlúða veiðist í þorskanet eins 30 sentimetrar á þvkkt. Líklegt má telja, að lúðan hafí vegið um 400 pund
og gerðist á dögunum, en þá fékk Þórunn Sveinsdóttir VE 360 punda er hún kom á dekkið á Þórunni og ekki hafði verið gert að henni.
Útköllin 148
í ÞEIM kafla úr skýrslu utanrík-
isráðherra sem birt var hér í blað-
inu í gær varð sú prentvilla að
sagt var að útköll á orrustuþotum
varnarliðsins hafi 1975 og 1976
verið alls 140, en í skýrslunni segir
að þau hafi verið 148. Viðkomandi
setningar eiga því að vera þannig:
„Útköll á orrustuþotum varnar-
liðsins hafa aukist verulega á síð-
ustu árum. Árin 1975 og 1976 voru
útköll alls 148 en 1982 og 1983
samtals 290, hafa tæplega tvöfald-
ast á 7 ára tímabili."
Sumarbúðir
í Aðaldal
NÚ ER HAFIN innritun í Sumarbúð-
ir ÆSK við Vestmannsvatn í Aðaldal
í S-Þing. ( sumar verða 6 fíokkar í
júní og júlí fyrir börn og er hægt að
dvelja í 7, 8, 9 eða 14 daga. Þessir
fíokkar eru 7.—16. júní, 19.—26.
júní, 26.-3. júlí, 5.—13. júlí, 16,—23.
júlí og 23.—30. júlí.
Eins og undanfarin ár verða 2
flokkar fyrir aldraða 2.-9. ágúst
og 10.—17. ágúst, en þessir flokkar
hafa notið mikilla vinsælda.
20.—24. ágúst verður sfðan stutt-
ur flokkur fyrir unglingana, rétt
áður en skólar hefjast.
Innritað er á skrifstofu Æsku-
lýðsstarfs kirkjunnar Kaupangi,
Ákureyri, milli kl. 13 og 16 hvern
virkan dag. Þar eru og veittar allar
nánari upplýsingar.
(Fréttatilkynning.)
Ljósm. GBerg
134 metra langt rússneskt birgðaskip kom með 500 tonn af rækju til K. Jónsson-
ar.
Niðursuðuverksm. K. Jónssonar:
Kaupir 500 tonn af
rækju frá Rússum
Akurovri, 16. apríl.
„VIÐ ATTUM ekki að taka við þcssari rækju fyrr en 24. apríl og reiknuðum ekki
með henni fyrr, en eftir að skipið kom hingað höfum við reynt að liðka til og nú er
svo komið að byrjað verður að skipa rækjunni upp á morgun, en alls eru þetta um
500 tonn, sem við kaupum af þeim núna,“ sagði Gísli Már Ólafsson, skrifstofu-
stjóri K. Jónssonar hf. á Akureyri, við blm. Mbl.
Stórt rússneskt birgðaskip hafði tíma, einkum vegna skorts á frysti-
þá legið á Pollinum á Akureyri frá
þvf á laugardag, en skipið, sem er
134 metra langt, fékk ekki bryggju-
pláss fyrr en seint 1 dag, auk þess
sem niðursuðuverksmiðjan átti 1
vissum erfiðleikum með að taka við
þessu magni fyrr en á umsömdum
geymslum. En að sögn Gísla Más
gerðu þeir ýmsar tilfæringar og hag-
ræðingu sem leysti þessi mál og á
morgun verður sem sagt skipað upp
500 tonnum af rækju, sem Niður-
suðuverksmiðja K. Jónssonar hf.
kaupir af Rússum. GBerg
Hafið lokkar og laðar
Þó viðfangsefni þessara ungu Hólmavíkurbúa sé aðeins tóm olíu-
tunna og gamall björgunarbátur uppi í fjöru verður að teljast
líklegt að viðfangsefni þeirra í framtíðinni verði stærri í sniðum,
því hafið lokkar og laðar.
Kafarar Landhelgisgæslunnar hefja störf á ný
Kafarar Landhelgisgæslunnar hafa nú aftur hafíð störf eftir að samningar tókust í launadeilu þeirra. Kafararnir
hafa að undnförnu verið við æfíngar undan Vatnsleysuströnd undir stjórn Þorvaldar Axelssonar yfírstýrimanns,
en meðfylgjandi mynd tók Helgi Hallvarðsson skipherra um borð í Oðni er kafararnir voru þar við æfíngar.
Afgangsorka Sjóefnavinnslunnar hf.:
Nægir 700 tonna fram-
leiðslu á eldislaxi á ári.
Vogum. 30. april.
SAMKVÆMT upplýsingum Mbl. mun
sú afgangsorka er verður til hjá Sjó-
efnavinnslunni hf. á Reykjanesi við
framleiðslu á 8.000 tonnum af salti,
vera nægjanleg laxeldisstöð með árs-
framleiðslu 700 tonn á ári.
A undanförnum mánuðum hefur
mikill áhugi verið fyrir því að reisa
fiskeldisstöðvar á Reykjanesi, og
hafa nokkrir aðilar haft samband
við Sjóefnavinnsluna hf. um kaup á
orku í þeim tilgangi. Það eru bæði
innlendir og erlendir aðilar sem
sýna þessu áhuga.
Finnbogi Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Sjóefnavinnslunnar
hf., sagði í samtali við fréttaritara
Mbl. að það vantaði ákvarðanatöku
um hve hratt yrði farið í uppbygg-
ingu verksmiðjunnar, svo hægt yrði
að segja til um hvað fyrirtækið væri
aflögufært um mikla orku. Þá sagði
hann að það tæki nokkra mánuði að
bora nýjar holur, og árangur kæmi
ef til vill ekki í ljós fyrr en í febrú-
ar/mars á næsta ári, þó byrjað yrði
strax. Þá sagði Finnbogi að það
þyrfti að verðleggja orkuna, og
ákveða með hvaða hætti hún yrði
seld, áður en hægt væri að svara
fyrirliggjandi fyrirspurnum.
E.G.