Morgunblaðið - 06.05.1984, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ1984
38
Afar sterk áhrif frá
V mardrengjakórnum
— segir Hemmi Gunn, frískur og fjörugur, um nýju plötuna sína
„ÞAÐ greip um sig mikil spenna í bransanum þegar það spurðist út að ég
væri að gera þessa plötu og sjálfur rokkkóngurinn, Bubbi Morthens, flýði af
landi brott þegar hún kom út,“ sagði Hemrai Gunn, er við spjölluðum við
hann um nýju plötuna hans, „Frískur og fjörugur". Platan ber nafn með
rentu, því þar er að finna ellefu bráðfjörug lög, og er þetta í fyrsta skipti sem
Hemmi syngur öll lögin á heilli breiðskífu, m.ö.o. fyrsta sólóplata Hemma,
eins og það er kallað á fagmálinu.
„Platan var tekin upp á upp-
tökuheimili Geimsteins við hin
ákjósanlegustu skilyrði, en þeir
hjá Geimsteini voru lengi búnir að
suða í mér að gera svona plötu,“
sagði Hemmi ennfremur. „Að-
dragandinn að þessu var nokkuð
langur, en á sínum tíma lét ég
plata mig út í að gaula með á
„Halastjörnunni" nokkur lög
ásamt fleirum, og einnig kom ég
við sögu á ævintýraplötu með lög-
um eftir Gylfa Ægisson. Sum
þessara laga náðu þokkalegum
vinsældum, eins og t.d. „Út á gólf-
ið“, „Fallerí fallera", og „Út á haf-
ið“, svo nokkuð sé nefnt, og það
var ákveðið að gera svona sóló-
plötu. Þetta er bara hugsað sem
„stuðplata" fyrst og fremst og að
fólk taki undir og hafi það huggu-
legt. Það er alls ekki verið að stíla
inn á milljónasta listaviðburðinn
á þessu ári.“
Um helstu áhrifavaldana sagði
Hemmi að hann hefði ungur orðið
fyrir sterkum áhrifum frá Vínar-
drengjakórnum vinalega: „Ég
kynntist strákunum svolítið þegar
ég dvaldi í Austurríki og varð
fyrir sterkum áhrifum. Eins hafði
Sigríöur Ella mikil áhrif á mig, en
hún var einmitt við nám í Austur-
ríki um svipað leyti. En það var
einmitt þarna í Austurriki sem ég
uppgötvaði að ég var á heimavelli
hvað sönginn snerti. Það togaðist
á í mér hvort ég ætti að fara í
lálandí umgæði
Vel byggð hús, þar sem gæði og hagkvæmni eru í fyrirrúmi eru
meira virði en önnur og hafa hærra endursöluverð.
Mikil vinna hefur því verið lögð í hönnun og frágang Aneby
einingahúsa, enda er það yfirlýst stefna framleiðenda að kaupendur
geri góð kaup, hvort heldur litið er til lengri eða skemmri tíma.
Það er
ekkert sparað í útveggina.
Mikið og gott timbur svo
naglar fái góða festu - og
einangrun sem stenst allar
prófanir. (Gerðu samanburð
á veggjum annarra fram-
leiðenda - þá sérðu hvað við erum
að tala um.) Ysta lag veggjanna er
fáanlegt hvort heldur vill; úr hleðslusteini
sem krefst lágmarks viðhalds og gefur hús-
unum sérstæðan svip eða með timburklæðningu.
Þrefalt einangrunargler er í gluggum, vandaðir innveggir, steinflísar
á þaki og fleiri atriði mætti nefna sem öll hafa það sameiginlegt að
vera hluti af vandaðri framleiðslu.
ATH: Aneby-hús eru afgreidd á ýmsum bygg-
ingarstigum.
Aneby-hús bjóöa yfir 50 gerðir húsa og gera tilboð
í sérteiknuð hús. Kynnið ykkur verö og gæöi Aneby-
husa. Það borgar sig.
ATH.: Það þarf aðeins kr. 50.000 til að staö-
festa pöntun á ANEBY-húsi.
ANEBY-hús eru samþykkt af Rannsóknar-
stofu byggingariðnaðarins og Brunamála-
stofnun ríkisins.
Hafið samband viö sölumenn okkar og fáið
nánari upplýsingar. Láttu drauminn rætast.
/4NEBPHUS
Söluumboð Eignamarkaðurinn
Hafnarstræti 20, 101 REYKJAVIK
Pósthólf 56
Sfmi 91-26933
VIDIÖUIM UMGÆÐI
EN FYRIR ÞAU ERU ANEBYHÚSIN ÞEKKTUST
" ’
■ 'a, • é : 7‘
«
i **'/■,%. -
tfcifg WSMWmM '''
.wéfy' mmm
u /y/
úifM*
* « m m u
mm-m-mm-A m » *
. i- ■■■>■" u
■■■ Y:
p,
UfX.V ■■■
r% - /,• ;■ y *
WK
»
söngnám eða halda áfram í fót-
boltanum. Svo sá ég þrælgóða bíó-
mynd með helstu strákunum í
„Scala" á Italíu og það fannst mér
allt saman koma kunnuglega fyrir
sjónir. Það má því segja að krók-
urinn hafi strax farið að beygjast
þarna úti í Austurríki og þetta er
afraksturinn af því og hlaut að
koma að þessu fyrr eða síðar."
Hljómplötuútgáfan Geimsteinn
gefur út þessa nýju sólóplötu
Hemma og um vinnsluna á henni
segir hann m.a.: „Það er vinur
minn Rúnar Júl. sem stendur að-
allega á bak við þetta og svo auð-
vitað Þórir Baldurs, sem sér um
allar útsetningar og megnið af
hljóðfæraleiknum, en auk hans
koma við sögu Bjössi Thor á gítar
og Rúnar Júl. á bassa. Helgi Pé,
hinn geðþekki frétta- og fræði-
maður, hjálpar mér við sönginn í
lagi Sigvalda Kaldalóns, „Þú eina
hjartans yndið mitt“. Annars eru
flest lögin eftir Gylfa Ægisson svo
og erlend lög með textum eftir
Þorstein Eggertsson, en í textum
sínum stílar hann einmitt inn á
þennan léttleika sem ætlunin var
að einkenndi þessa plötu. Svo má
nefna þarna eitt lag, sem hefur
sérstaka þýðingu fyrir mig per-
sónulega og kunningjar mínir
kannast sjálfsagt við, en það er
lagið „Aleinn og yfirgefinn", en
þetta lag hefur fylgt mér í gegnum
árin og ég hef oft sungið það í
góðra vina hópi, eins og félagar
mínir frá Verslunarskólaárunum
geta vitnað um.
Það hefur stundum verið sagt
að aðdáendur mínir séu aðallega
börn undir 10 ára aldri og konur,
sextíu ára og eldri, og myndirnar
á plötuumslaginu eru einmitt til
heiðurs þessum trygga hópi stuðn-
ingsmanna. En til að ná til fólks-
ins á milli tíu og sextíu ára, var
ákveðið að láta litprentað plakat
fylgja með plötunni, en þar er ég í
Burt Reynolds-stellingunni, en við
höfðum samráð um þessa stell-
ingu, ég og Burt, kunningi minn.
Að vísu er hann öllu loðnari á
bringunni, en ég vinn það upp með
nefinu. Svo er meiningin að fylgja
þessu eitthvað eftir á skemmtun-
um úti á landi í sumar og ég fer
m.a. mað Sumargleðinni í þeirra
árlegu reisu," sagði Hemmi, frísk-
ur og fjörugur að vanda.
Linda Rós Michaelsdóttir
Friðrik Sophusson
Almennur fundur Hvat-
ar um stöðu kvenna í
Sjálfstæðisflokknum
HVÖT, félag sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík, heldur almennan félags-
fund í Valhöll mánudaginn 7. maí kl.
20.30.
Fundarefni verður „Staða
kvenna í Sjálfstæðisflokknum". Á
sl. haust skipaði miðstjórn flokks-
ins nefnd undir forsæti Friðriks
Sophussonar, varaformanns Sjálf-
stæðisflokksins, sem fékk það
verkefni að kanna stöðu kvenna
innan Sjálfstæðisflokksins. Nefnd
þessi hefur nú lokið störfum og
munu niðurstöður hennar verða
kynntar á félagsfundi þessum.
Frummælendur verða Friðrik
Sophusson, formaður nefndarinn-
ar, og Linda Rós Michaelsdóttir,
kennari, sem sæti átti í nefndinni.
Sjálfstæðisfólk er hvatt til að fjöl-
menna og taka þátt í umræðum
um niðurstöður þessar. Fundar-
stjóri verður Birna Hrólfsdóttir.
Kaffiveitingar verða á fundinum.
HtogimliliiMh
Metsölublaó á hverjum degi!