Morgunblaðið - 06.05.1984, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAf 1984
39
Hjólað í þágu
fatlaðra barna
KVENNADEILD Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
gengst næstkomandi laugardag fyrir hjólreiðadegi og fjár-
söfnun til styrktar Dvalar- og
í Reykjadal í Mosfellssveit.
bekk grunnskólanna hjóla í
það ekki.
Munu börnin hefja fjár-
söfnun í upphafi þessarar
viku. Helga Jóhannsdóttir,
formaður stjórnar kvenna-
deildar SLF, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að mikil-
vægt væri að byggja upp að-
stöðu félagsins í Reykjadal,
þar sem augljós skortur væri
á möguleikum fatlaðra barna
til leikja og hvíldar í um-
hverfi, sem þeim hentaði. Því
héti deildin á vinsemd og að-
stoð almennings og treysti
því að börnunum yrði vel tek-
ið við fjársöfnunina.
Hjólreiðaleiðir hafa enn
ekki endanlega verið valdar
en börnin munu hjóla frá
; hvíldarheimili fatlaöra barna
Munu þá börn úr 4., 5. og 6.
þágu þeirra barna, sem geta
skólum sínum í Reykjavík,
Kópavogi og hugsanlega
Garðabæ klukkan 13.30 og
safnast saman á Lækjartorgi
um klukkan 14.30. Á Lækjar-
torgi verða útihátíðahöld, þar
sem Hornaflokkur Kópavogs
og Lúðrasveit Laugarnes-
skóla leika, Olla og AIli koma
í heimsókn og fimleikastúlk-
ur úr Gerplu leika listir sínar.
Auk þess verður boðið upp á
gosdrykki og sælgæti. Náin
samvinna verður höfð við
lögregluna og mun hún fylgja
börnunum frá viðkomandi
skólum á leið þeirra á Lækj-
artorg.
Kaffisamsæti
Snæfellinga
og Hnappdæla
SUNNUDAGINN 13. maí heldur
Félag Snæfellinga og Hnappdæla
árlegt kaffiboð sitt fyrir eldri hér-
aðsbúa, sem flutt hafa á höfuð-
borgarsvæðið. Að lokinni guðs-
þjónustu í Bústaðakirkju hefst
kaffisamsætið klukkan 15 í Fé-
lagsheimili Bústaðakirkju.
Fyrirlestur
um jarðfræði
MÁNUDAGINN 7. maí flytur
prófessor Brian Whalley frá Bel-
fast fyrirlestur um landmótum í
háfjöllum, og nefnist hann Hich
Mountain Geomorphology. Pró-
fessor Whalley tekur dæmi sín
mest úr fjöllum Afganistan, en
einnig hefur hann kannað land-
mótun hér á landi, í Alaska og
víðar. Fyrirlesturinn er á vegum
Jarðfræðafélags Islands. Hann
hefst kl. 20.30 í stofu 101, Lög-
bergi, Háskóla íslands.
Miklaholtshreppur:
Sannkallað vorveð-
ur undanfarna daga
Borg, Miklaholtshreppi, 2. maí.
UNDANFARANDI daga hefur verið
sannkallað vorveður, hitinn 6 til 8
stig flesta daga, en dálítil úrkoma
stundum. Gefur það manni góða von
um að vorið sé að koma, klaki virðist
vera lítill, sums staðar eru klaka-
lausir blettir i túnum. Ekki er unnt
að sjá ennþá hvort kal muni vera,
því að stórir skaflar eru þar sem
lautir eru, en ólíkur svipur er á öllu
nú eða á sama tíma í fyrra.
Vegir eru blautir og holóttir.
Veldur það auknum óþægindum
og kostnaði við flutninga á vörum
að og frá heimilum. Ekki hefur
það farið framhjá þeim, sem land-
búnað stunda, að köldum gusti
hefur andað til bænda frá sumum
þingmönnum, sem hæst gala nú í
þingsölum. Hvar er nú umhyggjan
fyrir þeim, sem hafa fengið bogið
bak af löngum vinnudegi? Mætti
sú rödd einhvern tíma heyrast,
þegar kjör bænda eru rædd.
Nýlega fundust 4 kindur
skammt frá Mýrdal í Kolbeins-
staðahreppi. Hafa þær gengið úti í
allan vetur og er útlit þeirra
furðugott, þótt oft hafi um þær
gustað. Þrjár kindanna voru frá
Mýrdal og ein frá Hraunsmúla.
Sauðburður mun víðast hvar hefj-
ast upp úr 10. maí. f gær buðu
félagar í Lionsklúbbi Hnappdæla
Biskup fékk
fyrsta silfur-
peninginn
í MYNDATEXTA á bls. 18 í
Morgunblaðinu á föstudag, þar
sem skýrt var frá landssöfnun
Lionsmanna til Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri, láð-
ist að geta þess, að Hörður
Svanbergsson, sem er með
biskupi Islands á myndinni, er
að afhenda honum fyrsta pen-
inginn af 30 silfurpeningum,
sem slegnir voru í tilefni söfn-
unarinnar og verða seldir til
ágóða fyrir hana. Hörður er
umdæmisstjóri umdæmis
109B, sem nær frá Akranesi
norður um og til Þórshafnar.
öllum í góðan mannfagnað, sem á
þeirra svæði eru 60 ára og eldri.
Var þessi samkoma í félagsheimil-
inu á Breiðabliki. Vel var veitt og
rausnarlega með ágætri dagskrá,
sem félagarnir stóðu að. Hafið þið
heila þökk fyrir ógleymanlega
stund.
- Páli
Úthafsrækjuveiðar
fyrir Norðurlandi:
Bannaðar
stærri skip-
um innan
ákveðinnar
línu
Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú
ákveðið að skipum 200 brúttórúm-
lestir að stærð og stærri verði óheim-
ilar rækjuveiðar innan 66. gráðu og
40. mínútu norðlægrar breiddar á
svæðinu frá Horni og austur að
Rauðanúpi.
í frétt frá ráðuneytinu segir
ennfremur, að vegna fyrirsjáan-
legrar fjölgunar báta á úthafs-
rækjuveiðum í sumar hafi þeir að-
ilar, sem þessar veiðar hafi stund-
að á undanförnum árum á smærri
bátum látið í ljósi ugg vegna mik-
illar ásóknar á nærliggjandi mið
fyrir Norðurlandi. Því hefði ráðu-
neytið ákveðið, að fenginni um-
sögn Fiskifélags íslands, að koma
til móts við þessa aðila og banna
stærri skipunum veiðar á upt-
ræddu svæði. Bannið tekur gildi
frá og með 15. maí næstkomandi.
Þá segir í frétt ráðuneytisins, að
þann 15. maí falli úr gildi leyfi til
úthafsrækjuveiða og þurfi þeir,
sem þær veiðar hyggist stunda
eftir þann tíma, að sækja um eða
endurnýja eldri umsóknir.
Metsölubkid ú hverjum degi!
Fjölbreytt vöruúrval
Vaskar, margar stærðir. Hillur fyrir geymslur, lagera og verslan- |
Blöndunartæki fyrir eldhús. ir, margar stærðir. Auðveld uppsetning.
Harðplast frá Perstorp.
H/F OFNASMIÐJAN
HÁTEIGSVEGI 7, S: 21220
SMIÐJUBÚÐIN
HÁTEIGSVEGI 7, S: 19562-21220